Tíminn - 15.11.1981, Blaðsíða 6

Tíminn - 15.11.1981, Blaðsíða 6
6 Sunnudagur 15. nóvember 1981 Þórhallur Sigurðsson leikstjóri „Fólk er óforbetran- lega slæmt, en óum- ræðanlega fyndið” Alþýðuleikhúsið tekur Joe Orton til sýninga ■ Borgar Garðarsson og Þórhallur Sigurðsson eru að velta þvf fyrir sér hvar hægt sé að fá skerma, helst með rósamunstri. Þór- hallur þykist hafa heyrt að slfkt sé til en ekki lengur i notkun á Sánkti Jósefsspitala. Helga Jónsdóttir hagræðir tuskublómum á sviðinu, Bjarni Steingrimsson birtist baksviðs klæddur i smok- ingjakka og gallabuxur. Á sviðinu eru spitalarúm, skápur, hjóla- stóll, likkista og svampvöndull, sem i bili kemur i staðinn fyrir innpakkað lik. Jú, við erum stödd i leikhúsi, Alþýðuleikhúsinu I Hafnarbiói og likkistan á sviðinu gefur viss fyrirheit — það er nefnilega verið að færa upp einn svartasta farsa leikbókmennt- anna, ,,Loot” eftir Joe Orton eða Illur fengur, eins og það nefnist hjá Alþýðuleikhúsinu. Nokkru eftir að byrjað er að renna yfir fyrsta þátt kemur Arnar Jónsson og sýnir Þórhalli magnaða mynd I grafikbók eftir Paul Weber. Æfingar eru nokkuð á veg komnar þegar blm. er á ferðinni I Ilafnarbiói eitt hráslagalegt kvöld. En þó er greinilega ýmsu á- bótavant, leikararnir kunna textann ekki nema mátulega vel, leikmunir eru langt I frá allir komnir i hús, það vantar m.a. gerviauga, falskar tennur, kransa og Hk, leikararnir eru enn I hversdagsfötum að mestu, nema Helga Jónsdóttir, sem er glæsi- leg á að lita i svörtum og fornlegum kjól. En þrátt fyrir vankanta sýnir æfingin svo ekki verður um villst að hér er á ferðinni gott og mikið leikhússverk, sem hefur alla burði til að verða eftir- minnilegt i meðförum Alþýðuleikhússins. En frumsýningin verður ekki fyrr en annan sunnudag, þann 22. nóvember. Leikstjórinn, Þórhallur Sigurðsson sagði að leikararnir ynnu mestanpart að þessu I fritima, flestir væru á kafi i önnum annars staðar. Þórhallur leikur sjálfur i Dans á rósum i Þjóöleikhúsinu á Kjallarakvöldunum svokölluðu og i væntanlegri leikgerð af Húsi skáldsins eftir Halldór Laxness. Að sögn Þórhalls smiða leikararnir öll ieiktjöld sjálfir og standa i öllum útréttingum fyrir sýninguna. Þannig eru vinnubrögðin i Alþýðuleikhúsinu þessa dagana, þar staria tveir leikhópar sem sjálfstæöar eining- ar, setja upp sýningar sitt I hvoru lagi og sinna öllum fram- kvæmdum i sambandi við þær. Gallsvartur farsi með raunverulegum blæ ■ Hversvegna þetta fimmtónára gamla leikritaf öllum leikritum? Þórhallur svaraði þvi til að hópurinn hefði valið sér verkefnið upp á sitt eindæmi hann langaði að kynna höfundinn, hingað til hefur ekkert verið sýnt eftir Joe Orto.n hér utan „Erpingham- bdðimar” í Menntaskólanum við Sund fyrir um tveimur árum og tvö sjónvarpsleikrit fyrir margt löngu. ,,Loot” væri hreinlega dúndur skemmtilegt leikrit sem gaman væri að kynna. Þórhallur vildi sem minnst láta uppi um efnið i dagblað, það byggðist mikið upp á óvæntum uppákomum sem verða að koma á daginn irás leiksins. Þetta væri fjarstæðukenndur tryllari, gall- svartur farsi með nokkuð raun- verulegu yfirbragði. Blm. komst þó á snoðirum ýmislegt bæði um höfund og efnivið og fer það hér á eftir. Þórhallur teldi ekki liklegt að leikritið hneykslaði islenska leik- húsgesti árið 1981 liktogþað gerði i London fyrir 15 árum, þar sem það gekk i tiu mánuði árið 1966. En i verkinu væri ýmis tabú höfð i flimtingum — trúarbrögð, dauði og yfirvöld, sem eðlilega kom illa við marga fyrir næstum tveimur áratugum. En við lifum á kald- rifjaðri timum. Það er Jón Þórisson sem gerir leikmyndina að Illum feng, sá hinn samiog gerði hina glæsilegu leikmynd í kvikmyndinni Otlag- anum. Húsbóndinn á heimilinu er mikill áhugamaður um garðyrkju og leikmyndinbermikinn keim af þvi. Veggfóðrið er rösmynstrað einsog titt er í Bretlandi og mikiö um blómskrúðuga útfararkransa á sviðinu. I anda verksins er leik- myndin i senn ýkt og sannfær- andi. Blm. spurði Þórhall hvort hann legði mikið upp úr þvi að hafa enskan blæ á sýningunni. Hann sagði svo ekki vera, en þó væri verkið ekki staðfært, það væri i raun fátt sem segði að leikurinn ætti sér stað þar fremur en ann- ars staðar, nema helst nöfn á per- sónum. Þegar æfingin loks hófst var ekki orð að hafa upp ur Þórhalli, hann sat á tiunda bekk og fylgdist gjörla með öllu sem fram fór og skellti upp Ur á stöku stað. Blm. hvarf þó ekki á braut fyrr en fyrsta þætti var lokið.sat sem bergnuminn af innviðum leik- hússins, leiksýningu i' bigerð. Það er Sverrir Hólmarsson sem hefur komið „Loot” yfir á Is- lensku. Leikendur eru sex — þau Arnar Jónsson, Helga Jónsdóttir, Bjarni Steingrimsson, Bjarni Ingvarsson, Guðmundur Ólafsson og Borgar Garðarsson, sem ný- kominn ér til starfa hjá Alþýðu- leikhúsinu frá Finnlandi. Joe Orton 1933—1967 Joe Orton reyndi fyrir sér sem rithöfundur I fimmtán ár, naut hylli í þrjú og þá var skyndilega bundinn endir á allt. 9da ágúst 1967myrtisambýlismaður Ortons hann, skvetti siðan i sig þrjátiu svefntöflum og hvarf einnig til feðra sinna. Atburðurinn var óskaplegri en nokkuð sem Orton hafði lýst i'leikritum sinum. Ann- ars var þetta ár blóma og bjart- sýni á Englandi,við útförina var leikið ,,A Day in a Life” með Bitlunum. John Kingsley Orton var fædd- ur i verkamannabústöðum f Lei- cester lta janúar 1933. Faöirinn var garöyrkjumaður. og móðirin vann i verksmiöju. Þetta var fá- tækur og drungalegur heimur sem átti eftir að setja mark á leikritun Ortons. Drengurinn var bókhneigður og sérsinna, þjáðist af astma og aldrei varð mikið Ur skólagöngu. Helst af öllu vildi hann verða leikari, fór á nám- skeið hjá illfygli sem kallaði sig „Madame” og lék hjá áhugaleik- félagi I heimaborginni.hjUpaði sig m.a. grænum lit til að leika Oberon i Jónsmessunæturdraumi eftir Shakespeare. 1950 fékk Orton inngöngu i Royal Academy of Dramatic Arts i London. Þar hitti hann lifsföru- nautinn, Kenneth Halliwell sem var átta árum eldri en Orton.hafði lesið reiðarinnar býsn og varð fyrst um sinn einhvers konar lærifaðir Ortons. Þeir gáfu allan leiksviðsframa upp á bátinn, gengu i félag um aö verða rithöf- undar, lásu,unnu saman að fjar- stæðukenndum skáldsögum og elskuðust. En það var frá hendi Halliwellssem menn bjuggust viö stórvirkjum — Orton þótti framar öllu sætur og aðlaðandi vöðva- stæltur, alltaf sólbrúnn, klæddur I leðurjakka.svört stigvél og galla- buxur og hafði yndi af að sitja fá- klæddurf yrir á ljósmyndum. Þeir lifðu afar fábrotnu lifi, nærðust á tei, hrisgrjónum, baunum og fiski, fóru f háttinn klukkan niu — voru ákaflega háðir hver öðrum, eins og titt er um kynvillinga I fjandsamlegum heimi. Orton dró aldrei fjöður yfir kynvillu sina. En þetta var áður en hómósexúalistar gátu leyft sér að koma fram i dagsljósið, þeir voru utangarðshópur sem alltaf gat átt von á óþægindum frá hendi yfirvalda og almennings. Likt og i verkum Ortons var til- hugsunin um ógnir og jafnvel likamsmeiðingar aldrei viðs fjarri,það voru alltaf svört ský við sjónhringinn. Hugljómun í fangelsi Árib 1962 voru þeir Orton og Halliwell handteknir og ákærðir fyrir að stela bokum af al- menningsbókasöfnum og spjalla þær. „Það voru leiðinlegar og illa skrifaðar bækur”, sögðu þeir. Af fádæma hugviti og natni höfðu þeir „lagfært” kápumyndirnar á bókunum og t.d. limt mynd af tattóveruðu gamalmenni á bók eftir lárviðarskáldið Sir John Betjeman. Akæruliðirnir voru alls sjö og þeir voru dæmdir i sex mánaða fangelsi. Fangelsisvistin lagðist illa i' Halliwell, en Orton kvaðst hafa orðið agaðri rit- höfundur isteininum. „Aður hafði ég óljósa tilfinningu um eitthvað rotið einhvers staðar: i fangels- inu varðmér það ljóst. Gamalt og útjaskað þjóðfélagið lyfti upp pilsinu og stækjan var býsna megn”. Arið eftir var flutt leikrit eftir Orton i útvarp „Ruffian on the Stairs”Þá breyttihann nafnisinu úr John i Joe,tilþess að þeim yrði ekki ruglað saman honum og leik- skáldinu John Osborne. *Fyrsta sviðsverk hans hóf göngu sina i West End i' London i mai 1964. Bæði efni og efnistök þóttu bera mflrinn keim af Harold Pinter sem þá var mestur áhrifavaldur i bresku leikhiisi. Leikritið fjallar um ungan rudda, sem leigir hjá miðaldra systkinum, myrðir föður þeirra i ógáti og er siöan kúgaður af systkinunum til að þóknast þeim á alla vegu. Heimilishaldið sem virðist svo slétt og fellt á yfirborðinu tekur honum langt fram i ruddaskap. Leikritið vakti talsverða athygli og leikskáldið fræga Sir Terence Rattigan sagði að þetta væri besta byrjendaverk sem hann hefði séð i þrjátiu ár. En um þess- armundirvar siðvarnamönnum i Bretlandi farið að ofbjóða ber- sögli ungra leikskálda. Ot af verkinu spunnust blaðaskrif og deilur sem gengu af uppfærslunni dauðri. Einna hatrammlegast gekk fram Edna nokkur Welt- horpe. Hún skrifaöi i New States- man og sagðist vona að heiðvirt fólk i landinu færi að gripa til sinna ráða. Edna þessi átti eftir að viðra skoöanir sínar við ólik- legustu tækifæri, m.a. þegar Loot ■ Hjúkrunarkonan reynir að fá hinn syrgjandi McLeavy til lags viö sig. Bjarni Steingrimsson og Helga Jónsdóttir.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.