Tíminn - 26.02.1982, Síða 1
og dagskrá ríkisfjölmiðlanna 27/2 til 5/3 ’82
Úr borgarlffinu
Auglýsendur Auglýsendur
Þeir sem hafa hug á
ad koma auglýsingum á framfæri í „Helgarpakkanum’
þurfa ad hafa samband vid blaðið fyrri hluta viku og alls ekki
siðar en á miðvikudegi
18300
Taormina séð frá Naxos.
Sikiley kynnt
á Utsýnarkvöldi
■ A útsýnarkvöldi sem haldið
verður sunnudaginn sjöunda
mars næstkomandi verður
kynning á nýjum áfangastað á
ferðaáætlun útsýnar, Sikiley.
Af þessu tilefni sneri Timinn sér
til Péturs Björnssonar, sem
veröur aðalfararstjóri Útsýnar-
farþega á Sikiley i sumar. Við
spurðum fyrsthvað kynnt yrði á
Útsýnarkvöldinu.
„Það kemur hingað hópur
fólks frá Sikiley, bæði skemmti-
kraftar og framámenn 1 ferða-
málum eyjarinnar. Sikiley er
um margt sérstök. Hún er
nokkurskonar krossgötur á Mið-
jarðarhafinu og menningar-
áhrifin koma viða að. Á Út-
sýnarkvöldinu verða m.a.
sýndir dansar, sem byggja á
gamalli sikileyskri hefð við
undirleik sikileyskra tónlistar-
manna”.
— Sikileysk tónlist er undir
miklum spönskum áhrifum?
,,Ja, ég veit það nú ekki. Það
má að visu greina í henni tals-
verð spönsk áhrif, en þó er hún
ekki svo lik spánskri tónlist. Það
er mikiö meiri tilfinningahiti i
spönsku tónlistinni. Sikileyingar
eru angurværari og textarnir
fjalla gjarnan um það sem fyrir
augu ber í daglegu lífi, vinnu
eða eitthvað álika hversdags-
legt. En eins og kunnugt er
syngja spánverjar um ástina,
sorgina, lifið og dauöann. T.d.
þá var ég niðrá Sikiley fyrir
skömmu og þar rakst ég alveg
óvænt á götusöngvara sem var
að syngja um ökumann i dags-
ins önn.
— Hvar verða áfangastaðir
Útsýnar?
„Okkar áfangastaður verður
Naxos, sem er gamall fiski-
mannabær á austurströnd Sikil-
eyjar. Naxos er bær sem eigin-
lega er á mörkum þess að vera
feröamannastaður og hefðbund-
inn sikileyskur fiskimannabær.
Hann er niðri við ströndina en
aðeins i sex kilómetra fjarlægð
upp i f jal li er T aorm ina sem va r
orðinn ferðamannastaður löngu
áður en Noröur-Evrópubúar
fóru að stunda sólarlandaferðir.
Listamenn sóttu þangað gjarn-
an til aö geta starfað i næði og
sem dæmi af þvi má nefna að
Halldór Laxness skrifaði
Vefarann mikla frá Kasmir i
Toarmina, þar var lika Þor-
valdur Skúlason um skeið og
málaði”.
— Hvað er sérstakt við
Taormina?
,,Það er fyrst og fremst lega
bæjarins og náttúrufegurðin I
kring. Taormina stendur uppá
fjalli 225 metra fyrir ofan
sjávarmál og bæjarmörkin eru
fram á bjargi sem er þverhnipt
niður isjóinn. útsýniðer hreint
ævintýralegt, hvort sem litið er
yfir sjóinn eða upp til f jalla. Það
er aðeins smáspölur frá
Taormina til Etnu semer hæsta
virka eldfjall i Evrópu.
— Þið verðið væntanlega með
kynnisferðir?
„Já. Við skipuleggjum dags-
feröir upp á aðalgig Etnu
kynnisferðir i Taorminu, það
verður farið i siglingu út á
Laparieyjar, svo verður siglt Ut
á eyjuna Vulcano (eldfjall). Þá
verður farið til SyrakUsa sem
var ein af háborgum griskrar
menningar. Þar má enn finna
miklar fornminjar svo sem
stóra griska leikhúsið. Þá
verðurfariði tveggja daga ferð
þar sem Agrigento veröur fyrsti
áfangastaöur, þar er aö finna
fjölmörg hof frá dögum grikkja
á Sikiley. Svona mætti lengi
telja þvi þaö er næstum enda-
laust sem forvitnilegt er að
skoða þarna suðurfrá”, sagði
Pétur.
-Sjó
Þu
býrö
vel
og
ódýrt
hjá okkur
plWri □
l=aliiy n
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
rk
*
*
i*
*
*
*
*
*
íMiðasala opin daglega frA
;kl. 14.00. Laugardaga og T
isunnudaga frá kl. 13.00.
Sala afsláttarkorta dag-~
lllur fengur
I kvöld kl. 20.30
sunnudag kl. 20.30
Ath. næstsiöasta sýning.
Elskaðu mig
laugardag kl. 20.30
Súrmjólk með sultu
ævintýri i alvöru
sunnudag kl. 15.
jSúrmjólk með sultu
! ævintýri i alvöru
sunnudag kl. 15.