Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.09.2007, Qupperneq 40

Fréttablaðið - 04.09.2007, Qupperneq 40
FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA Magnaðasta spennumynd sumarsins MATT DAMON ER JASON BOURNE MBL www.SAMbio.is 575 8900 ÞRJÁR VIKUR Á TOPPNUM Í USA Ertu að fara að gifta þig? Þá viltu alls ekki lenda í honum!!! Drepfyndin gamanmynd með hinum eina sanna Robin Williams og ungstirninu Mandy Moore. S. 482 3007SELFOSSI KEFLAVÍK AKUREYRI ÁLFABAKKA DISTURBIA kl. 5:30 - 8 - 10:20 14 DISTURBIA kl. 5:30 - 8 - 10:20 LICENSE TO WED kl. 6 - 8 - 10:10 7 ASTRÓPÍÁ kl. 6 - 8 - 10:10 L RATATOUILLE M/- ENSKU TAL kl. 8:10 - 10:20 L RATATOUILLE M/- ÍSL TAL kl. 5:30 L TRANSFORMERS kl. 5:30 - 8 - 10:40 10 ASTRÓPÍÁ kl. 6:30 - 8:30 - 10:30 L LICENSE TO WED kl. 6 - 8 - 10:10 7 BOURNE ULTIMATUM kl. 5:40 - 8 - 10:20 14 KRINGLUNNI ASTRÓPÍÁ kl. 8 - 10 L RUSH HOUR 3 kl. 8 - 10 12 LICENSE TO WED kl. 8 7 RATATOUILLE M/- ÍSL TAL kl. 6 L ASTRÓPÍÁ kl. 6 - 8 L VIP BOURNE ULTIMATUM kl. 8 - 10:30 12 ASTRÓPÍA kl. 8 - 10 L DIGITAL Langmest sótta myndin á Íslandi í dag SÍMI 462 3500SÍMI 530 1919 SURFS UP ENSKT TAL kl. 4 - 6 - 8 - 10 BRETTIN UPP ÍSL. TAL kl. 4 - 6 BOURNE ULTIMATUM kl. 8 - 10.30 BOURNE ULTIMATUM LÚXUS kl. 5.30 - 8 - 10.30 THE SIMPSONS MOVIE ENSKT TAL kl. 4 - 10 THE SIMPSONS MOVIE ÍSL. TAL kl. 4 - 6 RUSH HOUR 3 kl. 6 - 8 -10.10 SÍMI 551 9000SÍMI 564 0000 MIÐASALA Á KL. 5.30 Away From Her / Die Falscher KL. 8 Away From Her / Sicko / Cocaine Cowb. KL. 10.30 Sicko / Shortbus / The Bridge EVENING kl.5.30 - 8 - 10.30 BRETTIN UPP ÍSL. TAL kl.6 SÝNINGARTÍMAR GRÆNA LJÓSSINS 14 12 14 12 BRETTIN UPP ÍSL. TAL kl. 6 DISTURBIA kl. 8 - 10.10 BOURNE ULTIMATUM kl. 8 - 10.10 RUSH HOUR 3 kl. 6 14 14 12 BRETTIN UPP ÍSL. TAL kl. 6 ASTRÓPÍA kl. 6 - 8 - 10.10 BOURNE ULTIMATUM kl. 5.30 - 8 - 10.30 RUSH HOUR 3 kl. 6 - 8 - 10 BECOMING JANE kl. 8 -10.30 LANDSLIÐ GRÍNISTA Í STÆRSTU ÍSLENSKU BÍÓMYND ÁRSINS SICKO með íslensku m texta AWAY FROM HER DAGSKRÁ OG MIÐASALA Á MIDI.IS Dramatísk ástarsaga í anda Notebook frá höfundi The Hours með úrvali stórleikara Hennar mesta leyndarmál var hennar mesta náðargáfa. !óíbí.rk045 Gildir á allar sýningar í Regnboganum merktar með rauðu - bara lúxus Sími: 553 2075 DISTURBIA kl. 8 og 10.20 14 BRETTIN UPP íslenskt tal kl. 6 L THE BOURNE ULTIMATUM kl. 5.40, 8 og 10 14 RUSH HOUR 3 kl. 8 12 RATATOUILLE íslenskt tal kl. 5.30 L LAUGARÁSBÍÓ - SÝNINGARTÍMAR www.laugarasbio.is - Miðasala á Það kom á óvart þegar tónleikarn- ir á laugardagskvöldið hófust með framlagi upphitunarlistamannsins M. Ward að um leið og ljósin voru kveikt stóð Norah sjálf þarna á sviðinu í gallabuxum og köflóttri skyrtu og söng með honum fyrsta lagið, Blue Bayou. Það hefðu lík- lega verið komnir fleiri í salinn ef menn hefðu átt von á þessu. Norah söng líka með honum þrjú næstu lög, en fór svo út af sviðinu og eftirlét þessum ágæta söngvara og gítarplokkara frá Oregon að klára upphitunarartiðið sitt. Tónleikarnir í Höllinni voru lokatónleikarnir í tónleikaferðinni sem Norah er búin að vera á með Handsome-bandinu meira og minna síðan nýja platan hennar Not Too Late kom út í ársbyrjun. Hún hóf dagskrána á hinu geysi- vinsæla Come Away With Me. Svo kom Wake Me Up og á eftir því Sun Doesn’t Like You. Uppistaðan í tónleikunum voru lög af Not Too Late. Hún spilaði a.m.k. tíu þeirra, en lög af fyrri plötunum fengu að fljóta með. Hljómsveitin The Handsome Band er fjögurra manna, skipuð þeim Lee Alexander bassaleikara, Andrew Borger trommuleikara, Adam Levy gítarleikara og Daru Oda sem syngur bakraddir og spilar á ýmis hljóðfæri þ.á.m. gítar, bassa og þverflautu. Norah sjálf fór svo á milli gítarsins, flyg- ilsins og rafmagnspíanósins. Tónlist Noruh Jones er einkar hljómfögur. Það hefur verið nostr- að við útsetningarnar þannig að öll hljóðfærin fá að njóta sín, hvort sem það er kassa- eða rafmagnsgítar, rafpíanó, flygill, kontrabassi, banjó eða sílófónn. Þegar falleg söngrödd Noruh bæt- ist svo við verður útkoman einhvers konar lúxus-popp með kántrí- og djassáhrifum. Allur hljóðfæraleikur var til fyrirmynd- ar á tónleikunum og hljómurinn var fínn. Það var hins vegar lítið brugðið frá útsetningunum á plöt- unum og ekki mikið um tilþrif eða innlifun í flutningnum þannig að dagskráin rann frekar átakalítið í gegn. Stemningin var ágæt. Norah fékk mikið klapp þegar hún hrós- aði „þessum frægu pulsum“ sem Íslendingar eru þekktir fyrir og líka þegar hún söng lagið My Dear Country, ein við flygilinn, en það lag lýsir þeirri djúpu sorg sem hún upplifði þegar úrslit síðustu forsetakosninga í Bandaríkjunum lágu fyrir. Norah tók eitt óvænt tökulag, lagið Oceans Of Noise eftir indie- kempurnar í Arcade Fire og undir lok tónleikanna kom M. Ward aftur upp á svið og tók með sveit- inni tvö síðustu lögin. Eftir hraust- legt uppklapp komu svo þrjú lög til viðbótar, endapunkturinn var lagið The Long Way Home. Ágæt- lega viðeigandi til að loka löngu tónleikaferðalagi. Á heildina litið voru þetta fínir tónleikar. Notalegasta sunnudags- kvöldstund. Ljúft lúxuspopp Noruh Jones Aðdáendur poppprinsessunnar Britney Spears bíða nú með önd- ina í hálsinum eftir að breska blaðið The Sun birti myndir af stúlkunni með glæsilegan trúlof- unarhring. Myndin náðist í Las Vegas þar sem poppdrottningin skemmti sér langt fram eftir nóttu með meintum elskhuga sínum, töframanninum Chris Angel. Sjónvarvottar sögðu að það hefði farið vel á með þeim og þau hefðu hagað sér eins og ást- fangnir unglingar. Britney hefur áður látið gamminn geisa í spilaborginni víðfrægu en hún giftist æskuvin- inum Jason Alexender þar. Britney stendur nú frammi fyrir erfiðu skilnaðarmáli en fyrrverandi eiginmaður hennar og barnsfaðir, Kevin Federline, hefur heldur betur látið hana hafa það óþvegið í fjölmiðlum og sakað hana um að vera óhæfa móður. Söngkonan unga rakar inn seðlum þrátt fyrir að hafa lítið sem ekkert gert annað en að hanga á ölstofum Bandaríkjanna og krefst Federline þess að fá sinn hluta af kökunni. Chris Angel hefur vakið mikla athygli fyrir galdra og nú bíður slúðurpressan bandaríska spennt eftir hvort honum hafi tekist að töfra sjálfa Britney Spears upp úr skónum. Britney sögð trúlofuð 2 fyrir 1 MasterCard korthafar fá 2 miða á verði eins á sérstakar forsýningar á morgun, kl. 20, í Laugarásbíói, Smárabíói, Sambíóunum Álfabakka og Keflavík og Borgarbíói Akureyri á morgun!

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.