Tíminn - 30.01.1981, Síða 3
Föstudagur 30. janúar 1981
3
Verður „eldhúsdögum” fækkað á Alþingi?:
„llmræður utan dagskrár hafa
sprengt starfsrammann”
— segir í tillögu Benedikts Gröndal
JSG — „Enda þótt umræöur ut-
an dagskrár gegni mikilvægu
hlutverki, er ekki stafur um þær
i þingsköpum, heldur eru þær
algerlega á valdi forseta. Hefur
þeim oft reynst erfitt að hemja
ræðutima og þessar umræður
hafa sprengt starfsramma
þingsins.”
bannig segir i greinargerð
með frumvarpi sem Benedikt
Gröndal hefur lagt fram á
Alþingi um breytingu á þing-
sköpum. 1 frumvarpinu er fjall-
að um þingsályktunartillögur,
fyrirspurnir og umræður utan
dagskrár, sem Benedikt finnst
hafa „vaxið mjög að fyrirferð i
þingstörfum,” og „sem mörg-
um hefur fundist tefja fyrir lög-
gjafarstarfinu, höfuðverkefni
þingsins”.
í frumvarpinu er þvi lagt til
að meðferð og umræðum um
þingsályktunartillögur og fyrir-
spurnir verði settar mun
þrengri skorður en verið hefur,
og að ræðutimi utan dagskrár
verði takmarkaður. Þannig
verði umræðum um þingsálykt-
unartillögur, aðrar en þær sem
snerta sQórnskipan, utanríkis
eða varnarmál, eöa staðfest-
ingu á framkvæmdaáætlunum,
þannig að einungis flutnings-
maður fái 10 minútna ræðutima,
áður en tillögunum er visað til
nefndar, en aðrir fái ekki að
tala, en þegar tillögur koma frá
nefnd fái flutningsmaður 5
minútur, en aðrir 3 minútur.
Við umræður um fyrirspurnir
fái aðeins fyrirspyrjandi og ráð-
herra að taka til máls, tvisvar
hvor, og þá i 5 minútur, nema
hvað ráðherra fen^i 10 minútur
til fyrra andsvars'.
Um • utandagskrár umræður
fengju ráðherra og framsögu-
maður að tala tvisvar, i tiu
minútur og fimm minútur, en
aðrir þingmenn i 3 þrjár minút-
ur tvisvar. Þess má geta að með
þessum reglum væri hugsanlegt
ef allir þingmenn notfærðu sér
rétt sinn til hins itrasta, að um-
ræöur stæðu lengst i sex klukku-
stundir og tuttugu minútur.
Eins og nú er þá gætu umræð-
urnar staðið óendanlega.
Alafoss eyk-
ur framleiðsl-
una verulega
— Annaöi ekki nærri því eftirspurn
á s.1. ári
Hluti af setningartækjunum er þegar kominn upp og nemendur byrjaöir aö æfa sig á þeim.
Timamynd Róbert.
Prentiðnaðardeild Iðnskólans fær ný tæki:
„Gj örbyldng á
kennslu i deildinni”
— segir Óli V. Einarsson deildarstjóri prentiðnaðardeildar
FRI — Upp úr næstu mánaöamót-
um mun prentiðnaðardeild Iön-
skóians i Reykjavik fá nýjustu
tækni sem til eru i prentiönaöi en
þaö er vél, meö innskriftarboröi
og tölvuskermi, sem hægt er aö
brjóta um i, til dæmis dagblöð, en
vélin byggir m.a. á leisargeislum.
Auk þess eru nú komin upp i
deildinni hluti af prenttækjum
sem keypt voru af Morgunblað-
inu.
— Þessi tæki munu valda gjör-
byltingu i kennslu hér i deildinni
en með þeim hverfur blýið, og
þau gera okkur kleift að fylgjast
vel með timanum, á þessu sviði,
sagði Óli V. Einarsson deildar-
stjóri prentiðnaðardeildar Iðn-
skólans. „Við erum nú að byrja
aö setja upp ýmiss konar prent-
tæki, setningarvélar og fleira,
sem við höfum keypt frá Morgun-
blaðinu, þannig aö þessi mál eru
mikið f deiglunni hjá okkur.
Áður var aðeins ein setningar-
vél i deildinni þannig að ekki er of
mikið sagt, að tala um gjörbylt-
ingu i þessum efnum.
Þess má einnig geta, að prent-
smiðjan EDDA mun fá sams kon-
ar tæki, og mun uppsetning á
þeim þar sennilega hejast
snemma i næsta mánuði.
HEI — „A sl. ári höföum viö ekki
nærri þvi undan aö framleiða þaö
sem við hefðum getað selt og viö
sjáum ekki fram á annað en
markaðurinn eigi ennþá eftir aö
aukast”, sagöi Guöjón Hjartar-
son, verksmiöjustjóri Álafoss i
samtaii i gær. Sérstaklega sagöi
hann mikla aukningu i útflutningi
á fatnaöi úr prjónavoð.
Til þess að minnka eitthvað bil-
ið á milli framleiðslu og eftir-
spurnar er nú unnið að um 2.000
fermetra viðbyggingu við verk-
smiðjuna á Álafossi, sem á að
vera lokið i júni nk. Bætt hefur
verið við nýrri kembivélasam-
stæðu og spóluvélum, sem eiga að
gefa um 18% aukningu á garn-
framleiðslu verksmiðjunnar, en
prjónavoðirnar eru að mestu unn-
ar úr garni sem framleitt er á
staðnum. Auk þess sagði Guðjón,
að stækka ætti prjónastofuna.
Þá hyggst Alafoss taka upp þá
nýjung, aðsniða allan fatnaðinn á
staönum og senda hann siðan
sniðinn til saumastofanna úti á
landi. En til þessa hefur fatnaður-
inn verið sniðinn á hverjum stað.
Þetta sagði hann bæði gefa tæki-
færi til að nota betri vélakost við
sniðninguna, auk þess að með þvi
að sniða voðina beint af prjóna-
stofunni eigi að vera hægt að
prjóna hana i réttari stærðum og
minnka þar með afurð á efni. En
sem kunnugt er hefur stundum
viljað brenna við að efni nýtist
ekki sem skyldi. Þá sagði Guðjón,
aö með þessu ætti að ná styttri
vinnutima á hverja flik. Einnig
mætti benda á hagræði af þessu
fyrir litlar saumastofur þvi
sniðning krefst mikils húsrýmis.
Spurður um reynslu af þvi að
hafa saumaskapinn dreifðan viða
um landið sagði Guðjón að sjálf-
sögöu heilmikla vinnu i kringum
Fyrir Alþingi:
Staðfestíng tveggja samninga
JSG —Lagðar hafa veriö fram á
Alþingi tvær þingsályktunartil-
lögur um staðfestingu á milli-
rikjasamkomulögum.
Annars vegar er tillaga um
staðfestingu á samkomulagi við
Færeyinga um gagnkvæmar
heimildir til veiða á kolmunna.
Samkomulagið var gert 13.
janúar sl. og nær til veiða á 20
þúsund lestum af kolmunna
innan efnahagslögsögu Islands
og fiskveiðilögsögu Færeyja á
árinu 1981. Samkomulaginu
fylgja tvær bókanir er varða af-
stöðu Færeyinga til fiskveiða
við Island, og samvinnu um
fiskveiði og landgrunnsmál.
Hins vegar er tillaga um full-
gildingu á alþjóðasamþykkt
varðandi samstarf um fram-
kvæmd alþjóðlegra reglna á
sviði vinnumála.
það en reynslan af þvi væri samt
góð. Aðeins ein saumastofa á
höfuðborgarsvæðinu — Dúkur —
saumar nú fyrir Alafoss, hitt er
allt sent út á land.
„Alþingi
að tjalda-
baki”
Fyrirlestrar Benedikts
gefnir út
JSG — Forsetar Alþingis hafa
ákveðið aö láta prenta og gefa út
fyrirlestra þá sem Benedikt
Gröndal flutti i rikisútvarpiö sl.
haust, og hann nefndi ..Albinei að
tjaldabaki.” Fyrirlestrar þessir
þóttu mjög fræöandi, en er ekki
nema að litlu leyti getið um I
blöðum og öðrum fjölmiðlum. 1
handhægri Utgáfu standa vonir til
aö þeir geti komið almenningi,
jafnt sem skólum, aö gagni.
Nýr sendi-
herra
Breta
Nýr sendiherra Stóra-Bret-
lands á tslandi, W.R. McQuilIan,
mun taka viö störfum hér i mars-
mánuöi n.k., en K.A. East sem
veriö hefur sendiherra Breta-
drottningar hériendis mun þá
draga sig i hlé frá störfum í utan-
rikisþjónustunni.
McQuillan hefur starfað sem
deildarstjóri Upplýsingadeildar
utanrikisráðuney tisins i
Lundúnum. Áður starfaöi hann i
bresku utanrikisþjónustunni i
Lusaka, Santiago og Guatemala
City. Hann er fimmtugur, kvænt-
ur og á son og tvær dætur.