Tíminn - 15.11.1981, Page 18

Tíminn - 15.11.1981, Page 18
18 Útboð Rafmagnsveitur rikisins óska eftir tilboð- um i eftirfarandi: Útboð RARIK-81024 Þverslár Opnunardagur 17. desember 1981 kl. 14.00 Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Raf- magnsveitna rikisins frá og með fimmtu- deginum 12. nóvember 1981 og kosta kr.25.- hvert eintak. Útboð RARIK-81026 Smiði stálfestihluta fyrir háspennulinur. Opnunardagur 14. desember 1981 kl.14.00 Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Raf- magnsveitna rikisins frá og með mánu- deginum 16. nóvember 1981 og kosta kr.100.- hvert eintak. Tilboðum skal skila á skrifstofu Raf- magnsveitna rikisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavik fyrir opnunartima, þar sem þau verða opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum er þess óska. Reykjavik 11. nóvember 1981 RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS SAMVI I\ INUTKVOGIINGAR Ármúla 3 - Reykjavik - Simi 38500 Tilboð óskast i eftirfaldar sem skemmst hafa i umferðaróhöppum: Scout11 Lada sport Saab 99 Mazda 929 Ford Escort Volvo Trabant Datsun 1200 Austin Mini Peugeot 305 Fiat 132 Ford Cortina Fiat125P. árgerð 1974 árgerð 1978 árgerð 1974 árgerð 1974 árgerð 1974 árgerð 1972 árgerð 1980 árgerð 1973 árgerð 1976 árgerð 1979 árgerð 1978 árgerð 1972 árgerð 1981 Bifreiðarnar verða til sýnis að Skemmu- vegi 26, Kópavogi, mánudaginn 16. hóv. 1981 kl.12-17. Tilboðum sé skilað til Samvinnutrygginga Armúla 3, fyrir kl.17, þriðjudaginn 17. nóv. 1981 Verslunarstjóri Öskum eftir aö ráða Verslunarstjóra vefnaðarvörudeildar K.B. Hér er um sjálfstætt starf að ræða sem felur i sér stjórn daglegs reksturs og innkaupa fyrir vaxandi sér- vöruverslun með vefnaðarvörur, fatnað, skó, snyrtivörur, o.fl. Við leitum að manni með starfsreynslu sem er smekkvis, áhugasamur.góður i umgengni og hefur stjórn- unarhæfileika. Nánari upplýsingar gefa starfsmanna- stjóriSambandsinssimi 28200 ogfulltrúi kaupfélagsstjóra Georg Hermannsson simi 93-7200. Kaupfélag Borgfirðinga Borgarnesi Kvennaskólinn í Reykjavík Umsóknir um skólavist á uppeldissviði við Kvennaskólann i Reykjavik á vorönn ’82 þurfa að hafa borist skrifstofu skólans fyrir 1. des. Staðfesta þarf fyrri umsóknir i sima 13819 Skólastjóri Fagurt galaði fuglinn sá ■ Elly Ameling er vafalaust ein hin allra fremsta ljóðasöng- kona veraldar um þessar mund- ir: Htln hefur dásamlega og fölskvalausa rödd, sem getur allt sem á þarf að halda — er alltaf hrein hvarsem er á tönsviöinu, og hvort sem sungið er sterkt eða veikt — og flytur auk þess efni ljóðanna svo sem bezt verður á kosið. A laugardaginn var (7. nóv.) söng hún i Háskólabiói viö undirleik Daltons Baldwin fyrir styrktarfélaga Tónlistarfélags- ins. Fyrst söng Ameling Lieder- kreisRoberts Schumann óp. 39 — „Söngvasveig” 12 ljóöa eftir þýzka skáidið Joseph von Eichen- dorff. Þetta er dæmaiaust frægt og velþekkt verk meðal ljóða- söngsmana, en ef vel er sungið er gleðin þeim mun meiri, eins og skáldiö sagði: Segðu mér söguna aftur söguna þá í gær, um litlu stúlkuna ljUfu með ljósu flétturnar tvær Dalton Baldwin (semfæddist á þeim óliklega stað Summit, New Jersey) er sem kunnugt er undir- leikari margra frægra söngvara, þ.á.m. Gérard Souzay, sem hefUr átt mestan þátt i þvi að koma „franska söngljóðinu” á fram- færi, ekki einasta utan Frakk- lands, heldur i Frakklandi h'ka. Ameling söng þarna tvo franska ljóðaflokka, hinn fyrri eftir Gabriel Fauré (1845-1924) og hinn siðari eftirFrancisPoulenc (1899- 1963) Þetta eru hvort tveggja frá- bærir söngvaflokkar, og talsvert ólikir þýzkri ljóöalist. Eftir Poul- enc söng Ameling „Stutta strá- ið”, barnalagaflokk frá 1960. Frönsku ljóöin, sem þarna voru prentuð ásamt prósaþýðingum Þorsteins Gylfasonar i mjög vandaöri efnisskrá, eru lika sér- lega skemmtileg og „klikkuð” — ég tel það mikinn skaða islenzkra bókmennta, hve bundin okkar skáld hafa jafnan verið af noröur- evrópskri ljóðlist, meö sinni drungalegu náttúrulýrik. Jónas Hallgrimsson hefði orðið ennþá betri cf hann hefði kynnzt róm- önskum kveðskap, þótt Heine standi aö sjálfsögöu fyrir sínu. Og loks söng Elly Ameling ljóðasöngva þriggja spænskra tónskálda, Granados (1867-1916), Gustavino (f. 1912) og Turina (1882-1949) dásamlega söngva. Eins og að likum lætur yrkja spænsk skáld um ástir og karl- mennsku, eða eins og segir i kvæðinu „Þagmælskur karlmað- ur”: Karl minn er að visu ófriður, en mér er alveg sama þvi ég elska hann og hann kann að þegja yfir leyndarmáli: „Það erannað en auðveltað kom- ast að leyndarmáli konu og karls. Hann fæddist i Lavapies. Já,karlmaður erhann, karlmað- ur, karlmaður” Þeim er ekki hossað litið, körl- unum þarna suður frá. Ekki höföu Elly Ameling og Dalton Baidwin fyrr lokið við að syngja ,,Konur hugstola af ást” eftirTurina en allt ætlaði um koll aö keyra, og áheyrendur spruttu á fætur — Baldwin fær ævinlega „standing ovation” þegar hann kemur hingað með söngvinum sinum, og heldur vafalaust að þetta sé fslenzkur siður og iðkað- ur án undantekninga — og máttu nú flytja mörg aukalög, hvert öðru yndislegra, eftir Schubert. Þvi Elly Ameling stendur nú á hátindi listar sinnar. li.li. Sigurður Steinþórsson IJ óðatonleikar • • Onnu Julíönu ■ A þriðju Háskólatónleikum vetrarins i Norræna hUsinu (6. nóv.) fluttu Anna JUliana Sveins- dóttir, mezzósópran, og Lára Rafnsdóttir pianóleikari sönglög eftir Antonin Dvorák og Richard Wagner. Fyrra flokkinn, Sigaunasöngva óp. 55, söng Anna JUliana á tékknesku — ekki treystist ég til að dæma um texta- meðferð, en islenzkar þýðingar Jóns RUnars Gunnarssonar voru prentaðar iefnisskrá.svo ekki fór efni söngvanna milli mála. Þar er frelsið rauði þráðurinn — siðasti söngurinn af sjö hljóðar þannir i þýðingu Jóns RUnars: Þótt þU fáir smyrlinum bUrUr rauðagulli, mundi hann ekki skipta á þvi og þistlahreiðrinu sinu. Og sjáðu villta folann, sem stekkur um sléttuna, seint mun þér takast að leggja við hann beisli. Eina gjöf færði lifiö sigaunanum: eilifa tryggð við frelsið færði þaðhonum. Einn þessara söngva er, raun- ar öðrum kunnugri: Kdyz Mne Stará Matka eða „Songs my mother thought me”, en Anna JUlia tUlkaði þessa lifsþyrstu söngva Dvoraks með miklum á- gætum. HUn hefur mjög óvenju- lega rödd, sem þó er mikið að jafnast (en er það ekki annars kosturað hafa ,,óvenjulega rödd” i samkeppninni?), og nýtur sin sérlega vel i ástriðufullum söng sem þessum. Siðari flokkurinn, Fimm ljóð eftir Mathilde Wesendonk við lög Wagners (1813-1883(, söng Anna JUliana að sjálfsögðu á þýzku, en i Þýzkalandi lærði hUn söng i mörg ár. NU brá hins vegar svo við, aðég tel mig ekki hefðu skilið eitt einasta orð hefði textinn ekki verið til hliðsjónar. Hins vegar hafa þessi kvæði verið þýdd á bundið mál af Þorsteini Valdi- marssyniogfylgdi sá texti.Þetta eru heldur myrk kvæði um náttúruna, sorgina, tárin og dauðann. Aldrei hafði ég heyrt þessa söngva áöur, en þeir eru fjarri þvi eins auðteknir og hinir, og liklega mjög vandasamir i flutningi. En þær stöílur komust frá þessu með glæsibrag, og sungu að endingu aukalag eftir Jórunni Viðar. Það er annars mjög ánægjulegt, að söngfólk vort leiti nýrra miða i efnisvali: Schubert og Schuman eru vafa- laust vinsælastir þýzku sönglaga- smiðanna, en nU fara aðrir að heyrast æ meir, bæði þýzkir og aðrir. A tónleikum Elly Ameling næsta dag (laugardag) voru skemmtilegastir franskir söngvar og spænskir, og frábær var þessi flokkur Dvoráks i flutningi þeirra Onnu JUliönu og Láru Rafnsdóttur. 11.11. Sigurður Steinþórsson. Sigurður Steinþórsson skrifar um tónlist.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.