Tíminn - 18.02.1981, Page 9
skýrslur vegna tjóna og
bættist sifellt nýtt við.
„Eftir þrjátiu og fimm ára
starf i' lögreglunni man ég ekki
eftir annarri eins nótt og
kvaöningar sem hingaö bárust af
allra handa tilefni hafa skipt
hundruöum. Hér hef ég tvo sima á
boröinu og þeir þögnuöu aldrei
allt kvöldiö og nöttina. Ég tel að
veöriö 1973 hafi hvergi nærri
komist i likingu viö þetta.”
Þetta sagði Sveinbjörn Bjarna-
son, aöalvarðstjóri hjá lögregl-
unni i Reykjavik, þegar við rædd-
um viö hann i gær.
„Hér i Reykjavikur borg var
algjört neyöarástand,” sagöi
Sveinbjörn, „og mikil mildi aö
ekki skyldu veröa stórslys. Hér
var geysilegt fjölmenni af
hjálparsveitum og aukalið lög-
reglumanna var kvatt lit, auk
þess sem margir sjálfboöaliöar
lögöu dckur lið, sem viö færum
þakkir fyrir. Þessir menn lögöu
sig oft i lifshættu vegna foks á
járnplötum. Mönnum var úthlut-
að hjálmum eins og i striði og
veitti ekki af þvi járn fauk á höfuö
eins lögreglumannanna. Viö vor-
um i stanslausum flutningum á
fólki bæði vegna starfsliös á
sjúkrahúsum og vegna fólks sem
var i nauðum statt og notuöum
viö oft rútu lögreglunnar við það
starf. Verst var ástandið i Breiö-
holti og bilar fuku þar margir um
koll og hverjir á aðra sem kunn-
ugt er, en sams konar skaöar
uröu einnig i gamla bænum, t.d.
fór bill á hliðina viö Skaftahliö.
Rúöubrot skiptu hundruðum”.
1 Reykjavik uröu hvaö mestu
skaðarnir á gróöurhúsinu Blóma-
val, sem stórskemmdist, þak
fauk af fjölbýlishúsi i Árbæ og af
Fæðingardeild Landspitalans, en
þaö feyktist niöur á Barónsstig og
mildi aö ekki varö þar stórslys.
1 Kópavogi var ástandiö einna
ógurlegast á bifreiöastæöupum
viö Engihjalla nr. 19, 17, 5 og 1, en
myndir þaðan má sjá i blaöinu i
dag. Lögreglan kvaddi út tvö-
falda vakt lögregluliös og
hjálparsveit skáta kallaði út alla
sem til náöist i hennar rööum.
1 Hafnarfiröi var svipaö ástand,
mikiö fok á þakjárni og uppslættir
hrundu af húsum. Stórskaöi varö
er þakið fauk af svinabúinu i
Krýsuvfk og á Vifilsstöðum varö
stórtjön vegna þakjárns sem fauk
af hUsum og stórskemmdi bila i
grenndinni.
Húsiöaö Stórahjalla 9og bilarnir sem skemmdust. (Timamynd Róbert)
Tveir bílar skemmdust í eldsvoöa
AM —Sjaldan er ein báran stök. 1
ofviörinu i fyrrakvöld kl. 22.23 var
slökkviliðið kvatt að Stórahjalla 9
i Kópavogi en þar hafði eldur
komið upp i bilskúr. Voru tveir
bílar i skúrnum og eyðilagðist
amk. annar þeirra, sem var nær
alveg nýr.
Slökkviliðið fór á vettvang með
þrjá bila og tókst að ráða niður-
lögum eldsins á hálftima. Mun
ekki hafa miklu mátt muna að
eldurinn kæmisti ibúðina fyrir of-
an en nokkur reykur komst þar
upp i gegn um leiðslur sem lágu
um bilskúrinn frá ibúðinni.
Vindmæli á
Þyrli í Hval-
firði sló út
við 120 hnúta
AM — t fyrrakvöld mældist mesti
meðalvindhraði i Reykjavik, sem
mælst hefur en hann varð 77 hnút-
ar (55.6 metrar á sek.) og I vind-
hviðu komst hann upp í 102 hnúta,
að sögn Braga Jónssonar, veður-
fræðings, i gær.
Þrivegis heíur mælst i Reykja-
vik 72 hnúta meðalhraði (37.1
metri á sek.) en það var 29. októ-
ber 1948, 13. janúar 1952 og 24.
september 1973.1 vindhviðu hefur
mestur vindur mælst 109 hnútar
(56.1 metri á sek.) i janúar 1942.
A Stórhöfða mældist mest i
hviöu i fyrrakvöld 117 hnútar kl.
19.57 og kl. 21 115 hnútar.
Við jarðstöðina Skyggni sýndi
vindmælir mest 108 hnúta i hviðu
og vindmælir á Skrauthólum á
Kjalarnesi sýndi mest 102 hnúta i
hviðu. Mest mældist þó á Þyrli i
Hvalfirði i hviðu en honum sló i
hámark i eitt skipti 120 hnúta og i
annað skipti fór hann i 118 hnúta.
Var þetta á milli kl. 20 og 21 um
kvöldið.
Lægðin sem þessu veðri olli
kom sunnan úr hafi, fór geyst og
dýpkaði hratt. Gekk hún upp á
milli Islands og Grænlands og
sagði Bragi þetta i mörgu minna
á veðrið 1973. Mun áhrifa þessar-
ar lægðar gæta til fimmtudags.
Loftvog féll i Reykjavik um 17
millibör á þrem klst. 17-21. Metið
er þó frá Dalatanga árið 1949 er
loftvogféll um 26millibör og steig
aftur um 33 millibör á þrem tim-
um. Er þess að sögn Braga getið i
ýmsum fræðiritum erlendum.
Fjórar línur Landsvirkjunar úti um hrið:
Gerðu fimm árangurs-
lausar viðgerðatil-
raunir á tveimur tímum
AM — „Vandræðin byrjuöu
þegar upp úr kl. 19.30 i fyrra-
kvöld, er truflanir byrjuðu á
Hvalfjarðarlinunni, en um kl.
20.30 fóru truflanir að koma
fram f Reykjavik,” sagði
Ingólfur óskarsson, rekstrar-
stjóri Landsvirkjunar, þegar
við ræddum við hann i gær.
Um svipað leyti duttu Búr-
fellslínur út og sagöi Ingólfur aö
fimm sinnum heföi veriö reynt
aö fara út til aö koma lagi á
Búrfellslinu II á timabilinu kl.
20.15-22.15, en án árangurs. Var
þá ákveðið aö biöa átekta, en
loks upp úr miönætti tókst aö
mæla út bilunina og var spenna
sett á að nýju kl. 01.34. Fékk þá
ISAL straum aftur, en Reykja-
vik kl. 02.30. Hafði þá gufuafl-
stööin viðElliöaár veriö gang-
sett.
Voru fjórar linur úti á tima-
bili, tvær frá Sogi og tvær frá
Búrfelli, (en önnur þeirra
tengdist raunar Soginu).
Reyndust engar bilanir hafa
orðið á linunum, heldur sló þeim
út i veðurofsanum, þar sem þær
eru ekki ætlaðar fyrir meiri
vindhraöa en 80 hnúta.
Skemmdir urðu á Elliðaárlinu
er járnplötur fuku á hana, svo
hún trosnaöi. Tókst að gera viö
hana um kl. 16 i gær og binda
þar með endi á rafmagns-
skömmtun i Reykjavik, sem
sett var á vegna viögeröarinnar
frá kl. 13.
tión víða um land
rúður viðar um kaupstaðinn, auk
þess sem plötur fuku hér og þar af
húsum. Bátar slitnuðu upp i höfn-
inni iofsanum, en tjón hlaust ekki
af.
Selfoss
Skemmdir virðast ekki hafa
orðið verulegar á Selfossi, en þar
sem annarsstaðar var mikið um
að járn fyki af húsum og uppslátt-
ur við hús kaupfélagsins fauk og
er ónýtur. Þá hafði frést af mikl-
um skemmdum á gróðurhúsum i
Laugarási og á Flúðum, einkum i
gróðrarstöðinni á Áslandi hjá
Guðmundi Sigurðssyni. Ekki
hafði frést um tiltakanlegt tjón á
Eyrarbakka, Þorlákshöfn og
Stokkseyri.
Akranes
A Akranesi varð geysilegt tjón,
þegar grjótfylling fór framan af
hafnargarðinum á 60 metra kafla.
A Akranesi var ástandið annars
svipað þvi og gerðist i Reykjavik,
— bilar voru á ferð og flugi undan
rokinu, járn losnaði af húsum og
rúður fóru i mask fyrir vindi eða
flugi lausagripa. Þar hafði
björgunarsveit SVFl og slökkvi-
liðið nóg að starfa þessa eítir-
minnilegu nótt.
Borgarnes
I Borgarnesi var vitað að mikl-
ar skemmdir höfðu orðið viðs i
nærliggjandi sveitum, þótt engin
heildarmynd væri enn fengin af
tjóninu i gærkvöldi. 1 bænum fauk
þakið nær alveg af Bifreiða-og
trésmiðju KB, að nokkru leyti af
fleiri húsum. Verst var veðrið frá
þvium kl. 8.30 til kl. 1 um nóttina.
Stykkishólmur
1 Stykkishólmi fauk útgerðar og
geymsluhús Sigurðar Ágústsson-
ar af grunni að mestu, en það er á
annað hundrað fermetrar. Lenti
húsið á næsta húsi sem er
verslunarhúsið Hólmskjör. Enn
fauk þak af iþróttastúku við
iþróttavöllinn i heilu lagi og
liðaðist sundur.
isafjörður
Veðrið kom misjafnlega niður á
Vestfjörðum og á Patreksfirði og
Tálknafirði höfðu engar skemmd-
ir orðið enda varð veður þar ekki
svo svæsið.
Á Isafirði var sæmilegt veður
fram til kl. 3 i fyrrinótt, en þá reið
það yfir af miklum ofsa. Þar
slitnaði 12 tonna bátur, Gunnar
Sigurðsson, frá bryggju og sökk. I
Æðey slitnaði upp trilla og rak á
land. Enn varð það óhapp á ísa-
firði að stór vöruflutningabill frá
flutningaþjónustu Bjarna
Þórðarsonar fór á hliðina þar sem
hann stóð á bifreiðastæði. Þá fauk
járn af einu húsi i Hnifsdal.
Fjöldi staura i rafmagnslinunni
til Vestfjarða brotnaði i óverðinu.
Hvammstangi
Viða riorðanlands er að sjá sem
menn hafi sloppið vel við veðrið
til dæmis voru ekki frengir af
neinum alvarlegum skemmdum
á Akureyri, þótt járn losnaði þar
að litlu leyti af fjórum húsum að
sögn lögreglu. Á Þórshöfn var
ekki heldur um neinn skaða að
ræða og veðrið ekki verra en al-
gengt er á vetrum.
A Hvammstanga náði veðrið
hins vegar miklum krafti og þar
flettist járn af vesturhlið húss
sparisjóðsins. Járnflugið olli þó
engum skemmdum, þar sem þaö
mun að mestu hafa hafnað i árgili
i grenndinni. Þá fauk nokkuð járn
af heilsugæslustöðinni og nokkur
gróðurhús i eigu einstaklinga
urðu illa úti. Þá urðu verulegar
skemmdir i sveitinni i grennd
Hvammstanga en ekki er nánar
kunnugt um þær. Rafmagnslaust
var i þorpinu kl. 18 i gærkvöldi og
hafði þá verið rafmagnslaust i 20
klst.
Sauðárkrókur
A Sauðárkróki var vél frá
Arnarflugi i gær og lá við að hún
fyki i rokinu sem mældust 100
hnútar á vellinum. Tókst að forða
að hún fyki með þvi að binda hana
við fjóra stóra vörubila meðan
hvassast var. 15 farþegar sem
með vélinni komu lentu i miklum
erfiðleikum með að komast til
byggða þvi billinn fór út af vegin-
um hjá Hafsteinsstöðum og sat
þar i tvo klukkutima.
Tjón varð i bæ og héraði en hluti
af þaki fór hjá Fiskiðjunni einnig
hjá Útgerðarfélagi Skagfirðinga,
hjá Mjólkursamlaginu og frysti-
húsinu Skildi. Þak fauk alveg af á
bænum Fosshóli i Sæmundarhliö
enaöhluta á fjölda annarra bæja.
Þá uröu skemmdir á tveimur bát-
um i höfninni, Tý, 38 lestir og
Stakkafelli 42lestir. I gærmorgun
Sums staðar
vitlaust veður,
— aðeins gjóla
annars staðar
varkomiðglórulaustél og rok um
12 vindstig enn á Sauðarkróki.
Austfirðir
Misjafnt var hvernig óveðrið
kom niöurá Austfjörðum. A Nes-
kaupstaö, Höfn i Hornafiröi og á
Seyöisfiröi varö veöur aldrei
mjög slæmt en talsvert tjón varð
hins vegar á Vopnafirði en þar
fauk þaf af einu ibúðarhúsi og
nokkrar plötur af öðrum. Þá var
vitað um tjón af foki i sveitinni i
grenndinni.