Tíminn - 25.01.1981, Síða 4

Tíminn - 25.01.1981, Síða 4
Sunnudagur 25. janúar 1981. 4 liÍiiMiHí •••í spegli tímans.... Ný Sophia Loren? Ornella og Naike. Hér höfum viö gott tækifæri til aö viröa fyrir okkur 82.500.000 nkr. virði af fótleggjum. Ornella Muti er ekki nema 25 ára, en hún hefur nú þegar leikiö i 28 kvikmyndum og framleiöendur eru á þvi, að hennar biði álika glæsilegur ferill og Sophiu Loren. Orn- ella hóf leik i kvikmyndum aöeins 15ára aö aldri á Italiu og áöur en 2 ár voru liöin, var hún orðin ein þekktasta kvik- myndastjarna Itala. Nú býr hún i Kaliforniu meö 6 ára gamalli dóttur sinni, Naike. Ornella, sem er fráskilin, lýsir lifi þeirra mæðgna á þessa leiö: — Viö búum rétt fyrir utan Hollywood, þar sem við verðum ekki fyrir áhrifum af vitleysunni, leiöindunum og ástriöunum, sem tröllriða Hollywood. Reyndar var þaö ástriöuofsi, sem leiddi til hins skjóta frama Ornellu i Hollywood. Framleiöandi einn varö svo uppnuminn, er hann haföi oröiö vitni aö þvi er Ornella lék slagsmálaatriði i kvik- mynd, að hann réði hana á staðnum og stundinni til aö leika i mynd um Hvell-Geira. Ornella hefur áhyggjur af þvi, hvernig Naike muni farnast sem dóttur film- stjörnu. — Ég er ákveöin i þvi aö halda henni úr augsýn almennings. Ég kynntist þvi sjálf á Italiu, hvernig þaö er aö vera hundeltur sem fræg persóna, segtr hún. En ótrú- legt er aö Ornella, eigandi fótleggja, sem tryggðir eru á 5 milljónir sterlingspunda, geti faliö sig. Nafniö Naike vekur forvitni. Hvaöan er þaö komið og hvaö þýðir það? — Þetta er nafn á Indiánastúlku, en þaö er bara stutt siðan ég fann út hvaö þaö þýöir. Reyndar má segja, aö það eigi vel viö. Það þýöir nefnilega ,,sá, sem kemur óreglu á hlutina,” segir Ornella. Járnfrú úr plasti 1 pislarklefa i Nurnberg stóö lengi tæki sem frægt er undir heitinu Járnfrú. Pislartóliö var nýlega selt á uppboöi i London ogvar slegiö þýskum kaupanda fyrir off jár. Járnfrúin var notuö á þann hátt aö ótrúum eiginkonum var stungið inn i hana, en hún er eins og uppmjó tunna í laginu. Þá var lokað og göddum stungiö inn i göt á frúnni. Er þannig stillt til aö gaddarnir stingast inn i augu, brjóst, og kynfæri. Ekki var opnaö aftur fyrr en fórnarlambiö var látiö. Sérfræöingar i svona fræöum telja aö þessi pyntingaraöferö hafi verið ein- hver sú andstyggilegasta sem upp var fundin fyrir tækniöld. Margt manna var viöstatt uppboöiö á Járnfrúnni og þóttust margir hafa misst af góöum grip þegar hún var slegin hæst- bjóöanda. En frú kemur i frúar staö. Plastvóruframleiöandi nokkur, sem var viöstaddur uppboöiö, sá aö þarna var hægt aö græöa. Hann hóf aö framleiöa nákvæma eftirlikingu af Járnfrúnni og er nú unniðáþrem vöktum i verksmiöju hans viö framleiöslu á járnfrúm úr plasti. Gaddarnir fylgja ekki meö. Framleiö- andinn Brian Footer segir að viöskiptavinirnir vilji gjarnan frá gaddana lika og er nú i bigerö aö framleiöa þá úr gúmmii og láta fylgja meö þessari heimilisprýöi. Þeir sem kaupa eru af öllum stæröum og geröum þjóöfélagsins og eru hamingju- samir meö hve nauöalikar plastkerlingarnar eru fyrirmynd- inni frá Nurnberg. Með morgunkaífinu Upplýsingar — Nei, ég er ekki búinn aö káupa miöana. Þaö er ekki enn búiö aö segja mér hvert viö erum aö fara. — Ég hef borgaö út launin i 20 ár og i fyrsta skipti sem ég týni þeim, veröur þú ergilegur. — Hefuröu áhyggjur af einhverju? krossgáta 3492 krossgáta. Lárétt 1) Hár. 5) Stafur. 7) Dapurieiki. 9) Enn- fremur. 11) Ofug stafrófsröð. 12) Efni. 13) Gljúfur. 15) Veggur. 16) Heiður. 18) Geri skakkt. Lóðrétt 1) Óþrifna. 2) Matur. 3) Skst. 4) Fæða. 6) Biðji, 8) Utanhúss. 10) Landnámsmaður. 14) Sprænu. 15) Ris. 17) Tónn. Ráðning á gátu No. 3491. Lárétt 1) Karlar. 5) Sær. 7) Net. 9) Ker. 11) GG. 12) Tá. 13) Aga. 15) Fat. 16) Glæ. 18) Ónáðar. Lóðrétt 1) Kóngar. 2) RST. 3) Læ. 4) Ark. 6) Grát- ur. 8) Egg. 10) Eta. 14) Agn. 15) Fæð. 17) Lá. bridge Þróaöar spilaaöferðir eins og þvinganir og trompbrögð eru i sjálfu sér ekki erfið- ar. Oft þarf heldur ekki að hafa neitt fyrir þeim heldur mæta þær spilurunum á förn- um vegi. Noröur. S. AG54 H. AG103 T. G8 L. DG7 Vestur. S. 9763 H.97542 T. D L. 1032 Suður. S. K H. KD T. A109432 L. AK84 Austur. S. D1082 H. 86 T. K765 L.965 Suður spilaöi 6 tigla og fékk út lítiö hjarta. 6 grönd heföi veriö öruggari samningur, þar þarf að^ins tvisviningu i tigli, en i 6 tiglum þurfti aö ná i skottið á tiglunum. Suður byrjaði á að stinga upp hjartaás og hleypa tigulgosanum. Vestur fékk á drottningu og spilaöi spaöa sem suöur tók á ás i blindum. Siðan svinaöi hann tiguláttunni og þegar vestur henti hjarta var nauðsynlegt að ná trompbragði á austur. Til þess aö svo mætti veröa varö suður að stytta sig i trompinu svo hann yröi jafnlangur og austur. Hann trompaði þvi spaöa heim, fór inn i borð á laufgosa , og trompaði meiri spaða. Sföan tók hann ' hjartaköng, spilaði laufi á drottningu og ! staöan var þannig: S. 5 H. G10 ) T. - skiptir L. 7 S. D ekki H. - máli. T. K7 S. - H. - T. A10 L. AK L. 9 Suöur spilaöi hjartagosa úr boröi. Ef austur henti laufi eða spaöa henti suöur laufi en ef hann trompaði gat suöur tekiö trompið. Þetta er ekkert sérlega erfitt þegar menn kannast við þessa stööu.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.