Tíminn - 30.06.1981, Page 15

Tíminn - 30.06.1981, Page 15
Þriðjudagur 30. júni 1981. 15 nútíminn minning Fjörkippur í hljómplötu- Sigurður Þ. Söebech útgáfu Mikill fjörkippur er komin i is- lenska plötuiítgáfu. Meö endur- reisn smáskifunar eru hljóm- sveitimar ófeimnari viö aö senda efni sittá markaöinn. Smáskifan gerir þeim einnig mögulegt aö kanna hvort grundvöllur sé fyrir frekari plötudtgáfu. NU á næstu vikum mun rigna yfir dckur frón- bUa hljómplötum og er ekki Utlit fyrir nipstytta fyrr en eftir miöj- an jUli. „Þeyr” eru nU aö vinna aö sinni annarri stóru plötu. Hljómsveitin er í stööugri þróun og er ekki ólik- legtað þessi plata veröi f rábrugö- in öllu því sem þeir hafa gert hingaö til. „Fræbblarnir” hyggjast senda frá sér á næstu vikum stóra plötu. Gaman verður aö heyra i þeim aftur eftir nokkurt hlé. „Brimkló” er um þessar mund- ir aö leggja sföustu hönd á fimmtu plötu sina. Sem fyrr koma þeir viöa viö og lagaval er mjög fjölbreytt. „Bubbi Morthens” gat ekki sent frá sér sólóplötu sina 17. jUni s.l. eins og hann haföi hugsað sér vegna þess aö hann var óánægöur með skuröiinn á henni.HUn mun eiga að koma Ut 17. jUli. „Taugadeildin” ung og n)p- rennandi sendir frá sér sina fyrstu smáskifu á næstu dögum. „Bara-flokkurinn” frá Akur- eyri ætlar bara að senda frá sér sexlaga smáskifu. —M.G. 1 dag 30. júni verður til moldar borinn vinur minn, Sigurður Þ. Söebech, kaupmaður. Hann lést á Borgarspitalanum 22. júni s.l. eftir stutta sjúkdómslegu af sjúk- dómi, er enginn mannlegur mátt- ur, fær ráðið við. Siggi Söebech, einsog hann var jafnan kallaður, fæddist 26. ágúst 1936 og var þvi aðeins fjörutiu og fimm ára er hann lést. Allan sinn tima var Siggi við hina ágætustu heilsu og kenndi sér afar sjaldan nokkurs meins. Það kom okkur öllum, er hann þekktu þvi mjög á óvart, er hann skyndilega var lagður inn á sjúkrahús, þar sem heilsu hans hrakaði ört, og á skömmum tima var hann allur, langt fyrir aldur fram. Siggi var borinn og barnfæddur Reykvikingur. Hann ólst upp i vesturbænum i foreldrahúsum, ásamt Friðriki bróður sinum, við heldur þröngan kost, en mikla umhyggju móður sinnar, er lést fyrir nokkrum árum, en til henn- ar bar hann mikla ást og traust. Að loknu skyldunámi hóf hann nám i búfræðum við Bændaskól- ann að Hólum i Hialtadal og lauk þaðan burtfararprófi 1954. Kann þessi áætlan hans að segja nokkuð um hvert hugur hans stefndi á þessum tima, enda átti hann síðar á lifsleiðinni eftir að standa fyrir myndarlegum bú- skap i Reykjafirði i Strandasýslu, og byggði þar gott hibýli handa ábúendum, sem enn stunda þar búskap. Arið 1958 kvæntist Siggi eftirlif- andikonu sinni, Ólöfu Guðmunds- dóttur, hinni mestu ágætiskonu og áttu þau hið myndarlegasta heimili i Garðabæ þar sem þau höfðu byggt sér fallegt einbýlis- hús en þar nutu sin öll einkenni snyrtimennsku hinnar dugmiklu eiginkonu hans. Var oft gest- kvæmt hjá þeim hjónum, enda kunningjahópurinn stór og vel tekið á móti vinum, er þá bar að garði. Þau eignuðust sex dætur, Emi- liu 22 ára, Kristjönu 21 árs, Sigur- björgu 19 ára, Karólinu 17 ára, Sigriði 15 ára, Þórarinnu 8 ára. Fyrir átti Siggi eina dóttur, Helgu Margréti er ólst upp hjá móður- systur sinni. Kynni okkar Sigga hófust fyrir um það bil 20 árum, er við störf- uðum báðir hjá Silla og Valda, hann sem verslunarstjóri að Laugavegi 82, og ég sem sendill með skólanum. Varð mér fljótt ljóst að þar fór maður, sem ekki alltaf fylgdi þeim hegðunarregl- um, er oft eru svo hvimleiðar þeim, sem eftir þeim fara og stundum litt skiljanlegar hinum. Hins vegar var háttvisi hans al- gjör i alvöru lifsins. Þessi ungi verslunarstjóri var svo samviskusamur og einlægur i starfi, að verslun hans bar af öörum hjá Silla og Valda. Það eitt, er ekki svo litið er haft er i huga að á þeim tima voru það að- eins miklir skörungar sem kom- ust til verslunarstjórastarfa hjá Silla og Valda, og þótti það mikil upphefð. Hann hafði óskipt traust vinnu- veitenda sinna, og lýsti Silli hon- um með þeim orðum, eftir að hann hætti störfum hjá þeim, „að verk hans segðu meira en nokkur orð”. Sigurður Söebech var stórbrot- inn maður, maður, sem skar sig úr hópnum hvar, sem hann fór um, yfirleitt glaður og reifur. Hann skar ekki atfylgi sitt við nögl, þegar hann mátti og honum þótti þurfa. Fáa þekki ég, er með meiri krafti og áhuga hafa gengið til starfsins með þvi hugarfari að ljúka þvi á sem skemmstum tima. Honum lá hátt rómur og hann hafði gott lag á að stjórna fólki og fékk ótrúlegustu menn til að sýna sannan starfsvilja. Þessir kostir hans komu glögg- lega i ljós er hann stofnaði sitt eigið fyrirtæki, Söebechsverslun h.f. 1966, en það fyrirtæki rak hann til dauðadags af hinum mesta myndarskap. Hún var ein fyrsta matvöruversiunin hér- lendis með kjörbúðarsniði og sýndi glöggt áræði hans og þrek til að takast á við stórbrotin verk- efni. Hann skilaði svo lengi sem ég man, löngum vinnudegi, 12, 14 jafnvel 16 timar á dag skiptu ekki máli aðeins það eitt að ljúka verkefninu. Þetta átti jafnt við meðan hann var i þjónustu ann- arra og eftir að hann hóf sjálf- stæðan atvinnurekstur. 1 starfi gustaði af honum og honum unn- ust verkin vel. Ætla mætti að slikur garpur hefði litlu haft að miðla til handa fjölskyldu sinni. En þannig var þessu ekki farið með Sigga. Ahugamál hans voru starfið og fjölskyldan. Fjölskyldu sinni sýndi hann ást og umhyggju. Siggivar sannur vinur vina sinna. Til hans var gott að leita ef menn þurftu hjálpar við og félögum sin- um reyndist hann i hvivetna trúr. Mér finnst að flestir af minni kynslóð og eldri kannist við Sigga Söebech. Hann var maður mikill á velli, laglegur með skarplegt yfirbragð og augun snör og lif- andi. Mér þótti sem einhver verndarhönd fleytti honum furðanlega gegnum brim og boða. Þvi er bágt að trúa þvi að hann sé nú kominn yfir móðuna miklu þangað sem alveg er vist, að allir munu fara, fyrr eða siðar. En jafnvel þó margir hafi kannast við Sigga er ég ekki jafnviss um að þeir hafi verið margir, sem þekktu þann dreng er hann hafði að geyma. Um Sigurð Söebech mætti rita heila bók. Það er af nógu að taka, frá mörgu að segja. Hann er dæmi um islenska afreksmann- inn, sem með vinnu og aftur vinnu tókst úr fátækt að komast til þokkalegra efna, rifa sig út úr meðalmennskunni og hefja sjálf- stæðan atvinnurekstur, sæta á stundum mótlæti og öfund en standa sifellt jafnréttur eftir. Lif- ið var honum gott og gjöfuit, hann var gæfumaður i sinu einka- lifi. Konu hans, börnum og öðrum ástvinum votta ég og fjölskylda min innilegustu samúðarkveðju og bið allar góðar vættir að standa með og styrkja Lollý, konu hans sem gengið hefur i gegnum mikinn erfiðleikatima með ein- skærum dugnaði og stillingu. Ómar Kristjánsson Barafiokkurinn Stórtónleikar í höllinni Viö erum ekki að halda tónleika i venjulegum skilningi þess orðs, heldur ber fremur aö litaa þetta sem „atburð”, eða við stefnum allaveganna aö þvi að gera þetta að einhverju meira helduren venjulegum tónleikum. Það má kannskisegja að þetta sé okkar uppskeruhátið eftir vetur- inn.” Þannig fórust Guðna RUn- ari Agnarssyni orð þegar hann var inntur frétta af fyrirhuguðum tónleikum i Laugardalshöll n.k. föstudag. Guðni er i forsvari fyrir útgáfufyrirtækiö Ekvimó sem ásamt hljómtækjaversluninni Sterió stendur fyrir þessum tón- leikum. Eins og alkunna er þá hefur hljómlistarlif hér á höfuðborgar- svæðinu verið með blómlegasta móti og má reyndar segja það sama um landsbyggöina. Margar nýjar hljómsveitir hafa sprottið upp og ekki hafa þær nú beinlinis fetaö i fótspor forvera sinna. Nýjar stefnur og ný tónlist er meir að segja farin að heyrast i útvarpinu og þaö getur ekki ann- að en boðaö gott. Gifurlegur áhugi er meöal ungs fóks á lifandi tónlist, það sanna hinir fjölda- mörgu tónleikar sem haldnir hafa veriðá Hótel Borg og viðar i vetur og vor. 1 fyrsta sinn i mörg ár finna ungar hljómsveitir það að það er virkilegur áhugi fyrir þvi sem þær eru að gera og þvi er góður grundvöllur fyrir þvi að halda tónleika þar sem ungar og áður óþekktar hljómsveitir fá tækifæri til að koma fram og kynna tónlist sina. A tónleikunum I Laugardals- höllinni, sem haldnir verða undir kjörorðinu „annað hljóð i strokk- inn”, koma fram nokkrar alveg nýjar hljómsveitir, aðrar aðeins lengra komnar á þroskabrautinni og loks þær sem hafa gefið frá sér plötur. Þannig að Urvalið ætti að vera nóg, þvi nU er öruggt að ell- efu hljómsveitir a.mk. koma fram, en þær eru: „Þeyr”, „Fræbblarnir”, „Taugadeildin”, „Bara-f 1 okkurinn”, „Englaryk’’, „Clitoris”, „Fan Houtens Coco”, „Tappi tikarrass”, „Exodus”, „Nast” og „Box”. Aðstandendur tónleikanna eru i sambandi við fleiri hljómsveitir, en treystu sér drici til að gefa þær upp þar sem enn væri óvissa um það hvort þær yrðu með eöa ekki. Það hlýtur að taka sinn ti'ma fyrir allar þessar hljómsveitir að renna i gegnum programmið sitt og til aö koma i veg fýrir að tónleikarnir standi til morguns þá verða að öllum lik- indum þrjU sviði gangi. Tvö inni i sal og eitt Uti (ef veður leyfir). Margt annað verður gert á þessum tónleikum mönnum til andlegrarupplyftingar. Aeinuaf þessum þremur sviðum veröur staðiö fyrir ýmiskonar uppákom- um og stemmningsatriðum, en hvað nákvæmlega verður á dag- skrá erekki gefið upp. Eitter vist að ekki ætti mönnum að leiðast innan um allt þetta „aktivitet”. Tónleikarnir veröa haldnir eins og áður sagði I Laugardalshöll n.k. föstudag 3. jUli og hefjast kl. 20.30. Miðaverð verður ca. 70.- kr. —M.G. Sumarferð Breiðholtssafnaðar Sumarferð Breiðholtssafnaðar verður far- in sunnudaginn 5. júli. Farið verður Borgarfjörður - Kaldidalur. Brottför: Sunnud. 05. júli kl.08:30 frá Breiðholts- kjöri. Verð: Kr. 150.00 pr. mann innifalið hádegis- og kvöldsnarl Upplýsingar: Sverrir Jónsson, Akrasel 25, simi 74844 Sigurður A. Jónsson, Fremristekk 8, simi 74395 Þátttaka skal tilkynnt til ofangreindra fyrir 3. júli. Safnarnefnd. Auglýsið í Tímanum Akraneskaupstaður Heilbrigöísf u lltrús Auglýst er laust til umsóknar starf heil- brigðisfulltrúa á Akranesi. Ráðningartimi er til 1. ágúst 1982. Um er að ræða hlutastarf. Umsóknum skal skilað á bæjarskrifstofuna fyrir 5. júli 1981. Bæjarritari. ÚTBOÐ Stjörn Verkamannabústaða i Reykjavik óskar eftir tilboðum i jarðvegsskipti i hús- grunna við Eiðsgranda. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu V.B. Suðurlandsbraut 30, þriðjudaginn 30. júni gegn 500 kr. skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð þriðjudaginn 7. júli kl.14 á sama stað. Stjórn Verkamannabústaða i Reykja- vik.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.