Tíminn - 22.02.1981, Síða 2

Tíminn - 22.02.1981, Síða 2
s&J! J!i (ju > í > Sunnudagur 22. febrúar 1981. *x Fáeinar laglegar visur úr ýmsum áttum: '99 Ríður Helja lög og láð löngum éljadrögum” Veöurguöirnir hafa steypt stömpum af tiltakanlega lítilli hæversku á þorranum aö þessu sinni. Þess konar tiltektir eru aö vísu ekki nein nýlunda. En fyrr má nú vera en tólfunum kasti og heil byggöahverfi og sveitir liggi að meira eöa minna leyti i rúst. Þaö gerist sem betur fer ekki aö jafnaöi aö hér fari yfir veöur meö styrkleika suðrænna fellibylja. Þessi veðrahamur verður til- efni þess, aö viö byrjum hér á fá- einum visum um vetrarveöur, en munu þó fáar þeirra ortar and- spænis öörum eins aftökum og nú Tómstundavörur i fyrir heimili og skála VÖRULISTAR Fyrir viðskiptavini úti á landi: ítarlegur listi yfir hverskyns tómstundavörur og verkfæri á lager okkar er fyrirliggjandi Skrifið eða hringið eftir vörulistanum HANDÍD Laugavegi 26 og Grettisgötu sími 2 95 95 þaó borgar sig að nota PLASTPOKA © Plastprent hf. HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 85600 dundu yfir, svo að vera má, að þær séu ekki svo mergjaðar sem hæfir. En fyrst verður fyrir okkur visa eftir Guömund Inga Kristjánsson á Kirkjubóli: Viða grátt er veðrafar, varla dátt er gaman: Höfuöáttir heyja þar hrföarsláttinn saman. Eitthvaö likt hefur staðið á, þegar Þorsteinn Magnússon frá Gilhaga í Skagafiröi geröi þessa vísu um nöturlegt veðurútlit: Hylur tinda gúlpur grár, gnauöar strindi Ránar, þylur vina hreimur hár, himinlindin gránar. Sá hinn þriöji, sem viö stefnum á þetta þing, er Hreiðar Geirdal. Honum fórust svo orö: Ægir bóiginn byltir sér brims i ólgudýjum. Himinn fóigin allur er ofar kólguskýjum. Sveinbjörn Björnsson kvaö á sinum tima um illviðrahrotu: Yfir himins yglibrá óravegu langa éijaflókar úfnir á uglum veöra hanga. Vindar svelja, héruö hrjáö hríöar kvelja slögum. Riöur Helja lög og láö löngum éljadrögum. Það getur meira en hugsazt, að á einhverju líku og viðrað hefur að undanförnu muni ganga næstu vikurnar. En vist er aftur á móti hitt að stilla mun til um siðir, lygna og hlýna. Fannir glitra gulli stráöar, glóey björt úr austri fer. Ég á haf á hendur báöar, himin tæran yfir mér. Þó aö eitthvað þyngist sporiö, þreytumerkin eyöi dug, finni andinn von um voriö, verður ennþá létt um flug. Þannig kvað Guðrún Arnadóttir frá Oddsstöðum, og Pétur Bein- teinsson frá Grafardal orti þetta: Hlýr og góöur öllum er okkar móöurjaröarfaldur, þott hún bjóöi þér og mér þrumuhljóö og báruskvaldur. Þótt hin gráu klakakveld kveðist á um rósavalinn. sækir þráin arineld út f bláan stjörnusalinn. Þá er breytt um brag og hreim, brosið seitt á kaldar varir, geti hún eitthvað út i heim okkur leitt i draumafarir. Ef við berum niður hjá Jóni Bjarnasyni frá Garðsvik, þá verður fyrir okkur þessi visa: Fögnuö öllu lifi Ijær loftið ilmi blandið. Sólin skin og grasiö grær, guð er að vekja landið. Næst skyggnumst við i visna- safn Hjartar Gislasonar á Akur- eyri. Þar finnum við þessar stök- ur fjórar: Hart er lífsins hnútukast, harma beittur Ijárinn. Innst i hjarta eitthvaö brast, frost. kost augun vættu tárin. Mig þótt hrelli fjúk og farin beztu árin, I von um birtu og betri brosi ég gegn um tárin. Eftir vetrar veörin hörö vakna blóm úr dvala. Máriuerlur messugjörö mér f eyra hjala. Gleði veldur vorsins þrá, vetrar hjaönar drómi. Æskan björt og ellin grá einum syngja rómi. Endum svo þennan þátt með vísu eftir Valdimar Benónýsson á Ægissfðu — um morgunbliðu a6 vorlagi: Sólin hlær á himinboga, hlýnar blær viö árdagskinn. Allt, sem hrærist lifs af loga lagið slær á strenginn sinn. —JH Oddný Guðmundsdóttir: Orðaleppar (Orðtökin í hættu) Eiritrver hélt því f ram, að eðlilegt sé, aðgömul orðatiltæki hverfi úr málinu, þar eð þau bendi til úreltra hluta og siða, taldi, að orðtakið að falla í stafi hlyti að hverfa með tréilátum. Þó er síld enn söltuð í tunnur, og ekki eru þær úr plasti. Eflaust veit söltunar- fólkið að tunna féllur í stafi, ef hún gisnar mikið. Rétt er það, að sum orðtök eru svo forn, að menn þurfa að hafa lesið f leira en dagblaðaf réttir og vikurit til þess að skilja þau. Til dæmis var það orðað svo i blaði, að nú væri vegið í sama knérunn, þegar maður nokkur var atyrtur í annað sinn. Þetta merkir að vega fleiri en einn mann úr sömu ætt, og betur hefði átt við að segja: leggja í einelti. Fyrir skömmu var 800 ára afmæli Snorra Sturlusonar nefnt ártíð hans. Þá hefði komið sér vel að vita, hvað ártíð er. Bókin islenzk orðtök eftir Halldór Halldórsson væri miklu skemmtilegri og þarfari námsbók en ýmsar skóla- bækur, sem notaðar eru við islenzku- kennslu. Og ómissandi er hún á rit- stjórnarskrifstofum. Það gladdi mig aðsjádálítil sýnishorn úr Orðtökunum í nýlegri námsbók. islenzkir máls- hættir eftir Bjarna Vilhjálmsson og Óskar Halldórsson kæmu sér líka vel við íslenzkukennslu. Það brennur við, að málshættir og orðtök afbakist. Einkum eru brögð að því, að ekki sé skeytt um stuðla. ,,Það á að vanda, sem vel á að standa" breytist í ,,Það á að vanda, sem lengi á að standa." „Dregur að skuldadögum" verður „Liður að skuldadögum." Jafnframt afbökun orðtaka eru komin á kreik undarleg orðatiltæki eins og að,,hejlla menn upp úr skón- um" og að betra sé „að vera laus við hauginn en bundinn við drauginn" — — Rétt í þessu heyrði ég, að'leikkona í útvarpinu talar um að „hneykslast upp úr skónum". Þetta er óðatizka núna, að allt mögulegt æsi menn „upp úr skónum". Maður, sem kvartaði um samgöngu- leysi, sagðistseint fá bréf frá unnust- unni á öðru landshorni. Þetta fékk i dagblaði yf irskriftiha „Ást i meinum" Ég legg það til, að hætt verði að kenna málfræði í grunnskólanum upp að sjöunda bekk. Fyrst er að læra orð- in sjálf, merkingu þeirra og fram- burð, síðan skipa þeim í flokka. Mæður, sem bezt haf a kennt börnum sínum mál hér á landi, kunnu engin málfræðiheiti. En málið sjálft kunnu þær. Margir þeirra, sem nú kenna móðurmál í upphæðum langskólans, virðast ekki hafa jörð til að ganga á — svo að notað sé orðalag Káins. Oddný Guðmundsdóttir.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.