Tíminn - 30.01.1981, Síða 5
Föstudagur 30. ianúar 1981
Ollii'li
Valgerður Bergsdóttir:
Sýnir teikningar í
Galleri Langbrók
Valgeröur Bergsdóttir opnar
sýningu á teikningum i Galleri
Langbrók, Amtmannsstig 1, i
dag. Sýningin verður opnuö kl.
12 á hádegi og verður siöan opin
virka daga frá kl. 12—18 til 20.
febrúar n.k.. A sýningunni eru
14 blýantsteikningar, flestar
unnar áriö 1980.
Valgeröur Bergsdóttir stund-
aöi nám viö Myndalista- og
handiöaskóla Isiands og viö
Statens Kunstindustri- og Hand-
værkerskolen i Osló.
Valgaröur hefur sýnt grafik
og teikningar á sýningum hér
heima, á Noröurlöndunum,
Þýskalandi, Frakklandi, Argen-
tinu og Bandarikjunum.
Verk hennar eru i eigu safn-
ara hér og erlendis.
Siguröur örlygsson er einn listamannanna sem sýnir á samsýningunni „Vetrarmynd”, og hér sjást
nokkur verka hans.
Tímamynd—G.e.
Nú stendur yfir á Mokkakaffi sýning Gunnlaugs Ólafssonar á 18 teikn-
ingum. Mun sýning Gunniaugs, sem nú er viö nám I arkitektúr standa f
þrjár vikur.
listir listir /istir iistir iistir iistir iistir listir /istir listir listir /istir /istir /istir /istir /istir /istir /istir /istir /istir /isti
/istir /istir /istir jistir /istir listir /istir /istir listir /istir /istir listir /istir /istir /istir /istir /istir /istir /istir /istir /isti
Edda Hólm, Sólveig Hauksdóttir og Guörún Gisladóttir f htutverkum slnum.
Valgeröur meö eitt verka sinna.
RÍKISSKIP
Sími:28822
BROTTFARARDAGAR FRÁ REYKJAVÍK:
VESTFIRÐIR: Alla þriðjudaga og annan hvern föstudag
NORÐURLAND: Alla þriðjudaga og annan hvern föstudag
NORÐ- AUSTURLAND: Vikulega fimmtudaga eða föstudaga
AUSTURLAND OG VESTMANNAEYJAR: Alla fimmtudaga
Biðjið um áætlun
Alþýöuleikhúsiö í nýjum
húsakynnum I kvöld
1 kvöld kl. 20.30 er fyrsta frum-
sýning Alþýðuleikhússins i hinum
nýju húsakynnum þess i Hafnar-
biói. Frumsýndir verða 3 einþátt-
ungar — Fótaferð, Ein og Við höf-
um allar sömu sögu að segja, —
en þeim hefur verið valið sam-
heitið Kona. Miðasala er viö inn-
ganginn frá kl. 5 alla daga.
Góðkunningi islenskra leikhús-
gesta Dario Fo og kona hans
Franca Rame eru höfundar þátt-
anna. Sjálf segja þau þessa þætti
vera framlag þeirra til jafnréttis-
baráttu kynjanna og hafa þætt-
irnir farið sigurför víða um
Evrópu i túlkun Franca Rame,
enda sérstaklega skrifaðir fyrir
hana sem leikkonu. Um tilurð
þáttanna segir Franca:
„Arum saman var ég að nauða i
Dario að skrifa leikrit um konur
og stöðu þeirra. Ég hótaöi meira
að segja að skilja við hann. Hvers
vegna um konur? Vegna þess að
ég er kona. Ég hef svo margt að
segja. Gallinn var bara sá, að ég
gat ekki skrifað sjálf. Ég keypti
allar bækur, sem mér fundust
koma að gagni, las og fékk svo
Dario. Eftir tvo manuði spurði
ég: „Jæja, er þetta ekki að
koma?” En hann svaraði afund-
inn, „láttu mig i friði, mér finnst
ég utanveltu í þessari umræðu”.
En, verkið komst á skrið. Dario
Fo bætir við: „Ég skrifaði og
skrifaði og alltaf reif hún niður
allt mitt verk og sagði mér að
gera betur, þar til það loksins
fæddist”.
Kona var frumsýnd i Milano
1977. Óhætt er að fullyrða að
Dario Fo fer ekki hefðbundnar
leiðir i umfjöllun sinni um stöðu
konunnar og er i fullu gildi kenn-
ing hans sjálfs, að „leikhús eigi
alltaf að vera skemmtilegt og að i
leikhúsi eigir þú aö koma auga á
sjálfan þig.
Einþáttungarnir, sem venju-
lega eru leiknir af sömu leikkon-
unni eru i sýningu- Alþýðuleik-
hússins leiknir af þeim Sólveigu
Hauksdóttur , Eddu Hólm, og
Guörúnu Gisladóttur. Leikstjóri
er Guðrún Asmundsdóttir, bún-
ingar og tjöld eru eftir Ivan
Torök, Gunnar Reynir Sveinsson
hefur samið áhrifahljóð, lýsing
er hönnuð af David Walters. Sýn-
ingarstjóri er Gyðný Helgadottir.
Olga Guðrún Árnadóttir þýddi
Fótaferð og Ein, en Ólafur Hauk-
ur Símonarson og Lárus Ýmir
Óskarsson þýddu Við höfum allar
sömu sögu að segja.
Al. hefur áður sýnt Viö borgum
ekki, Við borgum ekki, eftir Dario
Fo.
Forsala aðgöngumiða
á Lennon-tónleikana
Forsala aðgöngumiða
á minningartónleikana
um John Lennon er nú
hafin og verða miðarn-
ir seldir i hljómplötu-
versluninni Skifunni og
i Austurbæjarbió.
Verð miða er 50 nýkr.
stykkið.
Vetrarmynd” að ljúka
AB — „Vetrarmynd”, samsýn-
ingu 11 myndlistarmanna á Kjar-
valsstöðum lýkur nú um helgina.
Sýningin hefur að sögn lista-
mannanna gengið mjög vel, að-
sókn hefur verið góð og listaverk-
in hafa fengið lofsamlega um-
fjöllun gesta sýningarinnar.
Sýningin verður opin daglega
til næsta sunnudags, og er hún op-
in frá kl. 14 til kl. 22. Næsta helgi
er sem sagt siðasta sýningarhelgi
sýningarinnar.