Tíminn - 14.03.1981, Qupperneq 1
Laugardagur 14. mars 1981
60. tölublað — 65. árgangur
Siðumúla 15 ■ Pósthólf 370 ■ Reykjavik ■ Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 • Afgreiðsla og áskrift 86300 ' Kvöldsímar 86387 & 86392
Kostnaði vegna orkuskorts-
ins verður jafnað niður
FRI — Rlkisstjórnin hefur á-
kveöiö aö kostnaöarauka þeim
sem varö hjá rafveitum vegna
orkuskortsins að undanförnu
veröi jafnaö niöur og hafa verið
til athugunar að undanförnu
ýmsar mismunandi leiöir til
þess, svo sem sérstök skattlagn-
ing, hækkun á gjaldskrám eöa
lántaka.
Kostnaðaraukinn stafar af þvi
aö vegna vatnsskorts hafa
vatnsaflsstöðvar landsins að
undanförnu ekki getað mætt
raforkuþörf I landskerfinu og
hefur af þeim sökum þurft að
keyra díselstöðvar með ærnum
kostnaöi.
I frétt frá iðnaðarráðuneytinu
um þetta mál segir m.a.:
A tundi sinum sl. fimmtudag
ákvað rikisstjórnin að heimila
nokkra hækkun á gjaldskrám,
sem standa mun undir þessum
kostnaðarauka að verulegum
hluta.
Gjaldskrárhækkunin er miðuö
viö sömu krónutölu á kilówatt-
stund á heimilistaxta hvar sem
er á landinu, þ.e. sem nemur 6
aurum.
Um siðustu mánaðamót var
að mestu hætt raforkuskömmt-
un frá vatnsaflsvirkjunum til
almenningsveitna, en enn er um
skerðingu að ræða til stórnot-
enda.
Það kemur ennfremur fram i
fréttinni aö Orkustofnun hefur
verið falið að kanna ástæður
þessa orkuskorts svo komast
megi hjá honum i framtiöinni.
Bráöabirgöalögin:
Líklega
afgreidd
eftir helgi
JSG — Nú er skammt i að bráöa-
birgöalög rikisstjórnarinnar frá
þvi um áramót, hljóti staðfest-
ingu Alþingis. Fjárhags og viö-
skiptanefnd neöri deildar lauk
umfjöllun sinni um bráöabirgöa-
lögin á fimmtudag, og veröur
prentuöum nefndaráiitum stjórn-
arliöa og fuiltrúa Aiþýöuflokks i
nefndinni dreift á Alþingi á
mánudag. Þegar iiggja fyrir
nefndarálit og breytingatillögur
frá fulitrúum Sjálfstæöisflokks.
Að sögn Halldórs Asgrimsson-
ar, formanns fjárhags og við-
skiptanefndar, mæla stjórnarlið-
ar i nefndinni eindregið með að
bráðabirgðalögin veröi staðfest.
Taldi Halldór liklegt að lögin yrðu
afgreidd frá Alþingi á mánudag,
eða miðvikudag.
„Niður meö smáborgarana,” gæti hann veriö aö hugsa þessi, sem örugglega er tiibúinn aö stinga öllum viöteknum siöaklausum niöur I
rausladunkinn fyrir ofan sig. A meðan kynnir vinkona hans sér ávarp existentialismans, —nema þaö sé liffræðin þeirra I Hamrahliöaskólan-
Flugmenn sífellt hvattir
til að tefla í tvísýnu
AM t samtali sem viö
áttum við einn af flug- *
stjórum Flugleiöa á
innanlandsleiðum i
gær, kemur fram aö
flugliðarnir þykjast
vera undir stööugum
og oft óbærilegum
þrýstingi frá flugum-
Skeyta litlu flugfélögin ekki um lágmarksöryggisreglur?
umsjónarmönnum I Reykjavik
og llugafgreiðslumönnum úti á
landi, sem stöðugt leggja að
þeim að tefla á tvær hættur hvaö
flugskilyröi snertir og visa til
samanburðar á flugmenn minni
félaga Uti á landi, sem gjarna
ætla sér ekki af og brjóta jafnvel
viðurkenndar reglur I ofdirfsku-
fullum flugferðum landshluta I
„Stundum eigum við beinlinis
i vök að verjast,” sagði viðmæl-
andiokkar,” og þvi miðurer svo
að sjá sem leysp eigi úr þeim
fjárhagslegu þrengingum sem
islensk flugmál eiga við að búa
með þvi að ganga á öryggis-
atriði.”
Fljúga á hverju sem
gengur
Flugstjórinn nefndi sem dæmi
að á dögunum hefði ein Fokker
véla Flugleiða snúið frá að
lenda á Isafirði, vegna þess að
skilyrði voru fyrir neðan viður-
Litlu félögin eiga ekki hægt
kennt lágmark. Um sama leyti
kom hins vegar flugvél frá flug-
félaginu Ernir á Isafirði frá
Reykjavik og hélt stuttu seinna
á loft að nýju með farþega sem
ætlað höfðu með áætlunarflug-
inu. Þessi flugvél Arna sneri
loksenn vesturum köld og lenti
i myrkri á vellinum, sem er
bannað að gera.
,,A þennan hátt taka litlu
félögin fjölda farþega frá Flug-
leiðum. Þeir ganga meira að
segja um afgreiðslusalinn,
skömmu áður en við förum og
segjast vera að taka á loft og að
þeir verði hálftima á undan okk-
ur suður. Þetta iðka menn sem
ekkert leyfi hafa til áætlunar-
flugs, án þess að nokkur hreyfi
mótmælum.”
,,State minima”
„Oft hefur verið rætt um að
koma þyrfti á hér á landi regl-
um um lágmarksskilyrði á flug-
völlum (state-minima) þannig
að völlur sé lokaður fyrir allri
flugumferð, ef skyggni og aörar
aðstæður eru fyrir neöan lág-
mark. Okkur er kunnugt um að
Framhald á bls. 19