Tíminn - 08.10.1981, Side 1
Skautahöll í Reykjavík — bls* 19
TRAUSTOG
FJÖLBREYTT
FRÉTTABLAÐ!
Fimmtudagur 8. október 1981
227. tölublað — 65. árgangur
KeimiliS'
Tíminn
iB
.
Valkostur
veitinga-
mannsins
r=-blS» .12
Laun-
rád
— bls. 18
Múla-
lundur
heim-
sóttur
— bls. 10-11
Frúar- _
l^sil^íti m i
- bls. 4
Fyrirvaralaus breyting hjá Lrfeyrissjóði starfsmanna ríkisins:
iAnsréttindi fjölda
MANNS VERIÐ AFNUMIN!
■ Margir sem gert höföu sér
vonir um lán i Lifeyrissjóði rik-
isstarfsmanna samkvæmt ný-
lega tilkynntum breyttum lana-
reglum fá nii skyndiiega þau
svör hjá sjóðnum að þessar
reglur gildi ekki iengur.
Má gera sér í hugarlund hve
illa þetta getur komið við þá
I sem jafnvel voru búnir að fá
| upplýsingar um þessi lánsrétt-
I indi sin hjá sjdönum og sam-
kvæmt þvi verið búnir aö gera
bindandi tilboð i ibúðir, þegar
fólk allt I einu kemst aö þvi að
það þurfi jafnvel að biða eftir
láninu árum saman.
Samkvæmt hinum breyttu
lánareglum sem gilt hafa und-
anfarna mánuði, var biðin eftir
lánsréttindum styttúr 5 árum i 2
og hálft ár fyrir fullt starf, jafn-
framtþvfsem fólk sem hdf störf
hjá rikinu gat fhitt með sér sin
lánsréttindi úr almennu sjóðun-
um. Þá var lánsupphæöin og
stórhækkuð, eöa i 120 þúsund
krónur. Nú er sem sagt búið að
afnema þessar reglur fyrir-
varalaust þannig aö fólk verður
aö ávinna sér sin lánsréttindi i
Lifeyrissjtíði rikisstarfsmanna.
„Það er ekkert sem heitir ó-
afturkallanlegt i þessum efnum.
Sjdðsstjórnin hefur fulla heim-
ild til að breyta þessum reglum
hvenærsem ástæða er til. Þetta
fer bara eftir fjárhag sjóðsins”,
svaraöi Guðjón Albertsson,
starfsmaður sjóðsins er hann
var spurður um ástæðurþess að
reglunum var breytt svo
skyndilega. Að ööru leyti benti
hann á formann sjóðsstjdrnar
Kristján Hiorlacius til aðsvara
þessu. Hann er hins vegar er-
lendis eins og er.
— HEI
,-tr-
JL
I;...... .. :, ....
■ ÞaÖ er ávallt meiriháttar veisla hjá fuglunum viö höfnina þegar veriöer aölanda loönunniogkomast þá færri aöen vilja.
Timamynd: Ella
Launakröfur Alþýdusambands Vestfjarða:
FLOKKATILFÆRSUIR OG
15% GRUNNKAUPSNÆKKUN
■ „15% almenn kauphækkun
yfir aDa kauptaxta og að al-
menn fiskvinna verði hækkuð úr
8. i 13. launaflokk og önnur sam-
bæriieg störf hækki i samræmi
við það”, svaraði Pétur Sig-
urðsson, forseti Alþýðusam-
bands Vestfjaröa er Timinn
spurði hann um helstu kröfur
þeirra i næstu kjarasamningum
en ASV urðu fyrstir til aö nefna
ákveðna prósentutölu varðandi
grunnkaupshækkanir f næstu
samningum.
Aðrar helstu kröfur ASV eru
að öll yfirvinna verði greidd
með 100% álagi, að matar- og
kaffitimar skuli teljast til
vinnutima ef unnið er laugar-
daga eða sunnudaga en greiddir
með tvöföldu kaupi séu þeir
unnic að 10 ára starfsaldur hjá
sama atvinnurekanda gefi rétt
til 27 daga orlofs og að uppsagn-
arfrestur i fiskvinnu verði einn
mánuöur i stað viku og aö upp-
sögn miðist við mánaðamót.
„Og siðast en ekki sist þá er
þess krafist aö allir nýir kaup-
liðir þess samnings sem geröur
verður taki gildi frá 1. nóvem-
ber”, sagði Pétur.
Auk þess gat hann um eftir-
farandi kröfur er geröar eru á
hendur stjórnvöldum sem hann
sagði að ættu aö geta liökað
fyrir samningum almennt: 1
fyrsta' lagi aö orkuverð verði
þegar jafnaö svo allir lands-
menn sitji þar við sama borð. 1
ööru lagi að felldur verði niður
söluskattur af flutningsgjöld-
um, i staö þess að rikið hegni nú
fólki sérstaklega fyrirað byggja
þessar verstöðvar. 1 þriðja lagi
aö jöfnun kostnaðar vegna bú-
setu verði einnig náö meö hækk-
un skattleysismarka( barnabtíta
og lffeyrisgreiðslna. Og i fjtírða
lagi að ef ekki fáist Urlausn með
fyrrtöldum leiöum, þá verði öll
laun tryggð með einskonar
landsbyggðarvisitölu sem verði,
mismunandi eftir landshlutum
og miði við raunverulegan
framfærslukostnað. —HEI