Tíminn - 28.01.1981, Blaðsíða 7

Tíminn - 28.01.1981, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 28. janúar 1981 !i ll l !l !11111 7 * Magnús Oskarsson, Sölvanesi: v 'JU' ■ V I___~ J B15nduvlrkjunarsv*4i4 Lónnt«*t* rt ^ mmm TillSgur um a*alverndarnva*i ft. O íf.’'.V V,'('"í. ."••tr***1 ’< Tillögur um virkjunarsvæði Blöndu og aðalverndarsvæði við ána. Blönduvirki un Margt hefur verið rætt og rit- að um fyrirhugaða virkjun Blöndu. Og er það að vonum, þarsem um störmál er að ræða. Sýnistsitt hverjum einsog geng- ur. Fáir í héraði munu þó vera alfarið á móti virkjun árinnar. Aftur á móti eru margir, þar á meðal landeigendur, er eiga upprekstur á Eyvindarstaða- og AuðkUluheiði. andvigir þeim virkjunarkosti, sem fullrann- sakaöur er. Benda þeir á, að hann hafi i för með sér vatns- miölun, sem færi um 60 ferkiló- metra af velgrónu heiðalandi i kaf. Mörgum finnst hins vegar gróðurskemmdirnar léttvægar borið saman við hagkvæmni virkjunarinnar og orkuna, er frá henni kemur. Reynt mun i þessu spjalli að brjóta til mergjar rökin með og á móti Bönduvirkjun. Einnig skal þess freistað að varpa nýju ljósi á þetta mál og tengja það þvi, sem er að gerast i umheim- inum i sambandi við mann- virkjagerð, atvinnustarfsemi og umhverfisvernd. Loks mun reynt að benda á lausn, er sem flestir geta sætt sig við. Er einhver andvígur virkjun? Þvi var haldiö fram hér að framan, aö fáir væru alfarið á móti virkjun Blöndu. Kemur þar margt til. Olia er þverrandi orkulind i heiminum og fer stöð- ugt hækkandi I veröi. Flestir viðurkenna þvi, að mikilvægt sé að auka innlenda orkuöflun enda fer eftirspurnin hraðvax- andi. Rökin gegn núverandi virkjunar- tilhögun Þeir, sem andvigir eru fram- komnum hugmyndum um Blönduvirkjun, setja fyrir sig, að vatnsmiðlunin spilli miklum gróðurlenum á afréttunum og ekki veröi grætt upp land i stað- inn á harðlendismelum og hraunum svo hátt yfir sjó. Yröu þessi spjöll þau mestu i sögu mannvirkjagerðar á Islandi. Fram kom á fundi um Blönduvirkjun i Húnaveri 7. desember s.l., að bestu skilyrðin til vatnsmiðlunar vegna virkj- ana væru einmitt i lægöum á há- lendinu, en svæði þessi eru mörg hver hin gróðursælustu á þessum slóðum. Fordæmið yrði þvi hrikalegt, væri þessi virkj- unarkostur valinn: og skiljan- legt, aö margir landeigendur séu tregir til að verða upphafs- menn að slikri þróun. Jafn- framt óttast margir, að fleira kunni aö fara forgörðum en landiö, sem beinlinis fer undir vatn. Hafa þeir bent á, að svæði umhverfis lónið geti orðið ónot- hæft til beitar vegna vatnssmit unar I jarðvegi. Þá hafa heyrst raddir um, að jarövegsstifla við ldcuvirki miðlunarlónsins geti reynst ótraust, þarsem hún yrði reist á mýri. Ennfremur hafa náttúrufræð- ingar látið I ljós, að kólnunar gætti á vorin hátt yfir sjávar- máli frá svo stóru stöðuvatni sem miðlunarlónið yröi, vegna þess að ís tæki seint af þvi. Kynni það að tefja fyrir gróðri. Aftur á móti hefði lónið áhrif til hlýinda að haustinu, en slikt kemur bændum ekki að notum, þvi að þeir nota heiðarnar að- eins hluta úr sumrinu: og hefir sá ti'mi verið styttur vegna gróðurverndarsjónarmiða. Raunar hafa margir bændur, sem gjörþekkja náttúruna á öll- um timum árs, sagt sér sjálfir, hver veðurfarsleg áhrif lónsins yrðu, hvaðsem liður umsögn Veðurstofu Islands þar að lút- andi. Spurningin er þvi aðeins, hve langt út frá sér gætir þess- arar kólnunar? Þvi veröur látið ósvarað hér hvort hún nær til byggða, enda hefir vist Veður- stofan fullyrt, að svo sé ekki. Virkjunin mun spilla veiði Þegar raktir eru ókostir Bönduvirkjunar, verður það trauölega gert án þess að minn- ast á veiðimálin. Miðlun á jökul- vatni um sum stöðuvötn og sumar bergvatnsár Auðkúlu- heiðar mun vafalitið spilla veiði Og ekki er loku fyrir þaö skotið, að minnkun á útstreymi hreins bergvatns til jökulárinnar Blöndu ásamt botnfalli við stiflugarða hafi skaðleg áhrif á lifriki hennar og þarmeð veið- ina. Spurningin um stóriðju Þegar rætt er um andstöðu við núverandi áform um virkjun Blöndu, verður ekki komist hjá þvi að minnast á erlenda stór- iðju í þvi sambandi. Þótt rikis- stjórnin hafi ekki á prjónunum fyrirætlanir um slika starfsemi - hérlendis svo vitaö sé, geta skjótt skipast veður i lofti, til að mynda við stjórnarskipti. Og viða veröur vart við áhuga i þessa átt og það á æöstu stöðum. A hinn bóginn eru margir land- eigendur, er eiga upprekstur á AuðkUlu- og Eyvindarstaða- heiði, andvigir erlendri stór- iðju: telja hana skaðlega fyrir Islenskt sjálfstæði og efnahags- lif. Kom það meðal annars fram á fundinum i Húnaveri. Yrði það reiðarslag fyrir þá, ef þeirra land væri notað til að greiða fyrir sliku. Rökin með núverandi virkjunar- tillögu Þeir, sem meðmæltir eru framkomnum hugmyndum um virkjun Blöndu, hafa fært mý- mörg rök fyrir máli sinu. Skulu þau nú rakin, en áöur hefur verið bent á nauðsyn þess að auka innlenda orkuöflun. Virkj- unin er talin mjög hagkvæm og yrði utan eldvirkra svæða. Virkjunin er vel staösett miöað við byggðalinu og aörar dreifi- linur, svo sem Vesturlinu, er liggur úr Hrútafjarðarbotni. Frá henni má þvi dreifa orku mjög viða um landiö. Ennfremur telja margir for- mælendur virkjunarinnar i héraöi hana af þeirri stærö, að ekki þurfi aö risa erlent stór- iöjuver samhliöa henni til þess að nýta orkuna frá henni aö hluta. Það er álitiö, að miðlunarlón virkjunarinnar auki öryggi og afkastagetu raforkukerfisins. Einnig hefir þvi verið haldið fram, aö Blönduvirkjun stuðlaði aö aukinni iðnþróun á Norður- landi: og er full þörf á þvi sér i lagi á Noröurlandi vestra, en þar hefir vantað atvinnutæki- færi fyrir ungt fólk, sem er að koma á vinnumarkaðinn. Hafa þvi margir, sem ella hefðu kosið aö vera heima, flutt burt af svæðinu. Tregða á umræðu og viðtækari rannsóknum Formælendur virkjunar hafa löngum verð tregir til að ræða hugsanlegar breytingar á hönn- un hennar til þess að forða landsspjöllum. Hafa þeir borið við minni hagkvæmni og tima- leysi, aö eins fljótt og hægt er verði að ákveöa næstu stór- virkjun, svo að ekki verði hörg- ull á rafmagni næstu árin. Virkjunarmenn ýmsir á Noröurlandi hafa auk þess ótt- ast, að slikar umræður og athuganir hefðu i för með sér að næstu stórvirkjun yrði valinn staður utan fjóðungsins, og hefði þaö slæm áhrif á nýsköpun atvinnulifsins i honum. Einu umræðurnar, sem virkj- unarmenn hafa viljað ljá máls á, eru um bætur handa landeig- endum sökum landspjalla. Hefir I þvi sambandi helst verið minnst á uppgræöslu i nánd við lónið eöa annars staöar, þar sem gróöurskilyröi eru talin betri: — peninga og rafmagn. En mjög hefir dregið úr vilja stjórnvalda á að „bæta” bænd- um landmissinn með rafmagni. Þá hafa komið fram hug- myndir um, aö bændur fengju bætur á meöan virkjunin stæði og þeir áskildu sér rétt til bóta vegna ófyrirsjáanlegra óhappa, sem virkjunin sjálf ellegar gerð hennar ylli. Hinsvegar hafa sumir andstæðingar núverandi virkjunarhugmynda haldið þvi fram, að landiö, sem færi undir lónið, væri óbætanlegt. Velmegunin getur tortímt okkur Þegar reynt er að kryfja Blöndumálið, sakar ekki að lita til fleiri en einnar áttar af sjónarhóli viðsýni. Hvað hefur gerst i' hinum iðnvædda heimi varðandi mannvirkjagerð og at- vinnurekstur? Vitaö er, að efnaleg lifskjör eru hvergi betri en einmitt i þeim löndum, sem hafa tekið tæknina i þjónustu sina. En böggull fylgir skammrifi. Þessi efnalega velmegun hefir valdið tjóni á umhverfi okkar — svo miklu að heilsu og lifi manna er hætta búin i stórum hlutum heims, ef þróuninni verður ekki snUið við að þessu leyti. Ýmsar ógeöfelldar stað- reyndir blasa við. Þrátt fyrir allsnægtir er náttúrunni og gæö- um hennar sjaldan hlift i ásókn fölks I meiri efni en það hefir þörf fyrir. Agirnd nægtanna getur haft rányrkju I för með sér engu aö siður en fátæktin. Gróðri er eytt. Dýrategundir eru ofnýttar eða þeim útrýmt með öllu. Verðmæt efni, sem ekki endurnýjast I náttúrunni, eru meðfram notuð til fram- leiðslu á einskisnýtum eða jafn- vel skaölegum hlutum. Mengun spillir landi, lofti, ferskvatni og sjó. En lífið þarf einmitt grænan gróður, hreint vatn og loft til þess að þrifast. Og hvaö gagnar okkur þá að eiga virkjanir og verksmiðjur, sem mala gull, ef höggviö er aö rótum llfstrésins sjálfs? Umhverfis- vernd er lífsnauðsyn Skilningur fólks á gildi um- hverfisverndar heíir vaxið mjög hin siðari ár: og mann- virki eru nú viða hönnuð með það fyrir augum, að þau fari vel i umhverfi sinu og spilii þvi ekki. Við værum þvi að dómi margra, sem eru andvigir nú- verandi hugmyndum um Blönduvirkjun, að viðhalda öfugþróun, er hefir gengið sér til húðar annars staðar, ef þær kæmu til framkvæmda hér. Er undirritaður sammála þessari skoðun og álitur þar að auki, að Blanda verði seint beisluð, meðan umtalsverður hópur fólks i héraði er andvigur virkj- unartilhöguninni. Hinsvegar er bilið milli deilu- aðila alls ekki óbrúanlegt, enda fáir á móti virkjun i sjálfu sér eins og fram kom hér á undan. Þvi hvetur undirritaður til þess eindregið, að deiluaðilar i héraði setjist niður og reyni að ná samkomulagi sin i milli, áður en þessi mál veröa rædd við rikisvaldið. Enníremur gæti hugsast, að fjórðungssamband- ið ætti hlut aðslikri lausn ásamt heimamönnum. Væri þá jafnframt örðugra fyrir rikisvaldið að setja sig á móti óskum heimafólks ef þess háttar breiðfylking skapaðist. Einnig er á það að benda, að orkuráðherrann hefir unnið mjög vel að umhverfismálum, og ekki ætti það að tefja fram- gang þessa máls nema siður væri. 0. Hagkvæm- asta lausnin Undirritaður á þá ósk handa þeim, sem semja um þessi mál fyrir landeigendur að þeir beiti sér fyrir meiri rannsóknum á svæðinu, en tilgangurinn með þeim ætti einkum að vera sá, að breyta vatnsmiðluninni eða færa hana til með þaö íyrir aug- um að þyrma gróðri. Kæmu slikar breytingar vafalaust eitt- hvað niður á hagkvæmni virkj- unarinnar, en ættu þó aö vinnast upp með minni bótagreiðslum að einhverju leyti. Og ekki má gleyma, að lika er óhagkvæmt að spilla náttúr- unni, ef lifsskilyrði komandi kynslóða eiga aö vera þau sömu og þau eru nú eða batna. Og ljóst má vera, að ílest mann- virki hljóta að verða dýrari en ella, ef góð sambúö við náttúru landsins á að sitja i íyrirrúmi. Stórfram- kvæmdir geta valdið atvinnuleysi Ekki er úr vegi, ef samkomu- lag tækist um virkjun, að rikið aðstoði við að koma á fót nýjum atvinnugreinum á Norðurlandi vestra, svo að ekki skapaðist at- vinnuleysi að loknum fram- kvæmdum við Blöndu. Hefir slikt viljað brenna við á Suður- landi, þarsem stórframkvæmd- ir hafa átt sér stað. Lokaorð Vonandi verður Blanda virkj- uðá „sem hagkvæmastan hátt” i viðari merkingu þess orðs. Með þvi vinnst a.m.k. tvennt. Landsmenn fá meiri raforku. Gott fordæmi fæst fyrir þvi hvernig á að standa að við- kvæmum stórframkvæmdum, er snerta bæði land og þjóð.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.