Tíminn - 15.11.1981, Qupperneq 27
Sunnudagur 15. nóvemher 1981
innlend fréttafrásögn
Séö yfir sal Saumastofunnar Sunnu
SSSS25? / I | I Ö
■
i§
Ikgfel'
miöur er ekki hægt aö tala um út-
flutning sem orðinn hlut ennþá”.
— Notiö þið einhver islensk
hráefni i húsgagnaiðnaöinum?
„Nei, það er ekki hægt aö segja
þaö, við gerðum einu sinni tilraun
til að nota ullaráklæöi frá Gefjun,
en þvi miður hentar það ekki á
okkar framleiðslu, svo við höfum
oröið aö flytja inn áklæöi og aö
sjálfsögöu allan viö lika.”
— Svo eruö þið með talsveröan
ullariðnaö.
,,Já hér á Hvolsvelli er rekin
Saumastofan Sunna, þar fram-
leiðum við klæði úr islenskri ull
sem öll er flutt út.”
— Hvernig gengur reksturinn á
kaupfélaginu?
„Samkvæmt yfirliti um rekstur
kaupfélagsins fyrir fyrstu átta
mánuöi þessa árs hefur orðið
veruleg aukning i vörusölu, mið-
aö viö sama timabil i fyrra. Sölu-
aukningin er mun meiri en hún
hefur nokkru sinni verið og ég
held aö þaö megi m.a. þakka hin-
um vinsælu „grunnvörum” sem
félagiö býöur uppá á mjög hag-
stæðu veröi.”
— Hvernig gengur sambýlið
við einkafyrirtækin hér á staðn-
um?
„Kaupfélagiö vill gera allt til að
greiöa götur þeirra, okkar mark-
miö er að vinna með öllum at-
vinnufyrirtækjum sem viö álitum
aö veröi til uppbyggingar fyrir
byggðarlagið og sýsluna”.
— Fara einkarekstur og sám-
vinnurekstur saman?
„Endurskoðun samvinnustefn-
unnar og markmiða hennar, með
tilliti til breyttra tlma, er nú til
umræöu og umfjöllunar meðal
samvinnumanna um allt land.
Þessi umræða er vissulega tima-
bær og nauðsynleg vegna þess aö
þarfir samvinnufélaganna og' fé-
lagsmanna þeirra hafa breyst
mikið á þeim 100 árum sem liöin
eru frá þvi að hreyfingin hóf
göngu sina. Þaö er mikilvægt að
samvinnumenn haldi vöku sinni,
bæði i samvinnustarfinu og hug-
sjóninni. Einnig er nauðsynlegt,
að almenningur fái sem réttastar
og sannastar upplýsingar um
samvinnustarfið og þýðingu þess
fyrir þjóðfélagið og lifskjör fólks-
ins i landinu.
Mjög mikill og ósannur áróður
hefur allt frá upphafi verið rekinn
gegn samvinnuhreyfingunni allt
frá upphafi af andstæðingum
hennar. Gera verður ráð fyrir
þvi, að honum veröi haldiö áfram,
m.a. vegna þess aö sjónarmiö og
hagsmunir samvinnurekstrar og
einkarekstrar fara ekki saman.
' Gera verður kröfu til, aö sam-
vinnumenn standi saman um að
hnekkja þessum áróðri og ætti sú
umræöa sem nú fer fram, um
samvinnustefnuna og samvinnu-
starfið að auövelda það.
Hinu má svo ekki gleyma aö
samvinnumönnum ber aö halda
vöku sinni og benda á það sem
betur má fara og til heilla horfir i
samvinnufélögunum”, sagöi Ól-
afur.
— Sjó
GCITR PÚ EKKIHUGS4Ð ÞÉR
ÆmPA í 4RADAGA FERÐ TH LUXEMBORMR
FYRIR Æ)mS 2700. KRÓT1UR?
ÞETTA ER ÞAÐ SEM ÞÚ FÆRÐFYRIR PENINGANA:
GISTING A SHERATON AEROGOLF
Þú gistir á Sheraton hóteli á fallegum og írið-
sœlum stað. Aerogolí er dœmigert Sheraton
hótel, þar sem þú faerð góða þjónustu og ágœt-
an mat. Hótelið er steinsnar frá flugvellinum. og
hinum megin við götuna er einn besti golfvöllur
sem hugsast getur. Sheraton íólkið gerir allt sem
hœgt er til að þér líði sem best, — það er alltaí
tilbúið til að aðstoða við útvegun bílaleigubíla,
leiðbeininga um skemmti- og matsölustaði, o.fl.
Herbergin eru hrein og snyrtileg, rúmin mjúk og
þœgiieg!
Fáðu frekari upplýsingar um Lúxusrispuna til
Luxemborgar hjá Flugleiðum eða íerðaskrilstofunum.
STUTT OG ÞÆGILEG FLUGFERÐ
Það er flogið til Luxemborgar á laugardögum
og heim aítur á þriðjudögum. Starísfólk Flug-
leiða mun gera sér íar um að stjana við þig á
leiðinni og láta þig njóta ferðarinnar. „Traust
íólk hjá góðu félagi!" Flugíerðin sjálf er mátu-
lega löng, aðeins tvœr klukkustundir og fjörutíu
mínútur.
Þú heíur tœkiíœri til að versla í Fríhöfninni á
leiðinni út og líka þegar þú kemur heim aftur.
ÞETTA ER FERÐIN,
SEM ÞÚ GEFUR ÞÉR TÍMA
TILAÐ NJÓTA-
BARA í NOKKRA DAGA!~
TÆKIFÆRITIL AÐ TAKALÍFINU MEÐ RÓ—!
Luxemborg er ekki stórt land, en það er bœði
íallegt og hlýlegt. Vínkjallararnir í Greiveld-
ange, Wellenstein, Remich og Wormeldage,
sem er höfuðstaður Riesling, eru mjög áhuga-
verðir.
Sögulegar minjar eru allmargar í Luxemborg.
Rómverskar graíir og byggingar eru víða.
Höíuðborgin sjálf er þúsund ára gömul. Þar má
ennþá skoða 21 km langa keðju aí neðan-
jarðargöngum, sem eru höggvin í gegnum
björgin. í Vianden bjó Victor Hugo í útlegð. í
Clervaux var Halldór Laxness í klaustri, og í graf-
reitnum í Hamm hvílir Patton hershöfðingi. Ef
þú kœrir þig um að íá þér bílaleigubíl er stutt að
f ara til Belgíu, Þýzkalands eða Frakklands, en eí
þú vilt taka lífinu með ró, eru matsölustaðir í
Luxemborg víðfrœgir. Þar geturðu fundið
franskan. ítalskan, kínverskan, þýskan, amerísk-
an og íslenskan mat og góða þjónustu!
FLUGLEIÐIR S
Traustfólkhjágóðufélagi