Tíminn - 08.10.1981, Qupperneq 13
Fimmtudagur 8. október 1981
fwtoi- 13
Evrópukeppnin f körfuknattleik:
Valur mætti
ofjörlum
sínum
— tapaði 118-80 fyrir Crystal Pala
■ Valsmenn mættu ofjörium
sinum þegar þeir léku gegn
enska li&inu Crystal Palace i
Evrópukeppni bikarhafa i
körfuknattleik i gærkvöldi og
var leikiö i Lundúnum. Lokatöl-
ur leiksins uröu 118-80, eftir aö
staöan i leikhléi haföi veriö 60-26
enskum i hag. Aö sögn Einars
Matthíssen liöstjóra Vals, var
þessi leikur eins og þeir höföu
búist viö, þar sem Crystal Pal-
ace heföi nýtt sér rétt sinn til aö
nota tvo bandariska leikmenn
auk þess sem aö i liöi Palace
hafi veriö tveir aörir Banda-
rikjamenn sem nýlega séu orön-
ir enskir rikisborgarar. Aö sögn
Einars voru leikmenn Palace
sumir hverjir mjög háir vexti og
hafi þeir raunar leikiö á annarri
hæö en Valsmenn.
„Við bjuggumst alltaf viö svo
miklu tapi þar sem við gátum
aöeins haft einn erlendan leik-
mann i liði okkar en nærvera
Val Brazy heföi skipt okkur
miklu þar sem hann hefði komið
út i leik sem þessum þar sem við
vorum pressaðir svo stlft I sókn-
inni”, sagði Einar.
Ef litið er á gang leiksins þá
tóku þeir strax mikla forystu og
komust til dæmis i 14-2, og höfðu
yfir i hálfleik eins og áður segir
60-26. Valsmenn voru mjög
slappir á taugum I upphafi
leiksins og gekk illa að finna
sjálfa sig I sókninni. En þegar i
upphafi siðari hálfleiks fóru þeir
að átta sig betur á hlutunum og
veita meiri mótspyrnu, og má
til gamans geta þess að siöari
hálfleikurinn tapaðist aðeins
með fjögurra stiga mun. Rams-
ey, Bandarikjamaðurinn I liöi
Vals skoraði þá fjórtán körfur
Torfi Magnússon lét mest aö sér kveöa i leik Vals og Crystal Palace
úr sautján skotum sem verður
aö teljast harla gott gegn jafn
sterku liði og Palace. Það var
samt Torfi Magnússon sem lét
mest að sér kveöa I liði Vals þó
aö hann skoraði ekki mest þvi
hann hirti f jöldann allan af frá-
köstum bæði i vörn og sókn auk
þess sem hann gerði mikið af
þvi að „blokkera” risana hjá
Palace. Stigahæstir leikmanna
Vals voru Ramsey með 39 stig,
Kristján Ágústsson 18 stig, Rik-
haröur Hrafnkelsson 13 stig,
Torfi Magnússon 7 stig. Að-
spurður um leikinn á föstudag-
inn, en þá fer fram seinni leikur
liðanna einnig I Lundúnum,
sagöi Einar að þeir byggju sig
undir svipuð úrslit og i gær-
kvöldi þar sem Palace hefði
mjög skemmtilegu og góðu liði á
að skipa. Valsmenn báöu um
kveöjur heim og sögöu að allir
væru við hestaheilsu og móttök-
ur ytra allar hinar glæsilegustu.
HG
Valsmenn
gabbaðir
■ Reglur F.I.B.A. kveða
svo á að lið geti fengið að
„lán:” einn leikmann frá
öðrr. félagi til að leika i
Evrópu mótunum i körfu-
knattleik. Þennan möguleika
hafa islensk félög stundum
nýtt sér með þvi að láta tvo
bandariska leikmenn leika
með liðum sinum, það er að
segja þjálfarann og einn
lánsmann.
Valur hafði samið við
stjórn körfuknattleiksdeild-
ar Fram um að fá Banda-
rikjamanninn i liði þeirra,
Val Brazy til liðs við sig, og
fengið það samþykkt af
F.I.B.A. En svo bregður svo
við að leikmenn Fram neita
allir sem einn að Brazy fái að
fara þó hann hafi verið búinn
að samþykkja það sjálfur og
mæta á æfingar með Val. Á-
stæða leikmanna Fram var
kannski skiljanleg þar sem
að næsti leikur þeirra i tJr-
valsdeildinni er gegn Is-
landsmeisturum Njarðvikur.
Valur bauðst þá til að gera
það sem i þeirra valdi stæði
til að fá þeim leik frestað en
Framarar neituðu öllum
frekari viðræðum um málið
og sátu Valsmenn eftir með
sárt ennið, þvi að enginn timi
var til að útvega annan
mann.
HG.
ÍS mætir KR I
körfunni í kvöld
■ Einn leikur fer fram i Úr-
valsdeildinni i körfuknattleik i
kvöld og leika þá Stúdentar og
KR-ingar i tþróttahúsi Kenn-
araháskólans klukkan 20. Þar
gæti orðið um spennandi viður-
eign að ræða þar sem KR leikur
nú án Bandarikjamanns, en eru
samt þekktir fyrir allt annað en
að gefast átkalaust upp, eins og
þeir sýndu i leik siðastliðinn
laugardag er þeir sigruðu lið IR.
HG.
■ Markvörðurinn snjalli óli Ben leikur sinn fyrsta deildarleik með
Þrótti gegn Vikingi I kvöld.
Timamynd Ella
RISASLAGUR í
FYRSTA LEIK
■ tslandsmótið i 1. deild hefst i
kvöld með stórleik i Laugardals-
höll og eigast þar við tslands-
meistarar Vikings og bikarmeist-
arar Þróttar, þannig aö örugg-
lega verður um hörkuleik að ■
ræða. Aðrir leikir i fyrstu umferð
eru þeir að KA og Valur leika á
Akureyriá laugardaginn og einn-
ig Fram og KR, en á sunnudaginn
leika svo HK og FH að Varmá.
HG.
Evrópukeppni unglingalandslida í knattspyrnu:
ísland
■ A morgun fer fram fyrri leikur
tslands og Belgiu I Evrópukeppni
unglingalandsliða skipuöum leik-
mönnum 16-18 ára og verður leik-
ið á Laugardalsvelli klukkan
16.15. Knattspyrnusambandið vill
leggja sitt afi mörkunum til að
gefa unglingum og öðrum þeim
sem áhuga hafa á að koma og
styðja við bakið á strákunum,
meðþviaðstillamiðaverðimjög I
hóf. Aðgangseyrir verður aðeins
Belgía á morgun
10 krónur, og ætti það þvi ekki að
hindra neinn i að mæta á völlinn
og njóta ódýrrar en góðrar
skemmtunar. Siðari leikur lið-
anna veröur svo i Belgiu 28. októ-
ber en það lið sem sigrar fer i úr-
slitakeppni U.E.F.A. sem haldin
verður næsta vor.
Þjálfari unglingalandsliðsins er
Jóhannes Atlason og hefur hann
valið eftirtalda leikmenn til að
leika fyrir hönd Islands á morg-
un:
Guðmund Erlingsson, Þrótti
Stefán Arnarson, KR,
Björn Rafnsson, Snæfelli
Davið Egilsson, KR,
Einar Björnsson, Fram
Gisla Hjálmtýsson, Fylki, fyrir-
liði,
Halldór Áskelsson, Þór
Hannes Jóhannsson, KR,
Ingvar Guðmundson, IBK,
Jón Halldór Garðarsson, FH,
Kristin Jónsson, Fram
Kristján Jónsson, Þrótti,
Stein Guðjónsson, Fram
Sverri Pétursson, Þrótti,
Valdimar Stefánsson, Fram
Þorstein Þorsteinsson, Fram
Dómari verður J.B. Worrall frá
Englandi.
HG.
Ármenn-
ingar fá
frest
■ Stjórn körfuknattleiks. -
sambands Islands ákvað á
fundi sinum að gefa Ar-
menningum frest til klukkan
fimm i dag til að greiöa
skuldir sinar við sambandiö
og gefa skýringu á þeirri ó-
virðingu sem þeir sýndu
Keflvikingum með þvi að
mæta ekki til leiks siðasta
sunnudag. Hafi Armann ekki
gert upp sakir sinar við KKI
seinnipartinn i dag litur
Körfuknattleikssambandið á
það sem beina Ursögn úr Is-
landsmótinu. Það mundi
hinsvegar koma sér mjög
illa fyrir hin liðin i deildinni
þvi að leikin er fjórföld um-
ferð og við að eitt lið heltist
úr lestinni myndast miklar
eyður. Nær óhugsandi er að
nokkurt 2. deildar félag vilji
nú taka sæti Armanns i
deildinni, þar sem þetta •
kemur svo seint upp á og bú-
iö að raða niður i riðla 2.
deildar. hg.
Haukar
fá
þjálfara
■ Sovétmaöur sá er hand-
knattleiksdeild Hauka hafði
ráðið til starfa frá og með
júli, tilkynnti Haukum fyrir
tveimur vikum að af komu
hans gæti ekki orðið af óvið-
ráöanlegum orsökum. I hans
staö kemur hins vegar annar
Sovétmaður Kolsov að nafni,
og er hann væntanlegur
seinnipartinn i desember.
' Kolsov sem er þekktur þjálf-
ari i heimalandi sinu hefur
gerttveggja ára samning við
Hauka og mun hann þjálfa
alla flokka félagsins. Þetta
kemur sér mjög illa fyrir
Haukana að fá þessar fréttir
á þessum tima þar sem nú
hafa allir þjálfarar ráðið sig
til starfa.
HG