Fréttablaðið - 04.09.2007, Page 48
Haft er fyrir satt að áreiðanlegt merki um að stjórnmálaafl sé
komið á villigötur sé þegar lista-
fólk fer að láta mjög að sér kveða
innan þess. Líkast til byggist þessi
skoðun á þeirri trú fólks að lista-
menn séu ekki alveg í takt við
raunveruleikann. Þeir séu hálf
vafasamt fólk sem ekki þekki
raunverulega atvinnuvegi lands-
ins og því stórvarasamir í umræðu
um stjórnmál og framkvæmdir. Ég
er íhaldssöm húsmóðir af lands-
byggðinni, búsett í Vesturbænum
og þarf því engum að koma á óvart
þótt ég kinki kolli þegar varhuga-
verðar lífsskoðanir bóhema (sem
er bara fínt orð yfir alkóhólista)
ber á góma.
sá ég eftir því að hafa farið
í hugvísindanám við Háskóla
Íslands. Ég taldi víst að bláköld
vísindin hefðu gert mig breiðari í
samfélagsumræðunni heldur en
þekking á heimspekikenningum
og bókmenntum. Hvílíkur endem-
is misskilningur sem það var. Sí og
æ sjáum við náttúruvísindamenn
snupraða og hunsaða.
á listafólki er til margra
hluta nytsamleg. Það sást afar vel
síðustu ár þegar umræðan „með
eða á móti Kárahnjúkum“ stóð sem
hæst; stuðningsmenn virkjunar-
innar vildu kveða niður umræðuna
á sem skemmstum tíma en jafn-
framt gera lítið úr andstæðingum
sínum. Þá hló ég innra með mér en
fljótlega þótti mér farið að kveða
við holan hljóm í umræðum. Ég
gerði mér einnig grein fyrir því að
þótt reynt væri að sannfæra fólk
um að aðeins listafólk og aðrir
froðusnakkar úr 101 væru útmál-
aðir sem einu andstæðingar fram-
kvæmdanna, var málið ekki svo
einfalt.
raunvísindin eru aftur
og aftur afgreidd sem skoðanir af
sveitarstjórnarmönnum með
gráðu í mannauðsstjórnun. Það
hlýtur að vera erfitt hlutskipti að
vera vísindamaður og eiga sífellt
þá hættu yfir sér að vera úthróp-
aður fjandmaður fólksins á lands-
byggðinni séu útreikningarnir
ráðamönnum ekki að skapi.
mín á orðræðu
valdamanna á póstmódernískum
tímum mun líkast til skila mér
lengra en áralangar rannsóknir á
nattúrunni.
Ómerkingar
HEKLA Laugavegi 172-174 · sími 590 5000 · www.hekla.is · hekla@hekla.is
Umboðsmenn HEKLU um land allt: Akureyri · Akranesi · Ísafirði · Reyðarfirði · Reykjanesbæ · Selfossi
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
0
7
-1
0
4
9
Volkswagen Golf Variant er grænn bíll
HEKLA greiðir fyrir kolefnisjöfnun allra nýrra Volkswagen-bíla í eitt ár.
Kolefnisjöfnun felst í því að binda samsvarandi magn gróðurhúsalofttegunda
og bíllinn gefur frá sér. Þetta gerum við með skógrækt og landgræðslu.
Ímyndaðu þér hvað það þýðir í farangri og innkaupapokum! Golf Variant er
glæsilegur, vel útbúinn og sniðinn að þörfum fjölskyldunnar.
Verð frá aðeins 2.390.000 kr.
Pláss fyrir 267 fótbolta
Nýr Golf Variant
–enn meira rými