Tíminn - 15.11.1981, Page 26
Sunnudagur Í5. nóvembér l981
innlend fréttafrásögn
■ Bjarni Helgason, uppfinningamaöur, viö baggatinuna sem hann
hannaöi, og nú er framleidd f stórum stil I vélsmiöju kaupfélagsins.
■ Ólafur Ólafsson, kaupfélagsstjóri, á skrifstofu sinni.
Timamynd G.E.
„Mikill og ósanitur áróður
hefur verið rekinn gegn
samvinnuhr eyf ingunni’ ’
Rætt við Ólaf Ólafsson kaupfélagsstjóra á
Hvolsvelli
■ ,,Um siðustu áramót voru
starfsmenn kaupféiagsins 168,
þar af unnu rúmlega hundraö I
iðnaði, rúmlega fimmtiu við
verslun og flutninga og aörir við
annað”, sagði ólafur ólafsson,
kaupféíagsstjóri Kaupfélags
Rangæinga á Hvolsvelli.
„Verslunin er langstærsta
rekstrargrein félagsins. Viö rek-
um verslanir bæði hérna og á
Rauðalæk. Hérna á Hvolsvelli
skiptist verslunin i nokkrar deild-
ir, matvörubúö, vefnaðarvöru-
deild, skemmur og pakkhús svo
eitthvaö sé taliö. A Rauðalæk er
auk verslunarinnar, varahluta-
Verslun og bilaverkstæði.
Stór þáttur i þessu öllu saman
er fiutningarnir, bæði að og frá.
En við erum i sifellu að dreifa
vörum um allar sveitirnar hérna i
kring. Fyrir þessa vörudreifingu
tökum við enga greiðslu, hún er
hugsuð sem þjónusta við bænd-
urna. Okkur hefur tekist að halda
kostnaðinum við hana i algjöru
lágmarki.
— Kaupfélagið stendur i mikl-
um iðnrekstri?
„Við rekum annarsvegar þjón-
ustuiðnað og hinsvegar fram-
leiðsluiðnað. Þjónustuiðnaðurinn
felst i rekstri bilaverkstæða, hér
og á Rauðalæk, svo rekum viö
rafmagnsverkstæði sem tekur aö
sér viögeröir á allavega heimilis-
tækjum og svo nýlagnir.
Svo rekum viö vélsmiðju, sem
er annars vegar þjónustufyrir-
tæki fyrir landbúnaöarvélarnar
og byggingaiðnaöinn i sýslunni og
hinsvegar framleiðsla á landbún-
aðarvélum og fleiru.
Við framleiðum hérna bagga-
tjnu sem er uppfundin af Bjarna
Helgasyni vélsmið sem vinnur á
vélaverkstæðinu, svo framleiðum
viö mykjusnigla, mykjudreifara
og heyblásara. Einnig höfum við
smiðaö bilpalla og jeppakerrur og
fleiri hluti.
Árið 1973 fórum við af stað með
húsgagnaverksmiðju, hana rek-
um viö i samvinnu við kaupfélag-
ið i Vik og kaupfélag Arnesinga.
En upphaflega voru öll þessi
kaupfélög með þjónustuverkstæði
sem áttu erfitt uppdráttar og áttu
þvi erfitt með að þróast eðlilega.
Við skiptum með okkur verkefn-
um, viö fórum i útihuröafram-
leiðslu og framleiðslu á heimiíis-
húsgögnum, i Vik eru framleidd
skrifstofuhúsgögn, en Kaupfélag
Arnesinga er með skápa og eld-
húsinnréttingar og svo eitthvað af
skrifstofuhúsgögnum. Við rekum
sameiginlega verslun i Reykjavik
sem heitir Húsgögn og innrétting-
ar og er við Suðurlandsbrautina.
Viö höfum sameiginlegan rekstr-
arstjóra sem hefur yfirumsjón
með framleiöslunni.”
— Stundiö þið einhvern útflutn-
ing á húsgögnum?
„Hingað til höfum við ekki flutt
út húsgögn, en við gælum óneit-
anlega við þá hugmynd. En þvi
■ Verslunar- og skrifstofuhús Kaupfélags Rangæinga á Hvolsvelli.
TimamyndG.E.
• Vefnaðarvöruverslun kaupfélagsins, hún er til húsa I kjallara aöalverslunarinnar á
Hvolsvelii. Timamynd G.E.