Tíminn - 18.02.1981, Síða 2
í
Miðvikudagur 18. febrúar 1981
\
KL — Nú er langt komið ljósrit-
un Skarðsbókar Jónsbókar, sem
gefin verður út á vegum Stofn-
unar Arna Magnússonar á
islandi og Sverris Kristins-
sonar, og gera aðstandendur út-
gáfunnar sér vonir um að fyrstu
eintök bókarinnar verði fullfrá-
gengin fyrir 21. april n.k., en
þann dag eru 10 ár liðin síðan
fyrstu handritin komu til
islands.
Reyndar á Jónsbók 700 ára af
mæli á þessu ári, svo að þarna
yrði um tvöfalda afmælishátið
að ræða Ljósprentunin er i lit-
um.
Það var haustið 1979, að
Sverrir Kirstinsson, fram-
kvæmdastjóri Bókmennta-
félagsins, bauð Stofnun Arna
MagnUssonar fjárhagslegan
stuðning til að ljósprenta hand-
riti eðlilegum litum og varð það
ofan á, að formlegur samningur
var gerður um litprentun
Skárðsbókar. Var sett á fót
fimm manna útgáfustjórn, sem
i eiga sæti 3 fulltrúar Arnastofn-
unar, þeir dr. Jónas Kristjáns-
son, sem er aðalritstjóri verks-
ins, og handritafræðingarnir
Jón Samsonarson magister, dr.
Ólafur Halldórsson og Stefán
Karlsson magister, og tveir full-
trúar skipaðir af Sverri, þeir
dr. Kristján Eldjárn, fyrrver-
andi forseti íslands, og Sigurður
Lindal, prófessor og forseti
Bókmenntafélagsins. Umsjón
með verkinu hefur Guðni Kol-
beinsson stud. mag., en hann er
Hér sjást hliö við hlið ljósprentunin og frumritiö.
styrkþegi Árnastofnunar.
Þegar hefur verið fyrirhuguð
ljósprentun fjögurra annarra
islenskra handrita, Nikulás-
sögu, Skarðsbókar postula-
sagna, en það handrit færðu
islensku bankarnir islensku
þjóðinni að gjöf 1965, Konungs-
bókar eddukvæða og Flateyjar-
bókar.
Margir aðilar leggja fram
mikla og nákvæma vinnu við
gerð ljósprentunarinnar, sem er
ákaflega fallega unnin. Hleypur
enda kostnaðurinn við útgáfuna
á hundruðum milljóna gamalla
króna. Ætlunin er að gefa hana
út í 1000 eintökum og eiga menn
(Tfmamynd GE)
kost á að fá hana á áskriftar-
verðiallt til 21. april, og félagar
i Bókmenntafélaginu lengur.
Askriftarverð er kr. 4.695, en
eftir21. april fer verðið uppikr.
5.634. Þykja mörgum þetta vera
dálaglegar upphæðir, en á það
ber að lfta, að bókin er algert
listaverk.
Ljósprentun Skarðsbókar
langt komin
— vonast er til aö fyrstu eintökin
verði fullbúin fyrir 10 ára afmæli
heimkomu fyrstu handritanna
Ungverski matsveinninn, Zoltan Bara, eldar ofan i sælkerana á ung-
verska vísu. (Tlmamynd: Róbert)
Þrjú fyrirtæki voru í stórhættu
— Eldsvoði hjá Þorbirni hf. i Grindavík
AM — Um kvöldmatarleytið sl.
laugardagskvöld kom upp eldur
i skreiðarhúsi Þorbjarnar hf. f
Grindavík. Urðu all margir
þegar varir við eldinn, sem
lagði yfir bryggjurnar i plassinu
og kom slökkvilið i Grindavík
innan tíðar á vettvang, slökkvi-
liðsbfll þess og tankbill.
Eirikur Tómasson, útgerðar-
stjóri hjá Þorbirni hf., sagði er
við ræddum við hann i gær að
eldurinn hefði orðið vegna raf-
magnsbilunar i blásaramótor i
húsinu og mun eldurinn á
skammri stundu hafa komist
upp í þak á húsinu, sem
skemmdist talsvert. Engin
skreið var á laugardaginn i hús-
inu, en hins vegar fimm tonn af
þurrkuðum saltfiski og ónýttist
hann allur, svo og margar plast-
tunnur. Hafa menn áætlað tjón-
ið vera 4-500 þúsund nýkrónur.
Slökkviliðið brá skjótt við og
lofaði Eirikur framgöngu þess,
en svo heppilega vildi til að
menn komu einmitt að eldsupp-
tökunum, þegar brotist var inn i
húsið. Hafði þvi eldurinn verið
slökktur þegar slökkviliðið af
Keflavikurflugvelli og frá
Keflavik bar að, en mikið var i
húfi, þvi ef eldurinn hefði náð að
breiðast út, hefði hann getað
komist i hús Hóps hf., og Fiski-
mjöls og lýsi hf., en hvasst var
af suðvestri. Tók um 45 minútur
að ráða niðurlögum eldsins og
má segja að hér hafi farið betur
en á horfðist, þvi stórkostlegt
tjón hefði orðið, ef eldsins hefði
ekki orðið vart fýrr en svo sem
15 mfnútum siðar.
t gær hófst að Hótel Loftleiöum
ungversk vika og veröur hér um
að ræöa gagngera kynningu á
Ungverjalandi, landiog þjóð. Svo
og ferðamöguleikum og feröum
þeim sem Ferðaskrifstofa Kjart-
ans Helgasonar efnir til á vori og
sumri komandi.
1 Vikingasal Hótels Loftleiða
mun á hverju kvöldi verða borinn
fram ungverskur matur með þar-
lendum vinum og ungversk
skemmtiatriði fara fram. Einn
frægasti matsveinn Evrópu Zol-
tan Bara mun annast matreiðslu
ásamt matsveinum hótelsins.
Sigaunahljómsveit leikur ung-
versk lög en i hljómsveitinni eru
fimm hljóðfæraleikarar og ein
söngkona.
Matseðlar eru númeraðir og
verður dregið um vinninga á
hverju kvöldi. Siðasta kvöld ung-
versku vikunnar þ.e sunnudags-
kvöld 22. febrúar verður svo
dregið um aðalvinninginn sem er
ferðfyrir tvo til Ungverjalands og
dvöl þar i landi.
Ferðaskrifstofa Kjartans
Helgasonar hefur i mörg undan-
farin ár i samvinnu við Flugleiðir
haldið uppi skipulögðum ferðum
til Ungverjalands og njóta þær si-
vaxandi vinsælda. 1 Ungverja-
landi er margt merkilegt að sjá
og Ungverjar góðir heim að
sækja. Hér er sama hvort menn
sækjast eftir sögulegum minjum
og skoðunarferðum eða góðum
vinum og glaðværð. Þjóðin er
kunn fyrir góða menntun, tónlist
og sérstaka snyrtimennsku á öll-
um sviðum. Slikt kunna Is-
lendingar að meta.
1 þvi augnamiði að kynna það
sem hér er að framan sagt og
ýmislegt fleira er efnt til þeirrar
kynningar sem nú hefst að Hótel
Loftleiðum. Auk Ferðaskrifstofu
Kjartans Helgasonar og Hótels
Loftleiða standa að kynningunni
Ferðamálaráð Ungverjalands,
ungverska flugfélagið MALEV en
fulltrúi þess hér er Tamás Odor
sölustjóri félagsins á Norðurlönd-
um. Þá stendur IBUSZ ungverska
ferðaskrifstofan að kynningunni
og er György Székely fulltrúi
hennar hér. Þá er Hótel Szabad-
sag en það leggur til matreiðslu-
menn og sér um útvegun matar
og er fulltrúi þess hér Dr. György
Dobos. Siðast en ekki sist eru
tveir fararstjórar, Eszter
Fueloep og Ferenc Papp.
Auk þeirrar Ungverjaiands-
Sigaunahljómsveit meðsöngkonu sina i broddi fylkingar skemmtir á ungversku vikunni. (Timamynd: Róbert)
kynningar sem fram fer i Vik-
ingasal á hverju kvöldi verður
Ungverjalandskynning i Blóma-
sal i hádeginu meðan kynningar-
vikan stendur. Þar munu ung-
verskir réttir verða á kalda
borðinu og sigaunahljómsveitin
leikur. Þá verður ungverskur
réttur á matseðli Veitingabúðar
þá daga sem kynningin stendur.
Sem kunnugt er hefur Hilmar
Jónsson veitingastjóri sýni-
kennslu i matgerðarlist i Leifsbúð
hvert þriðjudagskvöld kl. 18:00.
Þriðjudaginn 17. febrúar mun
Hilmar ásamt Zoltan Bara hinum
ungverska mátsveini sýna gerð
ungverskra rétta. Þess má geta
að Zoltan Bara vann fyrstu verð-
laun i evrópskri keppni mat-
sveina fyrir nokkru.
Ungversk vika að Hótel
Loftleiðum