Tíminn - 30.06.1981, Blaðsíða 14

Tíminn - 30.06.1981, Blaðsíða 14
Í4 Þriðjudagur 30. júni 1981. heimilis-tíminn í Heimilisiðnaðarskólanum: „Hér er leitast við að varðveita gömulT þjóðleg vinnubrögð” segir Sigríður Halldórsdóttir skólastjóri Kyrrð og friður rikti i húsakynnum Heimilisiðnaðarskói- ans, þegar ég leit þar inn fyrir helgina til þess að ræða stuttlega við Sigriði Halldórs- dóttur skólastjóra. Fátt benti til þess að i vetur hefðu nemendur i skólanum verið um 550 talsins, og námskeið rúmlega sextiu, en svo mun þó hafa verið. Heimilisiðnaðarskólinn er starfræktur á vegum Heimilis- iðnaðarfélags Islands, og er til húsa að Laufásvegi 2, þar sem einnig er önnur af tveimur verslunum félagsins. Skólinn hof starfsemi sína áriö 1979, og fyrsti skólastjóri var Kristin Jónsdóttir. Sigriöur Halldórs- ddttir skólastjóri tók við af Kristínu um áramótin 1980. — llcimilisiðnaöarfelag hefur efnt til namskeiða af og til allt frá upphafi. en einhver breyting hefur þó oröið á, þegar skólinn tók til starfa? — Aðalbreytingin var i þvi fólgin, segir Sigriður, — að skólast jóri var ráðinn. Fram til þess tíma hafði allt starf i sam- bandi við skipulagningu nám- skeiðanna verið unnin i sjálf- boðavinnu. 1 byrjun var skóla- stjórastarfið hálft starf, en hefur verið heilt starf frá siðustu áramótum. Heimil is- iðnaðarfélagiö hefur alltaf hald- ið einhver námskeiö, og fyrir fimmtán árum var tekin á leigu ibiið til þess að halda námskeið i myndvefnaði, jurtalitun, spuna og teikningu. Þar kenndu þær Vigdis Kristjánsdóttir, Ingi- björg Eyfells og Valgerður Bri- em. Þegar Heimilisiðnaðarfél- agið fékk húsnæðið i Hafnar- strætinu var h'ka farið að halda þar námskeið og loks fluttust námskeiðin að mestu hingað á Laufásveginn. — Hvaö geturöu sagt um starfið sfðast iiðinn vetur? — Vetrarstarfið var skipulagt fyrirfram fyrir allt skólaáriö. Tafla yfir námskeiðin var fjöl- rituö og lá hún frammi I versl- unum félagsins og viöar. Við augiystum starfsemina I blöð- um og innritun hófst um mánaðamótin ágúst- septem- ber. Kennslan hófst 8. september og henni lauk 26. mai. Sam- kvæmt námskeiðatöflunni voru fyrirhuguö 69 námskeið, en 7 námskeið þurfti aö fella niður vegna ónógrar þátttöku. Námskeiðin voru frá 13.5 til 99 kennslustunda löng, og nemendafjöldinn varö um 550 manns. A dagskrá voru 28 Heimilisiðnaðar- skólinn er til húsa að Laufásvegi 2 i Reykjavik. Þegar hausta tekur má aftur leita upp- lýsinga um starf- semi skólans i skrif- stofu hans. Sigrföur Halldorsdóttir við vefstólinn. námsgreinar en kennarar voru samtals 18. Liður i fullorðins- fræðslunni — Fellur Heiinilisiðnaðar- skólinn inn I skólakerfi lands- ins? — Nei, en við vonumst til þess aö hann geti i framtiðinni falliö undir fullorðinsfræösluna. Skólanefndin sótti um styrk fyrir skólann til menntamála- ráðuneytisins og skólanum voru veittar 2 milljónir gamalla króna á fjárlögum fyrir 1981. Þess má geta, að f járveitingin, sem nú fékkst til skólans er sú fyrsta, sem hann hefur hlotiö frá menntamálaráðuneytinu. — Hvaö eru að jafnaöi margir nemendur á hverju námskciði? — Nemendurnir eru 8-10 tals- ins. HUsnæðið leyfir ekki fleiri, og ekki er heldur hægt að bjóöa einum kennara upp á að kenna fleiri nemendum samtimis. Ef færri en sex sækja um eitthvert námskeið höfum við orðið að fella þaö niður. Vefnaður alltaf vinsæll — hnýtingá undanhaldi Sé litiðá námskeiðsskrána frá siðasta vetri er augljóst, að vefnaöur er þar ofarlega á blaði. Hér erum að ræða vefnaö bæði fyrir byrjendur og börn og lengra komna. Vattteppagerð er einnig kennd á mörgum nám- skeiðum og sömuieiðis tusku- bnlöugerö, en Sigriður segir okkur, að vattteppin og tusku- brúöurnar séu með þvi vinsæl- asta um þessar mundir. Vefnaö- urinn hefur alltaf verið vinsæll og htil breyting orðið þar á. Tiskufyrirbrigöi eins og hnýting er aftur á móti á undanhaldi. Námskeið eru i leðursmiði, útskuröi, tauþrykki, hekli og prjóni og jólaföndri. 1 grein, sem Sigriður Hall- dórsdóttir ritaði nýlega i blaðið Hugur og hönd sagði hún m.a. „Um val á námsefni i Heimilis- iönaðarskólanum má segja, aö leitast er við að varðveita göm- ul, þjóðleg vinnubrögð og finna þeim staö i' nútima þjóðfélagi. Oft gengur þetta átakalitiö og eins og af sjálfu sér, þ.e.a.s. eftir spurn og þátttaka er næg. Að sjáifsögðu er ekki eingöngu efnt til námskeiða i eftirsóttustu greinunum. Það eru jafnan boö- in námskeið í greinum, sem fremur takmörkuð aðsókn er aö, greinum sem við teljum hafa ótvirætt menningargildi og beri þvi skylda til að viðhalda sem heimihs- og handiðnaði.” Sem dæmi um þessa tegund námskeiða má sjá á skránni tó- vinnu, baldiringu, knipl, þjóð- búningasaum, skógerð, þar sem kennt er að gera sauðskinnsskó og jurtalitun. Krosssaumsrósir I kíló- metra vis Námskeið hafa verið haldin i útsaumi, en um þau segir Sigriöur: —Sannleikurinn er sá, aö ótrúlega erfiðlega gengur aö komaá námskeiði i útsaumi, þó að manni sýnist þar almennt vera óplægður akur, ef dæma má af þeim einhæfa útsaumi, sem íslenskar konur hafa mest handa milli og framleiða i kilö- metravis, sem sé innfluttar plastpoka-pakkaðar kross- saumsrósir. Við eigum margar gamlar útsaumsgerðir, sem hafa varöveitst hér lengur en annars staöar, eöa hafa fengið einhver séreinkenni vegna ein- angrunar landsins, svo sem refilsaum, glitsaum tvenns konar augnsaum, blómstur- saum, sprang, gamla kross- sauminn o.fl. Þessar útsaums- aöferöirber okkur aö varðveita. 1 Hémilisiðnaðarskólanum er leitast við aö vekja á þeim á- huga, en þaö hefur þvi miöur ekki enn boriö árangur sem erfiði. — Hvernig hefur verið staðið undir rekstri skólans til þessa? — Námskeiðsgjaldið hefur verið látið standa undir greiðslu til kennaranna, en laun skóla- stjórans greiöir Heimilis- iðnaðarfélagið sjálft. Kenn- ararnir hafa fengið greiðslur i samræmi viö kjarasamninga, en þess má geta, aö nemendurn- ir fá efni i þær prufur, sem þeir gera á námskeiðunum ókeypis. Siðan kaupa þeir sjálfir efni i stærri verkefni, sem þeir kunna aö gera á námskeiðinu, eöa i framhaldi af þvi. Viö höfum leitast við aö hafa útlærða kenn- ara i öllum þeim greinum, þar sem slikt er fyrir hendi. — Eru einungis konur á nám- skeiðunum ykkar? — Konur haf a alla tið verið i miklum meirihluta. En karl- Tfmamynd EUa. mennirnir eru nú farnir aö Iáta sjá sig meira að segja á nám- skeiöum,sem margir hugsa sér kannski að helstséu fyrir konur. Má t.d. nefna bótasauminn, myndvefnaðinn og almennan vef nað. tJtskurðurinn var hér áður öllu frekar karlavinna, en nú eru konurnar að ná þar yfir- höndinni lika. Námskeið fyrir fólk ut- an af landi — Eréitthvað nýtt á döfinni hjá ykkur á næstunni? — Viö erum að velta fyrir okkur, hvort ekki sé hægt aö efna til námskeiða, sem standa skamman tima, en eru lengur dag hvern. Helst höfum við þá hugsaö okkur að þessi námskeið gætu verið fyrir fólk utan af landi, sem siðan gæti tekið að sér kennslu þegar heim kæmi. Lika hefur verið rætt um aö skipuleggja sérstök námskeiö fyrir nemendur i framhalds- skólum. Nemandi, sem sótt hefur námskeiö með að minnsta kosti 80% mætingu getur fengið vottorð um þátttöku i iok nám- skeiös. Margir hafa getaö nýtt sér þessi vottorð. Nemendur i framhaldsskólum hafa fengið námið viðurkennt, sem þátt i vali og kennarar, sem sótt hafa námskeiö i' Heimilisiðnaðar- skólanum hafa fengiö þau viðurkennd til stiga. — Að lokum, Sigriður, hvernig er andinn í skólanum? — Það hefur verið mjög á- nægjulegt aö vinna við skólann. Kennarar og nemendur eru allir mjög jákvæðir og áhugasamir um það sem verið er aö gera, og nemendurnir sækja námiö vel. Húsnæðið er ef til vill nokkuð þröngt, en ég hef aldrei heyrt kvartað undan þvi. Hér rikir mjög góöur andi. fb Meiri eggjahvíta í avókadó en öðrum ávöxtum ■ Við sögðum litillega frá avókadó-ávextinum hér á siðunni fyrir nokkru. Nú höfum við fengið meiri og betri upplýsingar um þennan ávöxt. Vitið þið til dæmis, að hann inni- heldur meira af eggja- hvítuefnum en nokkur annar ávöxtur? Auk þess er hann auðugur af A og B vitaminum, C,D og E vitaminum og fjöl- mörgum málmum. Avókadó er saðsamur ávöxtur . Þess vegna er hann sérlega heppilegur til matar fyrir fólk, sem vill leggja af og er i megrun. Þar sem nota má avókadó á margvislegan hátt erekki hættaá að fólk i megrun fái leið á honum, eöa fái svokallaða „megrunar- kúrþreytu” en það er þreyta, sem fljótlega segir til sin, þegar fólk hefur lengi reynt að halda i við sig matinn. I Avókadó er litill sykur, og þaðkemur sér vel fyrir sykur- sjúka, sem vilja borða ávöxtinn. Oröið avókadó er dregið af ind- verska orðinu akukati, sem er hið sama og endirinn á chokolati i súkkulaði. Avöxturinn er peru- laga og er þvi oft kallaður avókatópera. Og nú skulum við bæta við upp- skriftum f avókatósafnið. Smurbrauð Blandið saman smástjiikjum af afhýddum avókadó-ávexti, steiktum beikonbitum, hænsna- kjöti, túnfiski eða mildum osti. Beriö þetta fram meö rúgbrauði og kryddið með salti og papriku. Þetta er mikið góðgæti. Smáavókadóbitar bornir fram með sterkum osti og brauöi eru lika mikiö ágæti. Avókadóálegg Hræriö sundur avókadó, bætið saman við þremur msk. af majónesi, 2 msk. af tómatsósu, 1 msk. sftrónusafa, svolitlum pipar, salti og finsöxuöum lauk. Þetta er gott með ristuðu brauði eða hreinlega með kjöti eða fiski, sem nokkurs konar sósa. Grænmetissalat Blandið saman agúrkubitum, tómötum eða ööru grænmeti, sem til er á heimilinu. Set jið út i svo- litiö majónes eða einhvers konar grænmetissósu. Takið hýöið utan af avókadó, skerið i smábita og setjið saman við grænmetis- salatiö. Berið salatiö fram kælt. Ávaxtasalat Blandið saman appelsinubit- um, ananas og niðurskornum vin- berjum. Stráið ofurlitlu áf sykri yfir, og setjið hakkaðar hnetur út i. Siðast er bættsaman viö niður- skornum avókadóávexti. Berist fram kalt.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.