Tíminn - 15.11.1981, Síða 31

Tíminn - 15.11.1981, Síða 31
Sunnudagur 15. nóvember 1981 S^IÍÍÍlSÍ 31 á bókamarkadi Nýtt og yfirgripsmikið verk um Kjarval ■ Út er komin ný bók um Jóhannes S. Kjarval og list hans. Þetta er yfirgripsmesta útgáfa með verkum listamannsins i 30 ár. Myndirnar i þessari nýju bók spanna meira en hálfa öld i list Kjarvals. Aðalsteinn Ingólfsson, listfræð- ingur, valdi myndirnar og skrifar hann ennfremur langa ritgerð um Kjarval þar sem hann leitast ma. við að gera grein fyrir sérstööu málarans i fslenskri myndlist og i evrópsku samhengi. Þá eru i'bókinni kaflar úr Kjar- valskveri Matthiasar Johannes- sens. Það eru viðtalsþættir, lif- andi lýsingar og af mörgum tald- ar þærtrúverðugustu, sem tileru Björn Guðflnnsson Breytingar á fmniburói ogstafsetningu 7 Sm árit Kenrtaraháskóia Islands og lóunnat af daglegu viðmóti og hugarheimi þessa sérstæða listamanns. íceland Rewiew hafði frumkvæði að gerð bókarinnar og mun dreifa henni f enskri útgáfu, en dreifing islensku útgáfunnar verður á vegum Bókaklúbbs Almenna bókafélagsins. Hinn fslenski titill bókarinnar er: Kjarval—málari lands og vætta. Sá enski: Kjarval — A Painter of Iceland. Bókin er 96bls. að stærð, brotið 23x23 cm. t henni eru 63 litmyndir af málverkum og vatnslita- og kritarmyndum Kjarvals. Auk þess 23 svarthvftar myndir af blý- ants- og pennateikningum, myndum af veggjum vinnustofu listamannsins (Lifshlaupið) auk hinna landsþekktu mynda Jóns Kaldals af Kjarval. Guðjón Eggertsson, Auglýs- ingastofunni hf.,hannaði bókina. Mats Wibe Lund jr. tók litmyndir af verkum Kjarvals en fleiri ljós- myndarar hafa lagt hönd að verki. Haukur Böðvarsson þýddi texta á ensku. Litgreiningu mynda annaöist Prentmyndastofan hf., en að ööru leytierbókinunninhjá Odda.Var þetta fyrsta meiriháttar verkið, sem unnið var i nýrri fjögurra lita prentvél, sem fyrirtækið hef- ur nýlega fest kaup á, hinni fyrstu hérlendis. fréttir Prentaraverk- fall skollið á ■ Hvorki gekk né rak á samningafundum prentara og viðsemjenda þeirra i gær. Að loknum samningafundi efndu prentarar til félagsfundar i' Iðnó siðdegis i gær, og var hann mjög fjölmennur.Menn reifuðu málin og bar ýmislegt á milli en um eitt voru þeir þó sammála þ.e. að standa saman hvað sem ákveðið væri og á hverju sem gengi. Afundinum kom fram ein til- laga i höfuðatriðum á þá lund, að bjóða Blaðaprenti samning um að fresta verkfalli gegn þvi að næstu kjarasamningar tækju gildi frá 1. nóvember s.l. Menn ræddu tillöguna fram og aftur, en við atkvæðagreiðslu var hún gjörfelld með 7 atkvæðum gegn sennilega eitthvað á annað hundrað atkvæðum. —HEI Hitaveita fyrir Hellu og Hvolsvöll ■ 1 gær náðist samkomulag á milli Hellu, Hvolsvallar og Holtahrepps um stofnun hita- veitufélags. Jafnframt náðist samkomulag um kaup þessara sveitarfélaga að Jarðhitarétt- indum Holtahrepps að Lauga- landi. Eins og lesendur Timans muna fannst mikið magn af heitu vatni við boranir að Laugalandi i Holtahreppi fyrir rúmu ári siðan. Varð fljótlega ljóst að vatnið nægði bæði til upphitunar skólans þar og jafn- framt kauptúnanna að Hellu og Hvolsvelli. Á þessu timabili hafa staðið yfir samningavið- ræður annars vegar um stofnun hitaveitufélags milli Hellu, Hvolsvallar og Holtahrepps, og hins vegar um kaup þessara aðila á jarðhitaréttindunum að Laugalandi. I gær náðist sam- komulag um öil þessi atriði. Á næsta ári verður þvi hægt að hefja hitaveituframkvæmdir að fullu bæði við Hellu og Hvols- völl en töluvert fjármagn hefur verið ætlað til þeirrar fram- kvæmdar á lánsfjárætlun fyrir þetta ár, en lítið orðið úr fram- kvæmdum þar sem samkomu- lag hefur ekki náðst um stofnun hitaveitufélagsins fyrr en nú. Stór áfangi er þvi nú að baki I hitaveitumálum Rangæ inga eftir gærdaginn. —Kás Tvær nýjar bækur Kennaraháskólans og Iðunnar ■ Úteru komnar tvær nýjar bæk- ur f flokki Smárita Kennarahá- skóla Islands og Iðunnar.sjöunda og áttunda ritið í þeim flokki. Rit- ineru: Breytingar á framburði og stafsetningu eftir Björn Guð- finnsson, önnur útgáfa og Úr sögu kennaramenntunar á tslandi eftir Lýð Björnsson sagnfræðing. Breytingar á framburði og staf- setningu kom fyrst út árið 1947. I ritinu eru tveir fyrirlestrar Björns Guöfinnssonar: Samræm- ing íslensks framburðar og undir- búningur nýrrar stafsetningar og Framburðarkennsla. Loks eru tillögur Björns um samræmingu framburðarins. Björn Guðfinnsson rannsakaði á sinni tið islenskan framburð og birti niðurstöður sinar i' doktors- ritinu Mállýskur, 1946. Þessi bæklingur Björns er á sömu rann- sóknum byggður og er þar meðal annars að finna yfirlit um helstu mállýskur, eða framburðaraf- brigði i landinu á þessum tima. — Indriði Gislason ritar formála að þessari nýju útgáfu. Þessari útgáfu fylgir skrá um helstu rit og ritgerðir um þau efni sem um er fjallaö i bókinni og samdar hafa verið frá þvi aö hún kom út, auk þess sem upprunaleg ritskrá höfundar með fyrstu út- gáfu er endurprentuð. Bókin er 92 blaðsiður, Oddi prentaði. Úr sögu kennaramenntunar á Islandi er að stofni til erindi sem Lýður Björnsson flutti á vegum Kennarafélags Kennaraháskóla tslands. Fjallar það um sögu kennaramenntunar allt frá fyrri öldum til samtimans. Bókin skiptist í fjóra aðalhluta: Kennaramenntun á fyrri öldum og hugmyndir um skólamál, Kennaramenntun á Alþingi 1870- 1907 og námið i Flensborg, Kennaraskóli og kennaraháskóli, Kennaramenntun við Háskóla tslands. Þá er heimildaskrá og styöst höfundur við prentaðar, óprentaðar og munnlegar heimildir. — Rit þetta er tillag til islenskrar skólasöjU sem litt hef- ur verið fjaDað um af fræðimönn- um og er i þvi /ikið að atriðum „varðandi skólasögu liöinna alda Lýdur Björnsson Úrsögu kennaramenntunar á íslandi 8 Smárit Kennaraháskóla Islands og Iðunnar sem til þessa hafa legið i hálf-eða algeru þagnargildi en verðskuld- uöu athygli,” segir i formála höf- undar. — Úrsögu kennaramenntunar á islandi er 63 blaösiöur. Oddi prentaði. U 7 0 ^0Qn ^ H E W 5 metjan unglinganna ÁSKRIFT VERÐUR ÞÚ MEÐ? Nýtt blað i dreifingu m.a. efnis: HANN NOTAÐI MIG í HALLÆRI.... — ung stúlka segir frá óvenjulegu lífshlaupi BUBBI MORTHENS í hressilegu opinskáu viðtali, ásamt opnumynd DAUÐASYNDIRNAR SJÖ! (ert þú einn af syndurunum?) HVERNIG ER FYRIRMYNDARUNGLINGURINN? (er hann til?) HETJAN (ný íslensk smásaga eftir kornungan höfund) og svo KYNFRÆÐSLUSÍÐAN, LJÓSMYNDAÞÁTTURINN, POPPIÐ, PENNAVINIR og lengi mætti upp telja.... Vegna mikillar eftirspurnar um að fá blaðið í áskrift, hefur SEXTÁN ákveðið að verða við þeim óskum. Við munum bjóða þrjú næstu blöð I kynningaráskrift fyrir kr. 60.- Nýjir áskrifendur geta fyllt út þennan seðil, eöa hringt í síma 28028. O csl * °> - Zz'0> «< X UJ Íhj-CC cXWD 0) LLI O co (/)</) Q. T- NAFN: HEIMILI: SVEITARFÉLAG: ALDUR:________ SÍMI: Ég óska eftir að verða áskrifandi frá og með: [ | 3. tbl. 81 (sjá hér að ofan) □ 4. tbl. 81.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.