Tíminn - 25.01.1981, Blaðsíða 9

Tíminn - 25.01.1981, Blaðsíða 9
Sunnudagur 25. janúar 1981. jj __________ Söngkonurnar Sigurveig Hjaitesteð og Margrét Eggertsdóttir syngja við undirleik Pálmars i Gaulverjabæjarkirkju á tuttugu ára aimæli kirkjukórsins. litil gamankvæði. Sviðið spannar sorg og gleði. Hver er hvatinn að öllu þessu? — Það er nú mest litil sönglög, sem ég hef samið. Það er kannski Óður íslands, við ljóð Rósu B. Blöndal, sem er stærsta tónverk- ið. Þaö er i kantötuformi. Svo get ég ekki neitað þvi, að sum lögin verða til við sérstakar aðstæður, eins og t.d. orgellag, sem varð til i sambandi við sjóslysið mikla, sem hér varð i innsiglingunni 1970. Ég hef nefnt þetta lag Boða- fall. Það segirsina sögu. Þetta er sorgarlag, en það vil ég taka fram, Stefán, að ég tel mig ekki vera tónskáld, þó að ég hafi feng- ist við þettá eins og margir aðrir. — Ég ætla nú ekki að deila við dómarann i þessu efni. En nú eru þáttaskil i þinu tónlistarlifi. Ný- komið er út SÖNGVASAFN, sem Arnesingafélagið i Reykjavik gefur út og hefur að geyma 36 af lögum þinum, handritað með þin- um eigin penna. Ert þú ekki ánægður með útgáfuna? — Jú, ég er Arnesingafélaginu mjög þakklátur, að af þessu gat orðið. Það er auðvitað alltaf vandi að velja lög i svona útgáfu. Ég valdi þann kostinn að hafa þetta svona nokkurs konar sýni- bók, þar sem fram kemur eitt- hvað úr flestum þeim lagaflokk- um, sem ég átti. — Sin ögnin af hverju? — Já, gott hjá þér — sin ögnin af hverju. Þvi miður hafa smá- prentvillur slæðzt með, og er það dálitill galli, þó ekki séu þær i lag- linunum. Þetta er i vissum lög- um, t.d. i laginu Send mér eld i anda, Nú blikar við sólarlag og i lagi, sem heitir Kvöld. Þar hefur fallið úr úrfellingarmerki. Von- andi finnur fólk þetta út, hvað þarna er ábótavant. 1 heild er ég ánægður með útgáfuna og er þakklátur öllum þeim, sem stuðl- uðu að þvi, að þessi bók kom út. Prestarnir koma og fara Nú ert þú búinn að stjórna kirkjukórum á Stokkseyri og i Gaulverjabæ i bráðum fjóra ára- tugi. Hvað hafa margir sóknar- prestar þjónað þessum söfnuðum á þessum tima? — Það eru þrir sóknarprestar, auk þeirra, sem leystu af á milli þess að prestar fóru og komu. Fjórði sóknarpresturinn kemur svo hingað til starfa næstu daga. — Segöu mér: Prestarnir koma og fara allir sömu leiðina vestur yfir heiði i ysinn og annrik- ið við Faxaflóa. Hvernig stendur á þvi, að þú unir þér hér alltaf á sama stað? Eru það ræturnar við æskustöðvarnar og umhverfið, sem veita þér lifsfyll- ingu, sem hinir hafa ekki fundið hér á þessum slóðum? — Þaðerrétt hjá þér, ræturnar við æskustöðvarnar og umhverfið skipta mig mestu máli. Sjómennirnir okkar eiga skiliö að búa við betra — Ert þú ánægður með þróun mála i menningarlegu og at- vinnulegu tilliti hér i byggðarlag- inu? — Mér finnst, að kauptúnin hér á ströndinni hafi orðið dálitið út- undan i þjóöfélaginu. Stundum heyrist talað um brú yfir ölfusá hjá Óseyrarnesi. Hún er ókomin, þessi brú, og það, sem verra er aö minum dómi: Ekki fást heldur, lendingarbætur. Sjómennirnir okkar eiga skilið að hafa betri að- stöðu en þeir hafa nú við vinnu sina. Hér er þó rekin allmyndar- leg útgerð, sem veitir mörgu fólki vinnu, jafnvel aðkomufólki, nokk- uð i stórum stil á sumum árstim- um. Ég er náttúrlega fyrst og fremst Stokkseyringur, en frem- ur finnst mér óeðlilegt, að Stokks- eyrar er alls ekki getið i Vega- handbókinni, og vegurinn, sem liggur að Eyrarbakkavegi og hér i gegnum plássið, er merktur Gaulverjabær, þar sem hann kemur af Eyrarbakkavegi austan við Litla-Hraun. — Hvað um félagsmálin? — Miðað við fyrri tima, þegar þau voru i mestum blóma, er lágt á þeim risið. Það er svo margt, sem glepur nú á timum, og svo vantar betri aðstöðu til félags- starfa. — En snúum aftur að lagasafn- inu. Nú tileinkar þú eiginkonu þinni eitt laga þinna i Söngva- safninu. Láttu mig fá i lokin fáein orð um fjölskyldu þina og fram- tiðarvonir. — Já, konan min er Guðrún Loftsdóttir frá Vestri-Hellum i Gaulverjabæjarhreppi, og við eigum þrjú börn, Guðrún hefur sungiö i kirkjukórnum i Gaul- verjabæ allan þann tima, sem ég hefi stjórnað honum. Guðrún er dóttir Helgu Guðlaugsdóttur og Lofts Andréssonar á Vestri-Hell- um. Loftur lést i fyrravetur en Helga stendur enn fyrir búi á Vestri-Hellum, mikil heiðurskona eins og hún á kyn til. Og svo spyrð þú um framtiðarvonir. Þvi er fljótsvarað: Það er min ósk og von, að öll góö tónlist megi vaxa og blómgast i héraðinu okkar, og min lokaorð skulu vera þessi: Verum minnug þess, sem skáldið sagði: Dýrast gaf oss djásn i heim drottinn lista, söngsins hreim. Svo mælti Pálmar Þ. Eyjólfsson, listamaðurinn sem leggur gull i lófa framtiðarinnar, — ann æsku- stöðvum sinum og finnur lifsfyll- ingu meðal fólksins, sem hann starfar með. Stefán Jasonarson. 9 Finnsk heimsfræg^ GÖNGVSKtÐi sem allir skíðagöngumenn þekkja A Jarvinen gönguskiðum hafa unnist 132 Olympiuverðlaun og 227 heimsverðlaun Gæðin mikil og verðið er hremt otrulegt. Fyrir born — og unglinga kr. 253.55 Fyrir fullorðna verð fra kr. 408.20 Fyrir ALLA f|olskvlduna. SPORTVAL lAUGAVEGI 116 - SIMAR 14390 & 26690

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.