Tíminn - 25.01.1981, Síða 23

Tíminn - 25.01.1981, Síða 23
Sunnudagur 25. janúar 1981. 31 Nei, hann er ekki að leita að fimmkallinum sem hann týndi, þessi á mvndinni. Hins vegar er þetta einn þeirra ómissandi manna, sem Keykjavikurborg sendir á vettvang i snjóbvljum eða vatnagangi, til þess að forða neyðarástandi á götunum. Ef heppnin er með tekst bráð- lega að koma auga á „niöurfallsopið" við gangsléttarbrúnina og veita pollinum þeim arna noröur og niður. Nýjung hjá Neytendasamtökunum: Fréttablað með 13 mismunandi útsíður AB — Neytendasamtökin hafa fitjað upp á þeirri nýjung, aö gefa út fréttabréf samtakanna. Aður var alltaf gefið út eitt stórt og vandað Neytendablað, en nú mun hugmyndin jafnvel vera sú, að snúa sér meira að útgáfu þessara ódýru fréttabréfa, og reyna þá ef til vill að hafa útgáfu þeirra nokkuð tiða. Enn mun þó ekkert hafa verið endanlega ákveðið i þessu efni. Sú nýjung sem ef til vill vekur hvað mesta athygli i sambandi við fréttabréf þetta, er, að það eru hvorki meira né minna en 13 mis- munandi for- og baksiður á bréf- inu, allt eftir þvi i hvaða lands- hluta bréfinu er dreiít. Þetta kemur til af þvi, að íélagar Neyt- endasamtakanna á hverjum stað hafa tekið sig saman og unnið staðarefni á útsiður blaðsins, en innefni er svo hið almenna frétta- bréf Neytendasamtakanna. Þetta er skemmtileg nýjung, og verður eflaust til þess að mun fleiri landsmenn geta nú kynnst á- standi neytendamála i sinni heimabyggð mun betur en áður var. Af efni unn.u á hinum ýmsu stöðum má nefna samanburðar- kannanir á vörum i mismunandi verslunum. Það kemur sér sjálf- sagt vel fyrir marga að fá svo it- arlega lista um verð varanna og geta eftir lestur.inn gert upp við «ig hvar er hagkvæmast að versla. Af innefni fréttabréfsins má benda á grein um „Börn og hættuleg efni til heimilisnota”, grein Sigriðar Haraldsdóttur, „Heimilisbókhald, þaö borgar sig”, ávarp Reynis Ármannsson- ar um að fleiri virkra íélaga i Neytendasamtökunum sé þörf. Ályktun KÍ um bráðabirgðalög ríkisstjórnarinnar: Heildarstefna verði mótuð sem feli ekki í sér kjaraskerðingu FRl — Timanum hefur borist á- lyktun frá stjórn kennarasam- bands Islands um bráöabirgðalög rikisstjórnarinnar, en ályktunin var samþykkt samhljóða á stjórnarfundi Ki þann 21. jan. sl. og hljóðar svo: Bygginganefnd Útvarpshússins skipuð Hinn 19. þ.m. skipaði mennta- málaráðherra eftirtalda menn i byggingarnefnd Rikisútvarpsins: Vilhjálm Hjálmarsson, for- mann útvarpsráðs, Ólaf R. Einarsson, varaformann út- varpsráðs, Benedikt Bogason, verkfræðing, og Hörð Vilhjálms- son, framkvæmdastjóra, sem jafnframt var skipaður formaður nefndarinnar. Verkefni nefndarinnar er að hafa á hendi framkvæmdastjórn og yfirumsjón meö byggingu út- varpshúss fyrir starfsemi Rikis- útvarpsins. „Stjórn kennarasambands is- lands telur nú sem áður óeðlilegt að stjórnvöld gripi inn i nýgerða kjarasamninga, enda gefa kjara- samningar BSRB sist tilefni til þess. Bráðabirgðalöginfrá 3l.des. sl. munu valda um 7% kjaraskerð- ingu á timabilinu 1. mars-l. júni þótt draga kunni úr henni næstu verðbótatimabil með þvi að af- numin eru skerðingarákvæði svo- nefndra Ólafslaga en með afnámi þeirra er að visu nokkuð komið til móts viö kröfur launþegasamtak- anna. Þá mótmælir stjórn Ki ein- dregið þvi ákvæði bráöabirgða- laganna sem veldur skerðingu visitölubóta kauptaxta sem hærri eru en 7250 nýkr. á mánuði. Þótt margt bendi til þess að efnahags- ráðstafanir kunni að hamla gegn vexti verðbólgu næstu mánuði er ljóst, að hér er ekki um neina varanlega lausn efnahagsvand- ans að ræða. Þvi er skoraö á stjórnvöld að vinna þegar að þvi að móta heildarstefnu i þessum málum er nái til sem flestra þátta efnahagsmálanna og miðist við að kaupmáttur launa haldist ó- breyttur”. Viltu vinna Colt eins og Valgerdur? • Taktu jþátt I áskrifendagetraun Vísis • Allir, sem gerast áskrifendur Vísis í þessum mánudi geta unnið Vísis-Coltinn • Lika gömlu áskrif endumir •Vertu Vísis-áskrifandi • Áskriftarsími 86611 HURÐA- HLÍFAR EIR - MESSING - STÁL Hringið og við sendum pöntunarseðil með teikningum fyrir mðltöku. BLIKKVER BIIKKVER LJLJ selfossi Skeljabrekka 4 - 200 Kópavogur - Sími: 44040. Hrísmýri 2A - 802 Selfoss - Sími: 99-2040.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.