Tíminn - 22.02.1981, Qupperneq 23
' Suiinudagur -22. febrúar- 1981.
>.3J
Bernharður Guðmundsson fréttafltr. þjóðkirkjunnar:
Elsta starfandi
félag landsins
safnar liði
Biblíudagurinn 1981 er í dag
Tilboð óskast í húseignirnar:
1. Mávahlið 4,1. hæð 4 herb. ibúð 100 ferm.
með 40 ferm innréttuðum bilskúr.
Óskað er tilboða i ibúðina með eða án
bilskúrs.
2. Tindasel 3, kjallari: 140 ferm, geymslu-
og/eða iðnaðarhúsnæði með aðkeyrslu
frá götu.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu V.B.
mánudaginn 2. mars kl. 15.00 að viðstödd-
um þeim bjóðendum, sem þess óska.
Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði
sem er eða hafna þeim öllum.
Nánari upplýsingar verða veittar á skrif-
stofu V.B. að Suðurlandsbraut 30, simi
81240.
Stjórn verkamannabústaða i Reykjavik.
Hift islenska Bibliufélag sem
stofnað var 1815 heldur árlegan
Biblíudag í dag. t sjónmáli er nú
nv og endurskoðuð útgáfa Bibli-
unnar og verður sú hin tiunda á
islensku. Fyrsta islenska Biblían,
Guðbrandsbiblia, kom út fyrir
nær 400 árum — árið 1584.
Nýir starfshœttir
i öldnu
þjóðfélagi
A kristniboðsári safnar nú þetta
elsta starfandi félag landsins liði
til nvrra átaka. Hin nýja útgáfa
Bibliunnar er að sjálfsögöu geysi-
lega kostnaðarsöm, auk þess sem
hið aldna félag er að taka upp
nýja starfshætti til þess að örva
útbreiðslu og notkun Bibliunnar.
Áformuð eru m.a.;
Bibliukvöld með kynningu og
sýningu á gömlum Bibliuútgáf-
um, ritgerðarsamkeppni, ferðir á
sögustaði islenskrar Bibliuútgáfu
og kristni hér á landi og e.t.v.
viðar, heimsóknir kunnra
erlendra fyrirlesara, útgáfa leið-
beiningarbókar um Bibliulestur,
lestrarþjónusta fyrir sjóndapra,
o.fl. Það veltur að miklu leyti á
undirtektum, hvað hægt verður
að framkvæma af þessum hug-
myndum.
Margar gerðir
af Bibliuútgáfum
Nú eru fáanlegar um 10 gerðir
islensku Bibliunnar, þ.e. mis-
munandi stærðir, band og litir á
bandi. Verðið er hagstætt, frá 112
upp i282 nýkr. Ætla má að margir
hafi áhuga á að eignast þessa
Biblfuútgáfu, áður en hún gengur
til þurrðar, en ekki er gert ráð
fyrir að hún verði prentuð oftar.
Ný útgáfa Bibliunnar er svo
væntanleg eftir nokkra mánuði,
vonandi verður hún komin á
markað upp Ur miðju ári.
Si'ðast kom Biblian út i nýrri
islenskri útgáfu árið 1912 og 1914.
Prentun hennar var að verulegu
leyti kostuð af Breska Bibliu-
félaginu i London. Hún hefur
margoft verið endurprentuð siðan
en alltaf eftir þeim leturplötum,
sem hún var sett á i upphafi. Það
breyttist ekki, þótt prentunin væri
flutt frá London hingað heim fyrir
aldarfjórðungi og Hið islenska
Biblfufélag tæki um leið á sig all-
an kostnað af endurprentunum
hennar.
Bibliuhlutar á
1710 tungumálum
Biblian öll er nú fáanleg á 275
tungumálum og hlutar úr henni á
1710 tungumálum. A s.l. ári birt-
ust i fyrsta skipti þýðingar úr ,
Bibliunni á 27 tungumálum. Talið
er að alls hafi verið prentaðir 2,5
milljarðar eintaka af Bibliunni og
er hún langútbreiddasta bók ver-
aldar.
Þrátt fyrir fjárhagsvanda legg-
ur Hið islenska Bibliufélag um
tólf þúsund dollara til Bibliuút-
gáfu i löndum þar sem Biblia
hefur ekki enn verið prentuð. Má
geta þess að islenskur maður,
Haraldur ólafsson kristniboði
vinnur nú að þvi að bUa nýja-
testamentið til prentunar á
Boranamáli, sem talað er i suður
Aðalfunduri dag
Ársfundur H.l.B. verður i ár i
kirkju aðventista SD við lngólfs-
itræti og hefst með guðsþjónustu i
BIBLIU DAGUR1981
sunnudagur 22.febrúar
Sæöíö er Guös Orö
hluta Eþiopiu og Kenya. Er það i
fyrsta sinn sem texti er prentaður
á þvi tungumáli.
Islenska
17. tungumálið
kirkjunni kl. 14, þar sem prestur
safnaðarins Jón H. Jónsson pre-
dikar. Allir eru að sjálfsögðu vel-
komnir.
1 stjórn Bibliufélagsins er fólk
Ur flestum kristnum trUfélögum
hérlendis, forseti þess er dr.
Sigurbjörn Einarsson biskup.
Fyrir framtak Guðbrands bisk-
ups Þorlákssonar 1584, varð
islenska 17. tungumálið sem
Biblian birtist á prentuð. Guð-
brandsbiblia er 1240 blaðsiður
með 29 myndskreytingum. Talið
er að prentun hennar hafi tekið
nær 2 ár og sjö menn unnið að
verkinu. Prentuð voru 500 eintök
og sýndi könnun, sem efnt var til
skömmu eftir stofnun Hins
islenska Bibliufélags eða um 1830,
að þá voru ennþá til um 160 ein-
tök. Guðbrandsbiblia kostaði i
upphafi 2-3 kýrverð hvert eintak,
en nýlega var eintak hennar
keypt á uppboði i LundUnum fyrir
yfir 12 millj. isl. g.kr. — eða 120
þUsund nýkrónur.
Liðveisla
Við guðsþjónustur i dag og
næstu sunnudaga er tekið við
gjöfum til Bibliufélagsins. Einnig
er dreift tviblöðungi til kirkju-
gesta með hvatningu um að ger-
ast félagar Bibliufélagsins. Brýn
þörf er nU fyrir viðtækan
stuöning viöfélagið vegna mikilla
verkefna. Skrifstofa félagsins er
opin siðdegis i Guðbrandsstofu,
Hallgri'mskirkju, simi 91-17805
Framkvæmdastjóri Bibliufélags-
ins er Hermann Þorsteinsson og
er það ólaunaö starf.
Söluskattur
Viðurlög falla á söluskatt fyrir janúar-
mánuð 1981, hafi hann ekki verið greiddur
i siðasta lagi 25. þ.m.
Viðurlög eru 4% af vangreiddum sölu-
skatti fyrir hvern byrjaðan virkan dag eft-
ir eindaga uns þau eru orðin 20%, en siðan
eru viðurlögin 4.75% til viðbótar fyrir
hvern byrjaðan mánuð talið frá og með 16.
mars.
Fjármálaráðuneytið,
20. febrúar 1981
Staða yfirlæknis
Vegna ábendingar læknafélags íslands
framlengist hér með umsóknarfrestur um
stöðu yfirlæknis (handlæknis) Sjúkrahúss
Suðuriands sem auglýst hefur verið laust
til umsóknar til 25. mars n.k.
Umsóknir sendist til formanns rekstrar-
stjórnar Páls Hallgrimssonar sýslumanns
Selfossi.
Rekstrarstjórn Sjúkrahúss Suðurlands.
Tjónakönnun
í Kópavogi
Bæjarráð Kópavogs ákvað á fundi sinum
17. febrúar sl. að láta fara fram könnun á
hve miklu tjóni Kópavogsbúar urðu fyrir i
fárviörinu, sem gekk yfir 16.-17. febrúar
sl.
Kannað verður sérstaklega hve mikill
hluti tjónsins veröur óbættur, samkvæmt
núgildandi reglum tryggingafélaga og
opinberra aðila.
Þeim tilmælum er hér með beint til Kópa-
vogsbúa, sem urðu fyrir tjóni i umræddu
óveðri og ekki hafa þegar tilkynnt það til
lögreglunnar i Kópavogi, að þeir tilkynni
það til bæjarskrifstofu Kópavogs, Félags-
heimilinu, Fannborg 2, simi 4 15 70.
Öskað er eftir upplýsingum um allt tjón,
einnig það sem fæst bætt af tryggingar-
félögum.
Bæjarstjórinn i Kópavogi
rlm
tef
SAMBANDÍSLENZKRA
SVEITARFÉLAGA
Siml 10350 Póstholl9 196 ReyHiavik
Samband islenskra sveitarfélaga o.fl.
óska eftir tilboðum i innanhússfrágang og
innréttingar á húsnæði sínu að Háaleitis-
braut 11-13 i Reykjavik.
Verkið felur i sér frágang i kjallara, af-
mörkuð verk á 1. hæð og innréttingu á 2.
og 3. hæð, samtals um 1000 ferm. gólfflöt-
ur. Áætlaður verktimi eru 180 almanaks-
dagar. Tilboðsgögn verða afhent á Teikni-
stofu Gunnars og Gauta s.f., Hverfisgötu
82 Reykjavik, gegn 500 kr. skilatryggingu
og tilboð opnuð hjá Sambandi islenskra
sveitarfélaga, Laugavegi 105, Reykjavik,
þriðjudaginn 10. mars kl. 11 f.h.