Tíminn - 07.08.1981, Blaðsíða 17
Föstudagur 7. ágúst 1981
17
íþróttir
■ llörft hrift aft marki Eyjamanna i ieiknum i gærkvöldi, en Eyjamenn vörftust af miklum krafti og tókst aft koinast i úrslit i bikarnum.
Timamyndir Róbert.
Vestmannaeyingar
komnir í úrslit
í Bikarkeppni KSÍ eftir 1:0 sigur gegn Þrótti í gærkvöldi
■ ,,Ég er mjög ánægftur meft aft
vera kominn i úrslit Bikarkeppn-
innar en ég er alls ekki nógu á-
nægftur meft þennan leik okkar
gegn Þrótti. Þetta var lélegur
leikur af okkar hálfu, þaft var eins
og þaft færftist citthvert slén yfir
mannskapinn i seinni hálfieik”
sagði Kjartan Másson þjálfari
Vestm annaeyjaliftsins eftir leik-
inn í gærkvöldi.
Vestmannaeyingar tryggðu sér
með 1-0 sigri yfir Þrótti rétt til
þess að leika gegn Fram úrslita-
leikinn i Bikarkeppninni, sem
verður á Laugardalsvellinum 30.
ágúst.
En þessi sömu félög léku
einnig til úrslita i fyrra og Fram
sigraði þá 2-1. í leiknum i gær-
kvöldi gat sigur hans lent hjá
hvoru félaginu sem var. Þróttar-
ar voru lengst af i sókn i seinni
hálfleik, Vestmannaeyingar ein-
um færri eftir að Ingólfi Sveins-
syni hafði verið visað af velli um
miðjan seinni hálfleik er hann
braut á Páli Ölafssyni nokkuð
harður dómur að margra áliti, en
Ingólfur haföi fengið að sjá gula
spjaidið í fyrri hálfleik. Eftir
þetta þyngdu Þróttarar sókn slna
og það var aðeins i örfá skipti sem
Vestmannaeyingum tókst að
komast fram yfir miðjuna. Er að-
eins tvær min. voru til leiksloka
munaði litlu að Þrótturum tækist
að jafna metin. Gefin var lögn
sending fyrir markið og yfir Pál
markvörð og til Bjarna Harðar-
sonar sem stóð einn inni i mark-
teignum en hann kuksaði illa.
Mark Vestmannaeyinga kom á
12. min. fyrri hálfleiks, Ómar
Jóhannsson tók hornspyrnu og
skaut að stönginni nær og þar sló
Guðmundur Erlingsson boltann i
markiö. Stuttu siðar komst Sigur-
lás einn inn fyrir vörn Þróttar en
Guðmundur var þá vel á verði og
varði. Baldur Hannesson lék
síðan á 33. min i gegnum vörn
IBV en Páll varði vel meö út-
hlaupi. Undir lok fyrri hálfleiks
átti siðan Sigurlás tvö góð færi en
Guömundur markvöröur Þróttar
varði vel i bæði skiptin. Þróttarar
áttu sist minna i leiknum og As-
geir Eliasson var yfirburðamaö-
ur á vellinum. Baldur Hannesson
átti ágæta spretti i fyrri hálfleik
en fékk litla aöstoð frammi þar
sem Páll Ólafson var óvenju
daufur. Valþór og ómar Jóhanns-
son voru einna sterkastirhjá IBV,
en samt gekk þeim erfiðlega aö
ná tökum á miðjunni. Páll var
öruggur i markinu og Guðmundur
Erlingsson bakvörður átti góðan
leik.
rop-.
Oddný setti enn
íslandsmetið
hljóp lOO m á 12,22 sek. á Meistaramóti
íslands í frjálsum í gærkvöldi
Eitt tslandsmet var
sett á Meistaramóti
islands i frjálsum
iþróttum sem framhald-
ið var á Laugardalsvell-
inum i gærkvöldi. Það
var Oddný Árnadóttir
ÍR sem setti íslandsmet
i 100 m hlaupi er hún
hljóp á 12.22. Met þetta
| Sigurftur Sigurftsson A varft öruggur sigurvegari í 100 m hlaupinu.
setti Oddný i undanrás-
unum en i úrslitahlaup-
inu hljóp hún á enn betri
tima eða 12,18 en þá
mældist of mikill vindur.
Hjörtur Gislason KR
hljóp lika á betri tima en
gildandi íslandsmet er i
110 m grindahlaupi,
Hjörtur hljóp á 14,56 en
vindur mældist einnig of
mikill. Það sama var
uppi á tengingnum hjá
Bryndisi Hólm ÍR i lang-
stökkinu. Bryndis
sigraði þar örugglega,
stökk 5,80 m sem er
betra en gildandi
íslandsmet en þar sem
vindur mældist of mikill
fær hún metið ekki stað-
fest.
Geirlaug Geirlaugsdóttir Á
varð önnur i 10 M HLAUPI
KVENNA 'A 12,27 og Valdis
Hallgrimsdóttir KA varð þriðja á
12,36. Gisli Sigurðsson UMSS varð
annar i 110 m grindahlaupi á 15,11
eitt
og i þriöja sæti varð Stefán
Hallgrimsson KR á 15,47. Svava
Grönfeldt UMSB varð önnur i
langstökki, stökk 5.40 og þriðja
varð Iiagna Erlingsdóttir HSÞ
stökk 5,34 m. Erlendur Valdi-
marsson 1R varð öruggur sigur-
vegari i kringlukasti kastaði 54,98
m og Þráinn Haísteinsson ÍR
varð annar, kastaði 46,94 m. 1 1500
m hlaupi kvenna sigraði Guðrún
Karlsdóttir UBK á 4,50,17 önnur
varð Laufey Kristjánsdóttir HSÞ
5,08,94. Sigriður Kjartansdóttir
KA sigraði-i 400 m hlaupi kvenna
á timanum se.^önnur varð Unn-
ur Stefánsdóttir HSK á 57,44.
Egill Eiðsson ÚÍA sigraöi i 400 m
hlaupi karla á 49,67, annar varð
Ólafur Óskarsson HSK á 51,94.
Guðrún Ingóifsdóttir sigraði
örugglega i kringlukasti kvenna
kastaði 49.20 m önnur varð
Margrét óskarsdóttir 1R kastaði
38,68 m. Keppnin i 100 m hlaupi
karla var mjög jöfn og skemmti-
leg en þar sigraði Sigurður
Sigurðsson Á á 10.93 annar varð
Vilmundur Vilhjálmsson KR á
10.96 og Aðalsteinn Bernharðsson
UMSE varð þriðji á 11.12. Sigurð-
ur T. Sigurðsson sigraði i
stangarstökki eins og hans var
von og visa, stökk 4,80 m, annar
varð Kristján Gissurarson KR
4,60 og Gisli Sigurðsson UMSS
varð þriðji með 4.05 m. Erlendur
Valdimarsson 1R sigraði i
sleggjukasti kastaði 49,38, Jón
Þormóðsson 1R varð annar með
40,42 og i þriðja sæti varð Stefán
Jóhannsson Á, kastaði 35,64. Mik-
iðefniþará ferðinni. GunnarPáil
Jóakimsson sigraði i 1500 m
hlaupinu á 4.04.40 annar varð
Magnús Haraldsson FH á 4.05,44.
Friðrik Þór Öskarsson IR sigraði
i þristökki, stökk 14.36, annar
varð Kári Jónsson HSK stökk
„Grants
Open
■ -Grants golfmótið verður
haldið á Nesvellinum á
morgun og sunnudaginn og
verða leiknar 18 holur hvorn
daginn. Mótið er opið öllum
þeim er hafa frá 7-23 i for-
gjöf. Verðlaun verða veitt
fyrir besta árangur bæði
með og án forgjafar og eru
verðlaunin gefin af fyrirtæk-
inu Austurbakka. Þeir sem
áhuga hafa á að taka þátt i
mótinu geta tilkynnt þátt-
töku með þvi að hafa sam-
band við golfskálann á Nes-
inu.
Lattek
ekki
biank-
ur
■ Udo Lattek sem þjálfaði
hjá Borussia Dortmund
félaginu sem þeir Atli Eð-
valdsson og Magnús Bergs
leika með i V-Þýskalandi er
nú þjálfari hjá FC Barcelona
á Spáni. Lattek gerði tveggja
ára samning við Barcelona
og fyrir það fær hann 5
milljónir, eða 500 milljónir
gamlar, tvær og hálfa mill-
jón hvort árið og þá þarf að
sjálfsögðu ekki að taka það
fram að búið er að greiða
alla skatta. Var einhver að
tala um aðatvinnumennirnir
i knattspyrnu heföu það
gott?
röp-.
Ping
Open
■ Stórgolfmót sumarsins i
Borgarnesi Ping Open
verður haldið á Hamarsvelli
á morgun leiknar verða 18
holur m/án forgjafar. Glæsi-
leg verðlaun eru i boðifrá Is-
lensk Ameriska verslunar-
félaginu og sá sem slærholu i
höggi á von á Ping golfsetti
og golfpoka. Mót þetta er
orðið að árlegum viðburði
hjá Golfklúbbnum i Borgar-
nesi á siðasta ári mættu 87
keppendur til leiks.
13,50 og Jason ívarsson HSK
stökk 13.13 og varð þriðji. Alls
hafa veriðselt 3 Islandsmet og 13
meislaramótsmetá þessu móti en
i kvöld lýkur mótinu á Laugar-
dalsvellinum þá veröur keppt i
3000 m hindrunarhlaupi karla og i
4x400 m boðhlaupi karla og
■ Oddný Arnadóttir setti enn eitt
islandsmetið i gærkvöldi.