Tíminn - 22.02.1981, Qupperneq 15

Tíminn - 22.02.1981, Qupperneq 15
Sunnudagur 22. febrúar 1981. Aðstaða fyrir hend " . ,"r" ' ^ fl • • éfh ^ésSI **. þess að framleiðslu á . J?í' ,J>: ■ ííí1' gönguseiðu Hin seinni árin hefui Veiöimálastoínunin reynt að fars i bvaö ferðir til könnunar á árr landsins til þess að kanna hvaí fyrir þær má gera I fiskræktar- skyni. Ræktunin hefur til þessa að mestu miöast viö það sem gerist i ánum neðan fossa, en 1974 var til- raun gerö ofan fossa i Þjórsá i Fossá i Þjórsárdal og af hálfu stangarveiðifélagsins Armanna i Kálfá, til þess að sleppa ung- seiðum Ur eldisstöðinni i Kolla- firði f árnar og gaf sú tilraun mjög góða raun. Komu fiskarnir fram á þremur árum og flestir 1979, 5500 fiskar sem nemur fjór- földun á veiðinni áöur. Er þá að- eins miðað við fiska á skrá. Gaf þessi tilraun visbendingu um aö i landinu mundu vera fleiri ár, þar sem tök væru á aö ala upp lax of- an ófiskgengra fossa. Spurningin er aftur á móti sú, hve auövelt seiöin muni eiga meö að komast niður fossana ósködduð. Itarlegar kannanir hata verið geröar á nokkrum stórám á undanförnum árum, svo sem á Lagarfljótssvæðinu, Skjálfanda- fljótssvæðinu, i Rangánum og á Héraðsvötnunum i Skagafirði og i Grimsá i Borgarfirði (i 5ár). Auk þess hefur verið farið viöar, svo sem á Norðausturlandið til þess að kanna hvernig seiðin gengju fram eftir kuldaárið 1979 og sérstakar tilraunasleppingar hafa verið geröar i Hrútafjarðar- á, og var þaö annað árið i röð nú i $umar. Fékkst styrkur úr Byggðasjóði til þess að gera þessa tilraun, en henni hefur stjórnað Teitur Arnlaugsson, fiskifræðingur. Hafbeitartilraunir hafa nu verið gerðar á fjórum stööum á landinu og hefur Árni ísaksson séð um þær, og notið til þess styrks frá Norðurlandaráði. Þessir staðir eru Kollafjarðar- stöðin, Botnsá i Súgandafirði, Fossá á Skaga og Berufjaröará i Berufirði. Loks hefur Lárósstöðin bæst i hópinn að nokkru leyti en hún hlaut sérstakan styrk i fyrra til gönguseiðasleppinga. Þetta eru tilraunir, sem gera þarf nokkur ár í röð, til þess að þær megi teljast marktækar og er vonast til að þær megi halda áfram. Sé litiö til stöðuvatnanna bein- ist athyglin fyrst og fremst aö Mývatni og Þingvallavatni. i Mývatni hafa veriö gerðar stofn- rannsóknir undir stjórn Jóns Kristjánssonar fiskifræðings og reynt aðaölaga veiðina sem mest að niðurstöðum þeirra rannsókna og stærö stofnsins. Veiðin i Mývatni hefur verið i talsverðri lægð i nokkur ár og er einn áhuga- veröasti hluti rannsóknanna þvi sá, að fá þaö fram hvernig stofn- inn þar hagar sér. 1 fyrra voru vötn á Melrakka- sléttu og nágrenni sérstaklega könnuðog Þingvallavatn er sifelit á döfinni. Nú hefur stofnunin komið upp umdæmisskrifstofu i Borgarnesi Rætt við t»ór Guðjónsson, veiðimálas tj óra Lax i Elliðaánum. Fiskeldi og fiskirækt hvers konar hefur tekið huga manna i æ rikari mæli hin seinni árin og aug- ljóst að hér er um nýja búgrein að ræða, sem ætti að geta gefið af sér miklar tekjur þegar fram liða stundir, samkvæmt árangri sem þegar er fenginn og er afrakstur margra ára mikils og stanslauss starfs. Veiðimálastofnunin hefur umsjón með mestum hluta þessa starfs og styður það eftir föng- um með ráðum og dáð. Á s.l. sumri var sem áður margt að gerast á þessu sviði og i mörgu tilliti meira en nokkru sinni fyrr. Blaðið ræddi þvi við Þór Guðjónsson veiðimálastjóra i vikunni og fékk hann til að segja frá sumu þvi helsta sem verið hefur að gerast i stórum dráttum Sunnudagur 22. febrúar 1981. ..... og veitir Þórir Dan Jónsson, fiskiíræðingur, henni forstöðu. Umdæmissvæði hennar er Vesturland og Vestfiröir og ferðaðistÞórir mikiðum svæðið á s.l. ári og leiðbeindi mönnum, og safnaði gögnum. Kvaðst Þór Guðjónsson vona að takast mætti aðfá slikan umdæmisfiskifræöing i hvern landsfjórðung, en á þessu ári er vonast til að skrifstofu verði komið upp á Austurlandi, þar sem fjárveiting er þegar fyrir hendi til þess. Enn er að geta þess að nú hefur nefnd tekiö til starfa, til þess að kanna möguleika á betri nýtingu á silungsvötnum og er þar átt við bæði veiðarfæri, markaðsleit ofl. en þetta starf byggist á samvinnu Veiðimálastofnunar, Búnaðar- félags Islands og Landsambands veiðifélaga. Á siðasta ári varö meiri hreyf- ing i byggingu eldisstöðva viða um land en verið hefur áöur. Er þareinkum um aðræða hina nýju Hólastöð, stöö Fiskeldis á Húsavik, og stöð Fólarlax við Straumsvik. Loks minni stöðvar, eins og við Myrkutjörn i Mosfells- sveit og fleiri, sem eru i undir- búningi. Hér er þvi komin upp aðstaða til þess að nær tvöfalda framleiöslu á gönguseiðum og er helst litið til Noregs með sölu á þeim, en i fyrra voru seld til Nor- egs um 120 þúsund gönguseiði frá tveimur stöðvum. Hafa Norð- menn greitt mjög vel fyrir seiðin. Þór Guðjónsson. Eins og áður helur verio unmö að eldistilraununum i Kollafirði og má geta um nýstárlegar til- raunir sem þar voru gerðar i fyrra með aö sleppa laxaseiðum miklu seinna i sjó en áður hefur tiðkast. Til þessa hefur seiðum aðeins verið sleppt á vorin eða fyrrihluta sumars, en takist þessi tilraun ætti að vera hægt að sleppa seiðum alltsumarið. Hefði þetta mikið gildi fyrir hafbeitar- áform, þvi á þennan hátt þarf ekki að geyma seiði frá vori til vors og kosta til dýrri fóðrun og umönnun. Erlendis hefur þetta tekist og verður fróðlegt aö sjá hvernig hér tekst til, þvi nýting eldisstöðvanna yröi stórum betri með þessu móti. Margt fréttnæmt gerðist i laxa- stigabyggingum i fyrra, en lokið var við stigann i Laxá i Þing- eyjarsýslu og enn var lokið við að byggja laxastigann i Setbergsá á Snæfellsnesi. Enn er verið að byggja nýjan laxastiga i Flekku- dalsá og ætti hann aö verða full- gerður i vor. I Fagradalsá á Skarðsströnd er og verið að byggja nýjan stiga, svipaðan þeim i Flekkudalsá, en endur- bætur er verið að framkvæma i Mýrakvisl og sömuleiðis i Selá i Vopnafirði. Hið ánægjulegasta við þessar framkvæmdir er það að hér opnast ný svæði íyrir fisk- inn.sem áður hafa verið lokuö. Þar sem markmið alls þessa er að ná fram sem bestri nýtingu á þeim fiski sem finnst i Islenskum vötnum er nú veriö að leggja drög að þvi að koma upp sem full- komnastri skýrslugerð um silungsveiði I vötnum landsins i likingu við þær skýrslur sem gerðar eru um laxveiðina en þær eru nú orðnar mjög áreiöanlegar og vandaðar, enda liðin um 30 ár frá þvi er fariö var að gera þær fyrst. Hafa menn lært að skynja mikilvægri skýrslanna, þar sem Veiðimálastofnun hefur tekiö þær til tölvuúrvinnslu. Sendir stofnun- Nýklakin kviðpokaseiði. Laxastiginn i Laxá i Aðaldal er nú fullgerður. in veiðibækumar til baka ásamt úrvinnslunni svo veiðifélögin geta haft þessi gögn hjá sér og notið mikils góðs af. Ekki eru enn endanlegar skýrslur fyrirliggjandi um lax- veiðina i fyrra en þó er talið vist að hún muni vera verulega minni en árið áður. Er liklegt aðþetta sé minnsta laxveiði frá þvi fyrir 1970, og taldi Þór að þessu mundi einkum valda hiö kalda ár 1979. Athyglisvert var við veiðina i fyrra hve stór íiskur var i miklum meirihluta og svo aö sjá sem smærri íiskinn vantaði. Þá var sumarið einnig óvanalegt aö þvi leyti að þurrviðri voru mikil, sem olli stangarveiöimönnum erfiö- leikum og ekki má gleyma þvi vandræðra slysi, er míkil óhrein- indi bárust I Hvitá og ölvusá úr Langjökli. Hafði þetta mikil áhrii á veiðina, og var hún nú öll á svæðinu fyrir neðan Hestfjall en hún hefur ætið verið mest i Hvitá og i ölvusá. Var svo enn i fyrra, en þó með allt öðrum hætti en i venjulegu ári. Er aö vona aö afleiöingar þessa óhapps verði ekki aldrifarikar i framtiðinni, en þær athuganir sem til þessa hala veriö gerðar geta ekki talist marktækar að sinni. Hafa sumir taliöaööll seiöi i ánni hafi larist, en ur þvi mun framtiðin ein skera endanlega. Þannig geta utanaðkomandi þættir sett verulega strik i reikn- inginn, þrátt lyrir alla tækni og tilraunir til umbóta meö fiskeldi og ræktun. Eins og framansagt ber meö sér er margt um aö vera i veiði- málum landsins og hefur það hjálpað mikið til aö Framleiðni- sjóöur hefur haft fé aflögu siðustu eitt til tvö ár til þess að lána til eða styrkja fiskræktarverkefni. Það fé hefur gengið til bænda eða veiöifélaga og þegar ýtt undir mörg góð áform. T.d. fékk Búnaðarsamband S-Þingeyjar- sýslu styrk i fyrra til aö hefja laxarækt f stöðuvötnum I stærri mæli en áður hefur þekkst svo og Veiðifélag Fljótsdalshéraðs og aðrir. Allt hefur þetta stuðlað að þvi aö veiöimálin veröa æ mikil- vægari grein hér i landinu, eftir þvi sem þekking eykst og árangur þess starfs sem þegar er innt af hendi kemur i ljós. Þannig var laxveiöin á siöasta áratug um 80% meiri en áratuginn á undan og eru veiðifélög á landinu nú orð- in 135 og vinna þau ötullega hvert á sinu svæöi, bæöi við ræktun og ráöstöfun veiðinnar og enn má ekki gleyma stangaveiðifélögun- um, sem lagt hafa sinn skerf til þessara mála. A.M Cr Lárósstööinni. Þar hafa nú einnig hafist hafbeitartilraunir.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.