Tíminn - 18.02.1981, Blaðsíða 8

Tíminn - 18.02.1981, Blaðsíða 8
Þak fæOingardeildar Landspitalans tók flugiö á mánudagskvöldiö og hafnaöi niöri á Barónsstignum (Timamynd Róbert). Útköllin skiptu hundruðum AM —Eftir fárviðrið i fyrrinótt er ljóst að svo margvislegt og mikið tjón hefur orðið á höfuð- borgarsvæðinu að nokk- ur timi mun liða, þar til heildarmynd fæst af umfangi þess og er við ræddum við lögreglu i Reykjavik, Kópavogi og Hafnarfirði i gær voru menn i óðaönn að taka TF-BAI) skemmdist mikið, er veðrið velti henni um koll á Reykjavikurflugvelli (Timamynd Róbert) Jafnvel strætisvagnarnir fuku KL —Strætisvagnar Reykjavik- ur áttu i mesta basli i óveðrinu i fyrrakvöld en hættu þó ekki al- gerlega akstri fyrr en upp úr kl. 23.Voru þá margir þei'rra búnir að festast og fjúka út af ak- brautum. Þar við bættist að mikiö var um að rúður og þak- lúgur fykju af vögnunum af völdurn súgs sem myndaðist þegar dyr þeirra voru opnaðar. — Þetta gekk mjög erfiðlega sagði Karl Gunnarsson eí'tirlits- maöur hjá SVR. — Siðustu vagnarnir hættu svona upp úr kl. 11, en þá voru margir búnir að heltast úr lestinni. Margir fuku út af og uröu íastir og bill- inn sem*við höfum til að draga þá, bilaði. Það tafði okkur mik- ið. Þá fóru framrúöur úr 9 bil- um, 2afturrúður 1 hliðarrúða og 14 þaklúgur. Kn þegar al- mannavarnir voru komnar i gang hættum viö, þá vorum við öruggir um aö fólki yröi bjargað, ef það var á íerli. En farþegar voru mjög fáir, sagði Karl. Og sem betur fer urðu engin slys á mönnum. Strax um nóttina var kallað út lið til að vinna að viðgeröum á vögnunum en rafmagnsleysið jók á erfiðiö. Vegna þess varð að fá oliutank frá Skeljungi þar sem allar dælur voru óvirkar. A meðan fuku vagnar á stæöi strætisvagnanna við Kirkjusand Framrúöan af þessum fauk út á Tjörn. (Timamynd GE) hver á annan i hvinandi hálk- unni. — Það var heljar mikiö bras við þetta en allt gekk ótrúlega vel og strax i gærmorgun voru ferðir vagnanna komnar i eðli- legt horf, sagði Karl Gunnars- son. Geysilegt AM — 1 veðurofsanum i fyrrinótt urðu allir landshlutar fyrir meira eða minna eignatjóni, þótt verst yrði ástandið vestan og þó eink- um suðvestanlands. Spuröumst við fyrir um tjón viðs vegar um land og er svo að heyra sem þak- plötur hafi viðast valdið mestum skakkaföllum er þær tóku flugið i snörpustu hviðunum. Grindavik 1 Grindavik fauk þakjárn af fimm ibúðarhúsum og aö miklu leyti af þaki geymslu i eigu kaup- félagsins. Þá fór álklæðning af tveimur ibúðarhúsum að nokkru leyti. Við eitt hús i Grindavik splundraðist bilskúr og dreifðist brakið viðs vegar. Reyndu menn að bregða köðlum yfir þök húsa til þess að halda þeim niöri. Þá fauk þar þak af yfirbyggðum Blaser og laskaðiþakið bilinn mikið að öðru leyti um leið. Maður sem féll i vindhviðu fyrir framan dyr heimilis sins fót- brotnaði og var fiuttur i sjúkra- húsið i Keflavik og varð að fylla sjúkrabilinn af björgunarsveitar- mönnum, til þess að halda honum á veginum á leiðinni. Mikill fjöldi báta leitaði hafnar i Grindavik og varð ekki neinn skaði i höfninni, svo lögreglan suður frá vissi til. Bátar sem ekki komust til hafnar leituðu hins vegar vars undir Stapa. Keflavik 1 Keflavik Sökk 20 tonna bátur i höfninni og annar einnig 20 tonna báturi Ytri Njarðvik. Nöfn þeirra hafði lögreglan i Keflavik ekki hjá sér i gær. Mikið var um að þakjárn fyki af húsum og var annriki mikið hjá lögreglu og björgunarsveitinni Stakk við að haiyisama þær, svo og annað lauslegt, sem var aö fjúka. Þar varð mikið um rúðubrot af völd- um vindofsa og grjótflugs-Fógeti, almannavarnanefnd og slökkvi- liðsstjóri voru á vakt i nýju lög- reglustöðinni alla nóítina. Svipað ástand var i Sandgerði, Vogum, Njarðvik og Vatnsleysuströnd. Vestmannaeyjar 1 Vestmannaeyjum varð veru- legt tjón á Flugstöðinni, en þar brotnuðu 40 rúður af grjótflugi. Þá fór hálf þekjan af flugskýli Bjarna Jónassonar hjá Eyjaflugi og dyr brotnuðu og enn brotnuðu

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.