Tíminn - 22.05.1981, Side 15
Föstudagur 22. mai 1981
15
fréttir
Lést af völdum
umferðarslyss
■ Enn eitt dauðsfall af völd-
um umferðarslyss varð er
Trausti Arnason, Kóngs-
bakka 1 i Reykjavik, lést að-
faranótt þriðjudags af völd-
um áverka sem hann hlaut
þann 6. þ.m. Þá varð Trausti
heitinn fyrir bifreið á Brúna-
vegi og hlaut mikil meiðsl.
Trausti var 67 ára að aldri.
Hann var ekkjumaður, en á
sjö börn á lifi.
AM
48 slösuðust
til
aprílloka
í umferðinni
■ Samkvæmt bráðabirgða-
skráningu umferöarslysa
hafa 48 manns slasast i um-
ferðinni i aprilmánuði, en
ekkert dauðaslys er„ þar á
meðal. Teljast 27 hafa hlotið
meiri háttar meiðsli. Hafa
þá 182 slasast i umferðinni
fyrstu fjóra mánuði ársins,
en 198 höfðu slasast á sama
timabili i fyrra. Dauðaslys i
umferðinni höfðu orðið 3 til
loka aprilmánaðar, en voru
orðin 8 i fyrra.
Frysting nær
fjórðungi
minni
en í fyrra
■ Góö eftirspurn er nú eftir
frystum fiski i Bandarikjun-
um, þannig að heita má að það
sem er fryst fyrir þann mark-
að sé nú afskipað jafn óðum,
að þvi er fram kemur i Sam-
bandsfréttum.
Sagt er að afskipanir til Sov-
étrikjanna hafi einnig gengið
greiðlega. Birgðir af frystum
fiskiihúsum Sambandsins séu
þvi með allra minnsta móti.
1 frystihúsum Sambandsins
nam frysting á bolfiski sam-
tals 8.450 lestum frá áramót-
um til 18. april s.l. sem er nær
fjórðungi minna en á s.l. ári á
sama tima. Bæði er þetta sagt
stafa af minni afla, en einnig
vegna þess að aukið hlutfall af
bolfiski fari nú til saltfisks- og
skreiðarverkunar.
HEI
mmning
F. 9. nóvember 1966
D. 16. mai 1981.
Það er stundum svo óskiljan-
lega stutt á milli gleði og sorgar,
lifs og dauða, að menn standa
orðvana frammi fyrir þessari tor-
ráðnu lifsgátu.
Menn spyrja hvers vegna og til
hvers, og þeim gengur oft erfiö-
lega að finna viðunandi svör.
Svona var okkur mörgum farið,
kennurum og nemendum i Viði-
staðaskóla, þegar við heyrðum þá
hörmulegu fregn að einn úr hópi
okkar, Guðráður Davið Braga-
son, hefði lent i slysi og væri ekki
lengur i tölu lifenda. Hann, þessi
ljúfi og jákvæði félagi og vinur
Kveðja frá kennurum og
skólasystkinum í Víðistaðaskóla
Guðráður
Davíð Bragason
væri horfinn á burt yfir móðuna
miklu aðeins 14 ára að aldri.
Þetta var svo ótrúlegt, — en þó
samt sem áður bitur og misk-
unnarlaus sannleikur.
Guðráður eða Guffi eins og
félagar hans kölluðu hann var
horfinn úr þessum heimi. En eftir
sat minningin um hugþekkan og
glaðan félaga. Og það er hún sem
eftir lifir i hugskoti okkar, þegar
lengra liöur og sárasta sorgin sef-
ast.
Guðráður Davið Bragason var
fæddur 9. nóvember 1966, sonur
hjónanna Ernu Þorleifsdóttur og
Braga Guðráðssonar. Hann ólst
upp á góðu heimili foreldra sinna
o"g naut ástúðar þeirra og um-
hyggju. Þar undi hann sér vel
með foreldrum sinum og
systrum.
Guðráður Davið hóf skólagöngu
sina i Grindavik en flutti til
Hafnarfjarðar með foreldrum
sinum árið 1976 og hefur verið
nemandi i Viðistaðaskóla siðan.
Ekki kom Guðráður i Viði-
istaðaskóla feginn og fagnandi,
frjáls og léttur i spori, þegar hann
lagði þangað leiö sina fyrst.
Nei, þá var hann bæði kviðinn
og vansæll, þvi að vini og
kunningja hafði hann skilið eftir i
Grindavik og þar var hugur hans
allur. Hann vildi helst alls ekki
koma i Viðistaðaskóla.
En Guðráður vissi, að oft verö-
ur maður að gera fleira en gott
þykir. Og i skólann kom hann.
Hann kynntist brátt skólasystkin-
um og kennurum og ekki leið á
löngu þar til hann var orðinn einn
ihópnumgóðurog gegn skólaþegn
i Viðistaðaskóla, hress og glaður
drengur og góður félagi.
Guðráður reyndist dagfars-
prúður og jákvæður nemandi og
bæði kennurum hans og skóla-
félögum féll hann vel i geð og
þótti vænt um hann. Námshestur
var hann enginn, en hann seig á
bæði i námi og kynningu eftir þvi
sem timinn leið.
Guðráður var dulur og hlé-
drægur þar sem hann þekkti sig
ekki, en hreinskiptinn og hjarta-
hlýr, þegar menn og umhverfi
höfðu öðlast trúnaö hans og
traust. Og áhugamálum sinum
sinnti hann hverju sinni af ein-
lægni og áhuga.
Nú stöndum viö frammi fyrir
þvi að þurfa óvænt og óundirbúin
að kveðja góðan dreng, nemanda
og skólabróður, félaga og vin.
Okkur er orðs vant, en við kveðj-
um með þökk.
Við, nemendur, kennarar og
annað starfsfólk Viðistaðaskóla,
þökkum Guðráöi margar sam-
verustundir og gööar minningar
um hann sem eftir lifa. Við biðj-
um honum allrar blessunar og
felum hann i forsjá þess sem öllu
ræður.
Foreldrum hans, systrum og
systrabörnum, ömmum hans og
öfum, svo og öllum öðrum vanda-
mönnum hans og vinum, sendum
við samúðarkveðjur og biðjum
góöan guð að styrkja þau og
styðja á sorgarstundu.
Vertu svo blessaður og sæll
Guðráður Davið, nú og ævinlega,
og hafðu þökk fyrir allt.
H.Z.
Auglýsing
um áburðarverð 1981
Heildsöluverð fyrir hverja smálest eftir-
talinna áburðartegunda er ákveðið þannig
fyrir árið 1981:
Við skipshlið á Afgreitt á bila
ýmsum höfnum i Gufunesi
umhverfis land
Ammonium nitrat 34,5%N KR. 2.000,00 Kr. 2.025.00
Kjarni 33% N ” 1 .900,00 1.940,00
Magni 1 26% n * » 1.560,00 ” 1.600,00
Magni 2 20% N 1.360,00 ” 1.400,00
Græðir 114-18-18 ” 2.300,00 ” 2.340,00
Græðir 1A 12-19-19 * * 2.260,00 ” 2.300,00
Græðir 2 23-11-11 * * 2.160,00 ” 2.200,00
Græðir 3 20-14-14 * * 2.180,00 ” 2.220,00
Græðir 4 23-14-9 * » 2.260,00 ” 2.300,00
Græðir4A 23-14-9 + 28 » * 2.300,00 ” 2.340,00
Græöir 5 17-17-17 • • 2.220,00 ” 2.260,00
Græðir 6 20-10-10 + 4+ ÍS » * 2.120,00 ” 2.160,00
Græðir 7 20-12-8 + 4 +1S ” 2.160,00 ” 2.200,00
Græðir 8 18-9-14 + 4+ÍS 2.080,00 ” 2.120,00
N.P. 26-14 2.220,00 ” 2.260,00
N.P. 23-23 • • 2.480,00 ” 2.520,00
Þrlfostfat 45% P2O5 * » 1.940,00 ” 1.980,00
Kalíklóríö 60% K20 » » 1.340,00 ” 1.380,00
Kalisúlfat 50% K2o * » 1.660,00 ” 1.700,00
Uppskipunar- og afhendingargjald er ekki
innifalið i ofangreindu verði fyrir áburð
kominn á ýmsar hafnir. Uppskipunar- og
afhendingargjald er hinsvegar innifalið i
ofangreindu verði fyrir áburð sem af-
greiddur er á bila i Gufunesi.
Áburðarverksmiðja ríkisins
Umboðsmenn Tímans Vesturland
Staöur: Nafn og heimili: Simi:
Akranes: Guðmundur Björnsson, Jaðarsbraut 9, 93-1771
Borgarnes: Unnur Bergsveinsdóttir, Þórólfsgötu 12 93-7211
Rif: Snædis Kristinsdóttir, Háarifi 49 93-6629
Ólafsvik: Stefán Jóhann Sigurðsson, Engihlið 8 93-6234
Grundarf jörður: Jóhanna Gústafsdóttir, Fagurhólstúni 15
Stykkishólmur: Esther Hansen, Silfurgötu 17 93-8115 :
Kaupfélag Norður-Þingeyinga
Kópaskeri
Kjötiðnaðarmaður
Kf. N.-Þingeyinga óskar að ráða kjöt-
iðnaðarmann til starfa, sem veita á for-
stöðu væntanlegri kjötvinnslu kaupfélags-
ins.
Umsóknir með upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf sendist Ólafi Frið-
rikssyni, kaupfélagsstjóra eða Baldvin
Einarssyni, starfsmannastjóra Sam-
bandsins fyrir 3. júni n.k., er veita nánari
upplýsingar.
Bændur
Óska eftir sveita-
piássi fyrir 12 ára
dreng.
Upplýsingar i sima
91-37087
Sænsk hjó! eru annáluð fyrir gæði
SKEPPSHULT hjólin frá SAMUELSSON eru sænsk gæðahjól,
sköpuð fyrir islenskar aðstæður, þvi þau eru sterk og byggð á
áratuga reynslu.
Karlmannshjól og kvenmannshjól, tvær stærðir,
Hagvís
Box 85, Garðabæ
kl. 9-12 og 5-7
Sendum i póstkröfu hvert á land sem er