Tíminn - 25.04.1981, Page 1

Tíminn - 25.04.1981, Page 1
Síöumúla 15 • Pósthólf 370 • Reykjavik • Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 • Afgreiðsla og áskrift 86300 ■ Kvöldsímar 86387 & 86392 Rikisstjórmn tekur ákvöröun um næstu efnahagsaðgerðir i dag: „Tollalækkanir og niðurgreiðslur” — eru meöal þeirra möguleika, sem fjailaö er um, að sögn Steingrims Hermannssonar JSG — Efnahagsmálanefnd rfk- isstjórnarinnar, ráðherranefnd um efnahagsmál, og siðan öll rikisstjórnin munu i dag vænt- anlega ganga frá tillögum um næstu aðgerðir stjórnarinnar i efnahagsmálum. Tillögurnar verða slöan lagðar fyrir Alþingi eftir helgina, að þvi er Stein- grímur Hermannsson, sjávar- útvegsráðherra, tjáði blaðinu i gærkvöldi. Mikil fundahöld voru i gær i rikisstjórn og þingflokk- um um hugsanlegar efnahags- aðgerðir, og ýmsir möguleikar ræddir, en i dag er ætlunin að „sortera úr möguleikunum”, eins og Steingrimur orðaði það. ,,Við framsóknarráðherrarnir höfum visað til ályktunar mið- stjórnar okkar, og lagt áherslu á að visitöluhækkunin 1. júni verði ekki yfir 8%, og að staðið verði við það markmið að verðbólgan fari ekki yfir 40% á árinu. Til þess að ná þessu markmiði eru nú kannaðárbæöi tollalækkanir og niðurgreiðslur, auk þess sem fjallað er um verðlagsmál. En möguleikarnir eru enn margir og þvi ekki hægt að ský'ra frá þeim i smáatriðum”, sagði Steingrimur. Ráðherranefndin sem fjallar um efnahagsaðgerðirnar, og i eru Gunnar Thoroddsen, forsæt- isráðherra, Steingrimur Her- mannsson, og Svavar Gestsson, kemur saman til fundar kl.10 f.h. i dag. Fundur rikisstjórnar- innarhefst siðan kl. 12 á hádegi. Frá árekstrinum á mótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar, aðfaranótt sumardagsins fyrsta. Eins og sjá má eru báðar bifreiöarnar mjög illa farnar, ef ekki ónýtar. Timamynd: G.E. Hörkuárekstrar Kás — Tveir hörkuárekstrar urðu i Reykjavik með hálftlma millibili aðfaranótt sumardags- ins fyrsta, meö þeim afleiðing- um að flytja þurfti sextán manns á slysadeild Borgar- spltalans. Ekki er taliö að neinn af sextánmenningunum hafi orðið fyrir alvariegum meiðsl- um i árekstrunum. Fyrri áreksturinn varð kl.02.25 á mótum Kringlumýr- arbrautar og Miklubrautar. Umferðarljósin voru gul blikk- andi á gatnamótunum, eins og annars staðar i borginni á þess- um tima, og á þá Miklabrautin aðalbrautarréttinn. Range Rov- er bifreiö var ekið austur Miklu brautina, en i sömu mund var Toyotabifreið ekið norður Kringlumýrarbraut. Skullu bif- reiðarnar saman á gatnamótun- um. Þrennt var i Range Rovern- um og sex i Toyotunni og þurfti aö flytja allt fólkið á slysadeild, til að gera að meiðslum þess. Virðist sem ökumaður Toy- otabifreiðarinnar hafi ekki átt- að sig á biðskyldunni, og þvi ek- ið beint inn i hina bifreiðina. Seinni áreksturinn varð kl.02.52 á Vesturlandsvegi, rétt vestan við Gufunesafleggjar- ann. Bifreið með R-númeri, var ekið vestur Vesturlandsveg i átt til Reykjavikur. 1 þann mund sem hún kemur aö fyrrnefndum stað tekur ökumaðurinn eftir kyrrstæðri ljóslausri bifreið á akbrautinni. Ætlar hann sér i fyrstu að sveigja fram hjá henni, en tekur þá eftir manni sem gengur frá ljóslausu bif- reiðinni yfir veginn. Sveigir hann þá aftur til hægri, með þeim afleiöingum að hann lend- ir aftur á kyrrstæðu bifreiðinni, ,sem var með G-númeri. Kastað- ist hún við það út af veginum. Sex voru i bifreiðinni með G-- númerinu, en aðeins ökumaður- inn I R-númer bifreiöinni. Voru allir, þ.e. sjö talsins fluttir á slysadeild, svo hægt væri að gera að meiðslum þeirra. Aðalfundur Flugleiða: Samkomulag um stjórnarkjörið AM — Augljóst var að allar deilur höfðu veriö settar niöur milli stjórnar Flugleiða og Fjöleignar- manna, áöur en aðalfundur Flug- leiða hófst að Hótel Loftleiöum i gærmorgun og gekk Kristjana Milla Thorsteinsson inn I stjórn- ina alveg hljóðalaust, en rlkið fékk tvo menn skipaöa og vék Bergur G. Gislason úr stjórninni, til þess að svo gæti orðiö, en hann átti að sitja til næsta árs. Sjálf- kjöriö var I aðalstjórn. Þegar i upphafi fundarins lá fyrir tillaga frá fjármálaráðherra f.h. rikisjóðs og stjórnar Flug- leiða um breytingar á samþykkt- um þess eölis aö rikiö fengi að til- nefna tvo menn i aðalstjórn fé- lagsins, með þeim hætti að á aðal- fundi nú verður annar fulltrúinn skipaður til tveggja ára, en hinn til eins árs. A næsta ári verður hins vegar skipaður maður til tveggja ára i stað þess er nú var skipaður til eins árs og skipi rikið því einn fulltrúa árlega upp frá þvi. A sama tima skulu 7 menn kosnir á aðalfundi i stjórn félags- ins, 4 annað áriö en 3 hitt árið. Þá tilnefni rikiö tvo varamenn. Fulltrúar rikissjóðs hafa verið skipaðir þeir Rúnar Bj. Jóhanns- son, og Kári Einarsson. Tilnefningu til aðalstjórnar- kjörs hlutu þau Óttar Möller, Sig- urður Helgason, Orn 0 Johnson og Kristjana Milla Thorsteinsson og voru þau sjálfkjörin. Auk þeirra og fulltrúa rikisins skipa aðalstjórn Kristinn Olsen, Grétar Br. Kristjánsson og Halldór H. Jónsson. Úr stjórninni gengu Al- freö Eliasson, Sigurgeir Jónsson og sem fyrr segir Bergur G. Gislason. Sjá bls. 5. Erlingur Þorsteinsson mcð taflið i höndunum. Tímamynd: Róbert „Var alveg búinn að vera eftir skákina” — sagði Erlingur Þorsteinsson, sem lagði stórmeistarann Viktor Korchnoi að velli Kás — ,,Ég var alveg bú- inn að vera eftir skákina”, sagði Erlingur Þorsteinsson, 25 ára gamall viðskipta- fræðinemi, i samtali við Timann i gær en hann afrek- aði það einn manna að leggja stórmeistarann Viktor Korchnoi að velii, i þeim þremur fjölteflum sem efnt var til á meöan heimsókn hans stóð yfir hér á iandi. „Við lékum ákveðið af- brigði sem nefnt hefur verið „Möttekið drottningar- bragð”, sem íelst i þvi að hvitur (Korchnoi) leikur peði fram á d4 og ég svara með peöi á d5. Siðan leikur hann fram peöi á c4 og ég þigg það”, sagði Erlingur Þorsteinsson. Eftir þessa byrjun tefldu þeir félagar áfram upp i 53 leik, en þá gaf Korchnoi taflið. Ekki sagðist Erlingur hafa athugað þetta afbrigði neitt sérstaklega fyrir fjölteflið, en sagði að hann væri i óvenju góðri æfingu nú, sem kannski mætti þakka sigur- inn. Eins og fyrr segir tefldi Korchnoi þrjú fjöltefli hér á landi. Fyrst var það i sjón- varpssal við átta valinkunna skákmenn. Næst tefldi hann við 30 bankamenn. Að end- ingu tefldi hann við 35 félaga i Taflfélagi Reykjavikur, og það var einmitt i þvi fjöltefli sem Erlingur lagði meistar- ann að velli. Vinnings- skákin er birt á bls. 2

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.