Tíminn - 12.08.1981, Side 12
Miðvikudagur 12. ágúst 1981
16
íþrótfir
Bond kom ekki með
City til íslands
Manchester City hef ur selt Steve MacKenzie
til WBA og þurfti Bond að ganga
frá þeirri sölu og átti ekki heimangengt
■ John Bond framkvæmdastjóri
Manchcstcr City átti ekki
heimangcngt er City kom til
landsins i gær.
■ Hið fræga enska félag
Manchester City kom til
islands i gær en félagið
mun leika hér tvo leiki, sá
fyrri verður á Akureyrar-
velli gegn Þór í kvöld og
siðari leikurinn gegn úr-
valsliði sem landsliðsnefnd
KSÍ hefur valið og verður
hann á Laugardalsvellin-
um á morgun. John Bond
framkvæmdastjóri City og
Benson aðstoðarf ram-
kvæmdastjóri gátu ekki
komið með City þar sem
félagið hefur nú selt einn
sinn besta mann Steve
McKenzie til West Brom-
wich Albion fyrir 500 þús-
und pund.
Þá voru tveir leikmenn meiddir
og gátu ekki komið hingað meö
liðinu en það eru þeir Gow og
Booth. Þrátt fyrir þessi forföll eru
margir frægir kappar hér með fé-
laginu eins og t.d. Joe Corrigan
markvörður, Tommy Hutchison,
Kevin Reeves og margir fleiri. A
blaðamannafundi sem KSl hélt i
gær af tilefni heimsóknar City til-
kynnti Guðni Kjartansson þá 16
leikmenn sem leika gegn City á
morgun en þessir menn skipa
hópinn.
Markveröir:
Guðmundur Baldursson Fram
Þorsteinn Bjarnason IBK
Aðrir leikmenn:
Marteinn Geirsson Fram
Trausti Haraldsson Fram
Pétur Ormslev Fram
Arni Sveinsson ÍA
Sigurður Halldórsson 1A
Sigurður Lárusson ÍA
Ómar Torfason Vikingi
Lárus Guðmundsson Víkingi
Ómar Jóhannsson IBV
Sigurlás Þorleifsson IBV
Viöar Halldórsson FH
Ómar Rafnsson UBK
Sævar Jónsson Val
Asbjörn Björnsson KA
Fjórir nýliðar eru i landsliðinu
að þessu sinni en það eru þeir
Guðmundur Baldursson, Sig-
urður Lárusson, Ómar Rafnsson
og Asbjörn Björnsson.
Sainty þjálfari City sagði á
fundinum að lið hans myndi taka
þessa tvo leiki hér á landi mjög
alvarlega og þeir ætluðu sér
greinilega að reyna að vinna báða
þessa leiki. Þessi heimsókn City
hingað til lands er undirbúningur
þeirra fyrir keppnistimabilið en
það hefst hjá þeim i Englandi 29.
ágúst og á City þá að leika við
WBA. Sainty sagði að City þyrfti
enn að kaupa til til þrjá leikmenn
til félagsins til þess að þeir gætu
oröið á meðal sex efstu og bestu
félaganna i Englandi en það væri
svo sannarlega stefnan hjá þeim.
Það er full ástæða til þess að
hvetja fólk til þess að mæta á leiki
City á Akureyri i kvöld kl. 18.30 og
á Laugardalsvellinum á morgun,
það er ekki á hverjum degi sem
slikur hvalreki sem Manchester
City er, rekur á fjörur islenskra
knattspyrnuáhugamanna.
röp—
3. deildin - 3. deildin - 3. deildin - 3. deildin
Úrslitin hefjast
á laugardaginn
■ Riðlakeppninni i 3. deildinni i
knattspyrnu er nú að ljúka og það
liggur nú alveg ljóst fyrir hvaða
félög það eru sem leika i úrslita-
keppninni sem hefst á laugardag-
inn, en það eru þessi félög,
Grindavik, Njarðvik, HV KS,
HSÞ-b, Einherji og Sindri. Hér á
eftir verður getiö um úrslitin i
siöustu leikjum I riðlunum og
hvernig lokastaðan i riðlunum er.
A-riðill
Afturelding-1K 5-0
Hveragerði-Óðinn 4-0
Grindavik-Armann 3-1
Lokastaðan i riðlinum er þvi
þessi:
Grindavik 12 9 2 1 31:11 20
IK
Afturelding
Armann
Grótta
Hveragerði
Óðinn
12 7 3 2 21:14 17
12 7 2 3 35:18 16
12 6 4 2 18:9 16
12 3 2 7 14:31 8
12 2 3 7 14:24 7
12 0 0 12 7:33 0
B-riðill
Þór Þorl.-Léttir 2-1
Stjarnan-Leiknir 7-1
Staðan í riöhnum er þessi:
Njarðvik 10 8 1 1 25:14 1
Viðir 9 6 2 1 32:13 1
Stjarnan 10 3 1 6 25:27
Léttir 10 2 3 5 12:20
Þór 93 15 15:24
Leiknir 10 2 2 6 13:31
Einum leik scm var ólokið va
frestað en það er leikur Viðis og
Þórs.
Urslitakeppnin
15. AGÚST AlftabáruvöIIur: H.S.Þ. b-Njarðvik llornafjarðarvöllur: Sindri-H.V. Siglufjarðarvöllur: K.S.-Grindavik kl. 14.00 kl.14.00 kl.14.00
19. AGÚST Hornafjarðarvtllur: Sindri-H.S.Þ. b Akranesvöllur: H.V.-Njarðvik Vopnafjarðarvöllur: Einherji-K.S. kl. 19.00 kl.19.00 kl.19.00
22. AGÚST Njarövikui völlur: Njarðvik-Sindri Alftabáruvii'lur: H.S.Þ. b-Einerji Grindavikurvöllur: Grindavik-Einherji kl.14.00 kl.14.00 kl.14.00
29. AGÚST' Njarðvíkur völlur: Njarövík-H.S.Þ. b AkranesvöIIur: H.V.-Sindri Grindavikurvöllur: Grindavik-K.S. kl. 14.00 kl.14.00 kl.14.00
2. SEPTEMBER Alftabáruvöllur: H.S.Þ. b-Sindri Njarðvfkurvöllur: Njarðvik-H.V. Siglufjaröarvöllur: K.S.-Einherji kl. 19.00 kl.19.00 kl. 19.00
5. SEPTEMBER Akranesvöllur: H.V.-H.S.Þ.b llornafjaröarvöllur: Sindri-Njarðvik Vopnafjarðarvöllur: Einherji-Grindavik kl.14.00 kl.14.00 kl.14.00
12. SEPTEMBER ÚRSLIT.
C-riðill
Vikingur-Snæfell 1-1
HV-Reynir He 3-0
Reynir He-Bolungarvik 2-0
Lokastaðan i riölinum er þessi:
HV
Snæfell
Vikingur
Bolungarvik
Reynir He.
Reynir Hn
12 10 1 1 41:4 21
12 8 3 1 32:7 19
5 1 22:15 17
2 5 24:19 12
2 7 13:27 8
2 9 5:29 4
Grundarfjörður 12 1 1 10 6:42 3
12 6
12 5
12 3
12 1
D-riðill
Reynir-Tindastóll 4-4
Lokastaöan i riðlinum er þessi:
KS 8 7 1 0 22:5 15
Tindastóll 8 5 2 1 28:7 12
Leiftur 8 3 0 5 11:13 6
Reynir 8 2 1 5 20:21 5
USAH 8 1 0 4:39 2
E-riðill
Lokastaðan iriðlinum varð þessi:
HSÞ-b
Arroðinn
Magni
Dagsbrún
6 4 1 1 11:5 9
6 4 0 2 15:9 8
6 2 2 2 18:12 6
6 0 1 5 4:22 1
F-riðill
Einherji-Valur 7-1
Huginn-UMFB 4-1
Eftir þvi sem við best vitum á
Einherji og UMFB eftir að leika
en annars er staðah i riðlinum
þannig:
Einherji 7 6 1 0 29:5 13
Huginn 8 5 1 2 22:8 11
Valur 8 2 1 5 15:20 5
Höttur 8 2 1 5 6:26 5
UMFB 7 1 2 4 12:24 4
G-riðill
Hrafnkell-Sindri 1-6
Austri-Súlan 4-2
Lokastaðan i riðlinum varö þessi:
Sindri 8 6 1 1 32:7 13
Austri 8 5 2 1 19:8 12
Leiknir 831418:15 7
Súlan 8 2 0 6 10:22 4
Hrafnkell 8 2 0 6 5:29 4
röp.—
■ Kristján Gissurarson KR varö fyrir þvi óhappi aö takast illa til i
stangarstökkinu og lentihann fyrir framan dýnurnar. Kristján meidd-
ist illa á hendi og varð að flytja hann á slysavaröstofuna þar sem hugað
var að meiðslunum sem vonandi eru ekki alvarleg.
Timamynd Róbert
■ A þessari mynd sjáum við tvo fyrrverandi og núverandi kúluvarp-
a.a, Gunnar Huseby og Brian Oldfield. Timamynd Róbert
„Þetta var frábært”
— sagði hinn gamalreyndi
kúluvarpari Gunnar Huseby
I „Mér fannst þetta sérlega skemmtileg keppni og það var mjög gam-
an að fylgjast með þessum kraftakörlum,” sagði hinn gamalreyndi
kúluvarpari okkar Islendinga GunnarHuseby eftir að kúluvarpskeppn-
inni var lokið á Reykjavikurleikunum i gærkvöldi.
„Mérfannst sérstaklega skemmtilegt að fylgjast með Brian Oldfield
frá Bandarikjunum og kaststill hans er mjög athyglisverður. Manni
hefði seint dottið i hug að kasta svona i gamla daga. Það þarf mjög
mikla tækni til að ná valdi á þessum stil sem að minum dómi er mjög
erfiður. Mér fannst Hreinn standa sig mjög vel og ég hélt satt að segja
lengi vel að hann ætlaði að ná að sigra þessa frægu kappa en þvi miður
tókst það ekki. Ég vona bara og veit að keppnin verður ekki siðri annað
kvold og allir þeir sem áhuga hafa á frjálsum iþróttum ættu að flykkj-
ast á völlinn þá”, sagði Gunnar Huseby. __RöP