Tíminn - 25.01.1981, Qupperneq 13

Tíminn - 25.01.1981, Qupperneq 13
13 Sunnudagur 25. janúar 1981. Jón Þ. Þór SKAK Ungveriar sigraðir Þeir, sem fylgst hafa meö við- burðum i skákheiminum á undanförnum árum hafa vafa- litið veitt þvi athygli að ýmis- legt hefur breytst á þeim vett- vangi sem annarsstaðar. Eitt af þvi sem miklum breytingum hefur tekið á skáksviðinu er fyrirkomulag skákkeppna. Fyrir nokkrum árum voru landskeppnir til dæmis tiðar og áttust þá oft við fjölmennar sveitir sterkra skákþjóða. Nú heyrist tiltölulega sjaldan af slikum keppnum og er ástæðan trúlega sU að skákmót ýmiskon- ar eru orðin miklu tiðari á siðustu árum en áður var og at- vinnumenn og hálf atvinnu- menn sem byggja lifsafkomu sina aö miklu eða öllu leyti á verðlaunum gefa sér ekki leng- ur tima til þess að tefla i lands- keppnum og öðrum slikum keppnum, sem gefa litið ða ekkiert i aðra hönd. Þetta er vel skiljanleg afstaða en engu að siður er nokkur eftirsjá að landskeppnunum. Þær voru oft stórskemmtilegar og margar gullfallegar skákir sáu þar dagsins ljós. Ekki heyra landskeppnir þó með öllu sögunni til og enn munu þær haldnar nokkrar á ári hverju, a.m.k. i Austur-Evrópu. Um miðjan október siðastliðinn fór þannig fram landskeppni Austur-Þjóðverja og Ungverja og var teflt á átta borðum, sex efstu borðin voru skipuð körl- um, 7. borðið var unglingaborö og hið 8. kvennaborð. Tefld var tvöföld umferð og fóru leikar svoaðÞjóðverjar sigruðu, hlutu 9 vinninga gegn 7 vinningum Ungverja. Ungverjar voru fjarri þvi að vera með sitt sterk- asta lið og vantaði til að mynda alla ungversku stórmeistarana I sveitina. Þjóðverjar tefldu aftur á móti fram-sinu sterkasta liði og höfðu alla sina titilmenn með að Uhlmann einum undanskild- um. Margar bráðskemmtilegar skákir voru tefldar á þessu móti og við skulum nú lita á eina þeirra. Hún var tefld á 2. borði I fyrri umferðinni. Hvitt: L. Vogt (A.-Þýskaland) Svart: A. Groszpeter (Ungverjal.) Sikileyjarvörn 1. e4 - c5 2. Rf3 - d6 3. d4 - cxd4 4. Rxd4 - Rf6 5. Rc3 - a6 6. Be2 (Þetta afbrigði hefur átt nokkrum vinsældum að fagna á undanförnum árum og er heimsmeistarinn Anatolij Karpov einn traustasti aðdá- andi þess). 6. - - e5 (Annar góður leikur er hér 6. - e6 og kæmi þá upp Schevening- en afbrigðiö). 7. Rb3 - Be7 8. 0-0 - 0-0 9. Khl (Karpov leikur hér yfirleitt 9. Bg5 en það er ekki hyggilegt að fylgja slóð heimsmeistarans of fast, skákir hans þekkja allir keppnismenn). 9. - - Be6 10. f4 - Dc7 (Að undanförnu hefur leikn- um 10. - exf4 oftar verið beitt i keppnum, en þessi stendur þó fyllilega fyrir sinu). 11. f5 - Bc4 12. a4 - Rbd7 13. a5 - Hfc8 (Annar möguleiki var hér 13.- b5). 14. Bxc4 - Dxc4 15. Df3 (Byrjanafræðinmælir með 15. Ha4, en þessi leikur er engu siðri). 15. - - d5!? (Þessi peösfórn er athyglis- verð, þótt hvitur fái betra tafl). 16. exd5 - Bb4 (Svartur fylgir ekki peðsfórn- inni eftir sem skyldi. Betra var 16. - e4 17. Ddl - Bb4, 18. Rd2 - Dc7,19. Rdxe4 - Rxe4, 20. Rxe4 - Dxc2 og svartur hefur spil fyrir peðið). 17. Rd2 (Til greina kom einnig 17. Ha4, en þessi leikur tryggir hvitum betri stööu, án þess að svartur fái færi á að flækja tafl- ið). 17. - - Dc7 18. Rdxe4 - Rxe4 19. Rxe4 - Dxc2 20. f6 (Nú fær hvltur vinnandi sókn). 20. - - g6 21. Be3 - Hc4 22. Rg5 (Hótar einfaldlega 23. Dh3). 22. - - h5 23. d6! - e4 (Eini leikurinn. Hvitur hótaði 24. Dd5, Dxb7, og Rxf7). 24. Df4 (Nú er svarti biskupinn á b4 lokaður frá vörn kóngsins og hvitur hótar sifellt Dh6 með ýmsum máttilbrigðum). 24. - - Rf8 (24. - Hf8 gekk ekki vegna 25. Re6 - fxe6, 26. Dh6 - Hf7, 27. Dxg6+ - Kf8, 28. Bh6+ - Ke8, 29. Dg8+ - Rf8, 30. Bxf8 - Hxf8, 31. Dxe6+ - Kd8, 32. De7 + o.sv.frv.) 25. Hadl - De2, 26. Rxf7 - Re6 (Eöa 26. - Kxf7, 27. Dh6 - Ke6, 28. Dg7 - Bxd6, 29. Dg8+ - Kd7, 30. Df7+ - Kc8, 31. De8+ - Kc7, 32. Bb6mát. Svartur yrði einnig mát eftir 30. - Kc6, 31. Dd5+ - Kc7, 32. Dxd6+ o.sv.frv.). 27. Dh6 - Hc2 28. Dxg6+og svartur gafst upp. Jón Þ. Þór Byggingartækni- fræðingur Ólafsvikurhreppur óskar eftir byggingar- tæknifræðingi til starfa. Umsóknarfrestur er til 10. febr. Nánari upplýsingar veitir sveitastióri i sima 93-6153 EGEBJEHG BAGGAVAGNINN BYLTING í B AGGAHIRÐIN GU ■¥■ Tvær stærðir, 130 og 90 bagga ★ sparar tíma og erfiði ★ er afkastamikili og auðveldur í notkun ★ einföld og traust dönsk framleiðsla ★ hefur farið sigurför um hin Norðurlöndin ★ mjög hagstætt verð ★ 1. árs frábær reynsla hérlendis Eigum fyrirliggjandi nokkra vagna af stærri gerð á nýkr. 19.545 (miðað við gengi 20.01.81) Verð á vögnum úr næstu sendingu, (miðað við gengi 20.01.81.): Stærri gerð: nýkr. 21.575.- IMinni gerð: nýkr. 17.020.- Sveinn Runólfsson landgræðslustj. Gunnarsholti segir: ,,Tveir vagnar af gerðinni Egebjerg voru notaðir i Gunnars- holti á siðastliðnu sumri og reyndust mjög vel. Með fyrri vagninum voru hirtir c.a. 20.000 baggar og kom engin bilun fram”. Aðalumboð: ROSKVA ólafsvöllum Skeiðum. S. 99-6541 og 91-12040. Sö/uumboð: Dragi s.f. Fjölnisgötu 29 Akureyri Sími 96-22466 0 HpMFnF IV Verkstæðistiakkar 1-20 tonna fó/ksbíla- fl og vörubílatjakkar ^ Póstsendum um /and a//t Bílavörubúðin FJÖÐRIN

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.