Tíminn - 30.06.1981, Page 12
Þriðjudagur 30. júni 1981.
Þriðjudagur 30. júní 1981.
13
Vigdís
Finnboga*
dóttir
í Stranda-
sýslu:
■ Ileimsókn forseta ís-
lands til Dala- og
Strandamanna er nú á
enda en minningin er
enn fersk um þessa góðu
daga. Við ræddum i gær
við Karl Loftsson,
bankagjaldkera á
Hólmavik, sem var i för
með forseta meðan á
heimsókn hennar i
Strandasýslu stóð, og
báðum hann að rifja upp
með okkur viðburði
heimsóknarinnar.
„Það var um kl. 14.30 á sunnu-
dagað forseti kom að sýslumörk-
unum á Laxárdalsheiöi”, segir
Karl Loftsson, ,,og þar tók sýslu-
maöurinn okkar, Hjördis Hákon-
ardóttirá móti henni, ásamt fleiri
aðilum héðan úr sýslunni. Var þá
ekið sem leiö lá norður Stranda-
sýslu til Hólmavikur og ekið all
greitt, amk. á stærri og betri bil-
unum, en vegur var lika ágætur
og má þakka forráðamönnum
Vegageröarinnar fyrir það.
Þegar komið var til Hólmavik-
ur mátti sjá að eftirvænting
manna var mikil, þvi um 250—260
manns höfðu þegar safnast
saman við barnaskólann, en þar
byrjaði forseti á þvi að opna
menningarvöku okkar Stranda-
manna. Þá voru bornar fram
kaffiveitingar og var léttur brag-
ur yfir þessu samkvæmi og hafði
forsetinn mestu ánægju af að tala
við fólk sem þarna var komið.
Fannst það þá þegar sem siðar
kom i ljós i allri ferðinni hve for-
seta veittist létt að blanda geði
viö fólk og hve framkoma hennar
var frjálsleg.
Að þessu loknu var farið i sýslu-
mannsbústaðinn og var þar.
snæddur kvöldverður hjá sýslu-
manni með sýslunefndarmönn-
um, sem þar voru komnir. Næsti
liður á menningarvökunni var
sýning á leikriti Jökuls Jakobs-
sonar „1 öruggri borg” að Laug-
arhóli i Bjarnarfirði og var nú
haldið þangaö og var þar húsfyll-
ir.
Árla dags á þriðjudag var hald-
■ Vigdis Finnbogadóttir, forseti Islands, gróðursetti tré við ýmis tækitæri á ferð sinni um Dali og
Strandir. Dreif jafnan aö f jölda barna við þau tækifæri, eins og sjá má á þessari mynd.
tsland á sér marga yndisbletti og hér var stansað á einum þeirra I Kaldbaksvik og snætt nesti..
Mikil bilalest var jafnan I fylgd forseta. Hér sést forseti og hluti bilalestarinnar f Bitrufirði. Ljósm. G.T.K.
„Jafnvel forsetabfllinn.
■ Hér útskýrir Vigdis fyrir ungu kynsióðinni á Hóimavik merkingu trjáplantnanna þriggja, sem hún gróðursetti þar, — ein fyrir stúlkur,
önnur fyrir pilta og hin þriðja fyrir öll ófæddu börnin.
MÁTTl TEUfl ÞÁ Á FINGRUM ANNARRAR HANDAR
SEM EKKI KOMU TIL AD FAGNA FORSETANUM!
ið til Grimseyjar á Steingrims-
firöi á vélbátnum Sigurbjörgu,
sem Jóhann Guðmundsson, skip-
stjóri, stýrði. Var þetta um
klukkustundarsigling. Þar biðu
þeir Bjarni Guðmundsson i Bæ og
Guðjón Guðmundsson i Bakka-
gerði ásamt fleirum, til þess að
taka á móti forsetanum. Var
þessi stund, sem dvalið var i
Grimsey, hin dásamlegasta,
gengið var um alla eyjuna og far-
iðupp i vitann þar, en skyggni var
mjög gott. Þá var farið að
Drangsnesi og þar tóku Drangs-
nesingar, með oddvita sinn, Þórir
Hauk Einarsson, i fararbroddi á
móti forsetanum. Var þá farið út
að Kerlingu, sem er stór drangur,
sem Drangsnes dregur nafn af og
flutti Ingólfur Andrésson, hrepps-
nefndarmaður þar sögu Kerling-
arinnar. Þarna voru gróöursettar
þrjár hrislurog þá haldið norður i
Laugarhól, þar sem sest var að
afar fögru hátiðarborði. Flutti
þar ávarp Þórir Haukur Einars-
son, Jörundur Gestsson á Hellu
las írumort ljóð, Ingimundur
Ingimundarson á Svanshóli sagði
frá landnámsmönnum i Kald-
rananeshreppi og Jensia Jens-
dóttir flutti sögu Drangsness. Var
mikill hátiðabragur yfir þessu
borðhaldi. Að þessu loknu var
haldið til Hólmavikur, litið við i
frystihúsinu og saumastofan
Borgir skoðuð. Hlaut forseti þar
aö gjöf peysu og fagran jakka..
Þá var kirkjan i Hólmavik
skoðuð. Tók séra Andrés Ólafsson
þar á móti forsetanum, ásamt
konu sinni, Arndisi Benedikts-
dóttur. Rakti hann þar bygging-
arsögu kirkjunnar og um leið
sögu Hólmavikurkauptúns.
A þriðjudagsmorgun var lagt af
stað áleiðis norður i Árneshrepp
rneð viðkomu i Staöarkirkju. Þar
tók Andrés Ólafsson, sem þjónar
Staöarprestakalli, enn á móti
forsetanum, ásamt sóknarnefnd-
armönnum þar. Var kirkjan
skoðuð undir leiðsögn séra And-
résar.en þá ekið sem leið lá norð-
ir, með viökomu i Kaldbaksvik.
Var þar snætt nesti i ljómandi
fögru veðri. Leiðsögumaður i
Kaldrananeshreppi var Ingi-
mundur Ingimundarson.
Þegar kom að hreppamörkum
Arneshrepps og Kaldrananes-
hrepps tók hreppsnefndin i Ár-
neshreppi á móti forsetanum
ásamt hreppstjóra. Var nú ekið
noröur, staldraö við skamma
stundí Djúpuvik og litast um þar.
Þegar komið var norður að Ar-
nesi i Trékyllisvik, félagsheimili
þeirra Árneshreppsbúa, voru þar
mættir nær allir ibúar Arnes-
hrepps og sagði hreppstjóri að þá
ibúa hreppsins mætti telja á
fingrum annarrar handar, sem
ekki hefðukomið að fagna forseta
þarna. Var sest að kaffiborði og
fluttu þeir ræður Guðmundur G.
Jónsson, hreppstjóri, sem bauð
forseta velkominn, Gunnsteinn
Gislason rakti sögu Árneshrepps
og Guðmundur Valgeirsson i Bæ
hélt snjalla ræðu. Þá mæltu þau
nokkur orð, Guðmundur Guð-
mundsson frá Melum og Regina á
Gjögri. Voru forseta þarna færðir
að gjöf bráðfallegir selskinns-
skór, sem húsfreyjan i Munaðar-
nesihafði gert, og fagurlega mál-
uð rekaviðarfjöl, sem Bjarni
Jónsson, listamaður i Hafnar-
firði, haföi málað.
Var nú ekið um Árneshrepp,
farið norður á Eyrarháls, þar
sem Drangaskörðin blöstu við og
norðurhluti Arneshrepps. Var það
fögur sjón þvi veöur var hið feg-
ursta og fjörðurinn og sjórinn
spegilsléttur.
Þá var ekið að Munaðarnesi,
nyrsta byggða bænum i Stranda-
sýslu, en þaðan haldið að sund-
lauginni i Krossnesi. Loks var
haldið i kvöldverðarboð til odd-
vita Arneshrepps, Gunnsteins
Gislasonar, og staðið þar við
nokkurn tima. Þá var ákveðið að
fara i félagsheimilið að Árnesi,
þvi þar átti nú að byrja dagskrá.
Þar söng kirkjukór Hólmavikur,
flutt leikritið „Ruddinn” eftir
Tsjekov, af leikendum i leikfé-
lagi Hómavikur. Enn söng söng-
flokkurinn Hvitabandið i Bjarn-
arfirði. Gerðu menn góðan róm
að þessari skemmtun. Þótti
heimsóknin i Árneshrepp hafa
tekist velog hafa orðið ibúum þar
til hins mesta sóma. Þrjár trjá-
plöntur gróðursetti forseti við Ar-
nes.
A miövikudaginn hófst dagskrá
með þvi að forsetinn gróðursetti
þrjár trjáplöntur við kirkjuna i
Hólmavik og var þar f jöldi manns
samankominn i besta veðri.
Þá var ekið i Broddanes, þar
sem ibúarúr Fellshreppi, Kirkju-
bólshreppi og Óspakseyrarhrepps,
heilsuðu forseta. Þar voru gróð-
ursettar þrjár trjáplöntur og að
þvi búnu voru henni færðar gjafir,
ljósmynd af Broddanesi, tekin frá
Kollafjarðarnesi af Tryggva
Samúelssyni, og askja, sem hag-
leikskonan Signý Sigmundsdóttir
á Óspakseyri hafði gert. Var
þarna hin ánægjulegasta viödvöl
og veitingar á borðum.
tbúar Fellshrepps fylgdu for-
seta nú að hreppamökum Fells-
hrepps og Óspakseyrarhrepps.
Þar voru ibúar Fellshrepps
kvaddir, en ibúar óspakseyrar-
hrepps fylgdu forseta að mörkum
sins hrepps og Bæjahrepps. Þar
tók hreppsnefnd Bæjahrepps,
ásamt hreppstjóra, á móti for-
seta. Var nú ekið aö Borðeyri, þar
sem hreppsnefnd og ibúar Bæja-
hrepps buðu forsetanum til veg-
legs hádegisverðar. Pálmi Sæ-
mundsson hélt þar ræðu og bauð
forseta velkominn, Jón Jónsson
á Melum flutti ræðu og rakti sögu
hreppsins, og loks tilkynnti odd-
viti að færa skyldi forseta sútað
lambskinn að gjöf skyldi hún sjálf
ráða lit þess. Þá færði sýslumað-
ur forseta bókina Strandamenn
eftir Jón Guðnason að gjöf. Að há-
degisverðarboðinu loknu, var
gengið i Vigdisarlund, en hann er
svo til kominn að þar gróðursettu
stuðningsmenn forseta trjáplönt-
ur á kosningadaginn i fyrra. Að
þvi loknu var ekið að sýslumörk-
um Strandasýslu og Mýrasýslu og
var forseti þar kvaddur að
ánægjulegri heimsókn lokinni.
A kveðjustundinni lýstu þær
forseti og sýslumaður þvi yfir að
ákveðið væri að stofna sjóð til
endurbyggingar Staðarkirkju i
Steingrimsfirði og lögðu þær
fram fé til sjóðstofunarinnar, en
Staðarkirkja á sér merka sögu og
þessi ráðstöfun þvi hin fegursta.”
Sagði Karl Loftsson að
Strandamenn lifðu i endurminn-
ingum um þessa ágætu heimsókn
og kvaðst vona aö það gerði for-
seti tslands einnig. —AM
Dráttarvél
Til sölu International
Harvester 574
HYDRO árgerð 1978,
ekin aðeins 400
stundir. Með á-
moksturstækjum.
Upplýsingar gefur
Svinabúið Þórustöð-
um ölfusi 801 Sel-
fossi simi 99-1174
Til sölu
sláttuþyrla
MF70, 4ra ára i góðu
ástandi.
Upplýsingar i sima
99-6858.
||U^IFEROAR