Tíminn - 22.05.1981, Blaðsíða 16

Tíminn - 22.05.1981, Blaðsíða 16
Föstudagur 22. maí 1981 16 cru grunnvara ^ Kaupfélagið íbúð óskast Starfandi þroskaþjálfi og læknanemi óska eftir ibúð á leigu. Upplýsingar i sima 77714 Verktakar — Vinnuvélaeigendur Seljum nýja og notaða varahluti i flestar gerðir vinnuvéla og vörubifreiðar. Einnig nýjar og notaðar vinnuvélar. Seljum t.d. þessa viku Cat D4 ps 1974 i toppstandi á mjög hagstæðu verði. Hafið samband. Við erum ekki lengra frá yður en næsta simatæki. Tækjasalan h.f. Skemmuvegi 22 Kóp. Simi 78210 HESTHÚS AÐ HÓLUM í HJALTADAL Tilboð óskast i byggingu hesthúss á steyptum kjallara að Hólum í Hjaltadal. Húsið er 321 ferm. Verkinu skal lokið 15. október 1981. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borgartúni 7, Reykjavik, gegn 200.- kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á sama stað þriðju- daginn 9. júni 1981, kl. 11.00 f.h. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006 íþróttir Enn tapar karla- liðið Eins og kunnugt er þá skoraði karlalandsliðið i golfi á unglingalandsliðið i holu- keppni og fór keppnin fram á golfvellinum á Hvaleyrarholti i fyrrakvöld. Unglingalandsliðið sigraði 5-4 og fóru leikar þannig, unglingaliðið talið upp á undan: Sveinn Sigurbergsson — ÓskarSæmundsson 1-2 Sigurður Pétursson — Július Júliusson 2-0 Magnús Jónsson — Siguröur Hafsteinss. 0-1 Hilmar Björgvinsson — Raenar Olafsson 2-1 Ásgeir Þórðarson — Þorbjörn Kjærbú 1-0 Gylfi Kristinsson — GeirSvansson 1-0 Sigurður Sigurðsson — Jón H.Guðlaugsson 4-2 Héðinn Sigurðsson — HannesEyvindsson 2-4 Magnús Stefánsson — Eirikur Jónsson 0-1 röp-. Námskeið fyrir unglinga- leiðtoga Iþróttasamband Færeyja hefur boðið l.S.l. að senda átta fulltrúa á námskeið fyrir ung- lingaleiðtoga, sem haldið verður i Thorshavn 26. júli til 2. ágúst n.k. Þátttakendur munu verða frá öllum Norður- löndunum. Dagskrá námskeiðsins verður mjög fjölbreytt, m.a. þátttaka i Ólafsvökunni, en hún fer fram þessa sömu daga. Færeyingar munu greiða uppihaldskostnað en þátttak- endur greiða kostnað við ferð- ir til og frá Færeyjum. Nánari upplýsingar um námskeiðið, eru veittar á skrifstofu I.S.Í., Iþróttamið- stöðinni Laugardal, simi 83377. Arni Þ. Arnason forstjóri Austurbakka afhendir Kjartani L. Páls- syni „einvaldi” goiflandsliðsins gjöfina til landsliösmannanna. Góð gjöf til golflandsliðsins Dunlop umboðið á íslandi, Austurbakki h/f, sem er stærsti innflytjandi á golfvörum á land- inu, afhenti á dögunum landslið- inu i golfi, sem tók þátt i siðasta Evrópumóti, golfbolta til æfinga og keppni. Fengu allir keDDendurnir, sex að tölu svo og fyrirliði liðsins þrjú dúsin af golf- boltum hver (36 bolta) og er hver bolti áritaður með nafni viðkom- andi. Gjöf þessi kemur sér vel fyrir landsliðskappana, þvi golf- boltar eru stór útgjaldaliður hjá þeim á hverju ári, og ekki var verra að fá þá núna, þvi allir æfa þeir af kappi til að komast i is- lenska landsliðið á Evrópumótið sem fram fer i næsta mánuði. 1 landsliðinu á siðasta EM og fengu boltana frá Dunlop voru þeir Geir Svansson GR, Hannes Eyvindsson GR, Sveinn Sigur- bergsson GK, Björgvin Þor- steinsson GA, Sigurður Haf- steinsson GR og Jón Haukur Guð- laugsson GN. Þór - Breiðablik Einn leikur fer fram i 1. deild Islandsmótsins i knattspyrnu i kvöld og er það leikur Þórs og Breiðabliks á Sanavellinum á Akureyri og hefst hann kl. 20. Bæði þessi félög hafa leikið einn leik, Þór tapaði fyrir Eyjamönn- um og Breiðablik gerði jafntefli við Fram. Hvenær er leik- maður réttstæður? I þessum fyrsta þætti minum, ætla ég að ræða litillega um eitt atriði, sem veldur oft ágreiningi i leikjum, en þaö er rangstaða. Leikmaður getur aldrei verió rangstæður við markspyrnu, hornspyrnu, innvarp, eða á eigin vallarhelming. Til þess að leik- maður sé réttstæður, þarf hann að hafa tvo varnarleikmenn milli sin og marksins (varnarmann og markmann, eða tvo útispilara). Ef sóknarmaður er samsiða aftasta varnarmanni þegar knettinum er spyrnt er hann rangstæður. Sé rangstæðum sóknarmanni ætlaöur knötturinn, en mótherji snertir knöttinn áður en sóknar- leikmaðurinn fær knöttinn, skal dæma rangstöðu, þvi mótherji getur ekki i sliku tilfelli gert sóknarleikmann réttstæðan með snertingu sinni. En ef varnarleik- maður leikur knettinum til rang- stæðs mótherja skal ekki dæma rangstöðu. Mjög oft verður maöur var við misskilning hjá leikmönnum jafnt sem áhorfendum, á rang- stöðureglunni. Það fyrsta sem verður að athuga þegar knettin- um er spyrnt, hvar sóknarleik- maðurinn er staösettur. Það er það augnablik sem ræður, en ekki þegar sóknarleikmaðurinn fær knöttinn. Það er mjög algengt, að varnarleikmenn vilji fá dæmda rangstöðu, vegna þess að dómar- inn telur að viðkomandi leikmað- ur hafi ekki áhrif á leikinn. Besta dæmið höfum viö úr úrslitaleik enska deildarbikarsins milli Liverpool og West Ham. Liver- pool skoraði mark i fyrri hálfleik, en það var dæmt af, vegna þess aö annar leikmaður, en sá er skoraði var rangstæður fyrir framan markteigshornið, og að mati dómarans hafi hann áhrif á gang leiksins með staðsetningu sinni. I seinni hálf-leik skoraði Liverpool mark, sem dómarinn dæmdi gilt, þó svo að einn fram- herji Liverpool liðsins, væri rang- stæður fyrir framan markið (liggjandi), en að mati dómar- ans, haföi hann ekki áhrif á leik- inn. Á þessu sést að upp geta komið óiíkústu atvik' sem dómari og linuvörður verða að glima við. Ég hef farið örlitið út i rangstöu- regluna.en um hana væri hægt að segja margt fleira. En vonandi gefst tilefni til þess seinna. Og i lokin langar mig til þess að koma með eina spurningu. Innvarp er tekið ca. 15 m frá horníána, innvarparinn hendir langt inn i vitateig andstæðing- anna, og fer knötturinn rakleitt i mark, án þess að nokkur hafi snert knöttinn. Hvað dæmir þú? A) mark B) markspyrnu C) endurtaka inn- varpið. Svar: markspyrna.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.