Tíminn - 15.11.1981, Page 5
Sunnudagur 15. nóvember 1981
■ l gær varð Eysteinn Jónsson 75
ára gamall. Um fjóra áratugi var
Eysteinn i hópi tiltölulega fárra
manna, sem voru leiðtogar
islensku þjóðarinnar, ýmist i
landstjórn eða stjórnarandstöðu.
Hann var ráðherra i'tuttugu ár og
lengur en nokkur annar Islend-
ingur. Sfðasta kjörtimabil sittvar
hann forseti sameinaðs Alþingis.
Allan þennan tima, frá 1933, og
ári betur, var Eysteinn þingmað-
ur Sunn-Mýlinga og siðan jafnan
1. þingmaður Austurlands. For-
maður þingflokks Framsóknar-
manna og ritari Framsóknar-
flokksins i áratugi og loks for-
maður flokksins frá 1962-1968, en
hann baðst undan endurkosningu.
Hann gaf ekki lengur kost á sér til
þingsetu, þegar kjósa skyldi til
Alþingis þjóðhátiðarárið 1974, en
þá voru stórvötnin á Skeiðarár-
sandi brúuð, en Eysteinn var
helsti baráttumaður þess mikla
máls.
Auk þess gegndi Eysteinn
fjöldamörgum trúnaðarstöðum
svo sem formennsku i stjórn
Sambands islenskra samvinnu-
félaga, sat i Norðurlandaráði og
formaður stjórnar Náttúru-
verndarráðs og margt fleira
mætti nefna.
Frá þvi Eysteinn varð fjár-
máiaráðherra 27 ára gamall þar
til hann lét af þingmennsku var
hann einn mesti ráðamaður i
stjórnmálum landsins. Hann var
óþreytandi baráttumaður fyrir
Framsóknarflokkinn og átti
óvenju sterkt og almennt fylgi
meðal flokksmanna um allt land.
Eysteinn var harðsnúinn ræðu-
maður og málafylgjumaður og
setti mikinn svip á stjórnmál
sinna tima.
Á seinni árum hafði Eysteinn
mikil afskipti af náttúruvernd og
umhverfismálum, enda mikill
útivistarmaður sjálfur alla tíð.
Á þessum timamótum i ævi
Eysteins Jónssonar verður sam-
herjum og vinum hans hugsað til
starfa hans fyrir land og þjóð.
Hann var óhemju mikill afkasta-
maður, óþreytandi og sivinnandi.
En framsóknarmenn minnast
hans sem foringja til sóknar og
varnar.
Ég flyt Eysteini alúðarkveðjur
Framsóknarflokksins og heilla-
óskir. Jafnframt leyfi ég mér að
færa honum kveðjur Austfirð-
inga.
Að lokum fylgja með heillaósk-
ir til eiginkonu Eysteins, Sólveig-
ar Eyjólfsdóttur, en hún varð
sjötug fyrir nokkrum dögum.
Tómas Arnason
á bókamarkadi
Ljóðakorn
ÞÆR GERAST EKKIBETRI
*
Ast og freisting
■ Hörpuútgáfan á Akranesi gefur
út á þessu hausti þrettándu bók-
ina eftir hinn vinsæla ástarsögu-
höfund Bodil Forsberg.
Bækur Bodil Forsberg eru
hvarvetna metsölubækur. Ast og
freisting er 186 bls. Skúli Jensson
þýddi. Prentun og bókband er
unnið i Prentverki Akraness hf.
Eysteinn Jónsson 75 ára
■ út eru komin i nótnabók 28 lög
eftir Atla Heimi Sveinsson. Nefn-
ist bókin Ljóðakorn og er að öllu
leyti unnin af tónskáldinu sjálfu
— nótna- og textaritun, kápu-
teikning o.s.frv. — allt nema
filmutaka, prentun og bókband,
sem Prentsmiðjan Oddi hefur
annast.
011 eru þessi 28 lög samin við
islenska texta eftir kunna og
ókunna höfunda. Bókin skiptist i
fjóra kafla sem nefnast:
1) Barnagælur, 2) Nútimaljöð, 3)
Gamansöngvar, 4) Aukalög.
Tónskáldið hefur skrifað fvrir
neðan sitt handskrifaðáefnisyfirlit
á bls.3 á þessa leið:
„011 ljóðin, nema aukalögin,
eru tekin úr Litlu skólaljóðunum,
(Ri'kisútgáfa námsbóka, Reykja-
vi'k), sem Jóhannes skáld úr Kötl-
um tók saman.
Heimilt er að flytja lögin, eitt
eða fleiri i’ hvaða röð sem er, og
tónflytja þau eftir þörfum.
Ljóðakorn er 61 bls. að stærð 1
þægilegu nótabroti (34x25 cm).
Útgefandi er Almenna bóka-
félagið.
Versl. Kápan Reykjavík
Versl. Pandóra Reykjavík
Versl. Hæðin Akranesi
Versl. Einar og Kristján ísafirði
Versl. Einars Guðfinnsonar Bolungarvík
Kaupfél. Húnvetninga Blönduósi
Versl. BjólfsbærSeyðisfirði
Kaupfél. Fram Neskaupstað
Versl. Elísar Guðnasonar Eskifirði
Kaupfél. Árnesinga Selfossi
Kaupfélag Vestmannaeyja Vestmannaeyjum
Kaupfél. Skagfirðinga Sauðárkróki
Versl. Túngata 1 Siglufirði
Vöruhús K.E.A. Akureyri
Versl. Markaðurinn Akureyri
Kaupfél. Þingeyinga Húsavík
Kaupfél. Héraðsbúa Egilsstöðum