Tíminn - 15.11.1981, Qupperneq 20
20
Sunnudagur 15. nóvember 1981
RÍKISSPITALARNIR
lausar stöður
LANDSPÍTALINN
HJCKRUNARFRÆÐINGUR óskast i
hlutastarf á öldrunarlækningadeild spital-
ans að Hátúni 10B. Upplýsingar veitir
hjúkrunarforstjóri i sima 29000.
FóSTRA óskast á Barnaspitala Hringsins
frá 1. janúar n.k. Upplýsingar veitir
hjúkrunarforstjóri i sima 29000.
BLÓÐBANKINN
HJUKRUNARSTJÓRI óskast við Bióð-
bankann frá 1. janúar n.k. Umsóknir er
greini menntun og fyrri störf sendist
Skriístofu rikisspitalanna fyrir 15. desem-
ber n.k. Upplýsingar veitir yfirlæknir
Blóðbankans i sima 29000.
Reykjavik, 14. nóvember 1981,
RÍKISSPÍTALAR.
NYJUNG
IGEYMSLU KJARNFÓÐURS
Getum nú útvegað stórsekki fyrir kjarnfóður
Gerðir úr sterkum Trevira polyesterdúk.
Fáanlegir í stærðum frá 6,5 m3 til 25 m3
Handhæg áfylling og losun.
Auðveldir í uppsetningu.
EINFÖLD OG ÓDÝR KJARNFÓÐURGEYMSLA
MJÓLKURFÉLAG
REYKJAVÍKUR
Laugavegi 164. Sími 11125. Sundahöfn Sími 822 25
á bókamarkadi
Þrír leikir
um hetjur
Aiskvlos
Þrír leikir um hetjur
PRÓMl:.H' 1FU R I JÓI kAfJl k
i'i :ksak
SJÖ tifiGN
ft:*.
IÓS OÍSLASÖN
BÓK AC'TG.ÁI A MFNNJSOaKSIÓDS
■ Meginefni bókar þessarar er
leikritin , .Prómeþeifur fjötraö-
ur”, „Persar” og „Sjö gegn
Þebu” eftir griska fornskáldið
Aiskýlos (52-456f.Kr.b.) i þýðingu
dr. Jóns Gislasonar. Er útgáfan
með sama sniöi og fyrri þýðinga
Jöns á forgriskum leikritum sem
Menningarsjóður hefur gefið út.
Um Aiskýlos segir þýðandi, Jón
Gislason, i' formála sinum að
Oresteiu frá 1971 „Aiskýlos er
elstur hinna þriggja miklu harm-
leikaskálda Forn-Grikkja. Er
hann almennt talinn þeirra mikil-
úölegastur. Fyrir Hellas hafði
hann i leiklistarefnum sambæri-
lega þýðingu og Shakespeare
fyrir Vesturlönd.. Aiskýlos hefur
oft verið nefndur faðir leikrita-
skáldskapar. Ber að skilja þetta
þannig, að hann lyfti þessari bók-
menntagrein á miklu fullkomn-
ara stig en hún var á, er hann hóf
leikritun, og hins vegar hafi bæði
samtfmamenn hans og eftirkom-
endur notið góðs af starfi hans i
þessum skáidskaparefnum.”
Bókin Þrir leikir um hetjurer
237 bls. að stærð, sett, prentuð og
bundin i' Prentsmiöju Hafnar-
fjaröar.
ALMANAK
■Hins íslenska
þjóðvinafélags 1982
■ Aðalhluti ritsins er Almanak
um áriö 1982 sem dr. Þorsteinn
Sæmundsson stjarnfrasöingur hjá
Raunvisindastofnun Háskóians
hefur reiknað og búið til prentun-
ar. Annað efni Þjóðvinafélags-
almanaksinsþessu sinnier Arbók
islands 1980 eftir Ólaf Hansson
prófessor og ritgerðin Veðurspár
dýranna eftir dr. Guðmund heit-
Einstök í útliti og nýtingu
PARA — eins og forverar hennar, er
samselt úr einingum og býöur upp á
ótrúlega fjölbreylta samsetningu
Undirskápar eru hærri en í öðrum
samstæðum og gefur það PARA al-
gerlega nýjan svip og nýtingu. PARA er
frábrugðin hinum samstæðunum, en
samræmist mjög vel INKA bókahillun-
um.
PARA er hugvitssamlega hönnuð og í
takt við tímans rás. Geymslurými er
skemmtilega komið fyrir og hentar vel
til geymslu á hvers kyns heimilismun-
um, hljómplötum, kassettum, borö-
búnaði, bókum, blöðum o.fl. Hæð neðri
skápa gefur tilefni tll að nota þá sjálf-
stæða í anddyri, borðstofu, eöa á öðr-
um stöðum.
PARA er vönduð smíði. Hún er fram-
leidd úr eik og hægt er aö fá hana í
Ijós-, dökk- eða rauðbrúnum lit.
Tvenns konar huröir standa til boða á
efri skápum, annað hvort viðarhurðir
eða reyklitar glerhurðir. Einnig viðar-
eða glerhillur.
Sért þú að leita að góðum hirslum
sem prýða heimilið, þá er lausnin
PARA — raðskápar.
Komdu og skoðaðu möguleikana.
É KRISTJÁn
JSIGGEIRSSOÍI Hfi
LAUGAVEG113, REYKJAVÍK, SÍMI 25870
inn Finnbogason, upphaflega birt
i Eimreiðinni 1922.
Þetta er 108. árgangur Þjóð-
vinafélagsalmanaksins sem er
184 bls. að stærö, prentað i Odda.
Umsjónarmaöur þess er dr. Finn-
bogi Guðmundsson landsbóka-
vörður og forseti Hins islenska
þjóðvinafélags. Forstöðumenn
Þjóðvinafélagsins auk hans eru:
Bjarni Vilhjálmsson þjóðskjala-
vöröur. Einar Laxness mennta-
skólakennari og formaður
menntamálaráös, Jóhannes
Halldórsson deildarstjóri og dr.
Jónas Kristjánsson forstöðumað-
ur Stofnunar Arna Magnússonar.
JENS MUNK
handa að vinna úr efniviði bókar-
innar sem kom út árið eftir og
hefur verið þýdd á margar tung-
ur. Höfundur þykir samræma á
frábæran háttskáldskap og sagn-
fræði í ritum sinum. Thorkild
Hansen fékk bókmenntaverðlaun
Norðurlandaráðs 1971.
Þýðing á Jens Munk er eftir
Magnús heitinn Kjartansson rit-
stjóra, alþingismann og ráð-
herra. Lauk hann henni skömmu
fyrir andlát sitt, og mun hún
siöasta ritverk frá hans hendi.
Jen Munk er 391 bls. að stærö, og
pryða bókina margar ágætar og
sjaldgæfar myndir. Hún er sett,
prentuð og bundin i Prentsmiðju
Hafnarfjarðar.
THORKILD HANSEN
■ Bók þessi er heimildasaga um
sæfarann og könnuðinn Jens
Munk (1579 -1628) og byggist á
dagbókarbrotum úr örlagarikri
háskaför i norðurveg, en Thorkild
Hansen eykur við staðreyndatalið
upplýsingum um ævi og tima
hins dáðrakka og viðförla en
ósigursæla manns eftir ýmsum
öðrum heimildum, m.a. Reisubók
Jóns Olafssonar Indiafara, og
spinnur söguna af þeim toga.
Jens Munk lagði upp frá Kaup-
mannahöfn 1619 i leiðangur 65
manna á tveimur skipum og ætl-
aði að brjótast útnorðurleiðina
norður fyrir Ameriku i þeirri von
að finna nýja og styttri siglinga-
leið til Kina. Hafði leiðangurinn
vetursetu við Hudson-flóa i
Kanada og hrundi niður Ur skyr-
bjúg og harðrétti. Komst Jens
Munk þó sumariö eftir austur til
Noregs á ööru skipinu við þriðja
mann aö öllum hinum félögum
sinum dauðum en féll i ónáð hjá
Kristjáni konungi IV. eftir ófarir
sinar. Dó hann átta árum siðar
vonsvikinn öreigi.
Thorkild Hansen er i hópi
viðurkenndustu og viölesnustu
samtiðarhöfunda Dana, fæddur
1927. Hann stjórnaði rannsóknar-
leiðangri til Hudson-flóa 1964
ásamt starfsbróður sinum Peter
Seeberg. Fundu þeir Munkshöfn,
vetursetustað Jens Munk frá 1620
og hófst Thorkild Hansen þá
MADDITT
OG BETA
■ Mál og menning hefur sent frá
sér nýja barnabók eftir hinn ást-
sæla barnabókahöfund Astrid
Lindgren. Þetta er bókin Madditt
og Beta og er hún framhald
bokarinnar Madditt sem kom út
hjá forlaginu fyrir ári.
Madditt er stelpa sem hug-
kvæmast uppátækin fyrr en hendi
sé veifað og ekki vantar hana
kjarkinn, en stundum hefði nú
verið betra að hún gæfi sér tima
til að hugsa sig um. Það gerist
margt á þessu eina ári f lifi
Maddittar sem bókin segir frá og
sumt af þvi'gerir Madditt gramt i
geði. En langflest er það
skemmtilegt og hefur þau áhrif á
Madditt að hún finnur lifið ólga i
sér. ,,Þú ert alveg klikkuö
Madditt,” segir Beta. Samt fylgir
hún systur sinni í gegnum þykkt
og þunnt, það gildir einu hvaða
fifldirfsku Madditt finnur upp á.
Margar fallegar myndir eru i
bókinni og þær hefur Ilon Wikland
teiknað, en hún hefur mynd-
skreytt margar af bókum Astrid
Lindgren. Sigrún Arnadóttir
þýddi bókina, sem er 257 bls. að
stærð, prentuð i Prentstofu G.
Benediktssonar. Bókfell hf. ann-
aðist bókband.
PÓST- OG
SiMAMÁLASTOFNUNIN
Auglýsingar í
símaskrá 1982
Dreifibréf með upplýsingum um auglýs-
ingar i simaskrá 1982 hefur verið sent
flestum fyrirtækjum landsins og Póst- og
Simstöðvum. Athugið að frestur auglýs-
enda til að endurpanta sambærilega stað-
setningu fyrir auglýsingar sinar i næstu
simaskrá, sem kemur út að vori, var til 1.
nóvember. Almennur skilafrestur fyrir
pantanir á auglýsingum i simaskrá 1982 er
til 1. desember.
Nánari upplýsingar i sima 29140.
Simaskrá — Auglýsingar
Pósthólf311,121 Reykjavik