Tíminn - 15.11.1981, Blaðsíða 30

Tíminn - 15.11.1981, Blaðsíða 30
'■♦'T 30 leigupennar í útlöndum Sunnudagur 15. nóvember 1981 I ■ Þaðan sem ég bý er aðeins steinsnar út i Vestre Kirkjugarð. En það er stærsti kirkjugarður- inn hér i Kaupmannahöfn. Ég fæ mér oft göngutúra i þessum garði og nú ætla ég að bjóða lesendum Timans að rölta með mér einn. Við erum stödd við hliðið. Það situr feitlaginn varðmaður i klefa við hliðið og horfir út um litla gluggaboru leiður á lifinu. A vegg varðkofans er boltaður stærðar glerkassi og þar má lesa nöfn hinna og þessa fyrirmanna sem i garðinum hvila. Ég renni augum yfir listann og þarna er íslend- ingurinn, Jóhann Sigurjónsson skáld. Ég legg á mig staðinn þar sem gröf Jóhanns er að finna og geng inn igarðinn. Égkem að lit- illi tjörn og þar er andahópur. Það kemur gömul kona og byrjar að fleygja brauði út i tjörnina en endurnar synda burt. Það fer þungur vindgustur um trjátopp- ana og nú byrjar að rigna. Ég sest i skjól á garðbekk undir voldug- um trjágreinum og horfi á regnið sjóða á vatnsfletinum. Gamla konan sest hjá mér á bekkinn. — Þær eru ekki svangar i dag, segir hún. — Nei, segi ég. — Það er best að koma með brauðið á mánudögum, segir konan. — Þá koma fæstir. Þá eru þær alltaf banhungraðar. — Já, það er satt segi ég. Nústyttir upp svo þetta samtal Það er byrjað að skyggja og ég ætlaði að finna leiði Jóhanns Sigurjónssonar. Ég geng fram og aftur drykklanga stund en ég er búinn að tapa áttunum. Ég lit á klukkuna. Hún er að verða sex. Þá á að loka garðinum svo það er bestaðflýtasérút. Ég hraða mér gegnum garðinn i þá átt sem ég tel hliðið vera. Nýja ranghala, yfir runna, langan stig, það dimmir. Ég heyri kirkjuklukku slá sex þung högg og allt i einu er ég kominn að háum vegg. Ég geng lengi fram og aftur en alls- staðar er veggurinn. Loks verður mér ljóst að ég hef gengið kirkju- garðinn á enda og framhjá hlið- inu. Ég er læstur inni i kirkju- garðinum og það er að koma myrkur. Ég sé fyrir mér hliðið. Það er hátt og mikið járnhlið og ekki sennilegt að mér muni veit- ast auðvelt að komast yfir. Þetta hefur maður uppúr þvi að fara i heimspekilegan göngutúr um kirkjugarð. Ég er þá kominn aftur að andatjörninni. Hún er bleksvört að sjá og þyturinn i trjákrónunum er orðinn draugs- legur. Ég var kominn með ákafan hjartslátt. Ég sat nokkra stund á bekknum. Allt i einu ráku endurnar upp mikið garg og flugu upp i myrkrið. Það byrjaði að rigna. Hver fjandinn var að ger- ast. Og nú bullaði og sauð i tjörn- inni og einhver þúst kom i ljós i hennimiðri. Égsatþarna frosinn. Eitthvert skrimsli hélt áfram að koma upp úr tjörninni og vatnið Katanesdýrið I Kaupmannahöfn verðurekki lengra. Gamia konan ris á fætur og ranglar inn eina skógargötuna með brauðpokann tuðandi eitthvað við sjálfa sig. II Ég held áfram að horfa á þessa tjörn. Það kemur holdskarpur maður i rykfrakka, með hatt á höfði og byrjar að gusa meira brauði út i tjörnina en endurnar flýja i ofboði Ég byrja að hugsa um aðra tjörn. Aður en ég fór að heiman var ég að lesa i þjóð- sögum Jóns Þorkellssonar. Ég var að lesa um Katanesdýrið á Hvalf jarðarströnd. Sjálfsagt kannast flestir við söguna um þennan óvætt en það má nefna að dýrsins varð fyrst vart sumarið 1874 og var þá á stærð við meðal hund. Tveim árum siðar var það likast þéttvöxnu nauti með afar- mikinn kjaft og framtennur fjórar, tók dýrið að gerast magnað og grimmt. Höfðu bændur engan frið með smala eða fé og var reynt að vinna dýrið og ráðinn skotmaður en þá brá svo við að dýrið lét ekki sjá sig. Var þá reynt að ræsa fram tjörnina en ekki tókst þaö, þvi i tjörninni miöri var „grængolandi auga” og hættu menn þessu vesini og spáðu i að göng væru úr tjörninni til sjávar. Ég sá útundan mér eitthvað kvikt i mölinni við annan skóinn minn. Það var þá stór og feitur ánamaðkur og hann átti i mesta brasi. Tvær svartar og ljótar pöddur hjóluðu i hann aftur og aftur og rifu stykki úr holdi hans og hlupu með það spölkorn til þess að éta. Svo sigldu þær i hann enn á ný. Maökurinn vafðist utan um þær varnarlaus. Mér datt i hug hvort ég ætti að hjálpa maðk- inum en lét það eiga sig. Ja, merkileg er þessi tilvera, hugsaði ég. Hér heyir einn maðkur sina lifsbaráttu og veröldin lætur sig það engu varða og ég hefði ekki séð þessi slagsmál ef ekki hefði duniö á skúr og ég sest i skjól á þennan bekk. Ja, að hugsa sér hvað þaö er margt i þessu úni- versi sem maður aldrei sér, hugs- aði ég. Gætu til dæmis ekki verið göng úr þessari tjörn út i sjó? Ég leit út á tjörnina þar sem brauðið flaut i lög við bakkann og fannst það heldur ósennilegt. En nú stytti upp og sólin byrjaði að skina, ég reis upp af bekknum og kvaddi pöddurnar og maðkinn. III Ég labbaði lengra inn i garðinn að finna gröf Jóhanns og sá stóran snigill á trjábol. Ég studdi fingri létt á kuðunginn og þá var snigillinn fljótur að hverfa i skjól. Upp að trénu hallaðist gamall legsteinn: H. J. Rohmann 21.7.1846-29.12.1929 Maria Rohmann Fædd Stabue 2.9.1857-9.12.1937 Hér eru nöfn á steini, hugsaði ég. Er það ekki undarlegt að hér séu leifar tveggja persóna. Fólk sem átti sina tilveru og hafsjó af minningum, hugsaðiég. Mér datt I hug ljóð, en þar segir skáldið, rússinnEvtushenkó eitthvað á þá leið, að með hverjum manni sem deyr ferst heilt únivers. Einu sinni frétti ég af manni sem hélt þvi fram að það væri hrein heimska að deyja. Þessi maður hélt fram þeirri kenningu að fólk félli frá af hreinum asna- skap. Þessi maður var vanur að ganga út i kirkjugarð ef hann var við skál og steyta hnefa að leg- steinunum og hrópa að þeim dauöu: Ha ha ha, þið eruð asna- kjálkar. En svo dó hann vitaskuld eins og allir aðrir. Ég er þessa dagana að reyna að skrifa skáldsögu. Þar er ég með karakter sem heitir Rögnvaldur. Brot úr sögunni: (bls. 389) Rögn- valdur hafði einu sinni lesið að þegar lik væri brennt ætti það til að setjast upp i eldinum. Að láta brenna skrokk sinn, Rögnvaldur þurfti ekki annað en að rétta út hendur sinar og virða þær fyrir sér til þess að finnast það ekki góður kostur. Einu sinni hafði hann haldið sviðaveislu á bænum með öðrum Asatrúarmönnum. Þeir hentu kjálkum og hausum út um glugg- ann. Þar lágu þeir i moldinni dög- um saman. Rögnvaldur átti leiö þar um og velti við kjálka með tánni. Hann var iðandi af möðk- um. Rögnvaidur starði i hryllingi á þessa litlu hvitu maðka sem sneru sig á milli tannanna. Þvi meir sem Rögnvaldur Samúels- son velti dauðanum fyrir sér þvi ver leist honum á hann. IV En þetta voru útúrdúrar. Við stöndum við legstein þeirra Roh- mann hjóna og ég sé að það er eitthvað letrað undir nafni H.J. Rohmanns. Ég krýp niður og nudda steininn. Það er þá orðið: köbmand. Sko, gamla manninn, hugsa ég og sé strax fyrir mér mynd af H. J. Rohmann. Hann er holdskarpur náungi og stendu.- fyrir innan búðarborðog er að sýna gamalli tuðandi kellingu klæða- stranga. Nei þetta er skökk mynd. Ég breyti Rohmann og geri hann feitlaginn og dapur- legan, hann horfir út um glugg- ann á Hótel De Angleterre, leiður á lifinu. Það situr maður á móti honum og talar i sifellu. Það er Jóhann Sigurjónsson. Ég reyni að sjá þá félaga betur fyrir mér en myndin hverfur i þoku. Ég hrópa ekki húrra fyrir Imyndunarafli minu þarna i kirkjugarðinum. En ég hugga mig við spakmæli sem ég las ein- hversstaðar: upprifjun er auð- veldari en Imyndun. Og þetta er nokkuð góð setning sem allir höf- undar ættu að festa upp yfir skrif- borðinu .sinu. Ég held áfram að ganga. Ég kem að annari tjörn. Þar synda margir froskar. Sigurður örlygs- son málari sagði mér einu sinni að froskar elskuðust einu sinni á ári, stanslaust i þrjár vikur. Að ástarleiknum loknum dræpi kell- ingin kallinn. Ég sel þessa sögu ekki dýrara en ég keypti en sé þetta satt þá er það bara enn ein sönnun þess að tilveran er ekkert grin. Ég rölti lengra. Ég kem að langri og breiðri grasflöt umgirtri trjám. Það stendur stór kantaður steinn við innganginn á þessa flöt og þar stendur: Hér hvila 4636 hermenn og 4019 flóttamenn. Allt eru þetta þjóðverjar. Ég gengum svæðið og les á steinana. Þettafólker dáið 1945. Flestir um vorið. Ég les: Hér hvila tiu óþekktirhermenn. A öðrum steini erunöfn tveggja barna sem látist hafa á öðru ári. 1 fjarska sé ég blómvönd á leiði. Það er þá ein- hverstaðar sála út i bæ sem man þjóðverja sem legið hefur hér i 36 ár. V Ég geng út úr þessum þýska reit og held áfram niður stiginn. Það munar minnstu að ég labbi á tæran þráð sem er strengdur þvert yfir þennan stig. Það er kóngulóarþráður. Ansi vinna þær sitt erfiðisverk fyrir gýg. Ef ég hefði ekki séð þráðinn glampa þá hefði allt hrunið. Ég kem auga á kóngulærnar. Þær eru þá tvær. Og stórar. önnur þeirra siglir eftir þræðinum, rennir sér siðan til hinnar, snertir hana og dettur allt i einu heillanga leið, (Alika fall og maður hrapaði úr turni Hallgrimskirkju og niður á götu) en siðan les hún sig aftur upp meö miklum hraða og þær endurtaka leikinn. Ég beygi mig undir strenginn. fossaði af hliðum þess. Ég ætlaði ekki að trúa hvað það var stórt. Það var ekkert skinn að sjá á þessari veru en ég gat ekki betur séð en holdið væri bleikt. Ég kærði mig ekki um að sjá meira. Ég byrjaði að hlaupa. Ég leit einu sinni um öxl. Skrimslið var á stærð við nashyrning og það lýsti úr grænum augum þess. Það var með mikinn kjaft, tungiið hafði skotist upp á himininn og það glampaði á fjórar gular tennur i skininu. Ég var byrjaður að hvæsa af mæði. Ég heyrði þungt og töltandi fótatakið á eftir mér. Loksfannég stiginn. Ég sá hliðið. Ég klifraði upp járnteinana i ofsahræðslu og fann að eitthvað snart annan fót minn og hræði- legum daun sló fyrir vit min. Ég komst upp á hliðið en þar sat ég fastur. Buxnaskálmin var föst i einni hinna gulu skögultanna. Ég hékk þarna skrækjandi á tönn- inni. En svo rifnuðu buxurnar til allrar hamingju og ég datt niður. Skrimslið skokkaði aftur inn i garðinn. Ég lá lengi á götunni að jafna mig. Loks hafði ég þrek til þessaðkomast heim. Ég þurfti að styðja mig við ljósastaura á leið- inni. Ég var svona máttfarinn. IV Ég setti strax blað i ritvélina þegar ég kom heim. Konan min kom inn i herbergið. — Um hvað ertu að skrifa, spurði konan min. — Ég er að skrifa um tvær kóngulær sem ég rakst á út i kirkjugarði i dag, sagði ég. — Ekki er það nú spennandi, sagði konan min. — Nú jæja góða, sagði ég. — Ég hitti konu áðan sem sagði mér furöulega sögu, sagði konan min þá. — Nú, sagði ég. — Hún sagðist hafa séð ein- hvern mann hanga á einu járn- spjótinu út á kirkjugarðshliði og teinninn var fastur i buxnaskálm- inni. — Nú, sagði ég. — Hvaða vitleysingur ætli þetta hafi verið? — Hvernig ætti ég aö vita það, sagöi ég. Olafur Gunnarsson, rithöfundur, skrifar frá Kaupmannahöfn

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.