Tíminn - 18.02.1981, Blaðsíða 3
Miðvikudagui- l’8. 'fetóúar 'l981
Kjartan Jónasson, fréttastjóri Timans, tekur viö verðlaunabikarnum úr hendi formanns TR,
Guðfinns Kjartanssonar. (Timamynd GE.)
Tíminn sigurveg-
ari í Flrmakeppni
TR í hraðskák
Benedikt Jónasson sigraði fyrir biaðið með 12,5 v. af 16
AM — Þann 8. janúar sl. lauk
Firmakeppni Taflfélags
Reykjavikur I hraðskák og fóru
leikar svo að Timinn bar sigur
úr býtum en fyrir okkur keppti
Benedikt Jónasson, sem hlaut
12.5 vinninga af 16 mögulegum
og voru verðlaunin afhent I
fyrradag af formanni TRj Guð-
finni Kjartanssyni. 300 fyrirtæki
tóku þátt I keppninni og var
keppt I 12 riðlum.
1 öðru sæti varð Ágilst
Ármann hf. og keppti Jóhann
Hjartarson fyrir þá og hlaut 12
v. í þriðja sæti varð vélsmiðjan
Öðinn i' Keflavik, en þar keppti
Sævar Bjarnason og hlaut einn-
ig 12 vinninga. Fjórði varö
verslun Bjarna Eirlkssonar i
Bolungarvlk sem Margeir Pét-
ursson keppti fyrir og hlaut 11
vinninga. 1 fimmta sæti varð
svo Dagblaðið, en fyrir það
keppti AgUst Karlsson Ur Hafn- Benedikt Jónasson, hinn snjalii skákmaður sem sigraði I keppninni
arfirði fyrir Timann. 300 fyrirtæki tóku þátt i keppninni að þessu sinni.
Skákþingi Reykjavíkur lauk á föstudag
Jón L. Árnason
skákmeistari
Reykjavíkur
AM — Skákþingi Reykjavikur
lauk sl. föstudagskvöid. Voru
keppendur 118, og kepptu þeir í 6
flokkum. Voru fimm fiokkar i að-
alkeppninni, sem tók rúman
mánuð, en sá sjötti var unglinga
flokkur. Hófst keppnin þann 11.
janúar sl.
Sigurvegarar á Skákþingi Reykjavikur. (Tlmam.G.E.)
Ólafur H. Ólafsson I stjóm TR,
sagði okkur að i A flokki, þar sem
keppt var um titilinn skákmeist-
ari Reykjavikur, hefði Jón L.
Árnason sigrað og hlaut hann 8.5
vinninga af 11. Annar varð ungur
skákmeistari, Elvar Guðmunds-
son, sem hlaut 8 v. og þriðji varð
Helgi Ólafsson með 7 vinninga.
Fjórði varð Bragi Halldórsson
meö 6 vinninga og fimmti
sænskur skákmeistari, Dan
Hansson meö 6 v.
í B flokki sigraði Sveinn Krist-
insson, sem nú keppti að nýju eft-
irlangt hlé og hlaut hann 6.5 v. af
10. Jafn honum varð Magnús
Gunnarsson, einnig með 6.5 v. en
lægri á stigum.
1 C flokki sigruðu tveir ungir og
efnilegir menn, þeir Hrafn Lofts-
son og Sveinn Ingi Sveinsson,
báðir með 9 v. af 11.
I D flokki sigraði Jóhannes Ag-
ústsson með 7 v. af 10 v. og i öðru
sæti varð Gunnar Freyr Rúnars-
son, einnig meö 7 v. en lægri á
stigum.
í E flokki varð sigurvegari
Eggert Ólafsson, sem vann með
yfirburðum, hlaut 10.5 v. af 11.
í unglingaflokki 14 ára og yngri
var sigurvegari með 9v. af 9.'
Arnór Björnsson, sem þar með er
unglingameistari I Rvik. 1981.
Annar varð Jóhannes Agústsson
sem hlaut 7 v. af 9 v. og þriöji
varð Þröstur Þórhallsson með 6.5
v. af 9 v.
A sunnudaginn var svo haldið
Hraðskákmót Reykjavikur, sem
var mjög vel skipað og margur
snjall skákmaður i hinum 66
manna hópi.
Sigurvegari varð Jóhann Hjart-
arson með 15.5 v. af 18 og annar
Haukur Angantýrsson með 13.5 v.
Þriðji varö Dan Hansson meö 13
v. og fjórði Margeir Pétursson
með 12.5 v. Fimmti varð svo Júli-
us Friðjónsson með 12.5 v.
Jón L. Árnason, skákmeistari Reykjavikur, hampar bikarnum.
Ný tegund japanskra
bfla á markaðinn
1 nýútkomnum Sambands-
fréttum segir að:
Véladeild Sambandsins muni
fljótlega kynna hér á landi nýja
gerð af japönskum bilum sem
nefnast Isuzu. Fyrstu bilarnir af
þessari gerð eru þegar komnir
áleiðis til landsins og væntan-
legir um miðjan mars.
Jón Þór Jóhannsson frkvstj.
segir f Sambandsfréttum að
Véladeild hafi nýlega undirritað
umboðssamning viö General
Motors um að taka einkaumboð
hér á landi fyrir japanska bif-
reiðaverksmiðju, Isuzu-Motors
Ltd., sem er i Tokyo og að hluta
tili eigu General Motors. Verk-
smiðja þessi framleiöir bila uk
flestum gerðum, en hingað til
lands verða i fyrstu fluttir fólks-
bilar og ,,pick-up” bilar, bæði
meö einföldu drifi og framhjóla-
drifnir.Verða þaö bilar af báðu-
um þessum gerðum sem koma
hingað i þessari fyrstu sendingu
um miöjan næsta mánuð.
Jón Þór gat þess sérstaklega
að Isuzu verksmiðjan fram-
leiddi einnig fjórhjóladrifinn
jeppa, sem virtist geta hentað
mjög vel við hérlendar aðstæð-
ur. Væri fyrirhugað aö kynna
hann hér á landi nokkru siðar en
hina bilana.
Fiskverðið langþráða
AB— Eins og alkunna er náðist
loksins fram ákvörðun um fisk-
verð siðastiiðinn laugardag.
Fiskverðið gildir frá 1. janúar
til 31. mai 1981. Verðákvörðunin
felur f sér 18% meðalhækkun á
skiptaverði frá 1. janúar til
febriiarloka og 6% hækkun til
viðbótar frá 1. marz til 31. mai.
1 fiskverðshækkuninni eru
meðtalin áhrif þeirra breytinga
á gæðaflokkum, stærðarflokk-
um og verðhlutföllum milli ein-
stakra fisktegunda, sem
ákveðnar voru i Verðlagsráði
áður en fiskverðsákvörðun var
visað til yfimefndar. Við verð-
ákvörðunina lá fyrir yfirlýsing
rikisstjórnarinnnar þess efnis
að hún muni beita sér fyrir ráð-
stöfunum til þess að frystideild
Verðjöfnunarsjóðs fiskiðnaðar-
ins geti staðið við skuldbindingu
um viðmiðunarverð, er sé 5%
yfir núverandi markaðsverði.
Verðið var ákveðið af odda-
manni nefndarinnar, Ólafi
Daviðssyni og fulltrúum fsik-
seljenda, þeim Ingólfi Ingólfs-
syni og Kristjáni Ragnarssyni,
gegn atkvæðum fulltrúa fisk-
kaupenda, Eyjólfs Isfelds Ey-
jólfssonar og Friðriks Pálsson-
ar.
Skiptaverð á 1. flokks þorski,
slægðum, með haus, er nú 3
krónur og 13 aurar, hvert kiló-
gramm, til næstu mánaðamóta,
en 3 krónur og 32 aurar eftir
það. Verðið er miðað við að 20
fiskar eða færri séu i hverjum
100 kilógrömmum. Áður var
miðað við 25 fiska.
I 2. flokki er verðið nú 85% af
verði 1. gæöaflokks, en var áður
75%. I 3. flokki er verið nú 60%
af verði i' 1. gæðaflokki en var
áður 50%.
Samkvæmt ákvörðun yfir-
nefndar Verðlagsráðs sjávarút-
vegsins nú um helgina er
skiptaverð á 1. flokks ýsu,
slægðri með haus 3 krónur og 6
aurar fram til mánaðamóta, en
eftir það 3 krónur og 24 aurar.
Miðað er við að 50 fiskar eða
færri séu I hverjum 100 kilóum.
Skiptaverðið i 2. flokki er nú
85% af verði 1. flokks, og i 3.
flokki 60% af verði 1. flokks.
Kassabætur svo kallaðar voru
við verðákvörðun um helgina
lækkaðar úr 12 %i 10%.