Tíminn - 12.08.1981, Blaðsíða 7
Miövikudagur 12. ágúst 19S1
erlent yfirlíi
■ Sharon og Porush. leiötogi Agudat Israei, takast i hendur, en Begin horfir á.
Sharon er her-
skárri en Begin
Hanra er ordinn hermálaráðherra ísraels
■ BEGIN hefur loks tekizt aö
mynda nýja stjórn i tsrael. Hann
kynnti hana i þinginu i vikunni
sem leið. bingfylgi hennar má
ekki minna vera, þvi að hún
styðst við 61 þingmann, en þing-
menn eru alls 120.
Begin segir, að þetta nægi hon-
um. bvi til sönnunar vitnar hann
til þess, að hann hafi ekki heldur
haft nema stuðning 61 þing-
manns, þegar hann myndaði fyrri
rikisstjórn sina 1977. betta hafi
nægt honum i fjögur ár, enda
bættist meira þingfylgi við siðar.
Yfirleitterþótalið, að þingfylgi
það, sem Begin hefur nú sé mun
veikara en það sem hann hafði
1977.
Begin nýtur nú stuðnings fjög-
urra flokka. Fyrst er að nefna
hans eigin flokk, Likud-flokkinn,
sem hefur 48 þingmenn. Næst
kemur bjóðlegi trúarflokkurinn
að þingfylgi, en hann hefur 6
þingmenn. bá kemur enn aftur-
haldssamari flokkur strangtrúar-
manna, Agudat Israel, sem hefur
fjögur þingsæti. Loks er svo nýr
flokkur, Tam i-flokkurinn, sem
hefur þrjú þingsæti.
Tami-flokkurinn er klofnings-
brot úr bjóðlega trúarflokknum.
Formaður hans, Ahron Abuhat-
zeira, var i bjóðlega trúarflokkn-
um sem forustumaður þeirra
Gyðinga, sem komnir voru frá
Arabalöndum og aðhylltust flokk-
inn. Hann fékk sem slikur sæti i
fyrri rikisstjórn Begins. Seinna
flæktist hann i fjárbrallsmál og
varð að fara Ur rikisstjórninni.
bétta leiddi til þess, að Abukat-
zeira gekk úr bjóðlega trúar-
flokknum og stofnaði nýjan flokk,
Tami-flokkinn, sem fékk aðallega
fylgi Gyðinga frá Arabalöndum.
bjóðlegi trúarflokkurinn, sem
átt hefur fulltrUa i öllum rikis-
stjórnum frá stofnun Israels, var
mjög andvigur stjórnarþátttöku
Tami-flokksins, en féllst á hana
að bkum. Abuhatzeira fékk sæti i
rikisstjórninni sem ráðherra
þeirrar stjórnardeildar, sem fer
með verkalýðsmál og málefni
innflytjenda.
Övi'ster hins vegar, að Abuhat-
zeira eigi lengi sæti i stjórninni.
Hann var vegna skorts á sönnun-
um sýknaður af þeirri ákæru,
sem hafði verið borin á hann,
þegar hann varð að fara Ur fyrri
stjórn Begins.
Lögreglan hefur samt haldið
áfram rannsókn á málinu og þyk-
ist nú hafa fengið frekari sannan-
ir fyrir sekt hans. Nýtt mál var
þvi höfðað gegn honum sama
daginn og hann settist aftur i ráð-
herrasæti.
ERFIÐAST var fyrir Begin að
■ Ariel Sharon
ná samkomulagi við Agudat
Israel. betta er flokkur strang-
trúarmanna, sem vilja fylgja
siðareglum Gyðinga Ut i yztu æs-
ar. Agudat Israel setti það að
skilyrði fyrir stjórnarþátttöku
sinni og stuðningi við stjórnina,
að tekið yrði upp miklu strangara
eftirlit með þvi, að siðir Gyðinga
yrðu haldnir, m.a. i sambandi við
helgi hvildardagsins.
Meðal annars fékk fiokkurinn
það tekið upp i stjórnarsáttmál-
ann, að ftugfélag Israelsmanna,
E1 Al, felldi niður allt flug á
laugardögum.
bessu hefur þegar verið mót-
mælt af stjórn flugfélagsins, sem
segir, að það muni valda félaginu
50 millj. dollara tekjumissi á ári.
Flugmenn félagsins hafa hótað
verkfalli, ef laugardagsflug E1 A1
verður fellt niður.
bá fékk Agudat Israel það tekið
upp i samkomulag flokkanna, að
öll hafnarvinna yrði látin falla
niður á laugardögum. Talið er að
þetta geti valdið miklum truflun-
um og erfiðleikum.
Agudat Israel hefur lýst yfir
þvi, að verði ekki búið að koma
fram fyrir næsta vor þessum
ákvæðum stjórnarsáttmálans og
öðrum þeim, sem varða siði Gyð-
inga, muni flokkurinn hætta
stuðningi við stjórnina.
Stefnuskrá nýju stjórnarinnar
er sögð mun þjóðernissinnaðri og
andstæðari sáttum við Araba en
stefnuskrá fyríi stjórnar Begins.
bannig er lögð áherzla á, að land-
nám Gyðinga á vesturbakkanum
verði aukið og að Israel haldi
áfram yfirráðum yfir vestur-
bakkanum og Ghazasvæðinu,
enda þótt ibúarnir þar fái tak-
markaða heimastjórn.
Engar likur virðast þvi benda
til þess, að Begin og Sadat takist
að ná samkomulagi um þessi
mál, nema Reagan gripi mun
fastara i taumana en hann hefur
gert hingað til.
bAÐ ER þó ekki stefnuskrá
nýju rikisstjómarinnar, sem sætt
hefur mestri gagnrýni, heldur
skipan Ariels Sharon hers-
höfðingja i embætti Varnarmála-
ráðherra.
Ariel Sharon, sem er 53 ára,
vann sér mikla frægð i' styrjöld-
unum 1967 og 1973, m.a. vegna
þess.að hann framkvæmdi djarf-
ar hernaðarlegar aðgerðir, sem
þóttu gefast vel, án þess að hafa
til þess fullt samþykki her-
stjórnarinnar. Hann er þvi' ein
mesta striðshetja Israelsmanna
um þessar mundir.
Samt óttast margir Israels-
menn mikil yfirráð hans. Hann
þykir herskár um of, fljótfær og
ógætinn. bess vegna gerði Begin
hann ekki að varnarmálaráö-
herra í fýrri stjórn sinni, heldur
fól honum landbúnaðarmálin. bá
stöðu notaði Sharon sér til að
auka landnám Gyðinga á vestur-
bakkanum.
begar Weizman lét af embætti
varnarmálaráðherra á siðastl.
ári, vildi Sharon fá embættið, en
Begin neitaði þvf, og hefur siðan
farið með það sjálfur.
Sagter að Begin hafi viljað fara
sjálfur með varnarmálin áfram,
enSharon þá hótað þvi, að snúast
gegn stjórninni, ef honum yrði
einu sinni enn neitað um embætti
varnarmálaráðherra.
Helzt er nú treyst á að gætni
Sharons vaxi við aukna ábyrgö.
Miklar efasemdir eru þó um það.
Þórarirm Þórarinsson,
ritstjóri skrifar
erlendar fréttirl
Auka þróunarað-
stoð í orkumálum
■ Fulltrúar Breta og Kanada-
manna á Orkumálaráðstefnu
Sameinuðu bjóöanna i
Nairóbi, lýstu þvi igæryfir, að
riki þeirra myndu auka veru-
lega aðstoð sina við þróunar-
lönd i orkumálum. Kanadiski
forsætisráðherrann, sem tók
tilmáls á ráðstefnunni i gær,
skýrði frá þvi, aö rikisstjórn
hans hygðist auka framlög
Kanadamanna til alþjóðlegra
orkurannsókna, um meir en
þrjátiu milljónir Bandarikja-
dollara.
Sagði forsætisráðherrann,
að af þessari upphæð yrði
tuttugu milljónum dollara
varið i þágu Afrikurikja.
bá var frá þvi skýrt á ráð-
stefnunni igær, afhálfu Breta,
aö breska rikisstjórnin myndi
leggja til á fjárlögum sinum
tvær milljónir sterlingspunda,
til þess að aðstoða þróunar-
lönd við úrlausn samvinnu-
verkefna i orkumálum.
Orkumálaráðstefna
Sameinuðu bjoðanna hófst {
Nairobi á mánudag. Búist er
við að á ráðstefnunni snúist
umræður að miklu leyti um
orkuvanda þróunarlanda og
áhrif orkukreppunnar á stöðu
þeirra gagnvart iðnvæddum
rikjum.
A ráöstefnunni á að ræða
flesta af þeim möguleikum,
sem taldir eru raunhæfir til
orkuvinnslu i heiminum idag,
allt frá kjarnorku niður til
kúamykju.
Verða opin-
ber mótmæli
bönnuð?
■ Formaður pólska kommún-
istaflokksins varaði i gær full-
trúa á fyrsta fundi hinnar nýju
miðstjórnar flokksins, sem
kom saman i Varsjá i gær, við
þviað óróleikinn i landinu gæti
leitt til mesta harmleiks i sögu
þess. Sagði Kania að landið
stæði frammi fyrir nýjum
vandamálum og að finna yrði
leiðir til þess að stööva mót-
mælaölduna, sem gengið hef-
ur yfir landið undanfarið.
Fréttaskýrendur segja, að
af texta opinberrar yfirlýsing-
ar, sem send var frá mið-
stjórnarfundinum i gær, megi
ráða að stjórnvöld gætu veriö
reiðubúin til þess að leggja
bann við opinberum mótmæl-
um í landinu.
Asama tima og miðstjórnin
kom saman, sátu leiðtogar
Einingar, samtaka óháðra
verkalýðsfélaga i Póllandi, á
f.indi i' Gdansk, þar sem þeir
ræddu vandamálin frá sinum
sjónarhóli.
Flugumferð að nýju
f eðlilegt horf
■ Svo viröist sem truflanir
þær, sem orðið hafa á flugi yf-
ir Atlantshafið undanfarna
daga, i kjölfar verkfalls
bandariskra flugumferðar-
stjóra og samúðaraðgerða
stéttarbræðra þeirra i öðrum
löndum, fari nú minnkandi,
þótt i gær hafi enn verið m ikl-
ar tafir á flugi á þessum flug-
leiðum.
Kanadi'skir flugumferðar-
stjórar tóku i gær aftur upp
eðlilega afgreiðslu á flugi til
og frá Bandarikjunum, eftir
að hafa neitað allri afgreiðslu
á þvi, nema i neyðartilvikum,
i einn dag.
Ekkert bendir til þess að
saman dragi i deilu banda-
riskra flugumferðarstjóra við
stjórnvöld. Samgöngumála-
ráðherra Bandarikjanna
ræddi I gær við fulltrúa flug-
félaga, i þeim tilgangi að fá
félögin til þess að draga úr
flugi næstu mánuði, meðan
flugumferðarstjórnarkerfið
væri að komast i samt lag.
PÓLLANI): Tilraun var i gær gerð til þess að ræna flugvél i inn-
anlandsflugi i Póllandi, og snúa henni til Vestur-Berlinar. Ahöfn
vélarinnar tókst að yfirbuga flugræningjann.
EGYPTALAND: Skýrt var frá þvi i Kairó i gær, að Bandarikja-
menn hygðustflýta afhendingu á tuttugu F-16 orrustuþotum til
Egypta. Verða vélarnar afher.tar i janúar á næsta ári, i stað
mars. Samið var um sölu á þotunum til Egypta, svo og um sölu á
skriðdrekum og öðrum vigbúnaði, i forsetatið Jimmy Carters.
ISRAEL: I gær tilkynntu Bandarikjamenn að þeir ætluöu að
fresta afhendingu á fjórum F-16 orrustuþotum til viðbótar til
Israelsmanna. bar með eru F-16 þoturnar, sem frestað hefur
verið afhendingu á frá þvi Israelar réðust á kjarnorkuverið i
Irak i vor, orðnar sextán.
SPANN: Saksóknari á Spáni hefur tilkynnt, aö hann muni krefj-
ast þrjátiu ára fangelsisdóms, i málum þriggja hershöfðingja úr
spænska hernum, sem voru leiðtogar þeirra, sem gerðu bylt-
ingartilraun i landinu i febrúarmánuði siðastliðnum.
PORTUGAL: Forsætisráðherra Portugal tilkynnti i gær form-
lega afsögn sina og rikisstjórnar sinnar. Búister við að hann sitji
i embætti, þar til tekist hefur að mynda nýja rikisstjórn.