Tíminn - 22.05.1981, Page 11
Föstudagur 22. mai 1981
11
Dagskrá hljóðvarps og sjónvarps
VATK A MYLLU HINNA FJOL-
MÖRGU KARLREMBUSVÍNA. ’
■ Alltaf er ég hrifin af leik Jo-
anne Woodward, og hún brást
mér svo sannarlega ekki i kvik-
mynd sjönvarpsins sl. föstu-
dagskvöld, og Martin Balsam i
hlutverki eiginmanns hennar
stóö henni alveg jafnfætis i leik
sinum.
Myndin þótti mér fjalla á trú-
verðugan hátt um raunir þess
að verða miðaldra og horfa á lif-
ið liða hjá, án þess að vita i
raun, hverju maður hefur áork-
að eða afkastað. Þá er eins og
rik tilhneiging sé i fólki að rig-
halda i liðna tið, upplifa æsku
sina aftur og aftur, þar til slik
upplifun verður að þráhyggju,
án þess að maður fái við nokkuö
ráðið.
Það var hreint ekki svo
óraunveruleg lausn á vanda
Ritu i myndinni að komast aö
þvi að maður hennar átti einnig
við sina fortiðardrauga ramma
glimu, og þegar hann komst i
nána snertingu við þá i Frakk-
landi, þar sem hann endurlifði
striðshörmungarnar og þau
ódæði sem hann hafði drýgt þar
i nafni striðsins, þá kemst hún
að þvi að hún er lika aflögufær,
og getur miðlað og deilt með
ástvini sinum, án þess aö þurfa
stöðugt að velta sér upp úr loft-
kastaladraumum fortiðarinnar.
íhaldssamt, breskt
þema i mánudagsleik-
ritinu
Breska sjónvarpsleikritið á
mánudagskvöldið ,,Nú er það of
seint” var ekki beinlinis frum-
legt, þvi hið ihaldssama og að
minu mati úrelta þema, að hin
eina sanna lifsfylling konunnar
sé að ala, og ala upp, börn, var
rauði þráðurinn i leikritinu.
Þaö var rækilega undirstrikað
i efnismeðferðinni, að hugmynd
sú, sem kom upp um það að hin
iðjulausa, auðuga, unga frú færi
út að vinna, til þess að leita sér
fjölmörgu karlrembusvina, sem
þrifast jú hvar sem er.
Tviburaþátturinn
góður
Kanadamenn gera oft
■ „Myndin þótti mér fjalla á trúveröugan hátt um raunir þess að
verða miðaldra og horfa á lifið líða hjá...”
lifsfyllingar i annars innihalds-
lausu lifi, var aðeins næstbesta
hugmyndin.
Þetta leikrit hefur sjálfsagt
verkað sem vatn á myllu hinna
skemmtilega fræðsluþætti, og
finnst mér ,,The Nature of
Things” falla undir þá skil-
greiningu. Það er alltaf forvitni-
legt efni að læra um eðli manns-
ins, erfðir og áhrif uppeldis. Það
kom vel i ljós i þessum seinni
hluta um tvibura, og þá sérstak-
lega um eineggja tvibura, að
þeir geta komið visindamönn-
um sem rannsaka erfðir, erfða-
áhrif, litninga, ytri og innri gerð
likamans að mjög svo góðum
notum, og auðveldað þeim að
komast að niðurstöðum i rann-
sóknum sinum.
Sérlega góður þáttur
,,Á hljóðbergi”
Mér fannst það hreinasta
skemmtun að hlýöa á Skotann
Charles Brooks lesa skosku
fornkvæðin i þættinum ,,A hljóð-
bergi” á þriöjudagskvöldið.
Þessi þáttur bar nafniö ,,Hvi
löðrar svo blóðugur brandur
þinn” sem er upphafssetning
eins ljóðanna i frábærri þýðingu
Jóns Helgasonar. Tek ég undir
þau ummæli Björns Th. Björns-
sonar, sem hann viðhafði i
þættinum, að þaö er hörmulegt
að hljóðupptökur með upplestri
Jóns Helgasonar á eigin þýðing-
um séu útvarpinu meö öllu
glataðar. Upplestur Brooks var
alveg dæmalaust góður, hrynj-
andin falleg, fornt og fallega
kveðið að orðum, þannig að
skoska málið fékk nýtt lif i min-
um augum. Þessi framburður
og þetta mál, var að minu mati
ólikt hljómfegurra en nútima-
mál Skotanna.
Páll Heiðar fái sér
hóstamixtúru
Mikinn greiöa myndi hann
Páll Heiðar gera sér og þeim
landsmönnum, sem hlusta á
Morgunpóstinn, ef hann fengi
sér nú krassandi hóstamixtúru.
Það er öldungis óþolandi að
hlusta á hann ræskja sig og
hósta hástöfum beint i hljóð-
nemann á hverjum morgni.
Annað atriöi, sem mér finnst
aöfinnsluvert hjá þeim Morgun-
póstsmönnum, er framsögn og
lestur. Það er eins og blessaðir
mennirnir hafi nú siðustu daga,
fengið þá hugmynd um fram-
sögn, að þeim mun hraðari og
þvoglumæltari sem hún væri,
þeim mun betri væri hún. Mér
hefur siðustu morgna dottið i
hug gamla barnaskólamartröö-
in, þegar lestrarpróf nálguðust.
Þá var ekki spurt um hversu
skirmæltur og vel máli farinn
nemandinn var, heldur gilti þaö
að komast yfir ákveðinn orða-
fjölda á minútu. En þeim er
kannski vorkunn þarna i
Morgunpóstinum. Komin er
þreyta i þáttinn, enda verður
brátt sá 500. fluttur, og svo fá
þeir fri.
— A.B.
Agnes Bragadóttir,
bladamadur, skrifar um
dagskrá rikisfjöl-
midlanna i liðinni viku
Dagskrá sjónvarps vikuna 24. til 30. maí 1981
sjonvarp
Sunnudagur
24. mai
18.00 Sunnudagshugvekja.
Séra Halldór Gröndal, sókn-
arprestur I Grensáspresta-
kalli, flytur hugvekjuna.
18.10 Barbapabbi. Tveir þætt-
ir, annar endursýndur og
hinn frumsýndur. Þýöandi
Ragna Ragnars. Sögumaö-
ur Guðni Kolbeinsson.
18.20. ,,Og þá var kátt I höll-
inni Finnsk teiknisaga. A
þjóðhátiðardaginn býður
forsetinn vinum sinum til
veislu, meðal annarra
b jarnarf jölskyldunni i
Bjarnarskógi. Þýðandi og
sögumaður Guðni Kolbeins-
son. (Nordvision — Finnska
sjónvarpið)
18.40 Svona eru skór saumaö-
ir.Mynd um skósmið i Aur-
landi I Sogni, sem gerir skó
með gamalli aðferö. Þýð-
andi Jóhanna Jóhannsdótt-
ir. (Nordvision — Norska
sjónvarpið)
18.55 Lærið aö syngja.Sjötti og
siöasti þáttur. Efnisskráin.
Þýðandi og þulur Bogi Arn-
ar Finnbogason.
19.20 Hlé.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veöur.
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Sjónvarp næstu viku.
20.50 Gömul verstöö undir
Jökli. Jóhann Hjálmarsson
les kvæði úr ljóðabók sinni,
Dagbók borgaralegs skálds.
21.00 Karlotta Löwenskjöld og
Anna Svard.Fimmti og sið-
asti þáttur. Þýöandi Dóra
Hafsteinsdóttir. (Nordvisi-
on — Sænska sjónvarpiö)
21.55 Tónlistarmenn. Gunnar
Kvaran sellóleikari. Egill
Friöleifsson kynnir Gunnar
og ræðir við hann. Stjórn
upptöku Viöar Vikingsson.
22.35. Dagskrárlok.
Mánudagur
25. mai
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Múminálfarnir Þriðji
þáttur endursýndur. Þýð-
andi Hallveig Thorlacius.
Sögumaður Ragnheiður
Steindórsdóttir.
20.45 íþróttir Umsjónarmaður
Bjarni Felixson.
21.20 Stina Leikrit frá Þýska
alþýðulýðveldinu, byggt á
skáldsögu eftir Theodor
Fontane. Sagan gerist á sið-
ari hluta nitjándu aldar og
fjallar um ástir Stinu,
stúlku af alþýðustétt, og
Valdimars, pilts af góðum
ættum. Þýðandi Kristrún
Þórðardóttir.
23.10 Dagskrárlok
Þriðjudagur
26. mai
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Sögur úr sirkus Tékk-
nesk teiknimynd. Þýðandi
Guðni Kolbeinsson. Sögu-
maður Július Brjánsson.
20.45 Litið á gamlar ljósmynd-
irTólfti og næstsíðasti þátt-
ur. Myndavélar og málara-
penslar Þýðandi Guðni Kol-
beinsson. Þulur Hallmar
Sigurðsson.
21.20 Úr læöingi Tólfti og sið-
asti þáttur. Efni ellefta
þáttar: Bill Becky Royce er
sprengdur i loft upp, en eng-
an sakar. Jo Hathaway ját-
ar fyrir Sam, að Becky hafi
beðið sig að bjóða Scott
hótunarbréf til sölu fyrir
hönd einhvers ókunns vinar.
Sam ákveður að hræða Scott
til að leysa frá skjóðunni
með þvi að segja honum, að
Isabella Black hafi látist á
spitaia af völdum áverka,
sem Scott hafi veitt henni.
Þýðandi Kristmann Eiðs-
son.
21.50 Stefna Miltons Fried-
mans og reynslan af henni
Umræður i kjölfar þátta
Friedmans, „Frelsi til að
velja”. Ogmundur Jónasson
fréttamaður stýrir viðræð-
um tveggja hagfræðinga.
22.40 Dagskrárlok
Miðvikudagur
27. mai
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Tommi og Jenni
20.45 Nýjasta tækni og visindi
Umsjónarmaður Sigurður
H. Richter
21.25 Dallas Bandariskur
myndaflokkur. Fjóröi þátt-
ur. Þýðandi Kristmann
Eiðsson.
22.20 Varúð á vinnustaöBresk
fræðslumynd um verndun
öndunarfæra. Þýðandi Bogi
Arnar Finnbogason.
22.30 Dagskrárlok
Föstudagur
29. mai
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veöur
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Á döfinni
20.50 Skonrok(k) Þorgeir Ast-
valdsson kynnir vinsæl
dægurlög.
21.20 Dagar í Póllandi Ný,
sænsk heimildamynd um
daglegt lif almennings i Pól-
landi. Þýðandi Jón
Gunnarsson. (Nordvision —
Sænska sjónvarpið)
22.20 Auga fyrir auga
(Banyon) Bandarisk sjón-
varpsmynd frá árinu 1971.
Leikstjóri Robert Day.
Aöalhlutverk Robert Forst-
er, José Ferrer, Darren Mc-
Gavin og Herb Edelman.
Sagan gerist árið 1937.
Banyon einkalögreglumaö-
ur kemst i bobba, þegar
stúlka er skotin til bana á
skrifstofu hans með
skammbyssu hans. Þýöandi
Dóra Hafsteinsdóttir.
23.55 Dagskrárlok
Laugardagur
30. mai
16.30 iþróttir Umsjónarmaöur
Bjarni Felixson.
18.30 Einu sinni var Sjötti
þáttur. Þýöandi Ólöf
Pétursdóttir. Sögumaður
Þórhallur Sigurösson.
18.55 Enska knattspyrnan
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Lööur Gamanmynda-
flokkur. Þýðandi Ellert
Sigurbjörnsson.
21.00 Alan Price Tónlistar-
þáttur með Alan Price.
Meðal annars er brugöið
upp myndum frá tónleikum,
sem hann hélt I Manchester.
Þýðandi Ellert Sigurbjörns-
son.
21.50 J.W. Coop Bandarisk
biómynd frá árinu 1971.
Höfundur handrits og leik-
stjóri er Cliff Robertson,
sem leikur jafnframt aðal-
hlutverk ásamt Christina
Ferrare og Geraldina Page.
J.W. Coop er látinn laus eft-
ir að hafa afplánaö tiu ára
fangelsisdóm. Hann var at-
vinnumaður i kúrekaiþrótt-
um, áður en hann hlaut
dóm, og nú tekur hann upp
þráðinn að nýju. Þýðandi
Jón O. Edwald.
23.35 Dagskrárlok