Tíminn - 14.03.1981, Qupperneq 9
Laugardagur 14. mars 1981
13
Kennaranemar
frá Noregi
í íslandsferð
BSt — Kennaranemar frá Kenn-
araháskólanum i Notodden á
Þelamörk i Noregi ætla aö heim-
sækja Island. Hópur 120 kennara-
nema og kennara er væntanlegur
til Reykjavikur laugardaginn 14.
mars. Norömennirnir munu
dvelja hér á landi i vikutima.
1 Kennaraháskólanum i Not-
odden er þaö venja, að nemendur
fari árlega i stuttar kynnisferðir
til ýmissa landa, en þetta er i
fyrsta sinn sem Island verður
fýrir valinu.
Þessir norsku gestir hafa m.a.
óskað eftir þvi að fá að heimsækja
grunnskóla, menntaskóla, iðn-
skóla, fjölbrautaskóla, og kenn-
arahaskóiann. Einnig hafa þeir
áhuga á að heimsækja ýmis fyrir-
tæki og stofnanir, t.d. fyrir
aldraða.
í nemendahópnum eru ágætur
söngkór, 40 manna þjóðdansa-
flokkur og lUðrasveit. Auk þess er
i förinni þekktur einsöngvari og
tveir orgelleikarar.
Áætlað er að hópurinn haldi hér
þrenna tónleika. Þeir fyrstu
verða i Menntaskólanum við
Hamrahlið mánudagskvöldið 16.
mars. Siðan verða kirkjutónleik-
ar i BUstaðakirkju miðvikudags-
kvöldið 18. mars, og tónleikar og
þjóðdansasýning i Norræna hús-
inu fimmtudaginn 19. mars.
,,Ef tadcifæri gefst eru gestirnir
fUsir til að vera með stutt dag-
skráratriði á þeim stöðum, sem
þeir heimsækja”, sagði Þórir
Sigurðsson námsstjóri er hann
sagði blaðamanni Timans frá
hinni fyrirhuguðu heimsókn
norsku kennaranemanna. Hann
sagði einnig að Norðmennirnir
vonuðust til að geta nýtt þessa
vikudvöl si'na hér á landi sem
best, séð sem flest og kynnst
mörgum.
Ásmundur Ásgeirsson
75 ára í dag
1 dag, 14. mars, verður
Asmundur Asgeirsson skák-
meistari 75 ára. Asmundur var
um langt árabil einn af
öflugustu skákmeisturum
tslendinga og vann marga
glæsta sigra við taflborðið. Stór-
veldistimi Asmundar i skákinni
var á 4. og 5. áratug þessarar
aldar. Þá vann hann hvert
mótið á fætur öðru. Ekki kann
sá sem þetta ritar að rekja
skákferil Asmundar i smáat-
riðum og verður þvi heldur
fátækleg upptalning að nægja,
áhugasömum lesendum skal
bent á bókina Taflfélag Reykja-
vikur 50. ára.
Ásmundur Asgeirsson varð
skákmeistari tslands, sex
sinnum, 1931, 1933, 1934, 1944
1945, 1946. Hann varð skák-
meistari Reykjavikur árin 1930,
1932, og 1940 og auk þess tefldi
hann fyrir Islands hönd á
ólympýuskákmótunum i
Hamborg 1930, Folkestone 1933,
Miinchen 1936, Stokkhólmi 1937
og var í hinni frægu sigursveit,
sem vann forsetabikarinn á ól-
ympiumótinu i Buenos Aires
1939. Ásmundur tefldi oftar en
einu sinni á skákþingum
Norðurlanda og i Yanofsky mót-
inu, sem haldið var i Reykjavik
árið 1947 varð hann i 2. sæti á
eftir Yanofsky.
Þegar kom fram yfir 1950
mun Asmundur að mestu hafa
hætt þátttiku i kappmótum og
nú siðustu árin hefur hann
ekkert teflt opinberlega. Ég hef
aldrei kynnst Asmundi Ásgeirs-
syni, en eftir að ég fór að tefla
hér syðra heyrði ég hans oft
getið og jafnan sem hörkuskák-
manns. Bestu eiginleikar hans
við skákborðið munu hafa verið
seigla i vörn og ágæt endatafls-
tækni. Menn af hans kynslóð
lögðu minni rækt við byrjana-
rannsóknir en nú tiðkast, en
engu að siður virðist mér af
þeim skákum, sem ég hef séð
eftir Asmund, að hann hafi verið
dável að sér i þeim fræöum og
ekki verður annað séö en aö
hann hafi verið skæður i sókn
þegar svo bar undir.
Skákin, sem hér fer á eftir er
sýnishorn af taflmennsku
Asmundar. Hún var tefld i 3.
umferð Yanofskymótsins 1947
og eru athugasemdimar tdinar
úr timaritinu Skák. Þær eru
eftir R.G. Wade. Aö lokum
óskar þátturinn Asmundi
Asgeirssyni allra heilla á 75 ára
afmælinu og færir honum bestu
þakkir fyrir giftudrjúgt framlag
til islenskrar skákmenntar.
Hvitt: Ásmundur Asgeirsson
Svart: Robert G. Wade
Slavnesk vörn
1. d4 - d5
2. c4 - c6
3. Rf3 - Rf6
4. cxd5 - cxd5
5. Rc3 - Rc6
6. e3
(Venjulegt er 6. Bf4 - Bf5, 7.
e3).
6. - - a6
(Þessum leik er oft leikið
ásamt b7 - b5 i þeim tilgangi að
leika riddara til c4. Drottn-
ingarbiskupinn verður ekki
virkur, fyrr en vörnin á drottn-
ingararminum er orðin örugg).
7. Re5 - Bf5
8 . Da4 - Bd7!
(Svart óttast ekki 9. Rxd7 þar
sem svart ætlar sér að leika
peðunum á hvita reiti, sem
hefur i för með sér að svigrúm
drottningarbiskupsins
þrengist).
9. Db3 - e6
10. f4
Asmundur Asgeirsson.
( Ef 10. Dxb7 þá Ra5 og vinnur
drottninguna).
10. - - Ra5
11. Ddl - b5
12. Bd3 - Rc4
13. 0-0 - b4!
14. Re2 - Bb5
(Þar með hefur svart opnað
drottningarbiskupnum meira
svigrúm. Svart undirbýr Rxe5
og síðan Bxd3 og þar næst Re4).
15. Rg3-h5
(Hótar h5 - h4, og hvitt verður
að forða riddaranum en þá
getur svart leikið Re4 með
ágætri stöðu. önnur leið kom
einnig til greina, sem var 15. -
Rd6 ásamt Re4).
16. f5!? - Rxe5
17. Bxb5+ - axb5
18. dxe5 - Rg4
19. fxe6 - fxe6
20. h3
(Svart hótaði Dh4).
20. - - Rxe5
21. De2 - D66
22. Rxh5 - b3
23. Bd2 - Rc4!
24. Rf4
Svart hótaði að vinna mann
með Rxd2).
24. - - Rxd2
25. Dxd2 - Bc5
26. Dd3
Jón P. Pór:
SKÁK
(Ekki 26. Hfel vegna Hxa2, 27.
Hxa2 - bxa2, 28. b4 - alD og
vinnur).
26. - - Bxe3+,
27. Khl - O-O-O?
(Slæmur leikur. Svart hefur
hugsað sér að nota h - linuna til
sóknar en athugar ekki, að
kóngsstaða sin er of opin. Hefði
svart leikið 27. - 0-0 var staða
hans unnin, vegna hinna
tveggja samstæða peða á mið-
borðinu. Varkárni er þó nauö-
synleg, vegna 28. Rh5, sem
leiðir af sér að svart verður að
forðast margar leiðir, sem leitt
gætu til jafnteflis. ( 1 athuga-
grein i skákarlok benti
Asmundur á að i stað 28. Rh5 gat
hvitur leikið Rg6 og þá þarf
svartur ekki að verjast jafntefli
heldur að berjast fyrir þvi)).
28. Rg6 - Hh6
(Eins og framhaldið sýnir,
hefði orðiö betra að leika 28. -
Hhe8 en svart hrókaði ekki
drottningarmegin, til þess aö
byggja upp varnartafl).
29. axb3 - Kb8
30. b 4!
(Hvi'tt hótar Ha5 og vinnur).
30. - - d4
31. De4 - Db7
32. De5+ - Kc8
33. De5+
(Hvi'tt þráskákar af þvi að
hann er i timaþröng).
33. - Kb8
34. Ðe5- Kc8
35. Dxe6+- Kb8
36. De5+ - Kc8
37. Hfl+!
(Skemmtilegur endir. Svart
getur ekki lengi varist máti).
37. - - Kd7
38. De7+ mát.
Jon Þ. Þór.
Asmundur tekur á móti
gestum i húsnæði Húsmæðra-
félagsins á milli kl. 15 og 18 i
dag.
Útskornir trékappar i mörgum viðartegundum
1barrock
stíl
Þið hringið
við mælum
og setjum
upp
•
Reynið
okkar
þjónustu
hún er
trygg
Simi 77900 Simi 77900
AUGLÝSING
um lán og styrki til
kvikmyndagerðar
Kvikmyndasjóður auglýsir eftir um-
sóknum um lán og styrki til kvikmynda-
gerðar. Umsóknum fylgi kvikmynda-
handrit og/ eða greinargerð um verkefnið
og lýsing á þvi áætlun um kostnað og fjár-
mögnun, svo og timaáætlun.
Umsóknir sendist: Kvikmyndasjóði,
Menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 4,
Reykjavik.
Umsóknarfrestur er til 15. april 1981.
Reykjavik 12. mars 1981
Stjórn Kvikmyndasjóðs.
Til sölu
3ja ára Datsun diesel bíll ekinn um 100.
þús km.
Upplýsingar i sima 36185 eftir kl. 7 á
kvöldin.
1 barrock
stíl
Munið
orginal
zbrautir
frá okkur
Æ^fjölnotavagninn
ER MEIRI EN HANN SÝNIST!
Með aukabúnaði má nota hann sem almennan flutningavagn,
sem votheysvagn, sem baggavagn og sem mykjudreifara.
JF fjölnotavagninn er búinn að sanna ágæti sitt hér á landi,
enda búinn að þjóna íslenskum bændum á annan áratug.
EINFALDUR - STERKUR - AFKASTAMIKILL
GÓÐ KAUP - GREIÐSLUSKILMÁLAR
Þeir sem hafa hug á að kaupa
JF sláttutætara
fyrir sumarið, hafi samband við okkur
sem fyrst.
Vinnslubreiddir: 1.13 m. 1.33 m. 1.45 m.
Fáanlegur aukabúnaður: Kapalstýring,
rafmagns, -eða vökvastýring á blásturs-
túðu.
G/obus/
LÁGMÚLI 5, SlMI 81555