Tíminn - 12.08.1981, Side 6
6
Miövikudagur 12. ágúst 1981
stuttar fréttir
■ KlsiliOjan er aftur farin I gang eftir að framleiðsla hafði legið
niðri um sinn vegna söluerfiöleika.
Fjögurra vikna
stopp í kísilgúrnum
MÝVATNSSVEIT: Klsiliöjan
viö MVvatn fór að nýju I gagn I
byrjun þessarar viku, eftir
tveggja vikna framleiöslu-
stopp. Var stoppiö, sem sam-
einað var sumarleyfum
starfsfólksins, gert vegna
söluerfiöleika á kisilgilr. Hef-
ur framleiðsla I verksmiðj-
unni legið niðri isamtals fimm
vikurvegna þessara erfiðleika
það sem af er árinu, en í fyrra
lá framleiðslan niöri af sömu
sökum i ni'u vikur.
,,Við sjáum nú fram á að
geta rekið verksmiðjuna með
fullum afköstum það sem eftir
er af árinu,” ^ sagði Hákon
Björnsson, framkvæmdastjóri
Kisiliðjunnar, i samtali við
Timann i gær. „Horfur i sölu-
málum eru nú heldur bjartari
en þær voru i vetur og vor, en
þá var upphaflega meiningin
að við færum i fjögurra vikna
stopp að þessu sinni.”
Hákon sagði að ætlunin væri
að heildarframleiðslan á kisil-
gúr á þessu ári yrði 20.500
tonn, sem er 1.000 tonnum
meira en framleiðslan var i
fyrra. Hann sagði að eítir
stöðvun framleiðslunnar núna
væru birgðir ekki meiri en
eðlilegt gæti talist.
,,Það má kannski segja að
söluhorfur hafi alls ekki veriö
svo slæmar, heldur aö við fá-
um orðið svo litið fyrir fram-
leiðsluna, miöað við fram-
leiðslukostnað. bað hafa orðið
miklar hækkanir á aðföngum
hér innanlands, en verð fyrir
vöruna hefur íarið heldur
lækkandi I islenskum krónum.
Við seljum aðallega til
Evrópulanda,” sagði Hákon
Björnsson, íramkvæmda-
stjóri.
— JSG.
Fjöldi ferða-
manna meiri
en áður
■ MÝVATNSSVEIT:
„Ferðamannastraumur hefur
verið mikill hér i sumar, og
sennilega meiri en undanfarin
sumur”, sagði Jón Illugason, i
Mývatnssveit i samtali við
Timann.
Sagði Jón að ekkert lát væri
á heimsóknum ferðafólksins.
Arnþór Björnsson, hótel-
stjóri I Reynihlið, sagði okkur
að hótelið hefði verið fullsetiö
frá þvi f byrjun júni. Þannig
hefði það reyndar verið á
sama timabili undanfarin ár,
og þvi ekki góöur mælikvarði
á aukningu ferðamanna.
Arnþór sagði hins vegar
mun meira heföi veriö um aö
fólk tjaldaöi i sveitinni i sum-
ar, og fjöldi feröamanna hefði
veriðþarmun meiri en undan-
farin ár.
—JSG.
50—100 kr.
hæfilegt gjald
fyrir haga-
göngu hrossa
■ Greiðsla fyrir hagabeit
hrossa hefur veriö mjög
breytileg samkvæmt upplýs-
ingum er Stéttarsamband
bænda hefur aflað, vegna fjöl-
margra fyrirspurna er þangað
berast árlega um hælilegt
verð. Sumarið 1980 munu
landeigendur hafa tekið frá
1.500 til 6.000 gkr. fyrir hvern
hest á mánuöi.
Stjórn Stéttarsambandsins
hefur nú komið þeim ábend-
ingum á framfæri aö hún telji
hæfilegt verð fyrirhagabeit nú
i sumar frá 50 til 100 kr. á
mánuði, eftir aðstæöum og
gæðum haglendisins.
Tilsamanburðar er haft, aö
Hestamannafélagið Fákur
muni nú taka 110 kr. á mánuði
fyrir hvern hest i hagagöngu I
löndum félagsins vestan
Hellisheiðar en 100 kr. að
Ragnheiðarstöðum i Flóa. Þar
er um að ræða áborið land.
—HEI
Allt á kafi
í vinnu
■ DALVIK: Togararnir á
Dalvik, þeir Björgúlfur,
Björgvin og Dalborg. hafa að
undanförnu aflað ágætlega.
Dalborg er nú á rækjuveiðum,
en var á þorskveiðum i vetur.
Þessi góði afli togaranna
hefur gert það að verkum
ásamt fleiru, að atvinna hefur
verið svo mikil á Dalvik, að
mörgum hefur þótt nóg um.
AB
Heyskapur
langt kominn I
Mývatnssveit
MÝVATNSSVEIT: „Þaö
komu nokkrir góöir þurrka-
dagar um mánaöamótin, og
flestir bændur fóru þá langt
með að klára heyskapinn”,
sagði Jón Illugason, fram-
kvæmdastjóri i Mývatnssveit,
þegar Timinn innti hann eftir
stöðunni i heyskaparmálum i
Skútustaðahreppi.
„Spretta og heyfengur er
með ágætum og margir
bændur hafa fengið mun
meira en i fyrra. Ég held aö
það sé útlit fyrir að heyfengur
verði yfirleitt meiri en i fyrra.
Kal var mjög litið hérna og
vor”.
Jón sagöi aö einnig væru
góðar horfur meö uppskeru
garðávaxta i sumar, og menn
væru farnir aö taka upp
kartöf-lur sér til matar.
—JSG.
f réttir
Áætlaö heildarverðmæti landbúnaðar
framleiðslunnar:
SAMANLAGT UM
1,3 MILUARDAR
I Aætlað heildarverðmæti land-
búnaðarframleiðslunnar á yfir-
standandi verðlagsári — þ.e. 1.
sept. 1980 til 31. ágúst 1981 —
reyndist vera nær 1.280 milljónir
(ný)króna, samkvæmt nýjum út-
reikningum Framlciðsluráðs.
Miðað viðum 5 þúsund framleið-
endur koma þá um 256 þús. kr. i
hlut hvers að meðaltali.
Mest er verðmæti nautgripa-
afurða 544 millj. eða 42,5% af
heildarframleiðslunni. Sauðfjár-
afurðir eru að verðmæti tæpar 466
millj. eða 36,4% þannig að
samanlagt verðmæti þessara
hefðbundnu greina reiknast um
79% af heildarframleiösluverð-
mætinu. Verðmæti svina- og ali-
fuglaafuröa er reiknað nær 120
millj. eða 9,3% garðávaxta- og
gróðurhúsaafurðir rúmar 98
millj., eða 7,7% hlunnindi og °8 3% og hrossaafurðir
veiðileyfi að verðmæti rúmar 38 fyrir um 13,6 míllj eða 1.1%.hEI
Hvalveiðiskip
bjargaöi
■ Betur fór en á horfðist á tima-
bili er Hvalur VI kom að lekri
trillu um 10 milum norður af
Garðskagavita seint s.l. föstu-
dagskvöld i' leiðindaveðri. Tveir
mainum borð höföu þá alveg frá
þvi um kl. 3 um daginn reynt að
gera vart viö sig við skip er leiö
áttu framhjá, en án árangurs.
Talstöðin i bátnum hafði reynst
biluð þegar til hennar átti að
taka.
Skipverjar á Hval björguðu
trillu
mönnunum um borð og töku trill-
una i' tog. Létu þeir siðan Slysa-
varnafélagiö vita og jafnframt að
erfiðlega gengi að halda trillunni
á floti vegna mikils leka. Björg-
unarsveitarmenn úr Fiskakletti
oglngólfi héldu þvi út á hafnsögu-
bátnum Þrótti með kraftmikla
dælu frá slökkviliðinu i Reykja-
vik. Þróttur dró siðan trilluna til
hafnarog kom aðlandi um kl. 5 á
laugardagsmorgun.
—HEI
■ A úrtökumóti fyrir Evrópumótið i hestaiþróttum, sem haldið var I Keflavlk um siðustu helgi, var val-
ið landslið Islands. Taliö frá vinstri: Sigurbjörn Bárðarson og Adam, Hreggviður Eyvindsson og
Kökkvi, Eyjólfur tsólfsson og Krummi, Ragnar Ilinriksson og Nasi, Reynir Aðalsteinsson og Fleigur,
Tómas Ragnarsson á Bjarka og Benedikt Þorbjörnsson á Valsa.
Stokksnesganga herstöðvaandstæðinga:
„Friðarguðinn sans-
aði veðurofsann”
■ Um 250 herstöðvaandstæðing-
ar á Austurlandi fóru i friöar-
göngu frá Stokksnesi til Hafnar i
Homafirði á sunnudaginn. Geng-
iö var frá ytra hliði herstöövar-
innar á Stokksnesi, og endaö við
Fiskihól á Höfn, þar sem haldinn
var útifundur.
„Viö höldum að friðarguðinn
hafisansaö veðurofsann á meðan
við gengum”, sagði Geir Gunn-
laugsson, læknir á Höfn, sem
haföi forustu um undirbúning
friöargöngunnar, en ljómandi
veöur var á göngusvæðinu á
sunnudag, þótt ausandi rigning
haföi ráðið þar rikjum dagana
áöur, og brast siðan á að nýju á
sunnudagskvöld. Veðurbliðan
kom göngumönnum vel, á 20 ki'ló-
metra göngu þeirra.
Gönguaðgerðirnar hófust eigin-
lega með kvöldvöku á laugar-
dagskvöld, þar sem fjallað var
um ýmislegt sem tengdist vig-
búnaði, sögu Stokksness, og
tæknibúnaöi stöðvarinnar þar. A
meðan á göngunni sjálfri stóð
fluttu ávörp Sævar Kristinn Jóns-
■ Seglskútu hvolfdi um 50-100
metra frá landi — undan Hrólfs-
skála á Seltjarnarnesi. Þetta
gerðist um kl. 22 á laugardags-
kvöld.
Á skútunni voru hjón um
sextugt og sonur {Kirra. Skútunni
hvolfdi reyndar tvisvar, en i fyrra
skiptið haföi fólkið að rétta hana
af, sem ekki tókst i siðara skiptið.
Slysavarnafélagið kallaði út
son, úr Vestur-Skmaftafellssýslu,
og Sigurður Pálsson á Eiðum, en
á útifundinum Torfi Steinþórsson
á Hala og Pétur Gunnarsson,
Reykjavik. —JSG.
björgunarsveitirnar Albert og
Ingólf.auk þesser fólk i'nágrenn-
inu dreif að. Unga manninum
tókst aö synda iland en foreldrum
hans var bjargað af báti sem
skotið var á flot frá nesinu. Þau
höfðu getað haldið sér i bátinn
sem var á hvolfi. Fdlkið var orðið
nokkuð þrekað af volkinu og var
það flutt á slysadeild.
—HEI
Seglskútu hvolfdi
við Seltjarnarnes