Tíminn - 07.08.1981, Side 3
Föstudaeur 7. ágúst 1981
3
Hans G. Andersen, sendiherra, um afstödu
Bandaríkjamanna á Hafréttarráðstefnunni í Genf:
„ÓUÓST HVflÐA AHRIF
ÞETTA HEFUR A MflUN”
B Hans G. Andersen
— telur fullan vilja fulltrúa til málamidlana vera fyrir hendi
B .,V>að er ósköp litið liægt að spá
i pað. hvaða áhrif þetta hefur hér
á Hafréttarráðstefnunni, en mér
sýnist flestir fulltrúar hér vera á
sama máli með að halda þessu
friðsamlegu. finna einhvern
milliveg sem gæti leyst deilurnar,
en láta þær alls ekki valda neinni
upplausn á ráðstefnunni", sagði
Hans G. Andersen formaður is-
lensku sendinefndarinnar á Haf-
réttarráðstefnunni, i samtali við
Timann, en ráðstefnunni er nú
haldið áfram i Genf.
,,Bandarikjamaðurinn hélt sina
miklu ræðu i gær”, sagði Hans
ennfremur, „ogþar kom fram, að
þaö eru reglurnar varðandi al-
þjóðlega hafsbotnssvæðið, sem
Bandarikjamenn vilja taka til
endurskoðunar. Það var vitað
fyrirfram, að þeir hefðu ýmislegt
að gagnrýna, þannig að ekkert
kom mönnum á óvart i ræöu hans.
Fulltrúi Sovétrikjanna réðst
siðan harkalega á Bandarikja-
menn, sagöi þá vera að hrófla við
hornsteinum samkomulags, sem
unnið hefði verið að um margra
ára skeið. A morgun veröur svo
fundur, þar sem þróunarlöndin
munu segja sina skoðun.á málinu
siðan verða almennar umræður.
Hér voru menn á timabili með
vangaveltur um þaö hvort ef til
vill væri unnt að ganga frá haf-
réttarsáttmála án Bandarikja-
manna.enég held allirséu fallnir
frá þvi, enda ætlunin að tækni-
þekking og fjármagn berist i
miklum mæli frá þeim.
Það sem liggur fyrir er að
Bandarikjamenn eru ekki reiðu-
búnir til að ganga frá neinu á
þessum fundi hér i Genf, en það lá
íyrir áður en fundurinn hófst, svo
það er engin breyting. Þeir munu
leggja skýrslu fyrir forseta sinn,
eftiraö hafa reifað málin við a'ðra
hér, og eftir það mun stefnumót-
un þeirra eiga sér staö.
Mérfinnst ómögulegt aö álykta
nokkuð um það hvaöa áhrif þetta
hefur á áframhald ráðstefnunnar.
Það verður að koma i ljós þegar
h'ður á þennan fund.”
HV
Árni Guðmunds-
son, stjórnarfor-
maður Stein-
ullarfélagsins á
Sauðárkróki:
„Byggða-
sjónar-
mið verða
að ráða”
■ ,,Ég get ekki verið ósammála
þvi. að þar sem 65% markaðarins
fyrir steinull hér innanlands er á
Stór-Reykjavikursvæðinu, væri
það i sjálfu sér hagstæðara að
staðsetja fimm þúsund tonna
verksmiðju i nágrenni við þann
markaðshluta, en hins vegar telj-
um við hér fyrir norðan að
byggðastefnusjónarmið verði að
ráða þarna miklu um, og út frá
þeim er upplagt að setja verk-
smiðjuna niður hér”, sagði Arni
Guðmundsson,' stjórnarformaður
Steinullarfélagsins á Sauðár-
króki, i viðtali við Timann i gær.
„Við teljum að það verði að
taka tillit til þess”, sagði Arni
ennfremur, ,,að þetta er eina auð-
lindin, sem við eigum til að vinna
úr, þvi við höfum ekki vikur, eða
annað.
Þar við bætist að hér er fyrir
hendi flutningakerfi, bæði i skip-
um og bilum, sem við getum nýtt.
Að okkar mati er algerlega
vonlaust að ætla að stefna á út-
flutning. Við stefndum i hann i
fyrstu, en teljum ekki lengur
grundvöllfyrirhonum. Þvi ætlum
við að setja upp verksmiðju fyrir
innanlandsmarkað, meö stækk-
unarmöguleikum siðarmeir, ef
svo vill verkast.
Hins vegar leggjum við mikla
áherslu á byggðasjónarmiðið, i
þessu máli, og teljum einsýnt, að
verksmiðjan veröi staðsett hér, ef
stjórnvöldum er einhver alvara
með tal sitt um byggðastefnu.”
HV
■ Arni Guðmundsson
Hlörleifur Guttormsson, iðnaðar-
ráðherra, um steinullarmálid:
,, Rekstrargrundvöllur
virðist betri fyrir
stóra verksmidju”
— ráðuneytið mun ekki standa að neinni
könnun á markaðsmáium
■ „Iðnaðarráðuneytið mun ekki
sem slikt standa að neinni könnun
á markaðsmálum i sambandi við
steinullina, enda hefur ráðuneytið
ekki forgöngu um þetta mál,
heldur er, og reynir aö vera, til
aðstoðar áhugafélögunum tveim.
Við erum nú að senda þeim báð-
um bréf, þar sem kemur fram að
ráðuneytið vilji fá gögn þeirra
send siðari hluta þessa mánaðar,
og á grundvelli, þeirra, svo og á
grundvelli steinullarskýrslunnar,
sem kom út fyrr á árinu, verður
svo tekin ákvörðun um staðar-
val”, sagði Hjörleifur Guttorms-
son, iðnaðarmálaráðherra, i við-
tali við Timann i gær.
Hjörleifur sagði ekkert liggja
fyrir i dag, sem i’ sjálfu sér benti
ákveðið til annað hvort Sauðár-
króks eða Þorlákshafnar. Það
yrði að vega og meta alla þætti
málsins, þegar gögnin lægju fyr-
ir, og siðan yrði ákvörðun tekin.
„Skýrslan sem steinullarnefnd-
in skilaði”, sagði Hjörleifur,
„virtist benda til þess að rekstr-
argrundvöllur væri heldur betri
fyrirfimmtán þúsund tonna verk-
smiðju, en fyrir smærri verk-
smiðjfc. Hins vegar bið ég nú eftir
að þeir skili sinum gögnum og-
vona bara að úr þessu geti orðiö,
— að til verði arðbært f yrirtæki á
þessu sviði, hvoru megin fjalla
sem það svo verður.”
HV
■ Magnús Kjartans-
son, fyrrverandi ráö-
herra og ritstjóri, var
borinn til grafar frá
Dómkirkjunni í
Reykjavik i gær. Mikiö
f jclmenni var við jarð-
arförina, en á mynd-
inni má sjá vini og
samherja bera kistuna
út úr kirkjunni.
Timamynd: GE
ti Hjörleifur Guttormsson