Tíminn - 18.02.1981, Síða 10
10
tniliii'ií
Miðvikudagur 18. febrúar 1981
Langtímaáætlun um vegager
Með þessari tillögu er ætlunin
að taka enn eitt allstórt skref til
þess að bæta gerð vegaáætlana.
Ég minni á það að meðal merkari
nýjunga I vegalögum þeim sem
nú gilda frá 30. des. 1963, nr. 71,
var ákvæði um vegáætlun. í stað
þess að fjárveitingar til vega-
gerða voru veittar áður frá ári til
árs á fjárlögum eins og til ann-
arra þarfa rikisvaldsins og
þjóðarinnar var ákveðið að gera
áætlun til fjögurra ára i senn yfir
allar framkvæmdir i vegagerð.
Þetta ákvæði var til stórbóta og
er eins og menn vita i gildi enn.
Siðan hefur orðið ljóst að þörf
er á framkvæmdaáætlun til lengri
tima. Nauðsynlegt er að gera sér
hundraöshluta af þjóðarfram-
leiðslu sem sýnist vera nokkuð
eðlilegur mælikvarði. Það er ekki
óeðlilegt að þjóðin leggi meira til
þess mikilvæga málaflokks þegar
þjóðarframleiðslan eykst. Við
lestur á þessu súlnariti kemur i
ljós að sem hundraðshluti af
þjóðarframleiðslu var lagt til
vegamála 1.71% 1970, 1971 jókst
þetta i 2.27% 1972 i 2.36% og er
það langhæsta hlutfall, sem varið
hefur verið til vegamála á þess-
um árum. 1976 sigur það aftur i
1.81%, 1977 i 1.66, 1979 i 1.64 og
1980 hækkar það að nýju i 1.92%.
Meðaltal þessara ára verður
1.88% þjóðarframleiðslunnar.
Ég hygg, að öllum muni vera það
fyrir þvi að koma vegum upp úr
snjó svo sem unnt er. Ekki er
kveðið sterkara að orði þvi aö
sjálfsögðu eru þeir vegarkaflar
til, sem slikt má heita nánast
óframkvæmanlegt á afskekktum
stöðum. Þó þykir rétt að ákveða
slikt sem meginmarkmið og ekki
að ástæðulausu Fskj. nr. 2 sýnir
hvernig ýmsir fjallvegir voru
lokaðir vegna snjóa árið 1979. Þar
kemur i ljós að t.d. Þorska-
fjarðarheiði var lokuð 220 daga
samtals, Lágheiði 218 og reyndar
Axarfjarðarheiði i 275 daga. Mjög
algeng lokun er 100, 150 og upp i
200 daga. Er allt upp i 60% og
jafnvel 75% af timanum lokað
vegna snjóa. Þetta er að sjálf-
F j árhagslegar
forsendur
Steingrimur Hermannsson,
samgönguráöherra
Ég kem þá að þvi sem ég vil
kalla fjárhagslegar forsendur
þessarar áætlunar. Ég rakti áðan
hvernig sveiflur hafa orðið i fjár-
magni til vegamála i gegnum ár-
in. Ég nefndi að meðalframlag
undanfarin ár er 1.88% þjóðar-
framleiðslunnar. Ég gerði einnig
grein fyrir þvi að eðlilegt sýnist
að miða við þjóðarframleiðsluna.
1 þessari till. er lagt til, að sem
grunntala verði ákveðið að leggja
2% þjóðarframleiðslunnar til
vegamála. Þetta mundi jafngilda
Nýtt og skipulegt
að bæta vegake
Framsaga Steingríms Hermannsso
ljóst, hversu stórt átak það er að
koma vegakerfi landsmanna i
það horf, sem talið er eðlilegt og
sæmilegt á liðandi stundu miðað
við ákveðnar forsendur, sem þá
eru lagðar til grundvallar. Þetta
hefur að sjálfsögðu hv.þm. veriö
vel ljóst, því að hér hafa iðulega
komið fram tillögur um slika
langtima áætlun i vegamálum.
Að minu mati hefur margt nú
orðið til þess að ekki verður hjá
þvi komist að stiga skref i þessa
átt.
Ég nefni i fyrsta lagi að i veg-
áætlun er fé til framkvæmda
skiptá stofnbrautir og þjóöbraut-
ir auk brúa.sýsluvega, fjallavega
og þjóövega i þéttbýli og fjárveit-
ing til stofnbrauta er skipt i þrjá
flokka þ.e. til almennra verkefna
til slitlaga og til sérstakra verk-
efna. Og það er kunnara en frá
þurfi að segja að undirbúningur
sumra þessara sérverkefna er
æði margslunginn og flókinn og
þarf að taka tillit til margra
hluta. Undirbúningur getur tekið
mörg ár. Þar kemur til leit og val
á kostum.kortagerð, mælingar, at-
hugun á snjólögum og i sumum
tilvikum á lifriki sem vaxandi
kröfur hafa verið um. Siöan þarf
að sjálfsögðu aö ganga endanlega
frá hönnun sllks mannvirkis. Þvi
er nauðsynlegt að vita hvenær i
framkvæmdaröð kemur að sliku
mannvirki.
Raunar gildir hið sama um
bundið slitlag. Segja má að
meöan aðeins var lagt á um 30-40
km á ári sem var tilskamms tima
og ég kem nánar aö siöar, þá var
þetta ekki svo aðkallandi. Þessir
30-40 km voru yfirleitt til. Ef
leggja á á 100-200 km og jafnvel
meira eins og að er stefnt þá er að
sjálfsögðu nauösynlegt að a.m.k.
þeir km séu tilbúnir og undir-
byggðir þannig að á þá megi
leggja. Allt mælir þetta þvi mjög
meö þvi aö litið sé lengra fram á
veg en gert hefur veriö i fjögurra
ára vegáætlun.
Tilviöbótar vil ég nefna það að
mjög miklar sveiflur hafa verið á
fjármagni til vegamála á undan-
förnum árum. Þetta kemur
glöggt fram I súlnariti sem fylgir
þáltill. Þar er valinn sá kostur að
skrá fjármagn til vega i
fyllilega ljóst aö slikar sveiflur i
framlagi til vegamála eru ákaf-
lega slæmar og auka vitanlega á
erfiðleika i öllum undirbúningi og
öllum framkvæmdum á þessu
sviði.
Tiilögu peirri sem ég mæli hér
fyrir er ætlað að lagfæra þennan
vanda. Hún nær að visu fyrst og
fremst ti 1 stofnbrauta en gerir ráð
fyrir sams konar áætlun fyrir
þjóðbrautirnar siðar. Astæðan
fyrir þvi að stofnbrautirnar eru
teknar út úr eru þær aö Vega-
gerðin hefur undanfarin ár unniö
mjög viðamikið verk við úttekt á
stofnbrautum meö mati á hinum
ýmsu eiginleikum veganna t.d.
burðarþoli, snjóþunga o.s.frv.
o.s.frv. Það er að veröa komið i
það horf, að á þvi er hægt að
byggja þegar langtlmaáætlun um
stofnbrautir. Vinna viö þjóð-
brautirnar er að visu hafin sam-
fara þessu en á lengra i land. For-
senda fyrir þvi að Vegagerðin
geti unnið langtimaáætlun með
fullkominni vissu að ljóst er
hvaða markmið Alþingi vill
leggja til grundvallar við slika
áætlanagerð. Hér er lagt til að
þessi markmið veröi fjögur.
Fjögur
markmið
1 fyrsta lagi er lagt til aö á þessu
20 ára timabili verði 10 tonna
burðarþol vega tryggt.Það á við
allar stofnbrautir og allan þorra
þjóðbrauta.
Rétt er a6 geta þess til upp-
lýsinga að stofnbrautir lands-
manna eru nú taldar 3781 km,
þjóðbrautir 4696 og þjóðvegir i
þéttbýli 159 km.Samtals eru þetta
8636 km.
Eins og nú er ástatt er algengt
aö mikilvægar stofnbrautir séu
lokaðar f hálfan til einn mánuð á
ári hverju og veldur slikt óbæri-
legri truflun á ölhim þeim mikil-
vægu flutningum og annarri um-
ferö sem um þær þarf að vera.
Auk þess má öllum vera ljóst aö
gott buröarþol er forsenda fyrir
þvi aö unnt sé að leggja bundiö
slitlag á þessa vegi. Þvi er það
sett fram sem markmið nr. eitt.
Sem markmiö nr. 2 er gert ráö
sögðu einnig óviðunandi ástand
og þvi lögð á það rik áhersla að
stefnt verði að mjög verulegum
umbótum og slikt ákveöið sem
eitt meginmarkmið.
Loks kem ég að markmiöi nr. 2
sem gerir ráð fyrir þvi að bundiö
slitlag verði lagt á fjölfarnari
vegi.þar sem umferð er meiri en
100 bilar á dag og auk kafla næst
þéttbýliskjörnum þó að umferð sé
minni, en bundið slitlag sé þó lagt
á a.m.k. 1/4 hluta stofnbrauta i
hverju kjördæmi. Rétt þótti að
setja slikt lágmark gagnvart
kjördæmunum, þvi að viða er það
svo aö stofnbrautir geta verið
langar og meirihluti þjóövega -
kerfisins t.d. I Vestfjarðakjör-
dæmi þar sem stofnbrautin er
ekki ein inni i kjördæmi heldur
tvær og umferðin skiptist á þær
báðar. Talið er eðlilegt að taka
tíllit til sliks. Þetta að sjálfsögðu
við viðar þó að hvergi sé það svo
sérstakt eins og i Vestf.
Nú hefur verið lagt bundið slit-
lag á 360 km. Yfirleitt hefur verið
lagt á 30-40 km á ári nema á
siðasta ári. Þá náöist að leggja
bundið slitlag á 90 km.
Nýjustu t’ólur um kostnað sam-
kvæmt Vegagerðinni og miðað
við verðlag nú er fyrir 7,5 metra
breiða vegklæðningu i gömlum
krónum 25 milljónir á km. Oliu-
möl á sams konar veg er gert ráð
fyrir að kosti 44 milljónir, en mal-
bik 57. t þessari tillögu er gert ráð
fyrir að leggja megi bundið slit-
lag á 2000 km af stofnbrautum á
áætlunartimanum og 600 km af
þjóöbrautum þannig að samtals
hafi verið lagt bundið slitlag á um
3000 km að áætlunartimabilinu
loknu. Er stefnt að þvi að unnt
veröi að leggja á i kringum 150
km á ári sem er veruleg aukning
frá þvi sem nú er.
Þá er i fjórða lagi að taka sem
meginmarkmiö öryggi á vegum
landsins. Slysin eru ógnvekjandi
og meöalslysatiðni há hér á landi.
Er augljóst að við lagfæringu á
vegakerfinu veröur aö taka mikið
tíllit til þess t.d. að lagfæra sér-
staklega hættulega staöi o.s.frv.
þótt slikt kunni e.t.v. ekki að falla
undir þau önnur markmið sem ég
hef taliö að framan.