Tíminn - 30.06.1981, Page 4
fréttir
Þriöjudagur 30. júní 1981.
stuttar fréttir
íi II ii ii H 1! li
!i ii ií ii n n
11 lUL'.LH “
»« «» »K ■« »•
II II II II II
m ii 1»
■ Reykjaskóli á hálfrar aldar afmæli á þessu ári.
Reykjaskóli 50 ára
Hrútafjöröur: Reykjaskóla i
Hrútafiröi var slitið i 46. sinn
nýlega. Hann tók til starfa ár-
iö 1931 og er þvi 50 ára á þessu
ári, en kennsla féll niður i
skólanum i 3 vetur á striðsár-
unum og 1945-’55.
1 upphafi var Reykjaskóli,
eins og aðrir héraðsskólar,
tveggja vetra skóli, en hefur
smám saman þróast i það, að
nú geta nemendur stundað þar
nám i 4 vetur og lokiö 8. og 9.
bekk grunnskóla, svo og 1. og
2. bekk i samræmdu fram-
haldsnámi. Námsbrautir eru
nú 3, þ.e. almenn bóknáms-
braut, viðskiptabraut og upp-
eldisbraut, og i ráði er að hefja
kennsluá iþróttabraut á næsta
vetri. Auk þess hefur skólinn
útskrifað skipstjórnarmenn
með 30 tn. réttlndi.
t vetur stunduðu rúml. 130
nemendur nám við skólann og
var hann fullsetinn. 10 nem-
endur útskrifuðust úr 2. bekk
framhaldsnáms.
Ólafur H. Kristjánsson, sem
verið hefur skólastjóri sl. 25
ár, lætur nú af störfum og við
tekur Bjarni Aðalsteinsson, en
hann hefur kennt við skólann
siðan 1963. kl
Vantar alltaf
leiguhúsnæði
HOSAVÍK: ,,Við eigum marg-
ar leiguibúöir hér. Bæði eru
þaö ibdöir sem byggðar eru
cftirhinu svokallaða leigu og
söluibúðakcrfi sveitarfélaga.
Einnig vai t.d. gamla Barna-
skólanurn okkar breytt i 3
ibdðir þegar hann var aflagð-
ur sem skóli. En þrátt fyrir
það er mikill húsnæöisskortur
hér eins og er, sérstaklega
hvaö varðar leiguhúsnæði”,
sagði Bjarni Aöalgeirsson,
bæjarstjóri á HUsavik, spurð-
ur um ástand þeirra mála á
staönum.
Hann sagöi mikla hreyfingu
á fólki og talsverða eftir spurn
um að flytja i bæinn. En þar
strandaði verulega á húsnæði.
Fólk vildi koma og prófa, áð-
ur en það ákvæði að set jast aö
og kaupa eða byggja. Auk þess
yrði bærinn alltaf aö hafa tölu-
vert af íbUðum fyrir kennara.
__________________—HEl
Mikið kal í
Axarfirði og
Kelduhverfi
KELDUNESHREPPUR:
,,Kal hér um slóðir er sum-
staöar mjög mikið en annars-
staöar nánast ekki neitt”,
sagöi Stefán H. Þórarinsson i
Laufási í Kelduneshreppi er
hann var spuröur kalfrétta af
Norö-austurlandinu.
I Axarfiröinum og austan til
1 Kelduhverfinu væri kal t.d.
mjög mikiö á mörgum bæjum.
Um miðja sveitina hins vegar
— ma. hjá Stefáni sjálfum —
sagði hann ekkert kal.
Það þakkaði hann þvi, að
snjór lagöist snemma yfir á
þíöa jörð hlánaöi nánast aldrei
i vetur, þannig að jörð heföi
komiö aö heita má þiö undan
snjó í vor. Þetta sagöi Stefán
nokkuö óvenjulegt. Annars-
staðar hafi hins vegar svella-
lög lagst yfir tUnin og þar hafi
kaliö.
Ekki sagöist Stefán vera vel
kunnugur ástandinu austar.
Nema hvað hann hafi fariö tfl
Raufarhafnar fyrir skömmu.
A Melrakkasléttunni hafi
þetta veriö sama sagan. Þar
sem svell hafi legið lengi á
túnum væru þau m jög illa far-
in.
Stefán sagöi vorið hafa verið
óvenju kalt. Menn væru fyrst
nú fyrir nokkrum dögum bUnir
að sleppa fé af tUnum. Veröi
sumarið sæmUegt megi þvi
búast víð aö sláttur geti hafist
eftir um 6 vikur, sem er þá
ekki fyrr en í ágUst. Til marks
um kuldann nefndi Stefán aö
Axarfjarðarheiöi er ennþá
ófær. Að visu sé búið að ryöja
hana, en ófært sé vegna aur-
bleytu. —HEI
Norrænt
vinabæjamót
SAUÐARKRÓKUR: A sl. ári
tók Sauðárkrókur þátt I
norrænu vinabæjarmótii Esbo
I Finnlandi, en Sauðárkrókur
hafði ekki áður tekið þátt i
slfku samstarfi. Vinabæir
Sauðárkróks eru auk Esbo,
Kongsberg í Nffl-egi, Kristian-
stad i Sviþjóö og Köge i Dan-
mörku.
Á mótinu i Esbo var ákveöið
að Sauðarkrókur byði til næsta
móts dagana 24-28. jUli næst-
komandi.
Til þessa móts mæta fulltrU-
ar allra vinabæja Sauöár-
króks. Hinum erlendu gestum
verða kvnnt helstu atvinnu-
fyrirtæki i' bænum, starfsemi
bæjarins og stofnanir hans og
boðiö f kynnisferðir um
Skagafjörö, m.a. til Drangeyj-
ar, i Glaumbæjarsafn, að Viði-
mýrarkirkju og heim aö Hól-
um.
Aö lokinni dvöl i Skagafirði
munu gestirnir fara til
Reykjavfkur, þar sem þeim
veröursýnd borgin og merkis-
staðir i nágrenni hennar, svo
sem Þingvellir og Hitaveita
Suðurnesja að Svartsengi,
áöur en þeir halda. af landi
brott.”
Ullarþvotta-
stöðin lögð
niður
AKUREYRI: Akveðið hefur
verið aö loka ullarþvottastöö
Sambandsins á Akureyri nU i
sumar, að því fram kemur i
nýjustu Sambandsfréttum.
Komið hefur i ljós að mun
ódýrara er að flytja alla ull aö
noröan til þvotta i þvottastöð
Sambandsins i Hveragerði
heldur en að kosta til nýrrar
vélasamstæöu i þvottastöðina
á Akureyri, i stað þeirrar
gömlu sem orðin er Ur sér
gengin. Þá kemur og miklu
lægri orkukostnaður inn i
dæmiö, þar sem þvottastööiná
Akureyri fær sina orku fra
oliukyndingu.
Tekið er fram, að þvotta-
stöðin i H veragerði anna • auð-
veldlega öllum ullarþvotti
fyrir Sambandið. —HEI
Ofgreiddir skattar:
ALUR FA UPPHÆÐ-
INA ENOURGREIDDA
með vöxtum
■ Hve langt nær sérsköttun
hjóna? Fær fólk endurgreidda of-
greidda skatta, eöa verða þeir
peningar látnir ganga upp i
skatta makans? Þegar Timinn
leitaði svara við þessum spurn-
ingum hjá Kristjáni ö. Jónassyni,
settum rikisskattstjóra, vitnaði
hann fyrst í 112. grein skattalag-
anna:
,,Nú verður ljóst þegar viö
álagningu skatta lýkur að við
endurákvörðun skatta, að gjald-
andi hefur greitt meira en end-
anlega álögðum sköttum nemur.
Skal þá endurgreiða þaö sem of-
greitt var ásamt vöxtum fyrir það
timabil er féð var i vörslu rikis-
sjóös”. Vextir skulu vera al-
mennir innlánsvestir á hverjum
tima.
Þetta sagði Kristinn að gilti
jafnt um hjón sem einstaklinga.
Þeir sem t.d. greitt hafa hærri
fyrirframgreiöslu en álagningu
nemur þegar hún verður endan-
lega ákveðin — væntanlega fyrir
júlilok — mega þvi upp Ur þvi bU-
ast við ávisun frá rikissjóöi upp á
þá upphæð ásamt vöxtum i einu
lagi.
—En hvað gerist hafi annaö
hjóna hætt að vinna á árinu,
veröa skattar þess þá innheimtir
af launum makans?
„Þetta eru orðnir alveg sjálf-
stæðir reikningar núna. Þetta
yrði þvi ekki gert nema sam-
kvæmt beiðni þess hjónanna er
fær jreidd laun að þetta sé milli-
fært”, sagöi einn innheimtu-
manna Gjaldheimtunnar. Hins-
vegar benti hann á aö hjón séu
gerð ábyrg fyrir sköttum hvors
annars. Komi til innheimtuaö-
geröa gæti þvi hugsanlega verið
framkvæmt lögtak fyrir sköttum
annars hjónanna i eignum hins
aðilans.
—HEI
■ Steindór Steindórsson frá Hlöðum og Lúðvik Kristjánsson voru gerðir að heiðursdoktorum á hátiö-
inni. Timamynd GE
Háskóli íslands:
Brautskráði 232 kandi-
data á 70 ára afmælinu
■ Mikið fjölmenni var viðstatt er
minnst var 70 ára afmælis- Há-
skóia islands á laugardaginn, en
■ í tilefni af 70 ára afmæli Há-
skóla tslands hefur Vestur Þýski
visindasjóöurinn gefiö Háskóla-
bókasafninu rUmlega 100 binda
bókagjöf en ritin eru valin i sam-
ráöi við safnið og eru flest um
náttúrufræðileg efni.
Hr. Heinz Pallasch sendiráöu-
nautur, sem nU veitir . Vestur
Þýska sendiráöinu forstööu
afhenti gjöfina við athöfn i Há-
skólanum s.l. föstudag og sagði
skóia tsiands á laugardaginn en
þá voru brautskráðir 232 kandi-
datar.
þám.a. aö það værihonum mikil
ánægja aö geta veitt þetta litla
framlag til bókasafnsins.
Háskólarektor, prófessor Guð-
mundur Magnússon, þakkaði
gjöfina meö ávarpi, þar sem hann
minntist góðs stuðnings Vest-
ur-Þjóöverja viö Háskólabóka-
safn, einkum vestur-þýska vis-
indasjóðsins, sem oft áður hefur
lagt safninu til mikilsverð og
vönduð fræðirit. frj
Það kom fram i ávarpi
prófessors Guðmundar Magnús-
sr-nar háskólarektors aö aldrei
hafa fleiri stúdentar stundað nám
við skólann en nú eða hátt á fjórða
þúsund. Hann sagði ennfremur að
mjög brýnt væri að skólinn fengi
aukið húsnæði og að skipulagsmál
háskólalóöarinnar þyrftu að kom-
ast í höfn.
Tveir menn voru gerðir aö heið-
ursdoktorum, þeir LUÖvik
Kristjánsson rithöfundur i heim-
spekideild og Steindór Steindórs-
son frá Hlöðum i verkfræði- og
raunvisindadeild.
Viö athöfnina lék blásara-
kvintett úr Sinfóniuhljómsveit-
inni og Háskólakórinn söng undir
stjórn Hjálmars Ragnarssonar.
Kandidatarnir skiptast þannig
milli deilda: Embættispróf i guð-
fræöi 8, embættispróf i læknis-
fræði 6, BS próf i hjúkrunarfræði
16, embættispróf i lögfræði 20,
Kandidatspróf i viöskiptafræðum
25, kandidatspróf i islenskum
bókmenntum 1, kandidatspróf i
islenskri málfræði 1, kandidats-
próf i sagnfræöi 1, BA próf i heim-
spekideild 30, próf i islensku fyrir
erlenda stúdenta 4, lokapróf i
byggingaverkfræði 11, lokapróf i
vélaverkfræði 9, lokapróf i raf-
magnsverkfræöi 8, BS próf i
raungreinum 37, kandidatspróf i
tannlækningum 6, BA próf i
félagsvisindadeild 14.
—FRI
■ Heinz Pallasch flytur ávarp sitt viö afhendingu bókagjafarinnar.
Timamynd GE
Vestur-Þýski vísindasjóduririn:
ÍOO binda bókagjöf