Tíminn - 28.01.1981, Qupperneq 13
Miövikudagur 28. janúar 1981
17
Félagslíf
Kvenfélag Langholtssóknar
boöar til aöalfundar þriöjudag-
inn 3. feb. kl. 20.30.
Venjuleg aðalfundarstörf. Um-
ræöur um ár fatlaöra 1981.
Kaffiveitingar. Stjórnin.
,,Opið hús”
Skemmtanir fyrir þroskahefta i
Þróttheimum við Sæviöarsund
(Félagsmiöstöö Æskulýðsráös)
til vors 1981.
Laugardaginn 31. janúar kl. 15-
18.
Kvenfélag Frikirkjusafnaðarins
i Reykjavik heldur sitt árlega
spila- og skemmtikvöld fimmtu-
daginn 29,þ.m. kl. 20:30 að Hótel
Sögu Lækjarhvammi og er þaö
fyrir allt safnaðarfólk og gesti
þeirra. Næsti félagsfundur
Kvenfélagsins verður mánu-
daginn 2. febrúar i Iðnó uppi.
Hvitabandskonur halda aðal-
fund sinn miðvikudaginn 28.
janúar kl. 20 að Hallveigarstöð-
um. Venjuleg aðalfundarstörf,
myndasýning.
Ys og þys hjá Herra-
nótt.
Föstudagskvöldið 30. jan.
frumsýnir Herranótt, leikfélag
Menntaskólans i Reykjavik,
gamanleikinn Ys og þys út af
engueftir William Shakespeare,
i þýðingu Helga Hálfdánar-
sonar. Leikstjóri er Andrés
Sigurvinsson sem meðal annars
hefur orðið kunnur fyrir upp-
setningu sina á Sköllóttu Söng-
konunni i Menntaskólanum við
Hamrahlið i fyrra. Leikendur
erumilli tuttugu og þrjátiu tals-
ins og eru þeir úr hinum ýmsu
bekkjum skólans.
Leikritið var þýtt fyrir u.þ.b.
10 árum fyrir Kennaraskóla Is-
lands og mun það vera i eina
skiptið sem það hefur verið sýnt
hér á landi.
Sýningar verða sem hér
segir:
30. jan. frumsýning
1. feb. 2. sýning
2. feb. 3. sýning
3. feb. 4. sýning
4. feb. 5. sýning
Þegar er uppselt á fyrstu
þrjár sýningarnar. Miðapant-
anir eru i sima 22676 milli kl. 17
og 19 alla virka daga. Miðasala
er i Casa Nova nýbyggingu
M.R.
Ýmis/egt
Skiðalyftur i Bláfjöllum. Uppl. i
simsvara 25166-25582.
0
STYRKTARFÉLAG
LAMAÐRA
OG FATLAÐRA
Námskeiö i frjálsri
tjáningu fyrir
hreyfihömluð börn
Styrktarfélag lamaðra og
fatlaöra efnir til námskeiðs i
frjálsri tjáningu fyrir hreyfi-
hömluð börn á aldrinum 10-16
ára sem hefst i næsta mánuði.
Námskeiðið er haldið i sam-
starfi við Námsflokka Reykja-
vikur, en kennari veröur Guð-
mundur Magnússon leikari.
Námskeiðiö fer fram 1 Sjálfs-
bjargarhúsinu að Hátúni 12 og
er áformaö aö það hefjist
fimmtudaginn 5. febrúar kl.
17.30. — Siöan mun það veröa á
hverjum fimmtudegi á sama
staö og tfma i febr.-mars og
april.
A námskeiöinu fer fram
kennsla i framsögn, upplesti,
frjálsri leikrænni tjáningu,
spuna og slökun. Þátttökugjald
er kr. 25.00.
Aðstandendur þeirra barna,
sem áhuga hafa á að taka þátt i
námskeiðinu, eru beðnir að hafa
samband við Styrktarfélag
lamaöra og fatlaðra sem fyrst
og eigi siðar en um n.k. mán-
aðamót, i sima 84560 og 84551.
Námskeiö eins og það sem hér
um ræðir getur verið mjög
gagnlegt og þroskandi og hjálp-
aö hinum fötluöu börnum til að
yfirstiga ýmsa erfiðleika.
Æskan.
Nýlega er komið út I. tölublað
82. árgangs Æskunnar. Meðal
efnis má nefna: Alþjóðaár fatl-
aðra 1981, eftir Theodor A. Jóns-
son, formann Sjálfsbjargar, Sá
rauðhærði og ég, eftir Jóhann
Pétur Sveinsson, Snjókallar,
saga eftir HA Jan, Kvöldsögur
Æskunnar: Pétur og úlfurinn,
'Þegar Pétur vill ekki sofa,
Töframaöurinn, Snorri Sturlu-
son, Náttfuglinn, eftir Ursula
Wölfei, Jermias harmagrátur,
Charles Dickens, Draumur lit-
anna, ævintýri, Irisaklóm, Þjóð
saga, Tveir unglingar á Alþjóö-
legri listahátið I Búlgariu,
Dúfan min góða, eftir Unni
Jörgundsdóttir, Val sem engan
svikur, eftir Mjöll Matthias-
dóttur. Við kynnum: Hákon
Bjarnason og Sigfús Halldórs-
son, Litla hetjan, ævintýri,
Skátaopnan: Alþjóðadagurinn,
Skátalögin, Baden-Powell hefur
sagt, Skfðaferðin Sleðarennsli,
Fjölskylduþáttur i umsjá
Kirkjumálanefndar Bandalags
kvenna f Reykjavik: Áramót,
eftir Vigdisi Einarsdóttur, Hann
hefði getað fengið I. verðlaun
Arnað heilla
Jörð til sölu
Jörðin Hænuvik-Ytri og Hænuvik-1 nnri
eru tii sölu og ábúðar frá næstu fardögum.
Nánari upplýsingar gefur ábúandi i sima
um Patreksfjörð.
Ferðalög
Útivistarferðir
Flúðir — Hrunamannahreppur
á föstudagskvöld. Gób gisting,
hitapottar. Gönguferðir, kvöld-
vaka, þorrablót. Fararstj. Jón I.
Bjarnason. Farseðlar á skrifst.
Lækjarg. 6A simi 14606.
Útivist
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson á
Skagaströnd er sjötugur i dag.
Hann hefur gegnt prestsstarfi
þar i fjörtiu ár og er nú prófast-
ur i Húnavatnsþingi.
Séra Pétur er Reykvikingur
að uppruna, lauk stúdentsprófi
utan skóla árið 1933 og kandi-
datsprófi i guðfræðum fimm
árum siðar.
Hann lauk kennaraprófi og
var einn vetur við kennslu suður
i Garði, áður en hann var
kvaddur til prestsstarfa að
Höskuldsstöðum á Skagaströnd
árið 1940. Þessum sömu söfn-
uðum hefur hann siðan þjónað,
fram á þennan dag, hin seinni ár
með búsetu i Skagastrandar-
kauptúni.
Séra Pétur er kvæntur Dóm-
hildi Jónsdóttur húsmær-ða
kennara.
HAMRABORG 7, 202 KOPAVOGUR,