Tíminn - 22.02.1981, Side 18

Tíminn - 22.02.1981, Side 18
26 Sunnudagur 22. febrúar 1981. Bregöum okkur i hugarflugi að Núpsstað i Fljótshverfi: en lesum fyrst frásögn Þorvaldar Thoroddsen i Ferðabókinni 1893: „NUpsstaður stendur undir hrikalegri hamrahlið með margvislega löguðum klettum og dröngum. Stdrkostlegastir eru tveir risavaxnir drangar er mæna upp fyrir fjallsbrúnina einsog turnar. — Fyrirofan bæ- inn er stráð heljarbjörgum úr móbergi, og eru mörg þeirra stór sem hús, sum sokkin að mestu i jörð og grasgróin ofan. Björgin hafa oltið ofan úr fjalli.” Bænahús úr torfi hefur frá fornu fari staðið á Núpsstað. Segir Þorvaldur ekki lengur messað i þvi, en stundum verið haldinn kvöldsöngur. Arið 1902 segir Daniel Bruun bænahúsið notað fyrir skemmu. 1 Arbók Ferðafélags Islands 1935 segir: „A Núpsstað er gamalt bænhús og grafreitur. Bænhús þetta var lagt niðurmeð konungsúrskurði árið 1765, en þvi mun hafa verið haldið við isvipuðu formi og það áður var og er nú notað fyrir geymsluhús.” Núpsstaður er austasti bær i Fljótshverfi og V.-Skaftafells- sýslu. Gustav Funk tók mynd af bænum, lfklega árið 1902. Þetta var þá reisulegur burstabær mdð torfþaki algrónu. Veggir hlaðnir úr grjóti og torfi, fram- hlið úr timbri. Til hægri sést lágreist bænahúsið, grasi gróið. E.t.v. voru danskir land- mælingamenn staddir þarna þegar myndin var tekin, og Daniel Bruun þeim til leiðbein- inga? Þorvaldur segir Núpsstað þann bæ á landinu þar sem einna lengst sé i kaupstaö (Papós og Eyrarbakka). ,,Þó er Kirkjan á Hofi i öræfum. Um aldamótin? Kirkjan aö Hofi i öræfum. Aðkvöldi 27. ágúst 1972. Kirkjan á Hofi i öræfum 18. júli 1951. Ingólfur Daviðsson: Byggt og búið í gamla daga — 319 Vallgróin kirkja og bænahús Núpsstaður besti bær og vel húsaður”, ritar hann 1893. Þegar undirritaður kom að Núpsstað sumarið 1968 hafði verið gert við bænahúsið og mun það vera friðað. Mynd tek- in i rigningu 8. ágúst 1968 sýnir húsið sæmilega: þykka torf- veggina, svarta framhlið með hvitri hurð og vindskeiðum. Gróskulegt á þaki og ofaná veggjum, sums staðar hvitt af alblómgaðri geithvönn. Bak við sjást gróðursettar hrislur, og fjær uppsett hey á túni. Neðan- við sandurinn og i austurátt mótar fyrir hinum tröllslega Lómagnúp, 770 m háu stand- bergi, er eitt sinn hefur staðið úti við sjó. Mun Núpsstaður hafa heitið Lómagnúpur fram til um 1600. Uppi við hamarinn þar við bæinn standa þráðbein og há óvenju tiguleg reynitré, enda mun oft mjög heitt undir berginu. A okkar dögum gerði Hannes á Núpsstað garðinn frægan, hörkuslyngur vatnamaður, póstur og leiðsögumaður. ,,Þú hefur mörgum visað veg á viðum söndum. Fáki stýrt i straumi þungum, stigiö létt á jökulbungum.” Svo var kveðið i ágúst 1968, en þá var Hannes háaldraður, hress og glaöur, hafði enn fóta- vist. Nafnkunnur er Núpsstaðar- skógur, en þangaö er langt frá Núpsstaö og yfir vatnsföll að fara. Skógurinn er i mörgum torfum, en ekki samfelldur. Jöklar á þrjá vegu og snjóþungt á vetrum, en mikill sumarhiti i giljum og gljúfrum. 1893 var skógurinn viðast hvar smávaxið kjarr og stórar hrislur fáar, rit- ar Þorvaldur. Ekki veit ég hvernig ástand hans er nú. Núpsstaðarskógur var lengi frægur fyrir villiféð sem þar var. Þvi fjölgaði i góðum árum, en horfefl i hörðum vetrum. Fyrir felliveturinn 1882 voru um 50 kindur i skóginum, en þá féll allt nema tvær ær með lömbum. 1893 voru þar ekki nema 5 villi- kindur ritar Þorvaldur. Nokkru var slátrað árlega og stundum voru fluttar þangað kindur að heiman til að samlagast viUi- fénu. Fyrir mun hafa komið aö þvi var færð tugga. Villiféð var ákaflega styggt, og hélt sig oft mikiö i klettum. Hrútar voru á- kaflega hornastórir. Hafa þeir stöku sinnum verið hafðir til kynbóta á Núpsstað fyrrum, en nú er viUiféð löngu horfið. Höldum héðan austur i öræfi, sveitina i jökulskjólinu. „Fram úr hverju fornu fjalla- skarði Vatnajökull teygir tungu, trölli sá er hrammaþungur”. Fyrir neðan eru sandarnir. Bæimir standa flestir i hverfum undir hliðunum. Hnappavellir, Hof og Svinafell. Staðnæmumst i bæjaþorpinu Hofi. Það stendur undir hamra- hlið, en engjakragar fyrir neð- an. Skeiðará hefur lengi gengið á graslendið á þessum slóðum. Arið 1893 segir Þorvaldur Thor- oddsen m'u búendur á Hofi og um 60 manns alls. 1 Arbók Ferðafélagsins 1937 eru bú- endur sagðir sjö, enda er jörðin bæði stór og góð, tún mjög gras- gefin. A Hofi er eina kirkjan i öræf- um, torfkirkja gömul og fátæk- leg, segir i Arbókinni. Hún var annexia frá Sandfelli sem var stórjörð, en er nú fyrir alllöngu komin i eyði vegna sandfoks. Flestir sem um öræfi fara lita á kirkjuna, enda eru toríkirkjur orðnar fáti'ðar. Kirkjan á Hofi getur varla staðið lengi héðan- af, segir i Arbókinni 1937. Hún stendur samt enn! Hér eru birt- ar þrjár myndir af henni. Hina fyrstu tók Gustav Funk, liklega árið 1902. Þá virðist kirkjan stæðileg. Veggir þykkir úr grjóti og torfi, hvftur timburstafn, torfþak. Hlerar fyrir gluggum. Torf- og grjótgarður i kring, með mjóu hliði. Kofi sést i bak- grunni. Með sama sniði var kirkjan 18. júli 1951, þegar undirritaður var þar á ferð, öll vallgróin að sjá nema ljós gafl- inn. Viðirunni óx á þakinu og hrislur farnar að vaxa upp um- hverfis. 27. ágúst tók ég aðra mynd af kirkjunni og þá i litum. Þakið fagurgrænt, framhlið ljós með brúnum rákum, vindskeið- ar og gluggaumgerðir grænar. Skógræktarfólk er að ganga i kirkjuna til að skoða hana, syngja sálma þar inni og hlusta á gott orð. Kirkjan hafði verið endurbætt og vel um hana hirt. Tognað hefur úr hrislunum við hana, kafgras umhverfis. Kirkjan á Hofi og bænahúsið á Núpsstað eru þokkaleg hús, hlý- leg og fara vel við grænt um- hverfið. Úr fjarlægð virðast þetta þústur i stórbrotnu lands- laginu. Til forna munu timbur- kirkjur hafa verið margar, en torfkirkjur orðið algengar þegar minna varö um rekavið en áður og mjög dró úr sam-

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.