Tíminn - 28.01.1981, Blaðsíða 2

Tíminn - 28.01.1981, Blaðsíða 2
2 Miövikudagur 28. janúar 1981 Árið 1980 engu líkt á f asteignamarkaðinum HEI — ,/Ariö 1980 er engu likt á fasteignamark- aðinum". sögðu forstöðu- menn Fasteignamatsins á fundi með fréttamönnum í gær. Attu þeir þá við það, að verðbreytingar hafi veriðóróiegri en þeir hefðu kynnst s.l. 15 ár, hér á höfuðborgarsvæðinu. Stöðug þensla var á þess- um markaði allt frá því í nóvember 1978 —(t.d. hækkaði söluverðið um 71% frá okt. 1978 —sept 1979) — og þar til í mars 1980. i april segja þeir hjá Fasteignamatinu að verðið hafi lækkað um tæp 6% og siðan hafi óróleikinn varað frá einum mánuði til ann- ars. Annaö sem sagt var hafa ein- kennt markaöinn á s.l. ári er tregöa f sölu á atvinnuhUsnæöi á s.l. ári. Hinsvegar er verö bygg- ingarlóöa sagt hafa hækkaö mun meira en á ibúöarhúsnæöi. Af þvi er dregin sú ályktun aö skortur hafi veriö á byggingarlóöum á öllu höfuöborgarsvæöinu. Þrátt fyrir þann óstööugleika sem rikt hafi á fasteignamarkaö- inum á s.l.árieru greiöslukjör á 3. ársfjóröungi 1980 sögö hafa vériö meö þeim erfiðustu sem þekkst hafa. útborgunarhlutfall var þá aö meöaltali um 76,1% sem er rúmlega 5% hærra en slðari hluta árs 1978 þegar hin öra verðþensla hófst. Vextir af eftirstööva- skuldabréfum eru sagðir 18—20% á ári og bréfin oft til 5 ára. Og til aö gleöja fasteignasala svolftiö eftir erfiöleikana undan- fariö er rétt aö koma þvi á fram- færi, að forstjóri Fasteignamats- ins komst m.a. svo aö oröi: ,,Við höfum átt mjög góöa samvinnu viö fasteignasala á nýliönu ári”. Nýr vara- maður á Alþingi JSG — Brynjólfur Sveinbergsson, mjólkurbússtjóri á Hvamms- tanga, tók i gær sæti á alþingi i forföllum Ingólfs Guðnasonar, sem dvelur eriendis i opinberum erindagerðum. Brynjólfur er þriðji varamaöur Framsóknarflokksins i Noröur- landskjördæmi vestra. Hinir tveir fyrri varamenn, Bogi Sigur- björnsson, skattstjóri, og Jón Ingvi Ingvarsson, rafvirki, áttu ekki heimangegnt til þingsetu vegna anna. Brynjólfur Sveinbergsson hefur ekki setið á alþingi fyrr. Brynjólfur Sveinbergsson. Bráðabirgðalögin lögð fyrir Alþingi JSG — Frumvarp til laga ,,um ráðstafanir til viðnáms gegn veröbólgu”, eða um staðfestingu á bráðabirgðalögum rikisstjórn- arinnar frá þvi um áramótin, var lagt fram á alþingi i gær. Búist er við miklum umræðum um frumvarpiö, en likur eru á, aö Gunnar Thoroddsen, forsætisráð- herra, mæli fyrir þvi á fundi i efri deild I dag. Nýr forstjóri Norræna húss- ins kemur á sunnudag AM — Næstkomandi sunnudag verða framkvæmdastjóraskipti viö Norræna húsið, er Anne Sandelin kemur hingað tii lands og tekur við starfi af Erik Sönd- erholm, sem gegnt hefur starfi sl. fjögur og hálft ár. Erik Sönderholm mun hverfa að kennslustörfum við Kaup- mannahafnarháskóla sem áður en hann kom hér og heldur hann utan á föstudag. Hefur fjöldi manns komið að kveðja hann i Norræna húsinu að undanförnu. Frú Anne Sandelin er list- fræðingur og kemur hingað frá Finnlandi, þar sem hún var for- stjóri Kulturcentrum Hana- holmen. Hún er gift Islenskum manni, Borgari Garöarssyni, leikara. Framkvæmd manntalsins í Reykjavík: 1400 manns 121 mi hver ðstd fa- ð Kás — Nú cru ekki nema nokkrir dagar þar til aöalmanntal verður tekið i Reykjavik, eins og reyndar á öllu landinu, samkvæmt nýsett- i um lögum þar að lútandi. Mann- taliöer miðað við 31. jan. nk., sem er næsti laugardagur, en sjálf framkvæmdin veröur daginn eftir þ.e. sunnudaginn 1. febrúar. Þaö er Reykjavikurborg sem Hefur yfirumsjón með fram- kvæmd manntalsins i Reykjavik eins og lögin gera ráö fyrir. Borgarráð skipaöi i desember- mánuöi sl. þriggja manna nefnd, embættismanna, sem sjá á um framkvæmdina. í henni sitja: Gunnar Eydal, skrifstofustjóri borgarstjórnar, formaöur, Egg- ert Jónsson, borgarhagfræöingur og Geir Thorsteinsson, hagsýslu- stjóri borgarinnar. Nefndin réði siöan Stefán Reyni Kristinsson, viðskiptafræöing, til aö vinna að framkvædminni. Hófst undirbún- ingsvinna i desember sl., en sex til sjö starfsmenn borgarinnar hafa verið aö störfum frá þvi um miöjan janúar viö verkefniö. Skipulagi manntalsins i Reykjavik er þannig háttað, að borginni er skipt niður i 21 hverfi og verður hverfismiöstöö i grunn- skóla innan hvers hverfis. Hverju hverfi er siðan skipt aftur i telj- araumdæmi, sem alls veröa um 1230 i borginni. Hverfisstjórar verða kennarar úr Verslunar- skóla Islands og Menntaskólan- um viö Hamrahliö en úr þessum skólum koma flestir teljarar, en einnig hefur verið leitað til nem- enda úr Háskóla Islands, Fjöl- brautaskólanum i Breiöholti, Menntaskólanum viö Sund, Fóst- urskóla tslands og félaga úr Juni- or Chambier i Reykjavik og Kiw- anisklúbbnum Jöfra i Arbæjar- hverfi. Skólastjórar grunnskól- anna starfa einnig viö stjórn manntalsins, hver i sinum skóla. Allir þeir sem til hefur veriö leit- aö hafa tekiö mjög vel málaleitan um aðstoö og gott samstarf náöst við fyrirsvarsmenn þessara hópa. Áætlað er aö allt aö 1400 manns veröi aö störfum i Reykjavik viö framkvæmd manntalsins. I dag kl. 18 veröa fundir meö teljurunum i öllum hverfamiö- stöðvunum, þar sem þeim veröa veittar nánari upplýsingar um starfið og kennd útfylling eyöu- blaöa. Siðan fá teljarar i hendur þau gögn, sem þeir eiga að dreifa til ibúanna i sinu umdæmi. Enda þótt eyöublöðunum sé dreift á miövikudagskvöldi er al- menningi ráðlagt aö fylla þau ekki út fyrr en á föstudagskvöld eöa laugardag, enda veröur á föstudagskvöldiö leiöbeininga- þáttur i sjónvarpi sem auðvelda á fólki aö fylla út skýrsluna. Þessi þáttur verður siöan endurtekinn siödegis á laugardag. A sunnudag hefja teljarar starf kl.12.30 og ganga þá i hús, safna saman skýrslum og leiöbeina þeim og aöstoöa, sem þess óska. Einnig fylla teljarar þá út sér- stakt eyöublað fyrir hverja ibúö meö aðstoö heimilismanna. Mik- ilvægt er þvi aö einhver fulloröinn sé heima til að afhenda útfylltar einstaklingsskýrslur og veita telj- ara upplýsingar. Aö meöaltali fær hver teljari i sinn hlut um 25 ibúö- ir til aö heimsækja og færir á skrá tæplega 70 ibúa. Til samanburðar má geta þess aö viö manntalið 1960 komu álika margir einstakl- ingar i hlut hvers teljara i Reyka- vik en miklu færri ibúöir, enda hefur ibúðafjöldinn aukist um tæplega 80% en ibúafjöldinn aö- eins um nálægt 12% á þessu tima- bili. íbúar Reykjavikur eru hvattir til aö taka starfsmönnum mann- talsins vel og leysa greiðlega úr spurningum þeirra enda mun sá fróöleikur, sem aflaö veröur með manntalinu m.a. koma aö góöum notum og auövelda skipulagningu borgarinnar i framtiöinni. Heilalinurit fasteignamarkaöar- ins kölluðu þeir hjá Fasteigna- matinu þetta linurit i gamni. En þaö sýnir einmjtt þróunina i verö- breytingum fasteigna á höfuö- borgarsvæðinu frá einum mánuöi til annars, frá þvi i nóv. 1979 þar til I sept. 1980. 1 nóvember varö 9,4% hækkun, i des. aðeins 0,8%, i janúar 4,7% i febr. 4,4 og mars 8,5%. í april varö siöan 5,9% lækkun en siðan 11,1 hækkun i mai. í júni varð 4,4% hækkun en aftur 5,4% lækkun i júli. 1 ágúst varð svo 7,6% hækkun en aðeins 2,9% hækkun i september. Aurskriða féll á bæinn Lund i Lundarreykjadal: Tjónið skiptir tugmillj. g.kr. — skriðan tók með sér fjós, hlöðu og 13 gripi FRI — Skömmu eftir kl.9 i fyrrakvöld féll aurskiröa á gripahúsin á bænum Lundi I Lundarreykjadal. Hún sópaði með sér fjósi og hlööu bæjar- ins auk hesthúss, sem stóö viö gafl hlööunnar, þannig aö aö- eins gaflar þessara húsa standa eftir. I gripahúsunum var 21 grip- ur, þar af 13 mjólkandi kýr, en nú er ljóst að 11 af kúnum drápust og tveir hestar i þess- um hamförum. Bóndinn á bænum, Þorbjörn Gislason, sagöi i samtali viö blaðið aö ljóst væri aö tjóniö næmi tugum millj. gkr. en auk fyrrgreinds tjóns, skemmdist nokkuð af heyi og partur af túni. Þorbjörn sagöi aö vatna- vextir hefðu veriö miklir áöur en skriðan fór af staö, en hún kom úr hól sem stendur ofan við bæinn. Sneið úr honum rann af staö meö fyrrgreind- um afleiöingum. Heimamenn uröu varir viö aö vatn var byrjað að renna úr hólnum áöur en skriöan kom, en áttu alls ekki von á þeim ósköpum sem dundu yfir. Þorbjörn sagöi aö nú væri hann að vinna aö þvi aö koma heyjum sinum i hús og átti hann von á að þaö tækist fljót- lega. Hins Vegar er þaö mikið verk aö byggja gripahúsin upp á nýtt. íslenskir flug- virkjar til Lýbíu FRI — islenskir flugvirkjar munu gera við Fokker vélina sem hlekktist á i lendingu i Lýbiu i fyrri viku. Viögeröin fer fram i Trípoli. Flugvirkjarnir voru á leiö til Lýbiu til aö framkvæma á vél- inni skoöun og munu gera þaö samhliöa viðgerðinni. Nefhjól vélarinnar skaddað- ist er hún var i lendingu og rakst á misfellu á flugbraut- inni. Engin slys urðu á fólki og var vélinni flogiö til Tripoli eftir bráöabirgðaviögerö.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.