Tíminn - 22.12.1981, Síða 26

Tíminn - 22.12.1981, Síða 26
26 'V l i Þri&judagur 22. desember 1981 ■ ,,6g staröi i spegilinn: Núheldur þú þér vakandi, nú talar þú viö sjálfan þig til aö halda þér vakandi...” ■ „En svo man ég ekki meira, var kominn af staö i villtustu draum- um!” Eitt hænufet maöur auövitað, skoöanirnar þróuöust, og mann fór að langa til að prófa nýja hluti. Þegar það at- vikaöist svo þannig aö viö sögöum upp hjá Leikfélagi Akureyrar þrjú i einu — við Þórhildur og Þráinn Karlsson — þá ákváöum viö að gera eina tilraun enn. Þaö var Alþýðuleikhúsiö.” —Hver var hugmyndafræöi þessa fyrsta Alþýðuleikhúss? Af hverju íét það til að mynda Alþýðuleikhús? „Þegar að nafngiftinni kom voru uppi ýmsar tillögur, þetta var fjórtán manna hópur og ekki nærri allt leikhúsfólk. Sjáðu til, leikhúsinu var aldrei ætlað að skoðanir eða málpipa stjórnmála flokks, en okkur langaöi samt að taka fyrir — ef okkur entist aldur og heilsa! — málefni sem tengdust veruleika dagsins i' dag, fjalla um þau á máli leikhússins. Þvieinsogvið vitum er veruleiki sviösins allur annar en veruleiki lifsins. Með þvi að kalla þetta Alþýðuleikhús vildum við lýsa yf- irsamstööu með...” Hann hugsar sig um. „Það er erfitt að formúlera þetta. Ef ég segði verkafólki yrði það misskilið. Fólki er of almennt. En ég get sagt að við vildum skoða sjónar- mið — já, alþýðunnar...” Börn Arnars og Þórhildar eru komin á vettvang og heimta athygli föður sins. Hann stekkur af stað að sinna þeim og það verð- ur smáhlé á viðtalinu. Eitt barn- anna kemur i dyragættina, litur mig sýnilega hornauga. ,,Er mikið eftir af viðtalinu?” — Nei, ég fer aö verða búinn. „Gott!” segir barnið og hverfur allshugarfegið á braut. Þegar Amar kemur aftur er hann með yngstu dóttur sina í fanginu, hún maular kexköku meðan við tölum sam an. Verður lambið setl á, eða leitt til slátrunar? —Hvemig gekk ykkur i Alþýðu- leikhúsinu að fara eftir þeim hug- myndafræðilegu reglum sem þið höfðuð sett ykkur? „Ég held ég verði að láta aðra dæma um það.” —En siöan breytist starfsemi Alþý ðu leikhús si ns. ,,Já. Við höfum verið með Krummagull og Skollaleik á sifelldum þvælingi um landið og út til Norðurlandanna og úthaldið varð að verða búið. 1978 stóðum við frammi fyrir þvi að við Þór- hildur vildum flytja suður, Kristin Clafsdóttir og Þráinn töldu sig ekki geta tekið þátt i næstu sýningum ef af þeim yrði. Þvi urðum við annaðhvort að leggja leikhúsið niður eöa freista þess að halda starfinu áfram hér fyrir sunnan. Ég var sjálfur mik- ið i þvi að kanna þá valkosti sem við höföum og leiðin sem á endan- um var farin var liklega sú eina sem mögulegt var að fara. Það var að breikka hópinn, taka inn fólk sem þá streymdi út úr leik- listarskólunum, og treysta einnig á reyndara fólk sem gæti hlaupið undirbagga i einstökum verkefn- um. Okkur var fullljóst að með þessu breytti Alþýðuleikhúsið i raun og veru um eðli, það færðist á áhugagrundvöllinn, og þótt starfsemin hafi verið mjög kröft- ug næstu árin setti leikhúsið óhjákvæmilega ofan, bæði list- rænt og hugmyndalega. Það var ekki lengur með fölk sem einbeitti sér bara að þvi, heldur urðu leik- ararnir og aðrir starfsmenn að hiaupa i þetta með öðru, og list- rænt séð voru leikararnirflestir á sama báti — það er að segja byrj- endur sem skorti bæði sjálfs- traust og reynslu til að fram- kvæma það sem Alþýðuleikhúsið sóttist eftir. En fyrirtækið lifir og vist er að þar hafa margir öðlast dýrmæta reynslu sem á eftir að koma að góðu gagni. Nú siðastlið- ið vor var starfseminni breytt á nýjan leik þannig að myndaðir voru tveir fastir hópar sem vinna aöskildir að sérstökum verkefn- um — jafnframt var fengið inn fólk sem hafði meiri reynslu en meirihluti meðlima Alþýðuleik- hússins. Enn er ekki séð hvernig þetta gengur: hvort lambið verður sett á eða hvort þaö verður leitt til slátrunar.” í átt til upphafsins —Eftir að þú komst frá Akur- eyri varstu f þrjá vetur hjá Þjóð- leikhúsinu, og einmitt á þeim tima sem gagnrýni fór m jög vax- andi á það. Talað var um stein- gelt stofnanaleikhús og annað i þeim dúr. Fannst þér þetta rétt- mæt gagnrýni? ,,Sko!” Siðan hugsar Arnar sig lengi um. „Það voru gerðir ýmsir góðir hlutir i Þjóðleikhúsinu þann tfma sem ég var þar — ég nefni til dæmis Stundarfirð sem óhætt er aö segja að hafi aukið hróður leik- hússins —svo það er langt I frá aö þar sé allt i lamasessi og kalda- koli. Hitt dylst engum að mörgu er ábótavant og um það eru allir sammála, starfsmenn og stjómendur. Það þarf, held ég fyrst og fremst að breyta reglu- gerfiinni um Þjóðleikhús, það verður að færa listræna ábyrgð innfhúsið. Þrtta eralltaf stoppað af af pólitikusum. Svo málið er alls ekki svo einfalt að Þjóðleik- húsið sem stofnun sé óalandi og óferjandi, siður en svo. Það á sér nú stað heilmikil gerjun meðal starfsfólksins og það er leitun að þeim sem ekki vill breytingar, svo leikhúsið geti staðið undir nafni.lagt metnað sinn í að skapa kúnst og þróa. Ég á von á því að þessi gerjun leiði til breytinga sem geti gefið af sér góða hluti.” —Þú hættir hjá Þjóðleikhúsinu síðastliðið vor... ,,Ég er i árs launalausu leyfi.” —Jæja, en fórstu i það leyfi til að einbeita þér að Alþýðuleikhús- inu eða vegna þess að þú varst óánægður með starfiö f Þjóðleik- húsinu? „Ætli það sé ekki sitt litið af hvoru. Sjáðu til, það stóð fáum það nær en mér að koma til liðs við Alþýðuleikhúsið er það þurfti á þvi' að halda.” —Undanfarið hafa heyrst radd- ir sem gagnrýna svokallaða „farsapólitik” Alþýðuleikhúss- ins. Er það sanngjörn gagnrýni? ,,Að vissu leyti á hún rétt á sér, já, enaðöðru leyti ekki. Veruleik- inn er strangur, til að lifa þarf bæði peninga og áhorfendur. Og áhorfendur hefur okkur ekki skort. Það er núorðið stór hópur sem metur Alþýðuleikhúsið mikils, erkannski ekki jafnhrifiö af öllu sem þar er gert, en heldur tryggð við það engu að siður. Ég held að flestir skilji að, að sumu leyti erkannski óhjákvæmilegt aö setja upp fremur „létt” verk, en um meðvitaða „farsapólitik” er þó alls ekki að ræða. 1 lang- flestum tilvikum er um að ræða hópa sem hefur langað til að vinna aö sérstökum verkefnum, Dg við veröum að athuga það að á þessum fáu árum hafa margir og ólfkirhópar starfað undir merkj- um Alþýðuleikhússins. Eins og ég minntist á hefur nú verið gerö breyting i átt til upphafsins, fastra hópa, og hvernig það fer er ekki gott að segja. Hópurinn sem ég er i hefur þegar frumsýnt tvö, trjú verkefni en það er fyrst með næsta verkefni sem allur hópur- inn kemur saman ásamt þeim leikstjóra sem verður með okkur til vors — en það er Þórhildur. Það væri kannskifrekarívor sem við ættum að tala saman um þetta.” —Ertu bjartsýnn? „Ég verð að vera bjartsýnn — ég myndi heldur ekki segja þér neitt annað!” Arnar hlær. „En i alvöru — þá þætti mér hrapalegt ■ „Þá kemursviösstjórinn æpandi: Hvaðertu að hugsa drengur.þú átt aö vera kominn inn á sviö fyrir löngu! ” ef menningarfyrirbæri eins og Al- þýðuleikhúsiö lognaöist út af. Við höfum önnur svipuö fyrirbæri, Is- lensku óperuna, Islenska dans- flokkinn sem hefur lagt á sig feykilega óeigingjarnt starf, og það má ekki gerast að þetta detti upp fyrir vegna skammsýni þeirra sem skammta okkur styrkinn. Þaö er vilji hjá fólki að halda Alþýðuleikhúsinu gangandi en það dugar ekki til — við spör- um af öllum llfs og sálar kröftum, vinnum óguðlega langan vinnu- dag og göngum i öll störf sjálf en það er ekki nóg. Við verðum að fá einhverja aðstoð.” „Ekki leikari?!” —Að eins ein spurning að lok- um, um þig sjálfan. Ef þú værir ekki leikari, hvað gætirðu þá imyndað þér að þú værir að fást við? Amar rekur upp stór augu, seg- ir forviða: ,,Ekki leikari? Veistu — ég hef aldrei leitt hugann að þvi! ” Sem ég bið eftir Ieigubil úti á gangstéttinni er Þórhildur Þor- leifsdóttir að koma heim til sin. Þá stendur Arnar Jónsson i glugganum og lætur börnin veifa móður sinni. —ij. ■ ...hvar eru munirnir minir, greiöan, sápufroöan?”

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.