Tíminn - 18.02.1981, Qupperneq 5
Miðvikudagur 18. febrúar 1981
- frumsýnd að Brúarlundi þann 1. mars
Sunnudaginn 1. mars n.k. verð-
ur frumsýnd að Brúarlundi. i
Landsveit heimildarkvikmynd
um smölun á Landmannaafrétti.
Kvikmynd þessi, sem ber nafnið
Landmannaleitir, er gerð að til-
hlutan Land- og Holtahrepps i
samvinnu við sjónvarpið og hófst
myndatakan i fjallferð haustið
1976. Við kvikmyndunina var svo
unnið tvö næstuhaust og siðan við
hljóðupptöku og hefur Guðlaugur
Tryggvi Karlsson annast hvort
tveggja.
Kvikmyndin er um hálfs annars
tíma löng, en sjónvarpið hefur
látið gera styttri útgáfu, um 40
minútna langa, og er sú mynd til-
búin tíl hljóðsetningar nú. Kvik-
myndastjóri er Þrándur Thor-
oddsen.
t heimildarmynd þessari er
fylgst með smölunum, þar sem
þeir leggja af stað úr byggð með
hestana og þangað til safnið er
réttað eftir viku i Landréttum.
Milli 20 og 30 manns taka þátt i
smöluninni og eru þeir með 50 til
60 hesta.
Farið er á fyrsta degi inni Land-
mannalaugar, en að morgni
næsta dags er skipt niöur i leitir.
Leitað er Landmannalaugasvæö-
ið allt, þ.e. Jökulgilið, Kýlingar,
Vondugil og Torfajökulssvæðið.
Eftir þriggja daga smölun er
haldið að Landmannahelli og
Reykjadalir, Mógilshöfðar og
Loðmundur smalaðir, ásamt
svæðinu sunnan Tungnár.
Eftir tvo daga viö Landmanna-
helli er farið meö safnið niður I
Sölvahraun og Suðleysur og Vala-
fell smalað ásamt svæðinu austan
Heklu. A sjöunda degi er féð rekið
yfir vikrana niður með Þjórsá
austanverðri i Landréttir.
Myndin sýnir smölunina á
hverju þessara svæða, oft i mis-
jöfnum veörum, en einnig er
reynt að láta hið fagra landslag
njóta sin sem best. Smölunum er
fylgt eftir yfir fljót hraun og
sanda, uppá fjöll og jökla og alla
leið inni ishella. Allsstaðar getur
féð leynst.
Litadýrö er mikil á þessu svæði
og gróður fagur, en svo sem
kunnugt er fór hluti afréttarins
undirgjallog ösku i Heklugosinu
i sumar.
Myndinni lýkur svo I Landrétt-
um og á ýmsum bæjum sveitar-
innar, þar sem heimilisfólkið ger-
ir sé dagamun, þegar féð er heimt
af fjalli.
Jafnframt þeirri almennu þjóð-
lifslýsingu sem þessari mynd er
ætlað aö vera, er myndin einnig
heimild um atvinnuhætti, sem
senn geta heyrt sögunni til. At-
vinnuhættir þjóðarinnar breytast
stööugt, jafnvel þeir, sem hún
hefur stundað og lifað á i aldarað-
ir.
1 tilefni þessarar frum-
sýningar, sem hefst kl. hálf niu,
veröur hdf f Brúarlundi að lokinni
sýningu. Þar geta Land- og Holta-
menn minnst sinna „léttu spora”
á fjalli, ásamt þeim, sem að-
komnir eru. Ýmislegt verður til
skemmtunar, m.a. mun Signý
Sæmundsdóttir, söngkona syngja
nokkur lög við undirleik Onnu
Magnúsdóttur.
Heimíldarmynd um Land-
mannaleitir
Guðlaugur Tryggvi Karlsson
Signý Sæmundsdóttir
Sýningarsalur á Akureyri |
Áskorun tíl
bæjarstjórnar
Undirritaðir listamenn telja,
að það sé skaði að þvi, að ekki
skuli vera lengur sýningarsalur
á Akureyri, og á það ekki viö um
Akureyringa eina heldur landiö
allt. Trúlega mun enginn mæla
þvi i' mót, að hið fjöruga
sýningahald undanfarinna ára
hafi auðgað menningarlif
Akureyrar og að það sé sjónar-
sviptir að þvi, að slikt skuli af
lagt. íhlaupastaðir eins og
skólar eða önnur hús, sem not-
ast má við, munu aldrei gera
sama gagn og sýningarsalur
með öllu þvi tífi, er honum fylg-
ir. Framtak og áhugi Akureyr-
inga var fordæmi, sem fyrr eða
siöar mundi skila sér til annarra
staða, enda þegar komnar vis-
bendingar þar um. t.d. á Isa-
firði.
Skorum við á Akureyringa að
ihuga þetta mál gaumgæfilega
þannig að ekki miði afturábak
i menningarlifi, sem var komið
á svo góöan rekspöl.
J. Þorláksson & Norðmann hf.
jQMi Ármúla 40 sími: 83833 Pósthólf 529 Reykjavík
MJÖG HAGSTÆTT VERD -
GREIÐSLUSKILMÁLAR
Myson blásarar eru framleiddir til notkun-
ar á hitaveitu og miöstöövarkerfi.
Varmaafköst frá 5.160—17.600 kCal/h
viö T = 40.
Allar stæröir eru fáanlegar eins eöa
þriggja fasa. Meö eins fasa blásurum er
fáanlegur hraöastillir frá 940 sn/mín — O.
MYSOJV
HITABLÁSARAR
Afkastamikill hitagjafi
auðveld uppsetning
fjórar stærðir
Myson hitablásarar eru kjörnir fyrir fisk-
vinnslustöövar, verksmiöjur, vörugeymsl-
ur, verkstæöi og annaö atvinnuhúsnæöi.