Tíminn - 18.02.1981, Blaðsíða 4

Tíminn - 18.02.1981, Blaðsíða 4
4 Miðvikudagur 18. fébrúar 1981 „Líf mitt hefur aldrei verið leiðinlegt” segir Ingrid Bergman Ingrid Bergman á nú orðið heima i London og segist kunna vel við sig þar. Hún var nýlega á ferð i New York i sambandi við útkomu nýrrar bókar, sem heitir „Ingrid Bergman — My Story” og er frá- sögn hennaraf lifsferli hennar til þessa dags, en rituð af Alan Burg- ess. Leikkonan sagði á blaðamannafundi, að hún hefði ekki hugsað út i það, að hún ætti að skrá ævisögu sina fyrr en sonur hennar Roberto Rossellini, sem er 30ára fasteignasali i Monte Carlo, sagði: „Mamma, ég vildi óska þess að þú skrifaðir þina frásögn af ævi þinni. Það hefur árum saman veriö skrifað um þig i blöð viða um heim, bæði satt og iogið, og ekki einu sinni börnin þin vita hvað er satt og hvað ekki”. Sagteraðþessibók séóiik þeim „leikkonu-ævisögum”, sem út hafa koiniö upp á siðkastið, en þar er eins og frásögnin snúist aðallega um að telja upp fræga menn, sem hafi verið elskhugar viðkomandi ieikkonu, og ástamálunum lýst sem nánast. Ingrid Bergman gefur ekki neinar nánar lýsingar á ástamálum sinum, en heldur sig aðeins við staðreyndir. Hún segir ekki frá neinum eiskhugum (sem hún hefur ekki gifst) — en það er vist af nógu að taka samt! sagði hún glettnislega viöblaðamenn. Hún segir þó frá tveimur mönnum, sem hún var hrifin af, en það var ljósmyndarinn Robert Capa, sem dó við myndatökur I Vietnam-striðinu 1954. Einnig segist hún hafa ver- ið ástfangin af Victor Fleming (eldri), sem var stjórnandi myndar- innar „Jeanne D’Arc” árin 1948. Ingrid Bergman hafði leikið i tveimur kvikmyndum sem ung stúlka i Sviþjóö, „Intermezzo” 1936 og „En kvinnas ansikt” 1938. Hún tók tilboði frá Hoiiywood um að leika ameriska útgáfu af „Intermezzo” og sú mynd varð fræg, og siðan kom hver stórmyndin á fætur ann- arri. Hún hefur þrisvar sinnum fengið Oscar-verðlaunin og má segja það sé mesta viðurkenning, sem nokkur kvikmyndaleikkona hefur hlotið. Leikkonan sagði á blaðamannfundinum i New York: — Þegar ég var ung stúika heima i Sviþjóð, þá bætti ég vanalega við kvöldbæn- ina mina „Góði guð, gefðu að lif mitt veröi ekki leiðinlegt”. Það má kannski segja að þetta hafi verið háifkjánaleg bæn, en guð hefur svo sannarlega bænheyrt mig, þvi að lif mitt hefur aldrei verið leiðin- legt!” Hvað græddi Mick á skilnaðinum? Mick Jagger hljóp frá Biöncu Jagger á sinum tima og beint i fangiö á sýningastúlkunni Jerry Hall. Það kostaði hann dýrt. þvi að Bianca scldi skilnaðinn dýru veröi. Þess vegna spyrja margir: — Er Jerry Hall allra þessara peninga virði? Og reyndar, hvað ætli Mick sjái við hana? Kannski mcðfylgjandi mynd veiti svar við þeirri spurningu. Jerry Hall tekur 5.000 króna laun á klukkustund fyrir að sitja fyrir hjá Ijósmyndurum, svo að segja má, að hún sé sjálf liátt metin til fjár. Ingrid Bergman kát og hress á biaðamannafundi í New York. í spegli tímans krossgáta a 3511. Lárétt 1) Hungursneyð. 6) Veggur. 7) Komast. 9) Útt. 10) Kæfðiivatni. 11) Röð. 12) Fjórir. 13) Blöskrað. 15) Eð. Lóðrétt 1) Tala. 2) Rómv. tölur. 3) Lumbrað. 4) Kind. 5) Heima. 8) Timabils. 9) Óhreinki. 13) öslaði. 14) Eins. Ráðning á gátu No. 3510. Lárétt 1) Glundur. 6) Mál. 7) IV. 9) Et. 10) Kant- ata. 11) KL. 12) Að. 13) Óða. 15) Rofinni. Lóðrétt 1) Grikkur. 2) Um. 3) Náttaði. 4) DL 5) Ritaðri. 8) Val. 9) Eta. 13) óf. 14) An. bridge Þegar þarf að fria liti i grandsamning getur oft verið betra að reyna við litina sem hvort eð er eru beinir tapslagir á. Spilið i dag skýrir þetta. Norður. S. AK103 H. G543 T. D3 L. A106 Austur. S. G984 H.A6 T. G754 L. 954 Suður. S. D76 H. D82 T. 10982 L.KG2 aöi 1 grand og fékk út hjarta- þrist. Austur tók á ásinn og spilaði meira hjarta, suður lét áttuna, vestur niuna og gosinn átti slaginn. Suður átti 6 slagi og þurfti þvi aðeins einn i viðbót. Og spaöinn leit ansans ári girnilega út. Þar voru ótal möguleikar á að fá 4 slagi: liturinn 3-3, gosinn annar og svo væri lika hægt að svina fyrir gosann hjá vestri. Suður spilaði þvi spaðaás, siðan litlum spaða á drottningu og þriðja spaðanum. Þegar vestur var ekki með var, sá draumur búinn. Það var þó ekki öll nott úti enn þvi enn var hægt að fá 3 slagi á lauf með þvi að finna drottninguna. Suður lá lengi yfir þessu og hrærði i spilunum á hendinni meöan hann reyndi að ákveða sig. Að lok- um komst hann aö þvi að fyrst vestur átti aðeins tvilit i spaða þá væru meiri likur á að hann ætti fjórlit i laufi og þ.a.l. drottn- inguna (þessi röksemdafærsla er birt án ábyrgðar). Hann spilaði þvi laufi á kóng- inn og siðan litlu laufi á tiuna og átti 7 slagi þegar hún hélt. Suður hefði nú getað sparað sér öll þessi heilabrot ef hann hefði getað haldið puttunum á sér frá spaðanum. Þar sem vörnin gat aðeins fengið 3 slagi á hjartaö var alveg óhætt hjá suðri aö fara I tigul- inn. Þar getur vörnin fengiö 3 slagi i við- bót en suður fær alltaf einn. Aö visu þarf suður aöeins að gæta sin, ef vestur skiptir i spaöa eftir að hafa fengið fyrsta tigulslaginn, að taka slaginn i borði. Ann- ars fær suður ekki nóg af innkomum heim. Vestur.- S. 52 H.K1093 T. AK6 L. D873

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.