Tíminn - 08.10.1981, Síða 19

Tíminn - 08.10.1981, Síða 19
Fimmtudagur 8. október 1981 19 flokksstarfið borgarmál Húnvetningar — Skagfirðingar Héraðsmót framsóknarmanna í A-Húnavatnssýslu verður haldið i fé- lagsheimilinu á Blönduósi laugardaginn 10. okt. og hefst kl. 21.00. Stutt ávörp flytja: Guðni Ágústsson, form S'UF og Sigrún Magnúsdóttir, kaupkona. Söngur, grin og gaman. Veislukaffi frá Sigga kokk. Leyni- gestur kvöldsins verður veislustjóri. Hijómsveitin Lexia sér um fjöriö til kl. 3. Fjölmenniö. Framsóknarfélagið Launþegar Suðurlandskjördæmi Launþegaráð framsóknarmanna i Suðurlandskjördæmi heldur fund aö Eyrar- vegi 15, Selfossisunnudaginn 11. okt. og hefst hann kl.14. Steingrfmur Hermannsson ráðherra.formaður Framsóknarflokksins ,mætir á fundinn og ræðir efnahags- og atvinnumál. Allt stuðningsfólk Framsóknarflokksins i launþegahreyfingunni er veikomið i fundinn. Spilakvöld Framsóknarfélag Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu halda 2 spila- kvöld i haust. Hiðfyrra verður að Skildi laugardaginn 10. okt. og hefst kl.21. Alex- ander Stefánsson alþm. flytur ávarp. Hið siðara verður að Röst Hellissandi laugardaginn 7. nóv. og hefst kl.21. Steingrimur Hermannsson sjávarútvegsráðherra flytur ávarp. Kvöldvprðlaun og heildarverðlaun. Hljómsveitin Frilist leikur fyrir dansi. Stjórnin Málefni fatlaðra Skipuiagsnefnd Framsóknarflokksins hefur ákveðið að koma á fót starfshópi um málefni fatlaðra. Þeir sem áhuga hafa á að taka þátt i þessu starfi eru beðnir að gefa sig fram sem fyrst við flokksskrifstofuna, Rauðarárstig 18, slmi 24480. Fundur um utanrikismál Framsóknarfélögin i Reykjavik efna til fundar um utanrikismál fimmtudag- inn 8. okt. Framsögumaður verður ólafur Jóhannesson, utanrikisráöherra. Fundurinn verbur haldinn að Rauðarárstig 18 og hefst kl. 20.30. Allir velkomnir. Stjórnir féiaganna. Kópavogur Aðalfundur Freyju verðurfimmtudaginn 15. okt. kl. 20.301 Hamraborg 5 Stjórnin Framsóknarfélögin f Reykjavik Framsóknarfélögin i Reykjavik eru nú að hefja vetrarstarfsemi sina og er þess að vænta að hún verði öflug og fjölbreytt. 1 undirbúningi eru fundarhöld þar sem f jallað verður um hin aðskiljanlegustu efni. Aö kvöldi fimmtudagsins 8. okt. verður haldinn fundur að Rauðarár- stig 18 um utanrikismál. Frummælandi verður ólafur Jóhannesson utanrikisráðherra. Á eftir verða frjálsar umræður og gefst fundar- mönnum kostur á að beina fyrirspurnum til ráöherrans. Innan tiðar verður efnt til fleiri funda á vegum framsóknarfélag- anna og verður þar fjallað um stjórnmálaviðhorf liðandi stundar og hvað framundan kann að vera i þeim efnum. Fundur verður haldinn um launamál,en þauverða áreiðanlega ofariega á baugi næstu vikurn- ar, þar sem kjarasamningar verða mjög til umræðu og umfjöllunar. Fyrirhugaðir eru enn fleiri fundir þar sem rætt verður um einstök mál- efni. Allt framsóknarfólk er hvatt til að fjölmenna á fundi framsóknar- félaganna og er ástæða til að benda á að þeir eru ekki eingöngu ætlaðir framsóknarfólki en eru öllum þeim opnir sem hug hafa á að kynna sér störf og stefnu Framsóknarflokksins og afstöðu hans til einstakra mála og málaflokka. ■ ólafur Jóhannesson utanrikisráðherra. Jörð til sölu Tilboð óskast i jörðina Hól Hvammsveit Dalasýslu. Jörðin er landmikil og miklir ræktunar- möguleikar. Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Nánari upplýsingar veita eigendur jarð- arinnar i sima 93-4286. - - ' . Hafnfirðingar Almennur fundur verður haldinn að Hverfisgötu 25, fimmtudaginn 8. okt. n.k. kl. 20.30. Jóhann Einvarðsson alþingismaður mætir á fundinn. Framsóknarfélögin Auglýsið í Tímanum Iþróttamannvirki rísa enn í Reykjavík K Forkólfar sjálfstæðis- manna hér i Reykjavik hafa fundið stjórn borgarinnar flest til foráttu siðan nýr meirihluti tók við völdum i borgarstjórn og nefndum borgarinnar. Þeir, sem til þekkja, vita mæta vel að þessi söngur, er verður æ ámátlegri og hávær-v ari eftir þvi sem prófkjör' þeirra sjálfstæðismanna nálg- ast, á við engin rök að styðj- ast. Fjárhagsstaöa borgar- sjóðs hefur sjaldan verið betri, framkvæmdir á vegum borgarinnar hafa sjaldan verið meiri og þjónusta við borgarbúa hefur verið stór- aukin á siðustu þremur árum. Fvrirhyggjuleysi frá- farandi meirihluta Eitt af þvi sem sjálfstæðis- menn hafa fullyrt er að fram- kvæmdir á sviði fþróttamála hafa legið niðri i tið núverandi borgarstjórnarmeirihluta. Helsti talsmaður þeirra i þess- um máláflokki hefur básúnað þetta I tima og ótima, þótt staðreyndirnar tali öðru máli. Það, sem hér býr að baki, er liklega slæm samviska. Stað- reyndin er nefnilega sú að meirihluti borgarstjórnar sýndi vitavert fyrirhyggju- leysi á sviði iþróttamála á ár- unum 1974-1978. t lok kjör- timabilsins var verið aö leggja siðustu hönd á hinn nýja frjálsiþróttavöll i Laugardal og pöntuö hafði verið stöla- lyfta i Bláfjöll. Hins vegar láöist að gera ráð fyrir áfram- haldandi uppbyggingu iþróttamannvirkja á vegum borgarinnar nema þá i tengsl- um við skóla. Og það sem verra var: Áratugalangt sinnuleysi að þvi er varðar viðhald á Iþróttamannvirkj- um, var að verða þess vald- andi að eitt elsta og glæsileg- asta mannvirkið, Sundhöll Reykjavi'kur, varað þvi komið að grotna niður. Þetta var arfurinn sem frá- farandi meirihluti eftirlét hin- um nýja meirihluta á þvi herr- ans ári 1978. Og þetta var aðalástæðan fyrir þvi að ekki var hægt aö hefjast handa um byggingu nýrra iþróttamann- virkjaiReykjaviká árinu 1979 þar sem nauðsynlegan undir- búning skorti. Áhersla á eflingu al- menningsiþrótta Núverandi meirihluti borgarstjórnar og Iþróttaráðs hefúrlagt á þaö megináherslu að bæta aðstöðu til iökunar svonefndra almenningsiþrótta i borginni. Vinsælustu al- menningsiþróttirnar eru tvi- mælalaust sund- og skiða- iþróttirnar þótt vinsældir ýmissa annarra Iþróttagreina fari mjög vaxandi. Fyrsta stórverkefnið á þessukjörtimabilivar.eins og áður hefur verið vikið að, gagngerar endurbætur á Sundhöllinni til þess hreinlega að forða mannvirkinu frá eyðileggingu og um leið til þess að gera þennan gamla heilsubrunn eftirsóttari. I þvi skynivar komið fyrir tveimur heitum pottum i Sundhöllinni. Hefur það, ásamt öörum breytingum sem gerðar hafa verið, stóraukið aðsóknina. Aður var minnst á fyrir- hyggjuleysi ihaldsins i iþróttamálum. I tæpa tvo ára- tugi hafði staðið til að reisa framtiðar bað- og búningsher- bergi við Sundlaugarnar I Laugardal. Allan þann tima hafa hinir fjölmörgu lauga- gestir oröið að notast við mjög svo frumstæða og alls ófull- nægjandi aðstöðu að þessu | leyti. NU hefur verið hafist handa um að bæta úr þessu ófremdarástandi og er vonast til að ný böð og búningsher- bergi verði fullgerð eftir tvö ár. Með tilkomu þeirra gjör- breytist aðstaöa baðgesta og unnt verður aö koma fyrir gufuböðum, Ijósböðum og al- hliöa heilsurækt i núverandi bað- og búningsrými. Uppbyggingu I Bláfjöllum hefur verið haldið áfram af fullum krafti. Nú er verið að reisa þar þjónustumiðstöð og áform eru uppi um það að bæta við skiðalyftum á vegum borgarinnar. Skautahöll i Reykjavik hef- ur verið draumur margra borgarbúa.Nú hillirloks undir það mannvirki. Hönnun þess er á lokastigi og væntanlega verður hafist handa við sjálfa bygginguna þegar á næsta ári. Að framtið skal h.vggja Núverandi meirihluti iþróttaráös ætlar ekki að brenna sig á þvi sam a og fyrr- verandi meirihluti og láta hjá liða að horfa til framtlöarinn- ar. Borgarstjórn hefur tekið ákvöröun um það að annaö aðal iþrótta- og Utivistarsvæði borgarinnar að Laugardaln- um frátöldum, skulirisa i svo- nefndri Suður-Mjódd i Breið- holti. Afráðið er að efnt skuli til hugmyndasamkeppni um skipulag og uppbyggingu þessa svæðis. Niðurstöður þessarar samkeppni munu að Hkindum liggja fyrir siðla vetrar og verða þá sýndar al- menningi svo að borgarbúar geti sjálfir kveöið upp sinn dóm. Þá hafa átt sér staö viðræð- ur milli borgaryfirvalda og háskólayfirvalda um mögu- leika á samvinnu um að byggja gervigrasvöll ásamt fullkomnu iþróttahUsi á há- skólasvæðinu. Ljóst er að Melavöllurinn hlýtur að hverfa á næstu árum þótt margir muni sakna hans. Annar malarvöllur eða gervi- grasvöllur.sem hlýtur aðtelj- ast mun betri kostur, verður að koma I stað Melavallarins. Þaö er þvi ekki ráö nema i tima sétekið að fara nú þegar aö hyggja aö þvi hvernig við þeim vanda skuli brugðist. * Þótt margt fleira sé ósagt um uppbyggingu iþrótta- mannvirkja i Reykjavilc t.d. ótalinn stórmerkur þáttur iþróttafélaganna, verður látið hér staöar numið. Eins og fram hefur komið biða mörg brýn verkefni þess að i þau verði ráðist. Þaö er sannfær- ing min að við framsóknar- menn eigum að setja það sem skilyrði fyrir áframhaldandi samstarfi við Alþýðuflokk og Alþýðubandalag i borgar- stjórn að stuöningur við iþróttir og útivist verði veru- lega aukin frá þvi sem veriö hefur — slikir eru kostir þess- ara þátta i lifi okkar núti'ma- fólks. Eiríkur Tómasson, formaður Iþróttaráðs Reykjavfkur skrifar

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.